Morgunblaðið - 13.03.1965, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 13.03.1965, Blaðsíða 27
Laugardagur 13. marz 1965 MORGUNBLAÐIB 27 Benedikt Gunnarsson við eitt af málverkum sínum á sýningunni. Eenedikt Gunnoisson heldui sýningu í Bogusul 1 DAG klukkan 3 opnar Bene- dikt Gunnarsson listmálari sýn- ingu á málverkum sínum í Boga- sal Þjóðminjasafnsins. Benedikt hefur víða tekið þátt í samsýn- ingum auk þess sem hann hefur haldið nokkrar sjálfstæðar sýn- ingar. Á sýningunni í Bogasalnum sýnir Benedikt að þessu sinni um 35 olíumálverk. Auk þess sýnir hann þar nokkrar „gríngrafik“- myndir, en nafnið „gríngrafik" hefur hann búið til sjálfur. Mynd irnar eru gerðar á þann hátt, að ljós er látið skína mismunandi mikið á framköllunarpappír. — Þessum myndum sínum hefur Benedikt gefið ýmis nöfn, svo sem „Harakiri“, „Póstmeistar- inn“ og ,,Geimgaldur“. Benedikt hefur, eins og áður er sagt, tekið þátt í mörgum sýn- ingum. Fyrsta sýning hans var í Frakklandi árið 1953. Hann hef- ur haldið 4 sjálfstæðar sýningar hér á landi, én tekið þátt í sam- sýningum í Finnlandi, Dan- mörku, Italíu og Sovétríkjunum. Hann hefur auk þess haldið eina sýningu á glermálverkum hér á landi. Þau listaverk Benedikts, sem hafa vakið hvað mesta athygli síðustu mánuði, eru fjórir glugg- ar, sem hann gerði sérstaklega fyrir hið nýuppkomna Hótel Holt í Reykjavík. Benedikt er bróðir annars þekkts listmálara, Veturliða Gunnarssonar. Lét hann þess getið til gamans í viðtali í gær, að þetta væri í fyrsta skipti, sem þeir bræður halda sýningu á sama misseri. — Alahama Framhald af bls. 1 í Selma til að vaka þar og biðjá íyrir séra Reeb. Þangað kom Willjam Baker, öryggismálafull trúi borgarinnar, að tilkynna lát prestsins. Þögn sló á hópinn sem stóð í rigningunni úti fyrrr kirkjudyrum og söng sálma er 3aker bar að, og fréttin um lát Reebs vakti mikla sorg og gremju. í Birming’ham komu mörg hundruð manna saman í skemmtigarði einum til að biðja fyrir séra Reeb. Forsetinn hefur lýst hryggð sinni vegna atburðar þessa, og sömuleiðis dr. Martin Luther King. f dag átti að fara hópgöngu í Selma í minningu séra Reebs en borgarstjórinn, Joseph T. Smit- herman, bannaði að gangan yrði farin, þó áður hefði verið lýst heimild til göngu blökkumanna þar í borg þennan dag. Voru göngumenn óráðnir nokkra stund er borgarstjóri byrsti sig og kvaðst hafa velferð borgar- innar að leiðarljósi. Blökku- mannaprestur einn, L. L. Ander- son, spurði þá Smitherman hvort hann myndi ekki heimila sér og fylgismönnum sínum að fara til þinghússins og 'hafa þar 15 mín- útna bænastund, það myndi stór um stuðla að friði og spekt í borginni, en Smitherman neitaði. „Við verðum þá hér áfram“, sagði Anderson, „við erum komn ir að mörkum fyrirheitna lands- ins þó við séu:m ein um að sjá það. Þetta er eins og í hernuim —- og ég hef verið í hernurn — við saekjum fram og vinnum á“. Ég vona að guð auðsýnl your miskunn. Ríkisstjórinn í Alaska, Willi- am Bgan, sa.gði frá því í Was- hington í gærkvöldi, að hann hefði sent Wallace ríkisstjóra í Alabama skeyti vegna láts séra James Reeb. Skeyti ríkisstjórans nyrðra til starfsbróður síns í Suð urríkjunum hljóðaði svx>: „Af öllu hjarta, George Wallace, er það mín U’ú, að á yður hvíii meiri sök en á þeim, sem