Morgunblaðið - 11.04.1965, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 11.04.1965, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐID Sunnudagur 11. apríl 1965 ANN PETRY: STR/ETIÐ — Mér finnst eins og þau ætli að loka mig inni. Það er nú eins og hver önnur vitleysa, bætti hún við, og flýtti sér, því að hún vildi ekki láta hann verða þess varan, að henni liði eins og í gildru, þegar hún hafði ekki nógu rúmt um sig. — Það er líklega þessvegna, að þú syngur svona vel, sagði hann. — Þú hefur næmari tilfinningar en aðrir. Og svo bætti hann við: Hvaða lög kanntu? — Æ, flest þessi venjulegustu. — Áttu bágt með að læra þau? — Nei, ég hef í rauninni aldrei reynt að læra þau. Þetta hefur komið af sjálfu sér, þegar ég hef heyrt þau í útvarpinu. — Þú þarft nú auðvitað að læra ný lög. . . . Hann stýrði bíln um út í vegarbrúnina og stanzaði á stað, þar sem ekkert glapti út- sýnið að ánni. Áin var mjög breið þarna og hún færði sig nær honum, til þess að sjá hana betur. Það heyrðist ekkert í henni, enda þótt hún gæti séð hreyfinguna á straumn- um milli háu fjallanna beggja vegna. Svona hafði áin runnið rólega, árum' saman, fannst henni. Og hún mundi halda því áfram til eilífðar — sterk, þögul, vel vitandi hvert hún var að fara og án þess að láta staðnæmast af stormum, brúm eða verksmiðj um. Þarna var einmitt það, sem að henni sjálfri hafði gengið, síð- ustu vikurn.ar: hún vissi ekki, hvert hún var að fara. Og sann- ast að segja, hafði hún víst aldrei vitað það. En ef hún gat sungið og lagt sig í líma við það, lært og komið sér eitthvað raunveru- lega áfram, gæti það gefið lífi hennar tilgang — þá mundi hún komast að því, hvert hún væri að fara. — Ég veit ekki, hvað þú heitir, sagði Boots lágt. — Lutie Johnson, sagði hún. — Frú Lutie Johnson, sagði hann dræmt. — Fallegt nafn. Mjög fallegt. Hann sagði þetta svo ánægður í bragði og svo mjúklega, að orð- in minntu hana óþyrmilega á, að þarna var ekkert hús neinsstaðar nærri, og enginn bíll fór um veg- inn og hafði ekki gert síðan þau staðnæmdust. Hún hafði ekki gengið inn í þetta ástand, heldur hlaupið beint inn í það, og glefsað gráðug eftir beitunni, sem hafði dinglað fyrir framan hana. Af því að hún hafði verið í svo mik- illi örvæntingu, að hún hefði gripið eftir strái, hefði það sýnt sig og boðið upp á tækifæri til að losa hana sjálfa og Bub út úr þessu stræti. Eftir því sem harðneskjulega og samvizkulausa andlitið á hon- um kom nær henni, minntist hún þess, að það eina, sem hún vissi um hann var það, að hann var með danshljómsveit, að hann var í dýrum bíl og hann hélt því fram, að nóg væri til af pening- um í Harlem. Og hún hafði hlaupið sárfegin upp í þennan bíl hans og gefið frá sér smá- gleðióp um leið. Henni hafði ekki dottið hitt í hug, að frá hans sjónarmiði var hún ekki annað en götustelpa. Þegar hann sneri andlitinu á henni að sér, gat hún fundið gegn um skinnhanzkana, hve harðar hendurnar á honum voru. Hann leit á hana andartak. — Fallegt, mjög fallegt, endurtók hann og laut fram og kyssti hana. Hún reyndi að finna eitthvert ráð, til að losna við hann, án þess þó að móðga hann. En henni gat ekkert dottið í hug. Hann hélt henni svo fast og varirnar á honum voru svo áleitnar og hrottalegar, að hún sneri sig úr örmum hans, án þess að hugsa um, hvernig honum mundi líka það og hugsaði ekki um annað en losna frá þessum hrottaskap vara hans og handa. Klukkan í bílnum sýndi 9.30. Hana langaði til að klappa henni af eintómri þakklátssemi. — Þú ert að verða of seinn, sagði hún og benti á klukkuna. — Já, hver andskotinn, tautaði hann og seildist eftir lyklinum. 