Morgunblaðið - 07.04.1965, Side 8

Morgunblaðið - 07.04.1965, Side 8
9 MORGUNBLADIÐ Miðvikudagur 7. apríl 1965 FRUMVARP til nýrrar tollskrár var til 1. umræðu í Efri deild í gær og mælti Gunnar Thorodd- sen fjármálaráðherra fyrir því. Þá gerði Þorvaldur G. Kristjáns- son grein fyrir nefndaráliti og breytingartillögum heilbrigðis- og félagsmálanefndar um frum- varp um Húsnæðismálastofnun ríkisins. I Neðri deild urðu enn miklar umræður um frumvarp til lækna skipunarlaga, sem þar var til 3. umræðu. EFRI DEILD Tollskrá Gunnar Thoroddsen fjármála- ráðherra mælti fyrir frumvarpi til nýrrar tollskrár og sagði að frumvarpið fjallaði að meginefni til um lækkun tolls af ýmsum vélum og tækjum atvinnuveg- anna. Með setningu tollskrárlaga ‘ á árinu 1963 var ákveðin veruleg lækkun á tollum af landbúnaðar- vélum og sömuleiðis lækkaðir tollar á ýmsum vélum og tækj- um til fiskveiða. Hins vegar var að svo stöddu ekki talið fært að lækka tolla á vélum almennt frá því, sem verið hafði, en á þeim var yfirleitt 35% tollur og er svo ákveðið í tollskránni frá 1963. Þessi mál þurftu nánari athug- unar og með bréfi 16. desember 1963 fól hann tollskrárnefnd að kanna möguleika á lækkun tolla af vélum og tækjum almennt. í því bréfi voru sérstaklega rakin viss atriði, sem þyrftu sérstakr- ar athugunar við, i fyrsta lagi að hve miklu leyti væri fram- kvæmanlegt að ákveða tolla af vélum og tækj- um til vinnslu útflutningsaf- urða væru á vélum og tækj- um til annarra nota, og í öðru *^gi ^.Ye Þ0ð mundi kosta nkissjóð, ef lækkaðir væru toll- ar á vinnuvélum og öðrum tækj- um þess iðnaðar, sem framleiðir vörur og veitir þjónustu fyrir innlendan markað. Enn fremur átti nefndin að athuga, hvaða aðrar breytingar kynni að þurfa að gera á tollskránni, ef tollar á vélum og tækjum yrðu Isékkað- ir, og jafnframt fjárhagslegar af- leiðingar af öllum þessum fyrir- huguðu breytingum. í>á var lögð á það sérstök áherzla, að í þessu sambandi um lækkun véla og tolla þyrfti að athuga áhrif lækk unar þeirra á samkeppnisaðstöðu innlendra vélaframleiðslu eða hins íslenzka iðnaðar. Tollskrár- nefnd hefur fyrir nokkru skilað tillögum sínum um þetta efni og frumvarpið, sem hér liggur fyrir í meginatriðum í samræmi við þær tillögur. Meginatriðin eru þessi. í fyrsta lagi að lækka tolla á almennum iðnaðarvélum úr 35% í 25%. í öðru lagi að lækka tolla á vélum og tækjum til vinnslu útflutningsafurða almennt úr 35% niður í 10%. í þriðja lagi, að séu slíkar vélar jafnframt framleiddar hér innanlands, skulu tollur af þeim innfluttu vélum, sem eru hliðstæðar, vera 15% en ekki 10%. f fjórða lagi er gert ráð fyrir að lækka tolla á síldardælum, sem nú eru mjög að ryðja sér til rúms, niður í 4% og er það í samræmi við toll á kraftblökkum. Það eru nú sam- kvæmt tollskránni einstakar iðn- aðarvélar, sem bera 50% toll, og þær eru lækkaðar niður í 35%. Nú er það svo, að ýmsar af þeim vélum og ýmiss af þeim tækjum, sem þessi tollalækkun nær til, eru framleiddar hér í landinu og því hefur verið ákveðið að end- urgreiða