vopn unum beittu og drápu James J. Reeb. Þegar dómsdagur rennur up vona ég að guð í sinni óendan legu náð geti fundið einhverja leið til þess að miskunna yðar aumu sál“, Stríðir mót alríkislögum. Nicholas Katzenbach, dóms- málaráöherra, saigði í gær að atferli ríkislögreglunnar í Ala- bama í átökunum við göngu blökkumanna í Selma á sunnu- daig stríddi móti alríkislögum og myndu hinir seku sæta réttri refsingu fyrir. Sagði dómsmála ráðherann að alríkisyfirvöld hefðu skorizt í leikinn fljótt og af festu, til þess að hindra frek- ari óeirðir, og myndu gera aftur ef þörf krefði. Ekki sagði hann þó að tekin hefði verið ákvörðun um að senda airíkislögreglulið suður. Út með alla mótmaelendur. Johnson forseti gaf í dag út fyrirskipun þess efnis að fjar- lægja skyldi úr Hvíta húsirau alla þá er þangað kæmu til mót- mælaaðgerða, án tillits til þess hvaða málstað þeir styðji. Þessi ráðstöfun forsetans er til komin af því að í gær tók sig til hópur ungmenna og vildi láta fyrirber- ast í Hvíta húsinu til að undir- strika kröfurnar um íhlutun al- rikisyfirvalda í Alabama. Lög- reglan kom hópnum brott eftir sjö stunda setu þar á göngum. Kirkjunnar menn koma saman. Um 4000 og aðrir kirkjunnar menn af öllum trúarflokk- um komu saman í Wash- hington í dag til þess að lýsa stuðningi sínum við málstað blökkumanna í Alabama. Komu klerkar til Washington með flug vélum, í lestum, í eirakabílum og með langferðabílum. Hófst fundurinn með söng, en síðan var beðið þess að aftur kasinu prestarnir 16, sem gerðir höfðu verið út af örkinni til fundar við Johnson forseta. Létu þeir vel af viðræðunum og kváðust ánægðir með ráðagerðir forset- ans til úiiausuax í málin.u. i Leikf élag Reykiavíkur f rusii' sýnir ítalskan skopleik LEIKFÉLAG Reykjavíkur frum sýnir n.k. miðvikudagskvöld skopleikinn „Þjófar, lík og falar konur*‘ eftir ítalska rithöfund- inn og leikarann Dario Fo, í þýð ingu Sveins Einarssonar, leik- hússtjóra. Leikstjóri er Christian Lund frá Borgarleikhúsinu í Stokkhólmi. í leikritinu er tónlist eftir Fiorenzo Garpi og dansar, sem Lilja Hallgrímsdóttir hefur æft. Dario Fo er mjög kunnur leik ritahöfundur í heimalandi sínu, og á síðustu árum hafa leikrit ettir' hann verið sýnd er- lendist. Þannig voru til dæmis á síðasta leikári sýnd verk eftir hann í 12 leikhúsum á Noröur- löndum. Hann skrifaði fyrsta leikrit sitt 1959, og hefur síð.rt skrifað fjögur önnur. Auk ‘þess hefur hann samið átta einþátt- unga. Ekkert verka, hans hefur fyrr verið sýnt eða leikið hér á landi. Sjálfur hefur höfundur leik- flokk á ítalíu, og skrifar leikrit sín fyrir hann. Ætlar harm þá sjálfum sér aðal karlmannáhlut verkið, en konu sinni, sem einn ig er þekkt leikkona, aðal kveu hlutverkið. Sýna þau venjulega nýtt leikrit á hverju hausti í stærsta leikhúsi Milanó. Þar snj. þau í þrjá mánuði, en íerðast síðan um landið. Skopleikurinn, sem hér «r sýndur, er í rauninni þrír ein- þáttungar. Að sögn Sveins Ein- arssonar, leikhússtjóra, er leik- urinn fjörugur á yfirborðinu, en með alvarlegum undirtón. Hlu-t- verk eru alls 14, og með þau fara Gísli Halldórsson, Bry.tijólf ur Jóhannesson, Haraldur Björns son, Guðmundur Pálsson, Guð- rún Ásmundsdóttir, Margrét Ólafsdóttir, Bríet Héðinsdóttir-, Erlingur Gíslason, Amar Jéns- son, Borgar