Morgunblaðið - 07.04.1965, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 07.04.1965, Blaðsíða 15
Míðvikudagur 7. apríl 1965 MOIRGIJINBIABIB 15 Þjóðleikbúsiið (Lifla swiðíið): Kamnerfénlist og tveir balletfar ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ frumsýndi sl. sunnudagskvöld á litla sviðinu í Lindarbæ stutta balletta, Visions fugitives og Stúlkuna með blöðr- una, við tónlíst eftir Prokofieff og Dave Brubeck, »n ballettmeist ari Þjóðleikhússins Fay Werner, hefur samið báða dansana. Hinn fyrti er í klassískum stíl en hinn siðari mætti líklega kalla jazz- ballett eða öllu heldur ballett í nútíma stíl. — Þá leika þarna einnig nokkrir nemendur Tónlist- arskólans tvö tónverk eftir Mozart, Kvartett fyrir flautu og strengi K 2&5 o.g kvintett^ fyrir klarinett og strengi K 581. Ég hef ekki faglega þekkingu á þessum listgreinum, hn hef þó haft nokk ur kynni af þeim bæði hér og erlendis einkum á Edinborgarhá- tíðinni, þar sem jafnan koma fram heimefrægar hljómsveitir ■og tónlistarmenn og ballettflokk- ar frá ýmsum löndum. — Ég hafði mikið yndi af þessari kvöld stund í Lindarbæ. Virtist mér flutningur hinna ungu hljóðfæra- leikara á hinum fögru tónverkum sniltingsins mi'kla með ágætum og bæði þeim sjálfum og Tónlist- arskólanum til sóma. Sérstaka athygli vakti flautuleikur Jóns H. Sigurbjörnssonar og klarinett- leikur Sigurðar Steinþórssonar, er bar vott um næma músikgáfu þeirra og örugga kunnáttu. Þá þótti mér og mikið koma til fiðlu Ieiks Guðnýjar Guðmundsdóttur og celloleiks Gunnars Björnsson- ar. Þetta unga fólk er vissulega góðir fulltrúar islenzkrar æsku og vekja hjá manni bjartar vonir um framtíð hennar. Ballettar ungfrú Werner þótti mér mjög skemmtilegir og falla einkar vel að tónlistinni. Hinar ungu og fríðu stúikur svifu um sviðið með mjúkum hreyfingum og miklum yndisþokka og eini karlmaðurinn, sem tók þátt í dansinum, Þórarinn Baldvinsson, gerði sínu hlutverki einnig hin ágætustu skil. Síðari dansinn, Stúlkan með blöðruna, vakti sérstaka hrifni áhorfenda, enda var hann bráð- skemmtilegur og tónlistin við hann prýðisgóð. Með aðalhlut- verkið í þessum dansi fór Jytte Moestrup, glæsileg stúika, björt og fagurlimuð. Vakti dans henn- ar og svipbrigði mikinn fögnuð GRUSS AUS ISLAND Úbersetxungen islándischer von Alexander Jóhannesson. ÞETTA er ekki stór bók, aðeins 91 bls. í litlu broti. Falleg bók, vel frá henni gengið að öllu leyti. Pappír góður, ágætt letur, smekk legt band. í bókinni eru 31 kvæði eða brot úr kvæðum, þýdd á þýzku af prófessor dr. Alexand- er Jóhannessyni, sem er einn af þekktustu mönnum núlifandi vegna vísindastarfa um langan aldur. Hann var háskólakennari frá 1915 til sjötugs og lengst allra manna háskólarektor. Fyrir hans atbeina og dugnað kom Háskóli vor upp myndarlegri byggingu og stúdentagarði áður en verðlag' áhorfenda. Hygg ég að hún gæti náð miklum frama í þessari list- grein en til þess þarf langt og erfitt nám og mikla þjálfun. hækkaði til muna, þótt fleiri menn ynnu að því með hopum. Dr. Alexander var aðalhvatamað ur að stofnun Happdrætis Há- skóla Islands. Hann