Morgunblaðið - 07.04.1965, Qupperneq 28
HAWDBÓK' VERZLUMAR
IWDAMIMA A’SKRIFTARSÍMír
»6688 16688 16688
rtgmttlrfftfetftr
82. tbl. — Miðvikudagur 7. apríl 1965
HAMDBOK VERZLÖMAR
MANNA A’SKRIFTARSÍMI
16688 16688 16688
Krakkar eyöileggja
öryggisgiröingar
MJÖG ber á því að öryggisgirð-
ingar, sem settar eru upp kring-
um svæði þar sem ýmsar verk-
legar framkvæmdir fara fram,
eru rifnar niður á kvöldin og
þeytt frá. En það er stórhættu-
l©gt athæfi, þar sem þær eiga að
haida fólki frá skurðum og
gryfjum. T.d. er Verk h.f. með
miklar hitaveituframkvæmdir i
Háaieitishverfinu og um leið og
verkaflokkar eru búnir að ganga
frá á kvöldin, svo sem tilskilið
er og yfirgefa staðinn afgirtan,
þá koma krakkar og ryðja öllu
frá. Þetta sagði okkur Haraldur
Karisson, yfirverkstjóri þarna,
og hafði áhyggjur af því. Kvað
hann nauðsynlegt að fólk í þess-
'um hverfum hefði samvinnu við
þá sem verkin vinna og bönnuðu
börnunum að vera á slikum
svæðum og að brjótast gegnum
girðingarnar á kvöldin.
Haraldur sagði, að hvorki
verktakarnir né lögreglan réðu
við neitt. Klippt sé á togið, sem
strengt sé við skurðina, og tunn-
unum sem halda því, rutt burt,
um leið og vinnuflokkarnir séu
farnir á kvöldin. Auk þess se
eyðilögð með þessu verkfræðileg
vinna, því mælistengur séu
brotnar og ekki sé hægt að fara
eftir neinum mælipunktum eftir
nokkra daga.
Þessir vinnuflokkar eru að
vinna við Hvassaleiti, Háaleitis-
braut, Heiðargerði og Stóragerði.
En aðrir vinnuflokkar munu hafa
sömu sögu að segja. — Okkur
þykir hart að fólk skuli horfa á
krakkana rífa allt niður og hringi
svo kanns'ki til lögreglunnar og
segir að þetta sé ekki í lagi,
sagði Haraldur Karlsson við blað-
ið.
Strákarnir á Blönduósi horfa hugfangnir á ísjaka, sem hafa komiff siglandi inn á leirurnar hja
þeim langt norðan úr heimskautslöndum. Eigum viff aff hoppa út á, hugsa þeir sjálfsagt.
Ljósm.: Björn Bergmann.
Stóraukin íbúðalán
J>AÐ KOM m.a. fram í ræffu
Þorvaldar G. Kristjánssonar
alþm. í umræðum um Húsnæff
ismálastofnun rikisins á Al-
þingi í gær, aff framlög hús-
næðismálastjórnar til íbúffa-
lána á ári munu nú verffa 220
til 230 millj. kr. og aff unnt
muni aff veita 750 ián aff upp
hæff kr. 280 þúsund kr. hvert.
Hafa Ján húsnæffismálastjórn
ar þannig hækkað um 280 til
300% á sama tíma og vísitala
byggingarkostnaðar hefur
hækkaff um 77% þ. e. a. s. frá
árslokum 1958.
Krefjast flugmenn allt að
810 þús. kr. árslauna?
Enginti sáttafundur í Loft-
leiðadeilunni
VERKFALL flugmanna á Rolls
Royce 400 flugvélum Loftleiða
stendur enn og hafffi enginn
sáttafundur veriff boðaður í gær.
Rolls Royce flugvélarnar tvær
fskort landhelgisgæziunivar frá í gær. Þéttleiki íssins er merktur á kortiff og sýniir aff isinn er
mjög þéttur.
ekki
KsBaust utan við Austffirði
— en í$ inni á fjörðum
KLUGVÉÍL landhelgisgæzlunnar
fór í ísflug í gær, og var þá gert
meðfyigjandi ískort. Þröstur Sig-
tiyggsson skipherra kvaðst ekki
hafa séð neinn ís á siglingarleið
úti fyrir Austfjörðum fyrir sunn
an Gletting, en hann tók fram,
að ekki hefði verið gægzt inn í
firðina. Stórar breiður af sam-
feildum ís eru við Langanes, en
yfirieitt virðist ísinn fyrir austan
verðu Norðurlandi vera að flytj-
ast frá landi. Er ágætlega fært
með Norðurlandi og svo til eng-
jnn ís sást milii Grímseyjar og
Rauðunúpa. Einnig mun sæmi-
jega greiðfært fyrir Horn.
Úr iandi virðist þó meiri ís,
sem hlýtur að hggja í því að
meira sé inni á fjörðum af ís en
utan við núna. Mbl. átti tal við
nokkra fréttaritara sína, sem
sögðu:
★
SKAGASTRÖND — Á sunnudag-
inn var þó nokkuð mikill ís með
landinu, en á mánudagsnótt gerði
austankalda og megnið af ísnum
rak í vestur og inn að Blönduósi
og Þingeyrarsandi. Enn er þó ör-
stutt héðan í ísinn á flóanum og
mikið af strjálum jökum á reki.