Gar’ðarsSon, Pétur Einarsson, Jóhann Pálsson, Bjarni Steingrímsson og Valgerð ur Dan. Mýr aðalféhirðlr Utvegsbankans Á FUNDI bankaráðs Útvegs- banka íslands í gær, var ísak Örn Hringsson ráðinn aðalféhirð ir bankans. ísak Örn hefur starf að 1 bankanum um 16 ára skeið og jafnan verið gjaldkeri. Hann er tæplega 35 ára að aldri. — Úlvarpið Framhald af bls. 5 sem áríðandi væri að finna Iaúsn á hið bráðasta. Þó yrðu menn að kynna sér þessi mál sem ýtarleg- ast, áður en reynt yrði að kippa þeim í lag til frambúðar og flasa ekki að neinu að vanhugsuðu máli. Vitnaði hann í því sam- bandi í spakmæli eftir Goethe: „Ekkert er uggvænlegra en at- hafnasöm fáfræði“. Sá atburður gerðist fyrir Norð urlandi þessa viku, að sögn út- varpsins, að þar sást hafísjaki, sem, eins og það var orðað ,4«ær eins langt norður og skyggm leyfir“. Sem vænta mátti var frétt þessi endurtekin a.m.k. einu sinni. — Þetta bendir til þess, að í slæmu skyggni kunni hafís- jakarnir að sýna engu minni var- hygli en ýmsir sæfarar af mann- legum kynstofni. Þetta hefur þá „landsinsf forna fjanda“ farrð fram, síðan hann var hér á ferð á árunum. Hann skyldi þó ókki vera farinn að hallast að frið- samlegri sambúð eins og Kosy- gin? Sveima Kristinssoa. Neytendoblaðið með séistökum uppl. vegnu sporaaðunriku SPARNAÐARVIKA sú, er Neyt- endasamtökin boðuðu nýlega, að þau myndu efna til í margþætt- um tiigangi, mun hef jast í næstu viku, svo sem nánar mun þá skýrt frá. Var beðið eftir því, að hið nýja verð á kjötvörum og mjólkurvörum yrði tilkynnt. En í Neytendabiaðinu, sem kemur út í sanibandi við sparnaðarvik- una, verður birtur ýtarlegur iisti yfir verð á öllum helztu matvörum, sem hér er á boðstól- um: á þriðja hundrað vöruverða er getið, og mun mörgum þykja það fróðlegur lestur og gagn- legur. Verðþekking manna hér á landi er ekki upp á marga fiska, enda er ætlunin að bæta úr því. Blaðið er sent meðlimum sam- takanna í pósti, en árgjald er að- eins kr. 100.—, og mætti t.d. auð- veldlega ná þeim á einum sunnu- degi af ársins fimmtíu og tveim- ur, án þess að maturinn væri neitt lakari en venjulega, nema síður væri. Verðlistinn nær yfir kjötvörur hvers konar, fiskmeti, mjólkur- vörur, mjölvörur, brauðvörur, garðávexti og grænmeti, nýja ávexti sem og þurrkaða og niður soðna, nýlenduvörur, öl og gos- drykki. Þá er þess einnig getið, hvernig hvert verð er til komið, þ.e. hvaða aðili standi þar að baki. Þá er birtur útreikningur á vísitölu framfærslukostnaðar, skýrt frá skyldum um verðmerk ingar og ýmislegt fleira er í rit- inu. Alhingi Framh. af bls. 8. Björn Pálsson sagði enrafrem- ur, að mörg ákvæði frumvarps- ins væru þannig, að ómögulegt væri að framfylgja þeim, því að börn ynnu t.d. ekki lengur en 8 tíma á dag. að fólk n.yndi blátt áfram ekki komast hjá því að brjóta þau. Einar Oigeirsson (Alþbl) sagði m.a., að þetta frumvarp, sem væri stjómarfrumvarp, væri eitt hið bezta, sem frá núverandi ríkisstjórn hefði komið. Hefði verið unnið að þessu frumvarpi í menntamálanefnd af miklurn áhuga allan veturinn og hefði verið full samstaða um það þar. Gagnrýndi Einar hrðlega þau sjónarmið, sem fram höfðu kom ið hjá Birni Pálssyni. Xallaði hann þau hreppstjórasjónarmið og sagði, að með þeim væri ver- ið að vekja upp hugsunarhátt