er mikill at- orkumaður um ýmis konar fram- kvæmdir enda áhugasamur um mörg framfaramál. Má þar nefna flugmál, enda flaug dr. Alexand- .er í hinum litlu og yeikbyggðu flugvélum er fyrst voru notaðar hér. Hann er kjarkmaður mikill og sá það fyrir að öflugar og traustar flugsamgöngur voru nauðsyn okkar afskekkta landi. — Dr. Alexander er málfræðing- ur, hefur m.a. þýtt nokkuð af öndvegisbókmenntum heims á ís lenzku og sýnt með því að hann Dansendumir eru allir nemendur í Listdansskóla Þjóðleikhússins. Búningana hefur Lárus Ingólfs son teiknað af mikilli smekkvísi. er skáldmæltur vel og orðhagur. — En þetta átti nú ekki að vera nein ævisaga dr. Alexanders Jó- hannessonar, heldur stutt umsögn um hinar nýju ljóðaþýðingar hans, en nokkrar þeirra munu þó gerðar fyrir löngu. I bókinni eru kvæði eftir 21 höfund, eitt eða fleiri kvæði eftir hvern höf- und, flest eftir þá Stefán frá Hvítadal og Davið Stefánsson, fjögur eftir hvorn, en tvö eftir þá Tómas Guðmundsson, Jónas Hallgrimsson, Matthías Jochums- son og Grím Thomsen, hvern. — Annars eitt kvæði eftir hvert skáld. — íslenzki textinn er prentaður á fremri siðu hverrar opnu en þýzka þýðingin á aftari síðu, þannig að samanburður verður lesendum auðveldari. Er þetta rnikill kostur Þá er ísl. tón skáld hafa gert lög við kvæðin er þess getið á eftir hverju kvæði, Mér virðast þýðingar þessar Ljósameistarinn Ingvi Hjörteíts- son átti oig góðan þátt í þessari sýningu. S. Gr. mjög vel gerðar, þannig unnar, að kvæðin hafa ekki tapað skáld- legum blæ né reisn. Bera kvæðin það með sér að þýðandinn eí starfi sínu vel vaxinn og hefði vafalaust getað orðið liðtækt skáld og er það kannski, þótt ekki hafi hann flíkað svo svo mér. sé kunnugt nema í þýðingum. Dr. Alexander er jafnvígur á bæði málin, íslenzku og þýzku, en það er ólíkt vandameira að þýða af sínu eigin máli á erlent mál en á sitt eigið mál úr er- lendu. Það er ekki smáræðis vandi að ná litblæ þeim er mörg af þeim erindum og kvæðum, sem dr. Alexander hefur þýtt, geisla frá sér. Oft notar hann íslenzkar bragreglur svo sem höfuðstafi og fer það ágætlega og er það til mikillar prýði. Ég mun ekki fara út í það, að lýsa hverju einstöku kvæði nú, þó vil ég nefna, sem glæsilegar þýðingar kvæðin Til Þýzkalandbs Framhald á bls. 1S „Griiss aus ísland" Sigfinnur Sigurðsson, hagfræðingur, ritar vettvanginn í dag. Hann fjallar tfm ríkisrekstur — Vandamál eignamyndunar meðal launþega — Heilbrigðan verJ^ bréfamarkað — Kísilgúrverksmiðju við Mývatn — Umráðin yfir sparit'énu ÞAÐ mun almennt víðurkennt, að eðlileg og æskileg sé hlut- deild launþega að framleiðslu- tækjunum. Þó greinir menn mik- ið á um það, hvaða leiðir skuli valdar, til þéss að svo geti orðið, og ennfremur í hvaða mynd hlut- deildin skuli vera. Þar sem hér á landi mun yfir- leitt vera ríkjandi andúð á vald- beitingu af hálfu ríkisvaldsins í formi „þjóðnýtingar vegna al- menningsheilla“, eins og það er sums staðar nefnt erlendis, ef valdahafarnir þurfa að tryggja sér völd og áhrif, þá má reikna með, að slík lausn sé ekki farsæl hér. í fyllstu alvðru, að því