Morgunblaðið - 08.04.1965, Side 27
Fimmtudagur 7. apríl 1965
MORGUNBLAÐIÐ
27
Berlin, 7. apríl (AP) — Forseti V-Þýzkalands, Dr. Eugen Gerst-
enmaier, flytur ræðu sína við setningu fundar V-l»ýzka Sam-
bandsþingsins í Kongresshalle í Vestur-Berlín í dag. Sjö ár eru
siðan þingið kom síðast saman í V-Berlín.
— Sovézkar þotur
Framh. af bls. 1.
hvelli yfir þeim. Kakettunum var
skotið upp í A-Berlín, og er þær
sprungu, þeyttist úr þeim ara-
grúi áróðursmiða, þar sem harka
lega var ráðizt að v-þýzku stjórn
inni. M.a. var á bleðlum þessum
krafizt þess, að þing V-Þýzka-
lands skipti sér ekki af V-Berlín,
þar sem V-Berlín væri sjálfstæð
stjórnmálaleg eining og aðskilin
frá V-Þýzkalandi. Dr. Eugen
Gerstenmaier, forseti sambands-
þingsins, svaraði þessum ásökun-
um kommúnista í setningarræðu
sinni, og kvað rétt Sambands-
þingsins til þinghalds í V-Berlín
óumdeilanlegan.
Mestan hluta dagsins voru
sovézkar þotur á þönum yfir
Berlín, ýmist einar eða í hópum.
Var bæði MIG-19 og MIG-21
orrustuþotum beitt. Milli þess
sem þoturnar geystust í lítilli
hæð yfir borgina, steyptu þær
sér úr mikilli hæð yfir hana, og
fóru í gegnum hljóðmúrinn þann
ig að' allt lék á reiðiskjálfi.
Lögreglan segir, að mikill
fjöldi kvartana hafi borizt frá
borgurum í V-Berlín vegna tjóns
sem sovézku þoturnar hafa vald-
ið með aðgerðum sínum. Rúður
hafa brotnað í stórum stíl, vegg-
ir sprungið, múrhúðun molnað
af veggjum, og ein fjölskylda
greindi frá því að 40 glös, sem
stóðu í skáp, hafi brotnað mélinu
smærra öll með tölu. Þá fékk
kona nokkur á bandaríska her-
námssvæðinu taugaáfall vegna
lágflugs þotanna. Á brezka her-
namssvæðinu var upplýst í dag
að sovézkar þotur hefðu hvað
eftir annað flogið mjög lágt yfir
herflugvöll Breta við Gatow síð-
degi* í dag.
Mótleikur
í dag létu Vesturveldin til sin
taka hernaðarlega séð í Berlín
eftir 7 daga sleitulausa áreitni
af hálfu sovézkra og a-þýzkra
yfirvalda, sem lokað hafa aðal-
veginum til V-Berlínar hvað eft-
ir annað og síðast í morgun. Þá
var veginum lokað í þrjár
klukkustundir, en það mun styzta
samfellda lokunin á veginum
sem gerð hefur verið undanfarná
daga. Fyrir hádegi í dag var níu
skriðdrekum ekið um hernáms-
svæði Breta og síðdegis gengu
400 brezkir hermenn fylktu liði
um svæðið.
Skömmu eftir að þetta gerðist
var vegurinn til Berlínar opnað-
ur umferð á ný, en honum hafði
þá verið lokað þriðja daginn í röð.
Meðal bíla þeirra, sem stöðvaðir
voru á veginum í morgun voru
sex bandarískir.
Hernámsstjórar Vesturveld-
anna í Berlín komu saman til
fundar í dag og í sameigin-
legri yfirlýsingu þeirra var yfir-
flugi Sovétmanna harðlega mót-
mælt. Mótmæli hafa verið fram
borin við hernámsstjóra Sovét-
ríkjanna í hvert sinn, sem flug-
vélarnar hafa farið í lágflugi yfir
borgina í dag og í gær.