síðustu aldamóta Guðlaugur Gíslason (S) sagði m.a., að margt í frumvarpinu væri til bóta, þótt sumt kynni að orka tvímælis. Þá ræddi hann um ákvæði frumvarpsins um há- marksvinnutíma barna og sagði þau mjög til bóta. Hann kvaðst samt vera sannfærður um, að ef ætti að banna vinnu barna fram til 15 ára ldurs, eins og Einar Olgeirsson hafði mælt með, þá væri það ófram/kvæmanlegt vegna almenningsálitsins. Sagði hann, að gæta yrði þess að láta ekki frumvarpið fara þannig frá Alþingi, að ekki yrði unnt fyrir fólk að framfylgja ákvæðum þess. Umræðum um frumvarpið var síðan haldið áfram á kvöldfundi. Þar fylgdi Björn Pálsson skoðun um sínum eftir, með því að hann lýsti því yfir, að hann myndi greiða atkvæði gegn frumvarp- inu og krafðist nafnakalls. Að umræðum loknum var frumvarp inu vísað til Efri deildar að við- höfðu nafnakalli samkv. kröfu Björns Pálssonar og var hann eini þinigmaðurinn, sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu. Önnur mái. Frumvarpi um hjúkrunarlög, sem var á dagskrá, var vísað til 3. umræðu. Þá var frumvarpi til girðingarlaga vísað til 3. um- rasðu. Frumvarp um breytingu á lögum um almannatrygginigar var til 1. umræðu og var visað til 2. umræðu og nefndar. Þá var frumvarpi varðandi Landsspitala Islands, sem einnig var til 1. um ræðu, líka vísað til 2. umxæðu og nefrxlar. — Utan úr heimi Framhald af bls. 14. og umsækjendum um stöður við sjónvarpið þar að fylgj- ast með starfseminni við hin- ar ýmsu sjónvarpsstöðvar á Norðurlöndum. Hægt væri að lána dagskrármyndir og láta í té ýmisskonar leiðbeiningar um tæknileg atriði o.a. Slík hagnýt norræn samvinna á svfði menningarmála gæti rennt styrkum stoðum undir íslenzka sjónvarpið er það hefur göngu sína. Norðurlandaráð hefur ný- lokið fundum sínum í Reykja vík. Fundarmenn hafa snúið heimleiðis fullir aðdáunar og hrifningar ekki einasta af eld gosum og umbrotum jarðar heldur einnig af sköpunar- mætti þeim sem birtist í bess- um sömu eldgosum og um- brotum, svo við vitnum í orð rithöfundarins Olofs Lager- cranz. Ættum við þá ekki að leggjast á eitt um virka greið vikni — og vináttuvott — handan yfir Atlantsála? — Sólarlöndin Framhald af bls. 15 prenta milljónir af bækling- um til dreifingar. Bæjar- og sveitarfélög 9vo og einstök fyrirtæki gefa líka út fjöl- skrúðuga bæklinga til dreif- ingar erlendis, því jafnan þarf að legja út peninga ef von á að vera á hagnaði. Og tekjur Dana af ferðamön.num eru geysilegar, sagði Vil- hjálmur. — Við hér í Kaupmanna- höfn sjáum lítið eða ekkert frá Ferðaskrifstofu ríkisins — þ.e.a.s. af áróðurs- og kynn- ingarefni. íslenzk stjómar- völd mættu að * skaðlausu leggja meira fé til þessarar starfsemi — og við mundum kunna vel að meta alla að- stoð hverju nafni sem hún nefnist. Flugifélagið hefur keypt Surtseyjarkvikmynd og á undanförnum ámm höfum við verið með eitt og annað af því tagi, sem við lánum félögium og ýmsum samtök- um til sýninga á félagsfund- um, notum við kynningu á ýmsum sviðum. Aldrei er of mikið af sliku efni, því góðar kvikmyndir eru áhrifameiri í landkynningu en flest — eða allt annað. Þess vegna sakna ég þess m.a. hve sjaldan ís- land sést í daraska sjónvarp- inu. Vonandi stendur það til bóta. — h.j.h.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.