er virð- ist, stungú nokkrir þingmenn upp á því ekki alls fyrir löngu, að athugaðir yrðu möguleikar á því, að launþegar „vel rekinna fyrirtækja“ nytu hlutdeildar í arði þeirra. í fljótu braigði kann þetta að líta vel út til hækkun- at tekjum viðkomandi launþega. En rétt er í því sambandi að geta þess, að til eru vel rekin fyrir- tæki, þótt rekin séu með tapi eða hagnaðarlítið um nokkurt tíma- bil, og öfugt eru til illa rekin fyr- irtæki, þótt þau sýni á sama tíma stórgróða. Orsakir þess geta ver- ið mjög margvislegar. Því mætti spyrja, hverjir eigi að taka á sig tap þeirra, sem illa gengur um tima. i stað áður nefndrar tillögu er ek ú úr vegi að núnnast á aðra, semi.áð athuguðu máli er betur til þeás fallin að gera ekki upp á milli hinna vmsu starfshöpá. því að ekki nytu samkvæmt of- anrituðu opinberir starfsmenn arðs af vel reknu ríkisapparati. En hún er sú, að ríkisvaldið stuðli að því, að sem flestir nytu, eða ættu þess kost að njóta eign- arhlutdeildar og þar með arðs í framleiðslutækjunum. Ekki væri þó samkvæmt lýðraeðisreglum hægt að skylda neinn til að eign- ast hluti, heldur væri hægt að hvetja menn beint og óbeint með hjálp tækja efnahagsstjórnarinn- ar. Sú reynsla, sem fengizt hefir á undanförnum áratugum, af opin- berum rekstri framleiðslufyrir- tækja hefir fært mönnum heim sanninn um það, að happasælla sé það fyrir almenning, ef ríkis- valdið s'kipti sér ekki beint af framleiðslutækjunum, heldur vinni að því að jafna leikreglurn- ar og hafi yfirumsjón með efna- hagslífinu í heild. Ríkisvaldið hér hefir mjög marga möguleika til þess að fara þessa leið, þar eð það ræður sjálft yfir miklum fjölda framleiðslutækja. Með setningu laganna um Seðlabanka íslands nr. 10, 29. marz 1961 hefir löggjafinn þegar gert ráð fyrir því, að inn á þessa braut yrði farið, því að í 15. gr. segir svo: „Seðlabankinn má kaupa og selja ríkisskuldabréf og önnur trygg verðbréf, og skal hann vinna að því, að á komist skipuleg verðbréfaviðskipti. Er honum í því skyni heimilt að stofna til og reka kaupþing, þar sem verzlað yrði með vaxtabréf og hlutabréf sanikvæmt reglúnv. sem bankastjórnin setur og ráð- herra staðfestir." Heilbrigður verðbréfamarkað- ur er talin ein farsælasta leiðin til dreifingar fjármagnsins yfir á mangar hendur, um leið og fram- leiðslutækjunum er aflað fjár til aukinna og bættra afkasta. Oft heyrist því haldið fram, að brask með verðbréf sé helzta einkenni kaupþinga. Þetta er rétt, ef ekki er byggt fyrir það í byrjun með strangri löggjöf um starfrækslu kaupþings. Einnig heyrist því fleygt, að opin hlutafélög komist smám saman í hendur fárra að- ilja. Þeir sem óttast þetta geta verið óhræddir. Það er þegar komin reynsla á fjölmörg tæki efnahaigsstjórnarinnar víða er- lendis til þess að forða slíku, og verður að samræma þau í lög- gjöf, sem sett yrði um opin hluta- félög'. Undanfarið hefir verið látið að því liggja í umræðum um stofn- un nýrra fjárfrekra stórfyrir- tækja, að svo mikið fjármagn sé ekki fyrir hendi meðal launþega í landinu, og sé það þess vegna eingöngu á færi rfkisvaldsins. í síðasta