Morgunblaðið - 08.04.1965, Blaðsíða 17
fV | HRINGVER VEFNAÐARVORUVERZLUN
Jón Múli og Jónas Ámasynár.
„Járnhausinn" æfður
í Þjóöleikhúsinu
UM þessar mundir standa yfir
æfingar í Þjóðleikhúsinu á nýju
leikriti eftir þá hræður Jónas og
Jón Múla Árnasyni og nefnist
leikur þeirra járnhausinn. Frum-
sýningin á leiknum verður senni-
lega um 20. þ.m. Þetta er mjög
fjölmenn sýning og koma um 50
leikarar og aukaleikarar fram í
sýningunni. Hljómsveitarstjóri er
Magnús Ingimarsson og hefur
hann útsett tónlistina og seft
söngvana. Hljómsveitin verður
skipuð 16 hljóðfæraleikurum.
Leikstjóri er Baldvin Halldórs-
son, en dansatriðin eru æfð af
hinum þekkta leikstjóra Svend
Áge Larsen og hefur hann einnig
samið dansana. Það er óþarfi að
kynna Svend Áge Larsen fyrir
íslenzkum leikhúsgestum, svo vel
er hann þekktur fyrir leikstjórn
á ýmsum söngleikjum hjá Þjóð-
leikhúsinu, My Fair Lady, Kysstu
inig Kata, Káta ekkjan og fl.
Þeir, sem fara með helztu hlut
verkin í Jámhausnum, eru:
Róbert Arnfinnsson, Rúrik Har-
sldsson, Kristbjörg Kjeld, Bessi
Bj arnason, Árni Tryggvason,
Valur Gíslason, Helga Valtýs-
dóttir Gunnar Eyjólfsson og
Gísli Alfreðsson. 16 félagar úr
Þjóðleikhúskórnum taka þátt í
6ýningunni Og auk þess nokkrar
dansmeyjar úr Listdansskóla
Þjóðleikhússins og margir fleiri
koma fram í leiknum bæði í
smáhlutverkum og sem aukaleik-
arar.
Járnh&usinn er gamanleikur
með söngvum og gerist á okkar
tímum á síldarplani um hábjarg-
ræðistímann, þegar allt snýst um
þennan duttlungafulla fisk, sem
öll lífsbjörg okkar veltur á.
Það virðist næstum ótþarfi að
kynna þá bræður Jónas og Jón
Múla Árnasyni svo vel eru þeir
þekktir. Söngleikur þeirra ,,Del-
eríum búbónes“ var sýndur fyrir
nokkrum árum hjá Leikfélagi
Reykjavíkur við met aðsókn,
bæði hér í höfuðstaðnum og úti
á landi. Jón hefur um árabil
verið einn þekktasti útvarpsmað-
ur þessa lands og hin vinsælu
lög hans eru nú á allra vörum.
Jónas er aftur á móti löngu þjóð-
kunnur rithöfundur og hefur
einnig sent frá sér afburða snjall
ar þýðingar fyrir leiksvið, t. d.
á leikritinu Gísl, sem var sýnt
á sl. leikári í Þjóðleikhúsinu.
Leikmyndir eru gerðar af Gunn-
ari Bjarnasyni.
(Frá Þjóðleikhúsinu).
— Sildarflutningar
Framhald af bis. 15
sem allra fyrst, að næg síld veið-
ist samtímis á Norðurlands- og
Austfjarðamiðum. — En ef svo
hörmulega skyldi fara einhvern-
tíma á okkar dögum, að síldin
hyrfi af Austfjarðamiðum um
lengri eða skemmri tíma, en
veiddist þá af fullum krafti ann-
arsstaðar, t. d. á Húnaflóa eða
Grímseyjarsundi, þá get ég sagt
greinarhöf. það, að það er lítil
sálubót forráðamönnum sveitar-
félaga og því síður atvinnubót
þeim, sem byggja afkomu sína
á vinnu handa sinna, — að horfa
ár eftir ár á stórvirk atvinnu-
Mannalæti og hótanir
Grein sinni lýkur svo höf. Hr. I.
með grímulausum hótunum og
misheppnuðu spaugi.
Mér kemur ekki til hugar að
reyna að giztka hér á, hvað hann
kann að eiga við, þegar hann
ræðir um þann möguleika, að
gripði verði til einhverra dular-
fullra „gagnráðstafana“ til að
hindra eða torvelda flutninga
síldar til staða fjarri veiðisvæð-
um, sem enginn veit fyrirfram
hvar kunna að verða, t. d. næsta
sumar. — Ekki skil ég þó í öðru
en að séð yrði um, ef síldarflutn-
ingar yrðu á annað borð taldir
nauðsynlegir, til að reyna að
koma í veg fyrir löndunarbið á
síld og/eða til að nýta, að ein-
hverju leyti, afkastagetu ann-
ars aðgerðarlausra síldarvinnslu-
stöðva — að allar slíkar „gagn-
ráðstafanir“ myndu fyrst og
fremst hitta þá sjálfa fyrir,-sem
reýndu að beita þeim. — Trúi ég
þó því ekki að óreyndu, að nokk-
ur maður láti sér til hugar koma
að reyna að beita slíkum dular-
fullum „gagnráðstöfunum“.