í gær komu menn frá Björgun hf.
hingað, til að strengja vír fyrir
innri höfnina af öryggisástæðum.
Var það gert á vegum Sam-
ábyrgðar íslenzkra fiskiskipa. —
Allir bátarnir, sem stunda grá-
sleppuveiðar, urðu að draga upp
Framhald á bls. 27.
eru nú stöffvaffar erlendis, önnur
í Luxemburg en hin í New York,
en affrar flugvélar félagsins haida
uppi ferðum, ásamt nauffsynleg-
um leiguflugvélum.
Vinnuveitendasamband ísiands
sendi í gær frá sér fréttatilkynn
ingu um deiluna, þar sem m.a.
kemur fram aff samkvæmt eigin
mati flugmanna krefjast flug-
stjórar í hæsta launaflokki
67.500 kr. á mánuffi effa allt aff
810 þús. kr. árstekna. Rétt er aff
geta þess aff kröfur flugmanna
fyrir flugstjóra á fyrsta ári á
þessum flugvélum munu vera
sem næst kr. 700 þús. og affstoff-
arflugmanna kr. 470—560 þús. á
ári.
Fréttatilkynning Vinnuveit-
endasambandsins fer hér á eftir:
„Hinn 27. maí 1S‘64 voru kaup-
Víkingur seldi
fyrir 192 þús.
mörk
TOGARINN Víkingur frá
Akranesi seldi í gær i Bremer-
haven í pýzkalandi 280 tonn
af fiski fyrir 192.600 mörk effa
um 2,08 milljón isl. kr.
og kjarasamningar undirritaðir
af flugfélögunum og Félagi is-
lenzkra atvinnuflugmanna og
skyldu þeir gilda til 1. febrúar
1966. Var það gert með þeim
fyrirvara af hálfu Loftleiða að
samningar tækjust innan eðlilegs
tíma varðandi Rolls Royce 400
flugvélarnar, sem þá höfðu ekki
enn verið teknar í notkun.
í sl. ágústmánuði hófust viðræð
ur milli fulltrúa áhafna á Rolis
Royce 400 og stjórnar Loftleiða
og varð þá að samkomulagi að
greiða skyldi vegna Rolls Royce
400, 100% álag á flugstundagjald
DC 6B flugvélanna, sem var kr.
92,00 flugstjórum til handa en
kr. 46,00 til aðstoðarflugmanna.
Þetta var gert vegna þyngdarhlut
falla milli þessara flugvélateg-
unda, en auk þess bættust 40%
á sama grunngjald vegna aukins
hraða. Samkvæmt þessu varð
flugstundagjald flugstjóra á Rolls
Royce 400, kr. 220,80 og nemur
sú árleg kjarabót rúmum 100 þús
und krónum, miðað við sama
flugstundafjölda og gildir nú á
DC 6B.
Þar sem fulltrúar flugmanna
óskuðu eftir að fresta samningum
um hámark flugstundafjölda og
flugstundatryggingu þar til siðari
námsflokkur flugmanna kæmi
heim frá Kanada í lok október-
mánaðar, þá varð það að sam-
komulagi, en um önnur atriði var
enginn ágreiningur.
Viðræður um flugstundahá-
Framhald á bls. 27
íslandsför erl.
blaöamanfia
frestað
VEGNA verkfalis flugmanna á
RR-400 flugvéium Loftleiða hef-
ur verið ákveðið að fresta um
óákveðinn tíma Islandsferð
þeirra 15 þýzku biaðamanna, sem
hér áttu að dvelja frá 7. apríl
til 11. apríl.
2 millj. framkvæmdir á Skagaströnd
Skagaströnd, 6. apríi: —
HÉR ERU að hefjast miklar fram
kvæmdir ,bjá frystihúsi Kaupfé-
lags Skagstrendinga. Er verið að
koma upp nýjum vinnusal þar, og
setja nýjar frystigeymslur og ís-
vél og á yfirléitt að auka afköst
véla frystihússins. Á þessi stækk
un að vera komin í gagnið áður
en dragnótaveiðin hefst í sumar,
og bæta hér úr atvinnuástandi.
Hér er um 2 mílJj. kr. fram-
kvæmdir að ræða. — Þórður.
V estmannaey ingar
kaupa Donwood
SEX Vestmannaeyingar
hafa keypt togarann Don-
wood, þar sem hann er á
strandstað í Vestmanna-
eyjum. Mbl. hringdi í gær
til Tryggva Jónssonar, sem
er einn af kaupendum. —
Hann sagði að ekki væri á-
kveðið hvort enn yrði
reynt að ná skipinu út eða
hara bjarga úr því vélwm
og öðru lauslegu. Ekki
vildi bann segja bvaða
verð hefði verið gefið fyrir
togarann, en sagði að það
hefði ekki verið hátt.
— Er togarinn ekki
þarna enn? spurðum við.
— Jú, en það er hauga-
hrim hér núna, 11—12 vind
stig.
— Heldurðu kannski að
hann sé að fara?
— Maður vonar það
bezla . . .