Morgunblaðið - 07.04.1965, Blaðsíða 26
f>n
<á-J \J
MORGUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 7. april 1965
Sex félög meö 680
fél. í Kjalarnesþingi
42. ÞING Ungmennasambands
Kjalarnesþings var haldið 7.
marz síðastliðinn í Fél&gsheimili
Kópavogs.
Sambandsformaður Haukur
Hannesson setti þingið og bauð
þingfulltrúa og gesti velkomna
til þingsins.
27 fulltrúar sóttu þingið frá 5
sambandsfélögum, auk gesta, sem
voru Skúli Þorsteinsson, fram-
kvsemdastjóri, U.M.F.Í., _ Gísli
Halldórsson, v forseti Í.S.Í. og
Sveinn Björnsson, stjórnarmeð-
limur Í.S.Í. Fluttu þeir ávarp á
þinginu.
í sambandið bættist við nýtt
félag, Æskulýðsfélagið „Stjam-
an“, Garðahreppi, og eru nú 6
félög innan sambandsins með
680 félagsmenn.
Forsetar þingsins voru Jón M.
Guðmundsson og Sigurður Geir-
dal, og þingritarar Gestur Guð-
mundsson og Úlfar Ármannsson.
Haukur Hannesson, formaður
sambandsins flutti skýrslu stjórn
arinnar, um starfsemi sambands-
ins á síðasta ári, og gjaldkeri
Sigurður Skarphéðinsson las upp
reikninga þess. Fjölþætt íþrótta-
starf var innan sambandsins á
árinu og möng mót haldin með
Ungmennafélagið Breiðablik í
Kópavogi í broddi fylkingar.
Þingið tók fyrir mörg mál og
gerði margar ályktanir í íþrótta-
Og æskulýðsmálum. Þingfulltrú-
ar lögðu áherzlu á uppbyggingu
og gott Skipulag iþróttamála á
þessu ári, með tilliti til lands-
móts U.M.F.Í. að Laugarvatni í
sumar. Var áherzla á það lögð
að senda þangað sem stærstan
hóp íþróttamanna og snérust um-
ræður mikið um það mál.
Stjórn félagsins skipa nú:
Úlfar Ármannsson formaður,
Gestur Guðmundsson varaform-
aður, Sigurður Skarphéðinsson
gjaldkeri, Ólafur Þór Ólafsson
ritari, Séra Bragi Friðriksson og
Jón Ólafsson meðstjórnendur.
Innanfélagsmót TB R;
Jón Árnason badminion-
meistari TBR
URSLITALEIKIR í innanfélags-
móti T.B.R. voru leiknir laugar-
daginn 3. apríl.
Til úrslita léku i einliðaleik
karla, Jón Ámason núverandi
Reykjavíkurmeistari og Viðar
Guðjónsson, Leikurinn var mjög
jafn og skemmtilegur og sigraði
Jón Viðar með 15:7 — 8:15 og
18::16.
Kepptu í 111. sinic
Einn af elztu og söguríkustu skot. Oxford vann keppnina
íþróttaviðburðum í Englandi sem er róður frá Putney til
er kappróður milli ensku há- Mortlake og var 4 bátslengd-
skólanna Oxford og Cam- um á undan og reri vegalengd-
bridge á Thames. Róðurinn fór ina á 18 mín. og 7 sekúndum.
fram í 111. sinn 3. apríl s.l. í fyrsta sinn í sögu róðursins
Myndin sem hér fylgir er tek- voru 4 Bandaríkjamenn í 8
in af Hammersmith-brúnni manna áhöfn Oxfordháskól-
og hefur þá áhöfn Oxfordhá- ans.
skólans I bátslengdar for-
í tvíliðaleik fcarla léku fjögur
lið til úrslita. Fyrri leikirnir fóru
þannig, að Jón Höskuldsson og
Steinar Peteisen sigruðu Jón
Árnason og Viðar Guðjónsson í
jöfnum leik: 15:7 — 12:15 —
16:17, Garðar Alfonsson og Rafn
Viggósson sigruðu Lárus Guð-
mundsson og Karl Maack einnig
í mjög jöfnum leik með 15:8 —
9:15 8:15.
Innanfélagsmeistarar í tvíliða-
leik karla urðu Garðar Alfonsson
og Rafn Vigigósson eftir mjög
skemmtilegan úrslitaleik við Jón
Höskuldsson og Steinar Petersen:
15:9 — 11:15 — 15:7.
Innanfélagsmeistarar í tvennd-
arleik urðu hin margreynda
keppnismanneskja Júlíana íse-
barn og Garðar Alfonsson, sem
spiluðu úrslitaleik móti Jóni
Höskuldssyni og Huldu Guð-
mundsdóttur og unnu með algjör-
um yfirburðum: 15:7 og 15:8.
í tvíliðaleik kvenna sigruðu
þær örugiglega Hulda Guðmunds-
dóttir og Jónína Nieljóhníusar-
dóttir þær Guðmundu Stefáns-
dóttur og Halldóru Thoroddsen
með 15:7 og 15:7.
í einliðaleik drengja sigraði
Haraldur Jónsson Axel Jóhanns-
son með 11:7 og 11:0.