Vettvangi var vikið að þessari röksemdafærslu. En svo bar við í vetur að fjármálaráð- herra bauð út 75 millj. kr. skulda bréfalán sem seldist upp á svip- stundu. Þá var sagt, að sparendur hetðu almenht keypt þessi bréf. En ásamt innlendu fjármagni þarf auðvitað töluvert erlent fjár magn. Að því verður þá að stuðla að það vinni ekki með verðbólg- unnL Kísilgúrverksmiðju við Mý- vatn er sem sltkri yfirleitt vel tekið af almenningi. En rí’kis- valdið sá sér ekki annað fært en að breyta lögunum um hluta- félög frá 1921 sér í hag, til þess að tryggja ríkisreksturinn í sessi. Segja má, að ríkisvaldið sé nú bara samsett af mönnum sem haldnir eru mannlegum breyzk- leika varðandi völd og áhrif, þótt aðgerðirnar séu „vegna almenn- ingsheilla." En er ekki nóg, að rí'kisvaldið ráði svo til hverjum eyri sparifjárins í landinu? Er ekki kominn tími til að launþeg- um verði treyst til annars en að leggja spariféð til langs tíma á vexti, til þess svo að taka það út aftur ásamt vöxtum og vaxta- vöxtum helmingi rýrara en höfuð stóllinn var í upphafi, eða að öðrum kosti að éta hann-strax? Væri ekki rétt að bjóða fólki almennt aðild að fyrirtækinu við Mývatn, og setja um leið lög um það, að rfkisvaldið skuli þar hverg'i nærri koma? Hlutabréfin ættu að vera nafnhlutabréf, og þannig að hinir lægst launuðu nytu við kaupin hinna beztu kjara. Síðan yrði félagssamtök- um þ.e. stéttarfélögum, samvinnu félögum og öðrum, boðin hluta- bréfin með skilyrðum, sem tryggðu lýðræðislega stjórn fyrir tækisins. Ákveðinn hluta bréf- anna mætti svo gefa frjálsan á fullu verði á almehnum verð- bréfamarkaði. Þær leiðir. sem ríkisvaldið virðist fara við þessa og aðrar framkvæmdaáætlanir, eru annars vegar hin beina verðbóliguleið, þ.e. útgáfa peninga, sem ékki er til innstæða fyrir í efnahagslíf- inu og hins vegar skattinnheimta, sem því nemur. En hætt er við, að vísitölubundið launakerfi þoli ekki almennar skattahækkanir án kauphækkana, þ.e. verðbólgu. Erlend lán gætu hlutafélög al- mennings tekið á sama hátt og rikisvaldið. Fengju aftur á móti sparendur að ráða, myndu þeir láta sparifé sitt í misjafnlaga mikla hættu vegna arðvonar, en örugglega án þess að höfuðstóllinn þyrfti að skerðast. Fljótlega myndi þetta virka á spariinnlánin í bönkun- um, þ.e. rýra sparifjáraukning- una. En menn gæta þess, að spari féð er ekki til annars en að nota annars staðar til fjármunamynd- unar. En meira virði er það, að brátt myndi draga úr þeirri óeðli lega miklu neyzlu, sem hér á sér stað. Það myndi bitna fyrst og fremst á munaðarvarningi og „ópródúktivri“ fjármunamynd- un. Með öðrum orðum, það vrði farið að leggja fyrir i arðberandi eignum, að svo mi'klu leyti sem hver einstaklingur metur sparnað og neyzlu. Bráðlega væri hægt að koma fram raunverulegum kaup- hækkunum og öðrum kjarabót- um. Alþingi hefði í millitíðinni tima til þess að helga sig öðr- um vandamálum svo sem ail- mannatryggingum og sjúkrasam- lögum, þar sém þingmenn yrðu losaðir undan „ábyrgðinni" af at- vinnurekstri „vegna almennings- heilla."

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.