Um tvennt að velja!
Willi Stoph, forsætisráðherra
A-Þýzkalands, sagði í A-Berlín í
dag, að binda yrði enda á hin ó-
löglegu fundahöld Sambands-
þingsins í V-Berlín, og varaði
hann jafnframt íbúa V-Berlínar
við því, að þeir yrðu að velja á
milli þess og vegabréfa til A-
Berlínar. Um ein milljón vega-
bréfa hefur verið gefin út til V-
Berlínarbúa fyrir páska og hvíta
sunnu.
f setningarræðu sinni í dag
- íslenzk málnefnd
Framh. af bts. 6
legum fyrirspurnum, sem borizt
hafa. En sýnt er, að þessu verður
að breyta. Efa ég ekki, að því
máli verður vel tekið af stjórnar
völdum að auka framlög til
nefndarinnar til aðstoðarstarfa.
IV.
Nýyrðanefndin hefir um nokk-
urra ára skeið unnið að nýyrða-
hefti um hagfræði- og viðskipta-
mál. Safn það, sem hún hefir
valið til útgáfu, mun vera eitt-
hvað á fimmta þúsund. En orð-
takan ná'ði vitanlega til miklu
fleiri orða, að minnsta kosti átta
þúsund. Orðin, sem ætlazt er til
að komi í heftinu, hafa svo til
öll verið þýdd á ensku og all-
mörg á dönsku einnig. Ekki er
ákveðið enn, hvort dönsku þýð-
ingarnar verða birtar. Gert er
ráð fyrir, að heftið komi út á
næsta ári. Aðalráðunautur nefnd
arinnar við þetta hefti hefir ver-
ið Árni Viihjálmsson prófessor.
Ætla má, að heftið bæti úr
brýnni þörf, því að viðskiptamál
eru nú mjög til umræðu og varða
miörg svið þjóðlífsins. Ég er sann
færður um, að það verður blaða
mönnum, stjórnmálamönnum og
skjalaþýðendum til mikils gagns.
Næsta nýyrðaverkefni nefndar
innar verður væntanlega ferða-
mannamál. Sænska málverndar-
nefndin (Namnden för svensk
sprákvárd) hefir látið safna orð-
sagði Dr. Eugen Gerstenmaier,
forseti Sambandsþingsins, að um-
ferðarráðstafanir a-þýzku stjórn-
arinnar væru skýlaust brot á
réttindum til samgangna við
Berlín. „Hér er um að ræða til-
litslaus brot af yfirlögðu ráði á
alþjóðasáttmálum. Sambands-
þingið hugði ekki á ögranir
gagnvart nokkrum aðila með
fundi sínum í V-Berlín. Við elsk-
um friðinn og við eigum samleið
með öllum þeim, sem þjóna mái-
stað friðarins. En málstað friðar-
ins í Þýzkalandi og heimi öllum
er ekki þjónað með því að menn
gerizt sekir um beitingu órétt-
laetis í stað þess að berjast gegn
því. Með tilliti til bandamanna
okkar hefur Sambandsþingið
ekki haldið fundi í Berlín. Og í
framtíðinni geta þeir reitt sig á
okkur. En það breytir engu varð-
andi ákvörðun okkar um að
koma til V-Berlínar þar til við
getum þjónað öllu Þýzkalandi
aftur í höfuðborg þess“, sagði
Dr. Gerstenmaier.
Veitzt að farþegaflugvél
Loftfimleikar sovézku þotanna
yfir Berlín í dag stóðu samfellt
í fjórar klukkustundir, og ekki
var þar við látið sitja, heldur
skutust sovézku flugmennirnir
upp að farþegaflugvélum, sem
voru á leið til og frá Tempelhofs-
flugvelli. Ein MIG-vota flaug
hættulega nærri brezkri Vis-
count-flugvél aðeins tveimur mín
útum áður en farþegaflugvélin
lenti. Einn áhafnarmeðlima lýsti
þessu svo: „Hávaðinn í hreyfli
þotunnar þegar hún geystist hjá
var líkastur sprengingu og flug-
vélin hristist öll og skalf líkt og
hún væri hrist í risakrumlum“.