tolla af efni í slíkar vél- ar, sem framleiddar eru innan- lands að svo miklu leyti, sem toll ar af efninu í vélarnar eru hærri en tollar af vélunum sjálfum. Nú er heimilt í 3. gr. tollskrárinnar, 12. tölulið, til að lækka gjöld af efni í innlendar framleiðsluvör- ur, þegar efnisvaran er með hærra gjaldi heldur en hin full- unna, innflutta vara. Þetta á- kvæði er rýmkað með upphafi 2. gr. í þessu frumvarpi, þannig að í stað heimildarinnar til að lækka gjöld af þessu efni í þessar inn- lendu framleiðsluvörur, sé heim- ilt að lækka eða endurgreiða sem sagt að fullu. En varðandi inn- lendu framleiðsluna er það að segja, að auk slíkrar lækkunar eða endurgreiðslu á efni í vélarn- ar, hefur verið ákveðið að fella niður söluskatt af framleiðslu vél anna, til þess að auðvelda hinum innlendu framleiðendum að standast samkeppni við innflutt- ar vélar. Þetta þykir nauðsyn- legt vegna þess, að hér er um svo verulega lækkun tolla á þessum vélum fyrir útflutningsatvinnu- vegina að ræða eða úr 35% niður í 15%, að sjálfsagt þykir og nauð- synlegt að veita hinum innlenda iðnaði þann stuðning, sem felst í því að fella niður söluskattinn af hinum innlendu vélum. Auk lækkananna á vélatollum, eru í frv. nokkur ákvæði tækni- legs eðlis um staðfestingar á eldri úrskurði, sem telja verður, að muni standa til frambúðar og þykir rétt að taka slíkt inn í toll- skrárlögin nú með viðeigandi tollaprósentum. Sum þessara at- riða standa í sambandi við milli- ríkjasamninga, eins og að er vik- ið í greinargerð frv. Sú nýjung mun vera nú að ryðja sér til rúms varðandi mjólkurgeymslu og mjólkurflutninga, að nota stóra geyma til þess 'að geyma í mjólk heima á sveitabæjum og mjólkin síðan tekin úr þessum geymum beint á stóra tankbíla og flutt þannig til mjólkurbúanna. Þá má gera ráð fyrir því, að þessir geymar, sem eru úr ryðfríu stáli, komi á næstunni að verulegu leyti í stað mjólkurbrúsa og er lagt til, að tollar á slíkum geym- um séu lækkaðir úr 50%, eins og er í gildandi tollskrá, niður í 25%. í gildandi tollskrá er heimild til þess að fella eða lækka gjöld af bifreiðum fyrir öryrkja eða fyr ir lamað og fatlað fólk, allt að 150 á ári. Það er sérstök nefnd lækna, sem ákveður það, hverjir njóta þessara hlunninda á hverj- um tíma, en þessi læknanefnd hefur eindregið farið fram á það, að þessi tala, 150, verði hækkuð upp í 250 á ári og enn fremuf ætlaðar 50 til endurveitinga á áður veittum undanþágum. Þess- ar tillögur læknanefndarinnar eru teknar upp í þetta frv. Þá er lagt til, að tekin sé upp heimild til þess að endurgreiða gjöld af rúmum, sem flutt eru inn til notk unar í sjúkrahúsum. Rúm þessi bera nú 90% toll, en ef þau eru ekki með sérstökum meckaniisk- um útbúnaði fyrir sjúkrahús, en með þessum breytingum er gert ráð fyrir, að endanlegur tollur verði 35%, þegar endurgreiðslu- heimildin er nú notuð. Loks er nýmæli, sem stendur í sambandi við það frv. um nafnskírteini, sem liggur fyrir, og er það í 3. gr. frv., að ef ákveðið verður í lögum, að hver einstaklingur og