Morgunblaðið - 16.05.1965, Side 26
26
MORGUNBLADIÐ
Sunnudagur 16. maí 1965
Fermíng á
Patreksfirði
Ferming á Patreksfirði 16. maí
1965, kl. 10,30. Prestur sr. Tómas
Guömundsson.
STÚLKUK:
Anna Sigrún Hermannsdóttir
Agústa M. Óskarsdóttir.
Hallfríður Ingimundardóttir.
Jóhánna Björnsdóttir.
Kolbrún Pálsdóttir.
Sesselja G. Arthúrsdóttir.
Sigríður Harðardóttir.
Sólrún Anna Ólafsdóttir.
Sólveig Alda Karlsdóttir.
DRENGIR:
Aron Magnússon.
Björn Vilbergsson.
Hafsteinn Númason,
Halldór Ámason.
Haraldur Þorsteinsson,
Ingvar Hjartarson,
Pétur Ólafsson.
Rafn Hafilðason.
Resmir Örn Finnbogason,
Snæbjörn Örn Reynisson.
Valur Ingvarsson.
Öm Ingvarsson.
Sveinn Einarsson, Haukabergi.
Gísli Már Einarsson, Hreggsstöðum.
Auglysinga-
falsanir
Hr. ritstjóri,
í blaði yðar s.l. fimimtudag
birtist mjög fyrirferðarmikil
auglysing undir nafni voru þar
sem auglýst var eftir starfsmönn
um til verks, sem vér höfum
með höndum.
Er þar skemmst frá að segja,
að auglýsing þessi er oss alger-
lega óviðkomandi og hefir eng-
inn starfsmanna félagsins átt þar
hlut að móli. Auglýsingin er sem
sagt fölsuð.
Ekki er þó sagan öll sögð því
að í gærdag komumst vér á snoð
ir um, að búið var að hleypa af
stað mikilli auglýsingaskriðu í
hinum dagblöðunum og átti sú
auglýsing að standa dögum sam-
an. Fyrir árvekni auglýsinga-
stjóra Alþýðublaðsins tókst þó
að stöðva þann flaum, sem að
öðrum kosti hefði sennilega hald
ið áfram næstu vikurnar. Erfitt
var fyrir starfsmenn blaðanna að
átta sig á fölsunum þessum þar
sem viðkomandi aðili beitti fyr-
ir sig nafnafölsun í símtölum og
viðhafði aðrar fágaðar kúnstir
brotamanna.
Með þökk fyrir birtinguna.
Almenna byggingafélagið h.f.
Ósló, 14. maí (NTB)
• Norðurlöndin, Danmörk,
Noregur, Svíþjóð og Finn-
land, hafa skorað á brezku
stjórnina að fella þegar í stað
niður 10% innflutningstollinn.
Telja ríkin það mikilsvert til
þess að unnt sé að efla sam-
vinnuna innan Fríverzlunar-
bandalagsins.
ÁHUGAMENN um jazz hafa
bundizt samtökum um að
hefja starfsemi jazzklúbbs í
Reykjavík. Sl. mánudag var
fyrsta jazzkvöldið haldið.
Ráðgert er, að jazzkvöld verði
haldin . h vern mánudag og
hafa forráðamenn klúbbsins
fengið Tjarnarbúð til umráða
fyrir starfsemi klúbbsins þessi
kvöld.
Jazzunnendur munu eflaust
fagna þessu framtaki, enda
kom það raunar í ljós fyrsta
kvöldið. Það var fjölsótt og
ríkti almenn ánægja meðal
gesta, en um tónlistarflutning
sáu okkar beztu jazzleikarar.
Fyrir nokkrum árum naut
slíkur klúbbur mikilla vin-
sælda, en undanfarin þrjú ár
hefur lítil rækt verið lögð við
Hljómsveit Þórarins Ólafssonar kom fram á fyrsta jazzkvöldinu. Frá vinstri: Friðrik Theódórs- f
son, Þórarinn Ólafsson, Guðmundur Steingrímsson og Örn Ármannsson.
1
Jazzklúbbur tekur til
starfa í Reykjavík
jazz hér í borg. Það er Þráinn
Kristjánsson, sem á allan veg
og vanda af því, að jazzklúbb-
ur er aftur kominn á kreik, og
sagði Þráinn í viðtali við blað-
ið, að jafnan mundi verða
stefnt að því að fá færustu
hljóðfæraleikara til að flytja
jazz. Einnig er í ráði að fá
þekkta, erlenda jazzleikara til
að koma fram á kvöldum þess
um, og hefur Þráinn sett sig
í samabnd við umboðsskrif-
stofu í London í því skyni.
Þráinn sagði, að jazzáhugi
hefði aukizt til muna undan-
farin ár, og því væri mjög
tímabært, að stofnað yrði til
jazzklúbbs í íteykjavík. Kvað
hann þá ráðstöfun hafa mælzt
mjög vel fyrir, og væru hljóð-
færaleikarar mjög fúsir'til að
koma fram. Klúbburinn mun
verða opinn til kl. 1 e.m. fyrsta
mánudag , hverjum mánuði,
en aðra mánudaga verður
klúbburinn opinn til kl. 11:30
e.h. Þráinn hefur fullan hug á
því að fá hljómsveitir til að
koma með sérstaklega æfðan
jazz, en þetta mun gefa efni-
legum tónlistarmönnum tæki-
færi til að fást við útsetning-
ar og koma þeim á framfæri.
Góð stemming ríkti á þessu
fyrsta jazzkvöldi sl. mánudags
kvöld. Mikill fjöldi hljóðfæra-
leikara kom þarna fram, og
má þar nefna m.a. Gunnar
Ormslev, Pétur Östlund, Guð-
mund Steingrímsson, Þórarin
Ólafsson, Karl Möller, Friðrik
Theódórsson, Örn Armannsson
og Halldór Pálsson. Haildór er
ungur hljóðfæraleikari, en þó
enginn nýgræðingur í hljóð- |
færaleikrarastéttinni, — hefur |
leikið með hljómsveit Svavars §
Gests í vetur. Vakti Halldór |
mikla hrifningu gesta fyrir |
leik sinn.
Sem fyrr segir eru jazz- |
kvöldin haldin í Tjarnarbúð. |
Húsakynni þar eru einkar vist |
leg og vel til slíkra kvölda fall |
in. Ef að líkum lætur verður |
setinn bekkurinni Tjarnarbúð |
næstu mánudagskvöld. