Morgunblaðið - 16.05.1965, Side 21
^ Sunnudagur 1S. maí 1965
MORGUNBLAÐID
21
— Persíuferð
Framh. af bls. 10
er víðast hvar, því karlarnir
eru að hamra koparinn, slípa
og prútta. Þarna er hægt að
gera reytfarakaup — fá hlut-
ina fyrir hlægilega lágt verð
samkvæmt vestrænum mæli-
kvarða og það hreina listmuni
Maðúr byrjar fyrst á því að
spyrjast fyrir um verðið á
þeim hlut, sem kaupa á, á
þrem eða fjórum stöðum og þá
kemur í ljós hið „eðlilega“
verð áður en tekið er til við
prúttið. Sem dæmi get ég
nefnt, að bandarísk blaðakona
í hópnum hafði mikla ágirnd
á blómapotti úr kopar, sem
ætlaður er til að hafa á vegg.
Hún spurði um verðið og vildi
karlinn fá 150 riala. Hún prútt
aði, en komst ekki með verðið
niður fyrir 100 riala. Ég hafði
hug á að kaupa svona blóma-
pott líka og dróst því inn í
prúttið. Það var patað og
prúttað langa stund og við
skemmtum okkur konunglega.
Loksins gerðum við kaupin og
fengum sinn blómapottinn
hvort fyrir 60 riala. Við vor-
um ánægð og karlinn ekki síð
ur. Við höfðum börgað sem
svaraar ca. 30 ísl. kr. en
hér heima hefði slíkur kopar-
pottur kostað mörg hundruð
krónur.
í „bazarnum í Isfahan má
einnig sjá leifar hins gamla
en hverfandi tíma. Á einum
staðnum sá ég t. d. úlfalda
knýja steinkvörn í bakhúsi.
Þannig er frá hlutunum geng-
ið, að úlfaldinn getur ekki
stanzað, heldur gengur hann
í hringi allan liðlagan daginn
og kvörnin malar korn. Ódýr
aðferð en seinvirk.
Það er þess sannarlega virði
að skreppa til Persíu, þótt
ekki væri nema til þess eins
að fara á bazarinn í Isfahan,
borginni, sem einu sinni var
talin hálfur heimurinn.
Björn Jóliannsson.
— Skálholt
Framhald af bls. 6
dæmi samfundi presta og lækna,
rithöfunda og blaðamanna, stjórn
málamanna og húsmæðra, bænda
og sjómanna, verzlunarmanna og
hankamanna — og svo auðvitað
allt sitt á hvað. Samverustundir
listamanna, leikara, skálda af
ýmsum stefnum gætu verið at-
hyglisverður þáttur í slíkum
samfundum. Dæmin eru annars
óteljandi. Slíkt starf sem þetta
hefir borið merkilegan árangur
í ýmsum löndum og stefnir að
því að hamla gegn þeirri ein-
hæfni. sem er eitt af meinum
nútímamenningar. Þó að slík mót
eða samfundir sem þessi séu hald
in á vegum kirkjulegrar stofn-
unar, er alls ekki tilgangurinn
að miða við hana eina. Til skýr-
ingar get ég tekið fram, að
kirkjuakademíunni norsku var
ég einu sinni á mjög skemmti-
legu rithöfundamóti, þar sem
aðalumræðuefnið var sú skoðun
á manninum, sem fram hefði
komið í nútímabókmenntum. Þar
var hópur skálda og rithöfunda
af öllum Norðurlöndum, sem
ræddu saman um þetta efni, en
það væri synd að segja, að það
hefði verið einlit hjörð. Þar voru
hákaþólskir og lútherskir kirkju-
menn og eldrauðir kommúnistar,
sem ræddust við í friði og bróð-
erni. Sumir voru hiklausir trú
menn, aðrir trúlausir — og allt
þar á milli. En samfundirnir
höfðu áreiðanlega orðið til þess
að þeir, sem þarna kynntust per-
sónulega, skildu hver annan bet-
ur en ella. Ég hefi gert ráð fyrir
því, að skólar þeir og námskeið,
sem haldin eru í Skálholti
byrjarstigi, séu ekki fjölmenn,
en sé þessi menntastofnun vel
rækt, ætti hún samt að geta náð
til allmarga. Hitt er auðvitað
sjálfsagt, að sumt af því, sem
fram fer, sé opið öllum almenn-
ingi, eftir því sem húsrúm leyfir,
og þó að ekki sé til stórir fyrir-
lestrasalir, þá er margt þess eðl-
is, að engin ástæða er til annars
en að leyfa fjölmennari hópum
aðgang. Tek ég suma fyrirlestra,
og helgileiki til dæmis, er fram
gætu farið í hinni nýju Skál-
holtskirkju.
Hér læt ég staðar numið. Þess-
ar hugmyndir eru raunar ekki
annað en umræðugrundvöllur og
sjálfsagt er margt, sem ekki er
hægt að vita, hvernig reynast
myndi. En eigi SkálhOltsstofnun-
in að verða annað en skýjaborg
og loftkastali, tel ég eðlilegast að
reyna að byggja hana á þeirri
reynslu, sem fengizt hefir annars
staðar, þar sem svipaðar stofn
anir hafa staðið á jörðinni ára-
tugum saman. Ég vil að lokum
taka fram, til að forðast mis-
skilning, að þeirri stofnun, sem
hér er um að ræða, er alls ekki
ætlað að tefja fyrir eðlilegum
framkvæmdum lýðháskólamáls-
ins né öðru, sem koma skal.