hvert fyrirtæki skuli hafa auð- kennisnúmer, sé fjármálaráð- herra heimilt að mæla svo fyrir, að sérhver innflytjandi skuli til- greina númer sitt á aðflutnings- skýrslu. Þetta nýmæli er sett inn eftir tillögu hagstofustjóra. Hug- myndin er sú, að stofnað yrði við hagstofuna eða komið á fót við hagstofúna sérstakri fyrirtækja- skrá, sem yrði að því, er fyrir- tæki snertir, hliðstæð þjóð- skránni að því, er varðar skrán- ingu einstaklinga. Auk fjármálaráðherra tóku til máls í umræðum um þetta mál þeir Helgi Bergs (F) og Björn Jónsson (Alþbl.) Var frumvarpinu síðan vísað til 2. umræðu og fjárhagsnefnd- ar. — Húsnæðismálastofnun ríkisins Þorvaldur G. Kristjánsson (S) gerði grein fyrir áliti meiri hluta heilbrigðis- og félagsmálanefnd- ar um frumvarp um Húsnæðis- málastofnun rikisins, sem var til 2. umræðu, svo og fyrir breyt ingartillögum, sem meiri hluti nefndarinnar heJ Sagði Þorvaldur, að meiri hluti nefndarinnar mælti með sam- þykkt frum- varpsins. Ræddi Þorvaldur síðan um nýmæli frv., en þau eru eink um, að auknar verði tekjur byggingasjóðs ríkisins með því að leggja á almennan launaskatt, sem renni í sjóinn, sbr. lög, sem þegar hefðu verið sett um það efni. Enn fremur er lagt til, að ríkissjóður greiði árlega framlag til sjóðsins, að fjárhæð 40.000.000 krónur. Þá er í frumvarpinu gert ráð fyrir að heimild veðdeildar Landsbanka íslands til útgáfu bankavaxtabréfa, sem nú nemur 150 millj. kr. á ári í 10 ár, verði hækkuð í 400 millj. kr. og er lagt til að öll þessi bréf verði með vísitölukjörum. Einnig skal ár- legu framlagi ríkissióðs til at- vinnuleysistrygginga verða var- ið til kaupa á vaxtabréfum veð- deildarinnar. í frumvarpinu er enn fremur lagt til, að hámarkslán til íbúða verði hækkað úr 150 þúsund kr. í 280 þús. kr. og að verja skuíi 15—20 millj. kr. til þess að veita hærri lán til efnalítilla meðlima verkalýðsfélaga. Samkvæmt frumvarpinu er lagt til, að lánskjörum verði breytt þannig, að lánin verði til 25 ára með 4% ársvöxtum og af borganalaus fyrsta árið. Helzta ákvæðið í breytingar- tillögum meiri hluta nefndarinn ar er, að til þess að mæta fram- lagi ríkissjóðs, að fjárhæð kr. 40 millj. skuli miða eignarskatt við gildandi fasteignamat þrefaldað. Þetta gildir þó ekki fyrir þá skattgreiðendur, sem eiga lög- heimili á sveitabæjum. Þorvaldur G. Kristjánsson gat þess í lok ræðu sinnar að með hinu nýja frumvarpi myndi verða unnt að veita 750 lán upp á kr. 280.000.00 kr. auk umfram lánanna til efnalítilla meðlima verkalýðsfélaga eða 220—230 millj. kr. á ári til íbúðalána Hús- næðismálastjórnar. Hafa lán hús næðismálastjórnar hækkað um 280—300% á sama tíma og vísi- tala byggingakostnaðar hefur hækkað um 77% þ.e. frá árslok- um 1958. NEÐRI DEILD. Læknaskipunarlög Einar Olgeirsson (Alþbl.) tal- aði fyrstur í umræðunum um læknaskipunarfrumvarpið, sem nú var til 3. umræðu. Mælti hann að nýju fyrir tillögu sinni um námslaun handa læknastúdent- um, en hann hafði tekið þessa tillögu við 2. umræðu frumvarps ins aftur til 3. umræðu. Þá gerði