Áreiðanlegar heimildir í Was-
hington greindu frá því í dag, að
Bandaríkjamenn hafi verið þess
albúnir að flytja v-þýzku þing-
mennina flugleiðis til Berlinar
undir vernd orrustuflugvéla ef
Sovétrikin og A-Þjóðverjar hefðu
lokað flugleiðunum til borgarinn
ar. Sömu heimildir hermdu að
hin harkalegu viðbrögð komm-
únista við fundi Sambandsþings-
ins í Berlín hafi komið allmjög
á óvart.
Fulltrúaráðsfundur
FULLTRÚAR Sjálfstæðisfélag-
anna í Kópavogi heldur fund
föstudaginn 9. apríl kl. 8.30 i
Sjálfstæðishúsi Kópavogs. Fund-
arefni: Kosið á landsfund. 2) Ax-
el Jónsson skýrir frá nýjum mál-
um á Alþingi.
— Alþingi
Framhald af bls. 28
fræðaskóla samkvæmt heimild
þessarar lagagreinar.
1 athugasemdum með frum-
varpinu segir:
í . gr. laga nr. 58/1946, um
menntaskóla, segir, að mennta-
skólar séu tveir, annar í Reykja-
vík, en hinn á Akureyri, og að
stofna skuli hinn þriðja í sveit,
þegar fé sé veitt til þess í fjár-
lögum. Samkvæmt þessum á-
kvæðum eru nú þrír mennta-
skólar starfandi, í Reykjavík, á
Akureyri og að Laugarvatni, en
sá skóli var stofnaður árið 1953
samkvæmt heimild í nefndum
lögum. Auk þessa er svo lær-
dómsdeild við Verzlunarskóla Is-
lands í Reykjavík, sem starfar
samkvæmt reglugerð nr. 95 frá
5. nóvember 1942.
Með frumvarpi þessu er lagt
til, að menntaskólum verði nú
þegar fjölgað um einn í Reykja-
vík og heimild veitt til að stofna
heimavistarmenntaskóla á Vest-
fjörðum og á Austurlandi, þegar
fé er veitt til þess í fjárlögum.
Þá er einnig veitt heimild til,
þegar Aliþingi veitir til þess fé,
að stofna fleiri menntaskóla í
Reykjavík eða nágrenni. Enn-
fremur er menntamálaráðuneyt-
inu heimilað að koma á fót
kennslu í námsefni 1. bekkjar
menntaskóla við gagnfræðaskóla,
þar sem nemendafjöldi og önnur
skilyrði gera slíka ráðstöfun eðli-
lega og framkvæmanlega. Jafn-
framt er menntamálaráðuneytinu
veitt heimild til að setja reglur
um þetta skólahald, þ. á m. skil-
yrði um lágmarkstölu nemenda.
Ætlazt er til, að heimilt sé að
koma framangreindum mennta-
skólum á’ fót í áföngum, bæði að
því er varðar kennslu og bygg-
ingu þúsnæðis fyrir þá.
í lok síðustu heimsstyrjaldar
var nemendafjöldi menntaskól-
ans í Reykjavík rúmlega 300, en
nú er hann rúmlega 900. Þessi
mikla nemendafjölgun hefur átt
sér stað á sama tíma og byggt
hefur verið heimavistarhús við
menntaskólann á Akureyri,
menntaskóli hefur verið stofnað-
ur að Laugarvatni og lærdóms-
deild við Verzlunarskóla íslands
í Reykjavík.
Ríkisstjórnin markaði á sínum
tíma þá stefnu, að menntaskóli
skyldi framvegis vera í Reykja-
vík á núverandi skólastað við
Lækjargötu, en að jafnframt yrði
byggður annar menntaskóli í
Hamrahlíð. Var síðan hafizt
handa um skipulagningu svæð-
isins umhverfis gamla mennta-
um frá þessu sviði, og
mun það safn koma
okkur að miklu gagni. Þá er nú
mikill áhugi á nýyrðum, sem
varða stærðfræði og eðlisfræði.