7. kafli. Þau fóru Storm King-veginn til baka. — Það er stytzt, sagði hann. — En þér er betra að halda þér vel, heillin. Það var eins og vegurinn væri í eilífum hringum, hann beygði og beygði, þangað til hana var tekið að svima. Þau óku svo hratt fyrir beygjurnar, að hún varð að halda sér í hurðina til þess að kastast ekki utan í Boots. Hann virtist alveg hafa gleymt, að hún sæti hjá honum. Henni var ljóst, að hann var að leika hættulegan ieik, hreint vogunar- spil — var að prófa, hve hratt hann gæti ekið fyrir krappar beygjur, án þess að velta bílnum. MRBMnOB 19 Hann hafði auga með hlykkjun- um á veginum, og var með eitt- hvert hálfbros á andlitinu, rétt eins og honum væri skemmt af þessari áhættu, sem hann lagði í. Eftir því sem hallinn og dýf- urnar færðust í aukana, fannst henni eins og bíllinn tylldi á veg- inum, aðeins vegna þess, að mað- urinn neyddi hann til þess. Ökuljósin skinu á skilti fram með veginum: „Kröpp beygja, dragið úr ferðinni". „Gætið að hröpuðum steinum". Hún gleymdi alveg þessari ögrun Boots við f jöllin fyrir ofan og ána fyrir neðan. Ef þau yltu og lentu í ánni, mundi Bub aldrei fá að vita, hvað af henni hefði orðið. Enginn fengi að vita það. Bíllinn mundi sökkva dýpra og dýpra í ána. Og áin mundi gleypa hann þegjandi og halda svo róleg áfram til sjávar. Eða þá, að þessi sprungnu fjöll mundu kasta að þeim steinum og kremja þau. Hún hugsaði til íbúðarinnar sinnar með einskonar hlýju, því að betra var að vera þar lifandi en grafast undir þessari þöglu á, en vera kramin undir grjótskriðu á þjóðveginum. Og loks voru þau komin á jafn sléttu. Þegar vegurinn teygði sig, breiður og beinn og steinsteypt- ur, slappaði hún ai í sætinu. Þarna var lítil umferð. Þau fóru fram hjá einstaka bíl, yfirhlöðn- um vörubílum, en það var líka allt og sumt. — Hvemig færðu benzín? spurði hún. — Og ég borga bara yfirverð. Það er nóg til af því, ef maður veit, hvert á að snúa sér. Já, hann mundi vita, hvert hann ætti að snúa sér, ef hann vantaði benzín eða hvað annað sem væri. Og hann mundi vita, hvert hann ætti að snúa sér eftir peningunum til að greiða það með. Peningarnir réðu öllu um það, hvað maður gæti fengið og hvað ekki — jafnvel skammtað benzín. En þó var sumt, sem. . . . — Hvernig stendur á því, að þú ert ekki í hernum? spurði hún. — Hver . . . ég? Hann reigði höfuðið aftur og nú skellihló hann í fyrsta sinn . . það var hæðnishlátur, sem fyllti alveg bílinn. Hann hafði svo gaman af þessu, að hann skríkti í langa stund á eftir og gat ekkert sagt. — Þú heldur þó ekki, að ég færi að gefa mig í slík skítverk? — En hversvegna varstu ekki kallaður í herinn? nauðaði hún. Hann sneri sér að henni og hleypti brúnum. Langa örið á kinninni á honum var meira áber andi en hún hafði munað eftir því. — Það var eitthvað að öðru eyranu á mér, sagði hann og röddin var svo óviðkunnanleg, að hún ól ekki frekar á spurning- unni. Þegar þau komu í efri hverfin í Brónx, hægði hann á ferðinni. En bara ekki nóg. Það heyrðist hvellur pípublástur fyrir aftan þau, og lögreglumaður á vélhjóli kom þjótandi fram á þau og benti þeim upp að gangstéttinni. '— Er kviknað í einhversstaðar? sagði hann. Hann kíkti inn í bílinn og Lutie sá, að andlitið á honum stirðnaði dálítið upp. Það þýddi sama sem, að hann hafði tekið eftir, að þau voru s'vört. Hún beið eftir að hann segði eitthvað meira og eins og kveinkaði sér, því að þetta var rétt eins og sár, sem væri næstum gróið, hefði rifnað upp og nú ætlaði einhver að slá á það, og ofseint að víkja sér undan, og svo leið hræðileg sekúnda meðan beðið var eftir, að á það væri slegið, þegar maður fyndi sársaukann áður en hann hófst í raun og veru. Munnurinn á lögreglumannin- um afmyndaðist og varð ljótur. — Afsakaðu, sagði Boots. — Hljómsveitin mín á að leika í Casino klukkan níu. Ég var orð- inn ofseinn og flýtti mér því. Hefði átt að vera kominn fyrir hálftíma. . Hann dró veski upp úr vasanum og rétti lögreglu- manninum kort og svo ökuskír- teinið sitt. Svipurinn á hinum mildaðist ofurlítið. Þegar hann rétti /þlögg in aftúr, sá hún, að hann var með eitthvað eftir í hendinni. Það var seðill, en hún sá ekki, hve stór. Lögreglumaðurinn leit á hana. — Ég er ekki viss um, að ég lái þér þó að þú hafi tafizt, Mac, sagði hann glettnislega. Bless. Og svo var hann farinn. Jafn- vel við lögregluna geta pening- ingarnir gert sitt gagn, hugsaði hún. Jafnvel þótt negri eigi í hlut, gera þeir sitt gagn, kannski ekki eins mikið gagn, en nóg til þess að duga. Peningarnir gátu gert slys úr sjálfsmorði, og svo virt- ist sem þeir hefðu líka getað los- að Boots við herþjónustuna, því að hún gat illa trúað, að neitt væri að honum í eyranu. Til þess hafði