Sigurvin Einarsson (F) grein fyrir breytingartillögu, sem hann hafði einnig tekið aftur við 2. umræðu til 3. umræðu og var efni hennar á þá leið, að veitt yrði fjárhagsleg aðstoð til fólks, sem þarf að leita sér læknishjalp ar, ef það er búsett í læknishéraði þar sem læknislaust er orðið. Ragnar Arnalds (Alþbl.) gagn rýndi ummæli Gylfa Þ. Gíslason ar, menntamálaráðherra, um að- stoð við stúdenta, sem ráðherr- ann viðhafði í fyrri viku, er frum varpið var til umræðu, þar sem hann sagði, að framlög til stuðn- ings íslenzkum námsmönnum hefði sextánfaldazt á sl. 15 ár- um. Matthías Bjarnason (S) kvaðst vilja taka það fram, að heilbrigð- is- og félagsmálanefnd hefði fjallað um breytingartillögur þeirra Einars og Sigurvins fyrr um morguninn og áliti meiri hl. hennar þessar tillögur ekki nógu fullkomnar né nógu vel undir- búnar. Benti hann á þá tillögu, sem í frumvarpinu er um ríkis- lán handa læknastúdentum gegn skyldu um læknisstprf um tíma að námi loknu í héraði. Hvað snerti tillögu Sigurvins Einarssonar væri meiri hluti nefndarinnar þeirrar skoðunar, að hraða bæri endurskoðun laga um læknavitjunarsjóð. Kvaðst Matthías álíta, að tillaga Sigur- vins væri gölluð að því leyti, að vel gæti verið, að fólk yrði að kosta miklu til læknisvitjana, enda þótt læknir væri í héraðinu og þannig myndi skapast mis- ræmi í aðstöðu fólks í dreifbýl- inu. Hann áliti miklu réttar að efla læknavitjunarsjóð. Bjarni Benediktsson, forsætis- ráðherra, sagði m.a., að tillaga Sigurvins Einarssonar fengi ekki staðizt eins og hún væri. Það væri ekki úrskurðaratriði um þörf til aðstoðar við læknisvitj- un, hvort læknir er fyrir hendi í læknishéraði hverju sinni, held- ur það, sem skæri úr um kostnaðinn, skæri úr pm það hvort réttmætt sé eða ástæða að hjálpa til við greiðslu hans handa þeim ein- staklingi, sem í hlut á hverju sinni. Fram hjá þessu meginat- riði málsins væri alveg gengið í tillögu Sigurvins og þegar af þeirri ástæðu væri ekki hægt að veita henni stuðning. Væri ljóst, að málið allt þyrfti miklu nán- ari athugunar við. Forsætisráðherra vék síðan að ummælum Ragnars Arnalds, sem í ræðu sinni hafði lesið upp hluta af yfirlýsingu frá Félagi læknanema og hafði sá hluti eink um beinzt að ummælum forsæt- isráðherra áður í umræðum um frumvarpið. Sagði forsætisráð- herra, að þegar að öll atriði væru skoðuð, þá væri það álit sitt, að betur væri búið að náms- mönnum hér en í flestum ná- grannalöndum okkar og kvaðst hann vænta þess að fram færi á því hlutlaus skoðun, enda hefði þessu ekki verið hnekkt og það, sem öllu máli skipti varðandi rétta skoðun á þessu máli, væri hvort í heild er verr búið að mönnum á námsárum þeirra hér á landi eða í þeim löndum, sem þeir sækja til og vilja að öðru leyti miða laun sín hér við. Hitt væri svo alveg rétt, að sjáifsagt stæði hér margt til bóta enn og eðlilegt væri, að þessi mál verði endurskoðuð á ný. Hins vegar þarfnaðist tillaga Einars Olgeirssonar miklu nánari íhug- unar við. Forsætisráðherra gat þess 1 lok ræðu sinnar, að það væri