Morgunblaðið - 16.05.1965, Side 8

Morgunblaðið - 16.05.1965, Side 8
8 MORCUNBLAÐIÐ Sunnudagur 16. mai 1965 Noregur er frjáls Frá hátíðahöldunum 8. maí sl. „NOREGUR er aftur frjáls. Við finnum lausnina streyma um æð ar okkar. Nú vitum við hvað freísi er, því við höfum fundið hvað undirokun er. Mættum við sýna oss verðuga hins nýfengna frelsis". Þessi orð prentuðu fangarnir í Grini- fangelsinu í blað sitt Grini- Posten 8. maí 1945, meðan þeir biðu eftir að vera hleypt út daginn sem Noregur fékk frelsi sitt aftur. Og ennfremur: „Mörg okkar hafa í þessari baráttu ut- an við lög og rétt lagt í sölurn- ar heilsu okkar og líf og allt sem við eigum. Ættum við þá ekki að vera jafn fús til að leggja nokkuð í sölurnar fyrir Noreg nú? Nú, þegar við vitum hvers virði frelsið er?“ Þessi meðvitund og vitneskja um hvers virði frelsi er, býr enn eftir 20 ár í brjóstum Norð- manna og er þeim styrkur, jafn framt því sem þeir eru ákveðnir í að hafa ekki þann dýrgrip sinn jafn berskjaldaðan og 1940. Það hlaut hver maður að finna, sem var í Noregi laugardaginn 8. maí sl., þegar Norðmenn minntust frelsisdags síns undan oki þýzku nazistanna. Um allt landið voru ýmiskonar minn- ingar- og hátíðasamkomur, kransar lagðir að leiðum og frelsishátíðir haldnar. Osló var miðpunkturinn með konunginn Og krónprinsinn í broddi fylk- ingar, og aðrir landsmenn fylgd ust með hátíðahöldunum í höf- uðborginni gegnum útvarp og sjónvarp. Einn af blaðamönnum Mbl. stóð í hópi Norðmanna, sem safnast höfðu saman í vorsól- inni fyrir framan þinghúsið og meðfram Karl Jóhans götú kl. 12 á hádegi. Kirkjuklukkurnar hringdu um allt land. Fólkið stóð hreyfingarlaust í 2 mín- útur. Ekki nokkurt hljóð. Bílarn stöðvunum. Algjör kyrrð. Klukkurnar hringdu einar — hugur allra beindist í sama far- veg. Ólafur konungur og Har- ald ríkisarfi höfðu ekið frá kon- ungshöllinni til þinghússins í opnum bíl, sólbrúnir og hressi- legir. Nú var útvarpað frá þing- húsinu yfir mannfjöldann at- höfninni þar inni Síðdegis söfnuðust 2S-30 þús. manns ^aman á Bislett-leikvang inum til að rifja upp gleðistund innar þennan sama dag 1945 og minnast stríðsáranna. Neðan frá ráðhúsinu kom skrúð í baráttunni fyrir frelsinu, er fékkst 8. maí 1945. í fámennum hópum gengu þeir fyrir konung sinn og krónprins, sem sátu klæddir liðsforingjabúningum, og að baki þeirra hinn 92 ára gamli Paal Berg, leiðtogi heima varnarliðsins, ásamt stjórn, þing mönnum o.fl. Þarna gengu Grini fangar frá 1941-45, aðrir pólitísk ir fangar, gamlir hermenn, flug menn og sjóliðar, varðlið frá 1940, fallhlífarhermennirnir, norsku lotturnar, Rauða kross hjúkrunarkonur, heimavarnar- liðsmenn og ungir menn í hin- um ýmsu herbúningum frá 1940, frá norsku Skotlandsherdeild- inni o.s.frv. Gamlir seigir menn með veðurbitin andlit gengu stoltir undir sínu gamla merki og heilsuðu konungi sínum, sum ir með greinileg merki um þján- ingar og hnjask. Einn féll út úr röðinni beint fyrir framan kon- ungsstúkuna og var studdur út. Fólkið fagnaði sínum fornu hetj um. Rauði Heimdallarfáninn, hinn gamli Ijónsfáni sem Hákon kon- ungur 7. kom siglandi undir til Noregs 1905, var dreginn að húni. Þrjár fallbyssur frá Osc- arsberg sendu frá sér 21 skot og tvístruðu blaðaljósmyndurum í allar áttir. Þeir höfðu hlaupið fram með myndavélar sínar, ó- viðbúnir skothvellunum. Þegar Einar Gerhardsen, forsætisráð- herra, í ræðu sinni undirstrik- aðri þýðingu þess að hafa á stríðsárunum átt réttkjörna stjórn og „höfðingja á hættun- ar stund“, þá tóku heyrendurnir svo vel undir að hann varð að gera langt hlé á máli sínu. Endirinn á ræðu Gerhardsens var einnig athyglisverður í ljósi þess að honum hefur verið legið á hálsi fyrir hlutleysistrú hans og sagt að uggleysi hans og annárra friðársinna, sem lögð- ust gegn herþjónustu fram að þeim tíma, að Noregur var her- numinn, hafði átt sök á því hve létt Þjóðverjum reyndist að koma fyrir fæti á Noregs grund, og jafnvel heyrðist að hann væri af þeim sökum varla rétti ræðumaðurinn þennan dag. Gerhardsen lauk ræðu sinni með því að undirstrika að stríð- ið