En um fram allt vil ég benda á,
að leiðbeiningarstarf fyrir stofn-
anir og almenning er og verður
höfuðþáttur í starfi nefndarinn-
ar, ekki aðeins um nýyrði, held-
ur önnur þau svið tungunnar,
sem um verður spurt.
V.
Sam.starfinu við norrænu mál-
nefndirnar, sem um getur í regl-
unum (1. gr., 4. lið), verður hald
ið áfram. Orðabókarnefnd Há-
skólans hafði á sínum tíma nokk
urt samstarf við dönsku og
sænsku nefndina, og nýyrða-
nefndin hélt þessu samstarfi á-
fram. Norska nefndin bauð full-
trúa frá henni að sækja þing
norrænu nefndanna í Ósló 1962
og halda þar fyrirlestur, og á
þingi nefndanna í Stokkhólmi
1963 var íslenzkur áheyrnaar-
fulltrúi. Á þingi nefndanna i
Gentofte í Danmörku síðast liðið
haust átti íslenzk málnefnd
fyrst reglulegan fulltrúa, og svo
mun einnig verða á þingi þeirra í
Helsingjafossi næsta haust. Þótt
frændur okkar á Norðurlöndum
eigi að sumu leyti við önnur mál-
leg vandamál að strfða, er þó
undarlega margt sameiginlegt.
Ég skal a'ðeins nefna sem dæmi
samræmingu á stafsetningu er-
iendra eiginaafna, t.d. stáðaheita
Er það mál, sem íslenzkir blaða-
menn ættu að hafa áhuga á.
íslenzk málnefnd óskar góðrar
samvinnu við blöð, útvarp, skóla
og allan almenning í landinu,
væntir þess, að þessir aðiljar
styrki hana í því starfi a’ð efla
íslenzka málvöndun á heilbrigð-
um og öfgalausum grundvelli.
Halldór Halldórsson
Viskíþjófarnir
gripnir
ÞRÍR rúmlega tvítugir piltar
hafa játað að vera valdir að inn
broti í hús Carls Olsen, stór-
kaupmanns, fyrir nokkrum dög-
um og hafa haft á brott með sér
um 70 flöskur af áfengi, aðal-
lega skozku viskíi, auk mikils
magns af vindlum og vindling-
um.
Rannsóknarlögreglan fékk
grun um það, hverjir á ferðinni
hefðu verið, enda munu piltarnir
henni kunnir áður, og fóru lög-
reglumenn í heimsókn til eins
piltanna á nnánudagsmorgun.
Fundu þeir þá nokkurn hluta
þýfisins og játaði piltur. Ekki
fannst þýfi á heimilum félaga
hans, sem rannsóknarlögreglu-
menn heimsóttu þegar á eftir,
en þeir hafa játað hlutdeild í
þjófnaðinum.
skólahúsið, og er miðað við, að
menntaskólanum verði í frám-
tíðinni ætlað allt svæðið milii
Lækjargötu, Amtmannsstígs, —
Þingholtsstrætis og Bókhlöðu-
stigs, að fráteknu nokkru betti
vegna húsaraðar við Þingholts-
stræti. Hefur nú verið byggt og
tekið í notkun kennsluhúsnæði
rétt hjá gamla skólahúsinu. Er
þessi nýbygging raunar stærri að
rúmmáli en gamla skólahúsið eða
5000 tenings'metrar, en gamla
skólahúsið er 4450 teningsmetrar.