Jakob Jónsson.
„Morgunfugr.
London 3. nraí (NTB)
Á sunnudaginn voru sendar
sjónvarpsmyndir um sjón-
varpshnöttinn „MorgunfugT*
frá Bandaríkjunum til Evr-
ópu og Evrópu til Bandarikj-
anna. Sjónvarpsnotendur í
Evrópu sáu sjónvarpsmyndir
frá Dóminíkanska lýðveldinu
og heyrðu Martin Luther
King flytja ræðu um réttinda
kröfur blökkumanna. Banda-
rískir sjónvarpsnotendur
fylgdust hins vegar með á-
varpi Páls páfa VI af svölum
við Péturstorgið, þar sem
hann hvatti mennina til að
varðveita friðinn í heiminum.
Beggja vegna Atlantshafs-
ins voru menn samn-.ila um,
að sjónvarpssendingar þessar
hefðu heppnazt mjög vel og
myndirnar verið skýrar.
Vegna jarðarfarar
Þorvaldar Jónssonar verður skrifstofu okkar
lokað mánudaginn 17. maí.
Heildverzlun ÓLAFSSON og LORANGE
Klapparstíg 10.
IHatreiðslumaður
óskar eftir starfi í Reykjavík eða nágrenni.
Meðmæli fyrir hendi.
Upplýsingar í síma 12183.
Keflavík
Tilboð óskast í nýlegt fiskverkunarhús í Keflavík,
ásamt skreiðargeymslu, vörubifreið, fiskhjöllum, síld
arsöltunartækjum o. fl. — Skriflegum tilboðum skal
skila til Fasteignaskrifstofunnar, Hafnargötu 27,
Keflavík, eigi síðar en 15. júní n.k. — Upplýsingar í
síma 1136 og 2342 í Keflavík.
Vélgœslumaður
Maður vanur vélgæzlu, getur fengið framtíðarat-
vinnu nú þegar hjá iðnaðarfyrirtæki. Alger reglu-
semi áskilin. Umsóknir er greini aldur, hæfni og
fyrri störf sendst Morgunblaðinu fyrir 20. þ.m.
merkt: „Végæzlumaður — 6866“.
UTGERÐARMENN
SKIPSTJÓRAR
Tovi kraftblökk
Ný mjög fullkomin gerð af KRAFTBLÖKK
frá Thorsteinsvik Mek. Verksted A.S.
Noregi. — Verðið sérlega hagstætt.
Sýnishorn á staðnum.
rt n
Sími 20-000.
Husqvarna
SlátUnélar m
hand- oo
vélknúnar
Husqvarna
GUNNAR ÁSGEIRSSON H.F. — SÍMI 35-200.
Sumarrýmingarsala
í vinnufatakjallaranum
8 tegundir af íslenzkum gallabuxum og
5 tegundir af erlendum í nr. 2—16. Seljast
allar á 129 kr. stk. næstu daga. — Einnig
köflóttar drengjaskyrtur á 79 kr. Vinnu-
skyrtur karla, 98 kr., Vinnubuxur karla
198 kr. Kakisett drengja (buxur og skyrta)
á 220 kr. Terylene-buxur drengja frá 195
kr. Terylene-buxur karla frá 495 kr.
Vinnufatakjallðrinri
Barónsstíg 12.
Til leigu
er lítið einbýlishús með fallegri lóð á góðum stað
í bænum. Fyrirframgreiðsla. Tilboð sendist blaðinu
merkt: „Leiga — 7353“ fyrir 20. þ.m.
BIT- S ACKETTER
gerfi-sykur
án bætiefna (kaloria), án
nokkurs aukabragðs.
Grennandi. ■m
SELDUR í ÖLLUM
LYFJABÚÐUM.
Útboð á flutningum
Tilboð óskast í flutning á steypumöl og sementi frá
Reykjavík til Eyrarbakka, á timabilinu 25. maí til
31. ágúst n.k.
Áætlað magn er, 1000 teningsmetrar steypumöl,
miðað við ámokað á bíl í Reykjavík, og 500 tonn
sement, einnig komið á bíl.
Tilboðin hafi borizt til Hafnarnefndar Eyrar-
bakka, fyrir 20. maí n.k.
Réttur er áskilinn til að taka hvaða tilboði sem
er, eða hafna öllum.
Hafnarnefndin Eyrarbakka.
Tækifæriskaup — Vcrðiækkun
Seljum á mánudag og
nokkra næstu daga á
stórlækkuðu verði ma.
Drengjaskyrtur frá 90 kr.
Telpublússur — 95 —
Telpubuxur stretch nylon, drengjabuxur
terylene, vatteraðar úlpur á börn og ungl-
inga o. fl. Auk þess nokkur sýnishorn af
brjóstahöldurum á stórlækkuðu verði.
Notið þetta tækifæri og kaupið góðan og
ógallaðan fatnað á hagstæðu verði.
STENDUR AÐEINS ÖRFÁA DAGA.
Verzlunin ELFUR
Snorrabraut 38.