Ég vil svo að lokum óska þess
og vona það í lengstu lög, að
greinarhöf Hr. I. tali ekki í um-
boði annarra Austfirðinga en
sínu eigin í margumtalaðri Tíma-
grein. Ég hefi fram að þessu
kynnzt mörgum Austfirðingum
og yfirleitt að góðu einu. A.m.k.
•hefi ég yfirleitt ekki hingað til
orðið var í fari þeirra þess hroka
og gleiðgosalegs sjálfsbyrgings-
háttar, sem í grein þessari virð-
ist vera alls ráðandi.
Verkamenn
Vanir verkamenn óskast í byggingarvinnu
í Borgarsjúkrahúsinu í Fossvogi.
Byggingafélagið BRÚ h.f.
Sími 16298.
VerkstæðSsvinna
Bifvélavirkja, járniðnaðarmenn eða menn
vanir verkstæðisvinnu óskast.
ÍSARN HF.
Sími 20720.
Atvinna
Stúlka vön Overlock vélum óskast
á saumastofu.
Ennfremur stúlka í frágangsvinnu.
Upplýsingar kl. 5—6 Lækjargötu 4.
Fimmtudagur 7. aprfl 1965
MORGU N BLAÐIft
tæki, t. d. síldarverksmiðjur, sem
reistar hafa verið af fyrirhyggju
eða .fyrirhyggjuleysi, aðgerðar-
lausar, vegna hráefnisskorts, ég
tala nú ekki um, ef allir síldar-
flutningar væru bannaðir og bann
færðir. — Þetta segi ég því frem-
ur sem greinarhöf. fer um það
háðulegum orðum, að ekki hafi
enn tekizt að koma fótum undir
atvinnurekstur á Siglufirði í stað
þess, sem brugðizt hefir að meiru
eða minna leyti, vegna stopulla
síldveiða fyrir Norðurlandi und-
anfarin 20 ár. Dreg ég þó í efa,
að greinarhöf. kannske ólöstuð-
um, að hann hefði sjálfur verið
því viðbúnari að mæta þeim erf-
ið'leikum, sem að Siglufirði hafa
steðjað undanfarna 2 áratugi —
en Siglfirðingar hafa sjálfir
reynzt.
Ég mun ekki eyða orðum að
tilraunum greinarhöf. Hr. I. til
að hrekja ummæli og skrif þeirra
Björns Jónssonar alþm., Jóns
Kjartanssonar forstj. og Sveins
Benediktssonar framkv.stj. um
þessi mál. Ég veit sem er, að þeir
eru til þess fullkomnir menn að
eiga orðastað við hann, ef þeir
telja það þess virði.
Opnum í dag
A Ð LAUGAVEGI 68.
Verzlunin ValfelB
(áður Sólheimum 29).
Málverkasýning MálvcrkauppM
Snorri Halldórsson sýnir 33 myndir í Hótel Skjald-
breið. — Ókeypis aðgangur.
Næstkomandi laugardag kl. 4 e.h. verða myndirnar
boðnar upp. — Notið tækifærið komið á uppboðið
það er oft hægt að gera beztu kaup á uppboðum.
KRISTJÁN FR. GUÐMUNDSSON
málverkasali Laugavegi 30, sími 17602.
Vestmannaeyja • Surtseyjarferðir
ms. Hálu um páskana
Fyrirhugaðar eru tvær ferðir, sem hér greinir:
Fyrri ferð:
Frá Reykjavík miðvikudaginn 14. apríl kl. 22.00
að Surtsey fimmtudaginn 15. apríl kl. 06.00
til Vestmeyja fimmtudaginn 15. apríl kl. 09.00
frá Vestm.eyjum föstudaginn 16. apríl kl. 21.00
að Surtsey föstudaginn 16. apríl kl. 22.00
til Reykjavíkur laugardaginn 17. apríl kl. 07.00
Síðari ferð:
Frá Reykjavík laugardaginn 17. apríl kl. 22 00
að Surtsey sunnudaginn 18. apríl kl. 06.00
til Vestm.eyja sunnudaginn 18. apríl kl. 09.00
frá Vestm.eyjum mánudaginn 19. apríl kl. 21.00
að Surtsey mánudaginn 19. apríl kl. 22.00
til Reykjavíkur þriðjudaginn 20. apríl kl. 07.00
Öllum kemur saman lim að fróðlegast og tilkomumest
sé að sjá Surtsey bæði í björtu og skuggsýnu, en með of-
angreindri tilhögun ætti að vera fullnægt óskum um
þetta.
Meðan skipið liggur í Vestmannaeyjum mun farþegum
er þess óska, gegn sanngjörnu aukagjaldi, gefinn kostur
á hópkynnisferð um Heimaey með leiðsögu, en þar er
sem kunnugt er fjölbreytilegt landslag og fagurt útsýni
um eyjarnar og upp til landsins.
Ferðir þessar virðast tilvaldar fyrir margt fólk til fróð-
leiks, hvíldar og ánægju um páskahelginá.
Fargjöld með 1 flokks fæði og þjónustugjöldum verða
sem hér greinir: A kr. 1.560,00; B kr. 1.280,00;
C kr. 1.120,00.
Pærpont-úr
Favre-Leuba-úr
Nýtízkulegar gerðir.
Mikið úrval.
Sendi gegn póstkröfu.
HELGI GUÐMUNDSSON,
úrsmiður
Laugavegi 65.