Verðlaun í tvíliðaleik karla
voru til eignar, gefin af Aristo-
umboðinu, en öðrum greinum
keppninnar voru verðlaun far-
andgripir, gefnir af nok'krum vel-
viljuðum félagsmönnum.
Þróttur tekur nýja
svæöið í notkun
Ákveðið hefur verið að hefja
knattspyrnuæfingar á hinu nýja
íþróttasvæði félagsins við Njörva
sund fyrir 4 og 5 flokk. Æfing-
ar þessar verða á eftirtö'ldum
dögum: Sunnudaga kl. 10-12 f.h.
þriðjudaga kl. 7,30 og 9 og föstu
da,ga kl. 7,30-9. Er það eindregin
ósk stjórnar Þróttar að drengir
og unglingar í Kleppsiholti, Vog-
um og Heimurn og öðruim nær-
ligigjandi hverfum sem ekki eru
Norrænu skíðn-
göngunni lýkur
30. npríl
ÁKVEÐIÐ hefur verið að Norr-
ænu skíðagöngunni ljúki þann
30. apríl n.k. Öll gögn varðandi
gönguna skulu send til hr. Þor-
steins Einarssonar, íþróttafulltrúa
Fræðsluskrifstofunni, Reykjavífc,
fyrir 15 maí n.k.
Undirbúningsnefnd skíðagöng-
unnar skorar fastlega á alla þá,
sem standa fyrir göngunni á
hverjum stað, að iáta ekkert
tækifæri ónotað til þess að gefa
^jfiönnum kost á að ganga, og
einnig er skorað á allan almenn-
ing að notfæra sér snjóinn, þar
sem hann er, til þess að ganga.
félagsbundnir í öðrum félö'gium
og áhuga hafa á knattspyrnu not
færi sér þessa æfingartíma og
verði með frá byrjun.
Þeir foreldrar sem hug hafa
á því að rétta félaginu hjálpar
hönd og taka vilja þátt í stanf-
semi félagsins og stuðla með því
að bættri aðstöðu fyrir ungling-
ana í leik og starfi eru hvattir
til þess að gefa sig fram við for-
swarsmenn félagsins í æfingar-
timunum.
Verður Ármunns-
liðið þröskuldur
ÍR í kvöld?
í KVÖLD verður Körfukijatt-
leiksmótinu haldið áfram að
Hálogalandi og hefst keppnin kl.
26.15.
Meðal leikjanna í kvöld eru
tveir leikir í 1. deild og vekur
sérstakan spenning leikur ÍR og
Ármanns. Það er síðari leikur
liðanna en hinn fyrri vann ÍR
með fárra stiga mun. Þá leika og
í 1. deild KR og KFR og í 3. fl.
karia er leikur milli KR og Ár-
manns.
Þessi mynd var tekin um s.l. i
. helgi í leik Arsenal og West ]
Bromwich Cram — hægri bak-
I vörður WBA framkvæmdi |
) vítaspyrnu en mistókst á þann |
I hátt að knötturinn fór yfir ]
þverslá. Markvörður Arsenal j
' sem á vellinum liggur er (
| Fumell.
Ckelseu vunn
„lígu“-bikurinn
CHELSEA vann á mánudags-
kvöld bikarkeppni sem árlega
fer fram milli liða í 1. deildinni
ensku. En jafnframt missti fé-
lagið forystu í 1. deildinni ensku
sama dag.
Chelsea og Leicester skildu
jöfn 0-0 í úrslitaleik um bikar 1.
deildarliðanna. Þetta var síðari
leikur liðanna oig Chelsea fékk
bikarinn þar sem liðið vann fyrri
lei'kinn 3-2.
Samtímis náði Leeds forystu i
1. deild með 3-1 sigri gegn Stoke.
Hefur Leeds þá 54 stig en Chelsea
53 og Manch.' United 51 og hafa
öll liðin leikið 36 lei'ki.
Chelsea lék hreinan varnarleik
gegn Leicester og skemmdi þvi
leikinn mjög fyrir áhorfendum.
MÖLÁR
I Frakkland vann Svíþjóð !
| 20—14 í úrslitaleik í Evrópu-
. keppni í handknattleik lög-
reglumanna. í keppni um
Iþriðja sætið vann V-Þýzka-
j land Danmörku með 22—10.
West Ham sem vann alþjóð-
legu knattspymukeppnina í
New York fyrir tveimur ámm
hefur verið boðin þátttaka í
keppninni aftur í sumar.
Lundúnaliðið hefur áhuga o.'í
hefur sótt um leyfi til þátt-
tökunnar hjá enska samband-
Donna de Verona, 17 ára
gömul sundstjarna sem vann
tvenn gullverðlaun á Olym-
píuleikunum í Tókíó fyrir
Bandaríkin hefur ákveðið að
hætta sundkeppni. Mun hún í
framtíðinni vinna sem íþrótta-
fréttaritari að hluta og einnig
sem sýningarstúlka fyrir
sundfatafirma.
Konastantin Andrianov (55
ára gamall) var endurkjörinn
formaður rússnesbu Olympíu-
nefndarinnar á dögunum.
Hann hefur verið formaður
nefndarinnar frá stofnun
hennar 1951 — og næsta fáir
farið með völd eða for-
mennsku svo lengi og hann
þar í landi.