hann farið ofmikið hjá sér, þegar hann sagði henni það. Peningarnir gátu næstum komið hvítum lögreglumanni til að brosa, þegar hann tók svertingja fyrir of hraðan akstur. Þeir voru líka það eina, sem gátu komið henni og Bub út úr þessu stræti. En skortur á þeim mundi halda þeim þar föstum að eilífu. Hún staðfesti þá fyrirætlun sína að Blaðburðarfólk öskast til blaðburðar í eítirtalin hverfi Laugaveg frá 114-171 — Auðvitað vantar okkur eldavél, en við getum ekki eignazt allt. hafa gott af Boots Smith. Ein- hvernveginn mundi henni takast að verjast þessum hörðu svörtu höndum hans, án þess að móðga hann, þangað til hann væri búinn að undirrita samninginn. En þegar því væri lokið, gæti hún sagt honum hreint og beint, að hún óskaði ekki frekari kynna af honum. Hún velti þessu nýja markmiði fyrir sér og gamla sjálfstrausts- kenndin kom upp í henni aftur. Hún gat þetta og skyldi geta það. Boots setti bílinn í gang aftur. — Ég er orðinn svo seinn, að ég verð að hvolfa þér út við 135. stræti, fyrir framan Casino. Hann þagði andartak, en spurði síðan: — Hvar áttu heima — í 116, götu. Það er skammt frá Junto. Þau voru þögul það sem eftir var leiðarinnar inn í miðborgina. Boots notaði hvert tækifæri til að komast áfram og gat varla beðið eftir græna ljósinu, en þaut svo framhjá, þegar það varð rautt aftur. Hann lagði bílnum milli bannmerkjanna_ tveggja fyrir framan Casino. Ég gái að þér' annað kvöld, elskan. Komdu hingað um tíuleytið, þá getum við farið gegn um einhver lög með hljómsveitinni. — Gott og vel. Hún var stigin út áður en hann fékk ráðrúm til að opna fyrir henni. — Þú verður í síðum kjól, sagði hann og var nú kominn til liennar út á götuna. Þegar hann ætlaði að leggja arminn utan um hana, brosti hún til hans og gekk burt. — Góða nótt sagði hún yfir öxl sér. Hann horfði á eftir henni alla leið út að horninu. — Prýðileg, sagði hann lágt og sneri síðan inn í Casino. Lutie gekk yfir Sjöundutröð og hugsaði með sér, að um þetta leyti annað kvöld mundi hún vita, hvort hún slyppi úr 116. götu eða yrði að halda áfram að eiga þar heima. Hún var gripin efasemdum. Hún hafði aldrei áður sungið með hljómsveit og kunni ekki tæknina við að syngja í hljóðnema . . . hvað, ef hún skyldi nú alls ekki geta það. Fimmtutraðar - strætisvagn stanzaði við hornið. Hún klifraði upp mjóa stigann upp á efri hæð- ina, með samvizkunnar mótmæl- um. Það var hrein eyðslusemi að eyða tíu sentum í farmiða. En það gerði nú annars ekki svo mjög til, af því að Boots hafði borgað bjórinn hennar hjá Junto, svo að hún hafði ekki skert aura forðann sinn eins mikið og hún hélt. En áttundutraðarvagn var ódýrari. Jú, en þá yrði hún að standa álla leiðina og auk þess gerðu fimm sent ekki svo sér- lega mikið til eða frá. Strætisvagninn lagði af stað með glamri og brestum, sem voru einkennileg viðbrigði eftir hjóð- lausa ganginum 1 bílnum hans Boots. Hann gat eytt peningum, án þess að telja þá. Hann þurfti aldrei að bera saman verðmun- inn á þessari leið eða hinni. Hún tók að bera hann sam- an við Jim. Það var einhver grimmd í svipnum á Boots, sem gat ekki dulizt. En andlitið á Jim hafði verið hreinskilið, heið- arlegt og ungt. Og þegar þau Jim giftust, benti allt til þess, að þetta yrði hamingjusamt hjóna- band. Til þess voru þau nógu ung og elskuðust nógu heitt. En það rak alltaf að því sama: Jim gat aldrei náð sér í atvinnu. Höt~n í Hornafirði BRÆÐURNIR Ólafur og Bragi Ársælssynir á Höfn í Hornafirði eru umboðsmenn Morgunblaðsins þar. Þeir hafa einnig með höndum blaðadreifinguna til nær- liggjandi sveita og ættu bændur, t.d. í Nesjahreppi að athuga þetta. Sandur UMBOÐSMAÐUR Morgun- blaðsins á Sandi er Herluf Clausen. Gestum og gang- andi skal á það bent, að í Verzl. Bjarg er Morgun- blaðið selt í lausasölu. Grundarfjörður VERZLUN Emils Magnús- sonar í Grundarfirði hefur umboð Morgunbiaðsins með höndum, og þar er blaðið einnig selt í lausasölu, um söluop eftir lokunartima. Jarðýtuar til leigu í smærri og stærri verk. Getum bætt við okkur rennismíði. Vélsmiðjan BJARG h.f., Höfðatúni 8. — Símar 17184 og 14965. Sími 22-4-80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.