Morgunblaðið - 08.04.1965, Page 1
S2. árgangur.
28 síður
Vesturveldin mót-
mæla harilega
— framferði Rússa í Berlín
% ■
slSÍllil
Moskva og Washington 7.
apríl. — NTB — AP.
BANDARÍKIN, Bretland og
Frakkland seridu Sovétstjórninni
i dag mótmælaorðsendingu vegna
aðgerða hennar í Berlín, en
Vesturveldin telja samninginn
»jm réttindi tii samgangna við
Berlín freklega brotinn. í orð-
eenidingu var þess krafizt að
Sovétríkin láti þeg.ar af umferð-
arhindrunum við Berlin og jafn-
Jramt var á það áherzla lögð að
Vesturveldin telji Sovétríkin á-
fcvrg fyrir öryggi á flugleiðunum
til Berlínar. Þá hafa Bandaríkin
■nótmælt mjög harðlega fr.am-
ferði sovézkra orrustuþota yfir
Berlín í dag.
Á sérstökum blaðamannafundi
í utanríkisráðuneytinu í Was-
hington í dag sagði talsmaður
ráðuneytisins, Marshall Wright
að tilgangur Sovétstjórnarinnar
væri augljóslega sá einn að auka
spennuna í alþjóðamálum með
athæfi sínu í Berlín.
Orðsending Vesturveldanna,
sem fyrr getur, er svar við orð-
sendingu Sovétstjórnarinnar frá
23. marz sl., en í henni mótmælti
Sovétstjórnin því að Sambands-
þing V-I>ýzkalands kæmi saman
til þingfundar í Berlín Vestur-
veldin segja að umferðartálmanir
á vegum til V-Berlínar séu aug-
ljóst brot á fjórveldasamningn-
um um Berlín, og enn á ný hafi
a-þýzk yfirvöld heft ferðafrelsi
manna í Berlín.
Viet Cong hyggjast
taka gisl af lífi
— verði einn tilræðismannanna,
sem stóðu fyrir sendiráðs-
sprengingunni, dæmdur til dauða
Tókíó, Saigon, 7. apríl.
AP - NTB.
VIET CONG kommúnistar til-
kynntu í dag að þeir myndu taka
af lífi háttsettan bandarískan
embættismann, ef yfirvöldin í
Saigon létu taka af lífi Nguyen
Van Thai, smiðinn sem handtek-
inn var sl. sunnudag eftir hina
miklu sprengingu við bandaríska
pendiráðið í Saigon, en í henni
fórst fjöldi manns. Útvarpið í
Hanoi, höfuðborg N-Viet N.am,
*kýrði frá þessari ákvörðun Viet
Cong í dag. — Embættismaður
sá, sem um ræðir, heitir Gustav
Hertz, frá Leesburg, Virginia, en
bann hvarf 2. febrúar sl., er hann
var á ferð á mótorhjóli skammt
frá Saigon. Segjast Viet Cong
kommúnistar hafa Hertz í haldi.
í Washington hefur ekkert verið
látið uppi um hvaða ráðstafanir
verði gerðar, ef Viet Cong komm
únistar taka Hertz af lifi. Van
Thai hefur ekki verið dæmdur,
en mun svara til saka fyrir her-
rétti.
Flugvélar frá bandaríska flug-
þiljuskipinu Coral Sea gerðu í
dag miklar árásir á aðalþjóðveg-
jnn í N-Viet Nam, en vegur þessi
liggur að landamærum S-Viet
Nam og fer mestallur flutningur
hergagna og vista til Viet Cong
ekæruliða í S-Viet Nam fram um
veg þennan. Árásirnar í dag
etóðu látlaust í sjö og hálfa
klukkustutnd, og var um 20 smá-
ilestum af eldflaugum og napalm-
Enginfi
sáttafundiir
ENGI.NfN sáttafundux hafði verið
boðaður í deilu Lc»ftleiða og flug-
etjóranna á Rolis Hoce 400 vél-
nnum, er Morgurjbiaðiö fór i
pientun í nótl
sprengjum beitt að sögn flug-
mannanna. Hér var um að ræða
svonefnt vopnað könnunarflug,
en þ^ð þýðir að flugmennirnir
velja skotmörk sín sjálfir, og
bendir þetta til þess að Banda-
ríkjamenn leggi nú áherzlu á að
skapa ringulreið á flutningaleið
Viet Cong frá Norður-Viet Nam.
Framhald á bls. 27
v ■/» T’t
>
;
y
BERLÍN, 7. apríl. (AP): — Sovézk þota steypir sér í lágflugi yfir turn Reichstag-þyggingar-
innar, hins gamla þinghúss Þjóðverja, sem nazistar kveiktu í á sínum tíma. Kongresshalle,
byggingin sem hýsti fund Sambandsþings Vestur-Þýzkalands í gær, er aðeins kippkorn frá
Reichstag-byggingunni. Á myndinni má glöggt sjá hversu lágt orrustuþotur Rauða hersins fóru í
lof tfimleikum sínum yfir Berlín í dag.
Sovézkar þotur hleypa af
fallbyssum yfir V-Berlín
— Flfúga fneó nraóa hljóðsins í lítilli hæð
um borgina þvera og endilanga, og steypa
sér yfir þinghúsiÓ — Berlínarbúar felmtri slégnir
Berlín, 7. apríl — AP-NTB.
^ Vestur-þýzka sambands-
þingið kom saman til fundar
í V-Berlín á tilsettum tíma í
dag. Aðeins minniháttar mál
voru á dagskrá fundarins, sem
var hinn fyrsti, sem þingið
hefur haldið í V-Berlín í sjö
ár.
| Skömmn eftir að fundur
hófst í K®ngresshalle-bygg-
ingunni, tóku suvézkar her-
þotur að fljúga lágt yfir þök-
um húsa í V-Berlín, og m.a.
yfir Kongresshalle. þar sem
þingfundur stóð. Ennfremur
var skotið upp „rakettum“ af
kommúnistum í A-Berlín, og
dreifðu þær áróðursmiðum
yfir borgina.
| Mikill fjöldi af rúðum
brotnaði í húsum V-Berlínar
í dag er sovézku þoturnar
fóru í gegnum hljóðmúrinn í
lítilli hæð. Heiðríkja var og
fylgdist allur alinenningur
með þessum tiltektum Rússa.
Var margt fólk mjög felmtri
slegið.
| Þá segir v-þýzka lögregl-
an, að er þoturnar flugu yfir
Kongresshalle í eitt skiptið
hafi þær skotið af fallbyssum
sínum, og er það í fyrsta sinn,
sem slíkt hefur hent. Ekki er
vitað hvort skotið var skörp-
um skotum éða aðeins priður-
skotum, en mikinn ugg setti
að mönnum við þetta.
I þeim svifum, að Ludwig Er-
hard, forsætisráðherra, gekk inn
í bygginguna til að sitja þing-
fundinn, steypti ein MIG-þota,
skreytt stórri rauðri stjörnu, sér
niður yfir bygginguna, og rét-ti
flugmaðurinn ekki úr dýfunni
fyrr en í 60 metra hæð. 20 mín-
útum síðar flugu fjórar MIG-
þotur flughers Hússa yfir bygg-
inguna í um 90 metra hæð.
Dreifimiðar úr rakettum
Um 1000 manns höfðu safnazt
saman fyrir utan Kongresshalle
til þess að fagna Erhard kanzl-
ara. Brá ílestum illilega í brún
er fjórar rakettur sprungu með
Fiamh. á bls. 27.