beint spor aftur á bak í þjóðfélagshátt um okkar, ef við ættum að taka upp þann gamla sið yfirstéttanna á meginlandi Evrópu, að það þyki til skammar og lítilsvirð- ingar að námi sé þannig hagað, að stúdentar og aðrir námsmenn geti ekki unnið með því fólki, sem þeir síðan eiga að lifa með í landinu. Og hann teldi að þó að það sé mikilsvert, að menn læri mikið í læknisfræði, og vitan- lega eigum við allir læknunum meira að þakka en orð fá lýst og metum þeirra þekkingu rétti- lega, þá er þó hitt mikilsvert varð andi þá og aðra hina svo kölluðu lærðu stéttir, að þær haldi tengslum við sitt samfélag, við sitt þjóðfélag, að menn átti sig á því, að viss kröfugerð getur ver ið réttmæt, en ef á að gleyma því, að við höldum uppi einstæðu þjóðfélagi fámennur hópur á norðlægu eylandi, sem ýmsir mundu telja óbyggilegt, og að til þess að slíkt verði að gera, þá verða jafnvel þeir langlærð- ustu að sætta sig við önnur kjör hér en þeir geta hlotið með sín- um lærdómi í öðrum löndum, og það er eðlilegt að þeir sætti sig við önnur kjör heldur en þeir gætu hlotið annars staðar, vegna þess að sína aðstöðu hafa þeir fengið fyrir, að við höfum öll hjálpazt til að afla þeim þeirreir fræðslu, er þeir hafa hlotið. Auk framangreindra ræðu- manna tóku til máls Gylfi Þ. Gíslason, menntamálaráðherra, Hannibal Valdimarsson (Alþbl.) og Þórarinn Þórarinsson (F) ea síðan var málið tekið af dagskrá. Landamerki Björn Fr. Björnsson (F) gerðl grein fyrir áliti allsherjarnefnd- ar um breytingu á lögum um landamerki, þar sem mælt var með samþykkt frumvarpsins, en eitt helzta ákvæði þess er, a<5 kostnaður dómenda af landa- merkjamáli verði greiddur af al- mannafé eins og er í öðrum dóms málum. Var frumvarpinu síðan vísað til 3. umræðu. Tekur sæti á Alþingi Sigfús Johnsen SIGFÚS JOHNSEN, Vestmanna- eyjum, 2. varamaður Sjálfstæðis flokksins í Suðurnesjakjördæmi tók í gær sæti á Alþingi í stað Guðlaugs Gíslasonar, sem verður fjarverandi um sinn. Fór fram rannsókn á kjörbréfi Sigfúsar, með því að hann hefur ekki áð- ur átt sæti á Alþingi, og var það samþykkt samhljóða. Bækur um sjó- tryggingar SAMBAND íslenzkra trygginga- félaga hefur rekið hér trygging- arskóla undanfarin 3 ár. Hefur skólinn haldið námskeið í hinum ýmsu greinum trygginga fyrir starfsfólk tryggingafélaganna. Nú hefur á skólans vegum verið ráð- izt í að gefa út hentugar kennslu- bækur í sjótryggingum, en slíkra bóka hefur ekki verið völ til þessa. Bækurnar, sem nú eru komnar út, eru fjórar talsins: Saga sjótrygginga, eftir Þorstein Egilsson og „Lloyds“ eftir Gísla Ólafsson, forstjóra, í einu bindi, Skipatryggingar eftir Þorstein Egilsson, Farmtryggingar eftir Jón Rafn Guðmundsson, deildar- stjóra og Sameiginlegt sjótjón eftir Björn Helgason, lögfræðing. Ætlunin er að síðar komi út 2—3 bækur til viðbótar um sama svið trygginga. Bækur þessar ættu að geta komið ýmsum öðrum en trygg- ingafólki að notum og geta menn keypt þær hjá Þóri Bergssyni, skólastjóra að Vitastíg 4A.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.