Hið nýja húsnæði er fyrst og
fremst ætlað til kennslu í sér-
greinum, þ. e. náttúrufræðigrein-
um, efnafræði, eðlisfræði og
kennslu í tungumálum'ög miðað
við, að þarna verði hægt að beita
nýjustu tækjum og aðferðum í
þessum kennslugreinum. Þá hef-
ur verið hafizt handa um undir-
búning að byggingu menntaskóla
húss við Hamrahlíð. Hefur teikn-
ing verið gerð að húsinu, og er
miðað við að byggja það og taka
í notkun í áföngum. Er stefnt að
því, að sex kennslustofur verði
öyggðar í sumar og teknar í
notkun haustið 1965, Lýtur það
frumvarp, sem hér er flutt. m. a.
að því, að hinn nýi menntaskóli
verði sérstök stofnun.
#
Þá hefur verið ákveðið að
stækka Menntaskólann að Laug-
arvatni í áföngum á fimm árum
þannig, að nemendur verði 20®,
en nú eru þeir um 189.
Næstu byggingarframkvæmdir
við Menntaskólann að Laugar-
vatnj eru heimavistir þær. sem á
vantar til þess, að skólinn verði
200 nemenda skóli. Síðan verði
kennslurými aukið svo, að kom-
izt verði hjá tvísetningu í skói-
anum. Menntaskóli má ekki vera
minni en 200 nemenda skóli til
þess að starfsemi hans verði eðli-
leg og með hagkvæmum hætti,
t. d. um nýtingu kennslukrafta.
Þótt byggt hafi verið fyrir
skömmu heimavistarhús við
Menntaskólann á Akureyri, þá
þarf að horfast í augu við, að
sjálft skólahúsið er gamalt timb-
urhús sem krefs't endurnýjunar
innan tíðar. Er nú í undirbúningi
athugun á því, með hverjum
-hætti haganlegast sé að bæta að-
stöðu til kennslu í sérgreinum
við skólann.
Ástæða er til að vekja athygU
á því, að heimildin til stofnunar
nýrra menntaskóla er miðað við,
að fé sé veitt í fjárlögum. Er þá
vitanlega átt við, að nægilegt fé
sé veitt til að ganga frá 1. áfanga
eða þeim áföngum, sem ráðizt er
í hverju sinni.
Rétt þykir að hafa í frumvarp-
inu heimild til þess að hefja
menntaskólakennslu við gagn-
fræðaskóla, þar sem nemenda-
fjöldi og önnur skilyrði gera slíka
ráðstöfun eðlilega og framkvæm-
anlega. Þetta hefur t. d. verið
reynt á ísafirði um nokkurt
skeið, og raunverulega var stík
kennsla upphaf Menntaskó-lans
að Laugarvatni.
— S-Vietnam
Framh. af bls. 1.
Árásirnar í dag voru gerðar á
2:10 km kafla af ríkisveginufn í
N-Viet Nam.
Bandarísku flugvélarnar urðu
varar við minniháttar Ioftvarnar
skothríð, en engar flugvélar frá
N-Viet Nam sáu flugmennirmr.
Bandarísku flugvélarnar sneru
allar heimleiðis heilar á húfi.
Af hálfu Bandaríkjamann* var
í dag tilkynnt að tveir flugmenn
til viðbótar hefðu týnt lífi í ár-
ásunum 4. apríl, þannig að nú er
opinberlega staðfest að fitnm
bandarískir flugmenn hafi farizt
í árásum á N-Viet Nam.
í Da Nang, þar sem mikilvæg-
ur herflugvöllur Bandaríkja-
manna er til staðar, voru 149
menn handteknir í dag eftir um-
fangsmikla húsleit, sem lögregia
og herlið framkvæmdu eftir að
einn meðlima Viet Cong hafði
skýrt lögreglunni frá áformum
um að4 sprengja gistihús eitt í
loft upp. Sex hinna handtek-nu
eru Viet Cong hryðjuverkamenn,
að því er yfirvöld í S-Viet Ns«n.
segja. Maður sá, sem upplýsmg-
arnar veitti, verður tekinn af Hfi
á morgun, en hann var höfuð-
paurinn i sprengjutilræðinu.