hafi fyrst og fremst kennt „okkur, að við verðum að Á MORGUN þann 17. maí verð- ur Bjarni Gíslason bóndi á Jaðri í Suðursveit sextugur, son- ur þeirra mætu hjóna Gísla, d. 1942 Bjarnasonar bónda þar og konu hans Ingunnar Jónsdóttur fró Smyrlabjörgun, en móðir Ingunnar var Sigríður Hálfdánar dóttir, systir Ara heppstjóra á Fagurhólsmýri. Ingunn lifir enn í hárri elli, fróð og minnug. Þau hjónin Ingunn og Gísli voru bæði niðjar séra Brynjólfs Guðmundssonar á Kálfafellsstað, er var prestur þar í 60 ár d. 1786, 85 ára. Gísli á Uppsölum var mað ur óvenju traustur, öiáiggur og trygglundaður og hinn mesti ferðagarpur. Ég eins og margir minnumst þess, að þegar mikið lá við, t. d. að sækja lækni í vatnavöxtum og vondri færð, þá standa saman um öll hin miklu verkefni þjóðar vorrar. Við verðum að standa saman og verja frelsi okkar og sjálfstæði og við verðum að standa sam- an um að byggja upp Noreg“. Ólafur konungur lagði í sinni ræðu óherzlu á það sama, sagði að stríðið hefði kennt Norð- mönnum hvað það þýðir að missa frelsi sitt: „Við skulum sýna heiminum að markmið okkar og æðsta ósk er friður. En látum það jafnframt liggja ljóst fyrir, að friðarviljinn mun ávallt haldast í hendur við ékvörðun norsku þjóðarinnar og ákveðinn vilja til að verja það sem er dýrmætasta eign þjóðarinnar — frelsi Noregs“. Reisn norsku þjóðarinnar hin skelfilegu hernámsár skynj- uðu viðstaddir á Bislett leik- vanginum í Ijóðum o,g lögum, sem þar voru flutt, öll ort og sungin á stríðsárunum. „Þeir drápu konur okkar, þeir drápu menn okkar“, söng Stúdenta- kórinn úr ljóði Inger Hager- up. Leikarinn Knut Wigert las ljóðið, sem Nordahl Grieg flutti sjálfur frá Norður-Noregi 17. maí 1940, þar sem síendurtekið er stefið um að frelsi og líf séu eitt. Þar lýsir skáldið hvers virði því var frelsið, sem það lét síðar lífið fyrir. Og áhrifa- mikill var lestur Arnulfs Över- lands á ljóðunum, sem hann orti í fangelsinu í Sachsenhau- sen, en hann var einn af fyrstu rithöfundum Norðmanna, sem Þjóðverjar tóku. Þessi ljóð frá stríðárunum vitnuðu um að þrátt fyrir allt hefðu Norðmenn aldrei misst móðinn og að jafnvel í slíkum þrenginum héldu þeir húmorn- um. Um það báru vitni gaman- vísurnar frá stríðsárunum, sem allir viðstaddir virtust kunna og tóku undir. Skólabörn með mislita dúka á bakinu komu hlaupandi inn og mynduðu á miðjum vellinum merki Hákon- ar VII og Ólafs V og fána Nor- egs meðan fólkið söng „Norge i rödt, hvitt og blatt“. Yfir þessari athöfn, einni af þeim sem haldin var í Noregi 8. maí til að minnast fengins frelsis fyrir 20 árum, sveif andi stríðsáranna og gaf gesti sýn inn í manndóm Norðmanna og dró fram einhvern streng sem þjóðin á í sér og skilur hana frá öðrum — streng sem eflzt hefur í samstöðunni á hörmungarárum. Sjálfstæðiskvennafélagið Vor- boði Hafnarfirði. Vorboðafundur verður haldinn í Sjálifstæðisihús- inu, mánudaginn 17. þm. Matt- hias Á. Mathiesen flytur ræ'ðu, spiluð verður félagsvist og kaffi drykkja. Félagskonur fjölmenn- ið og takið með ykkur gesti. var venjan að leita til Gísla á Uppsölum, og aldrei árangur- laust. Árið 1929 kvæntist Bjarni Þóru Sigfúsdóttur frá Leiti í Suð- ursveit, hinni ágætustu konu — Skömmu eftir stríð stofnaði Bjarni nýbýlið Jaðar í Kálfafells- staðarlandi og hefur farnast veL Bjarni er mikill drengskapar- maður og vel kynntur, og hefur tekið að erfðum hina góðu eigin- leika ættar sinnar. Þau hjón hafa eignast þrjá syni, sem allir eru uppkomnir og efnilegir, og býr Ingimar sonur hans á Jaðri. Ég veit að margir eru þeir, sem á þessum tímamótum ævi hans senda honum, eins og undir- ritaður, hugheilar árnaðaróskir og þakka liðnar samverustundir. Jón Pétursson. ir stöðvuðust, engin flugvél ganga um 200 manna og kvenna flaug yfir, engin lest ók út af fulltrúar þeirra sem þátt tóku Fangar frá Grini á árunum 1941—1945 ganga inn á leikvangiim framhjá konungsstúkunni. Fulitrúar annarra Norðmanna, sem þátt tóku í baráttunni, standa úti á leikvanginum. Sextugur á morgun: BJarni Gíslason, bóndi að Jaðri

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.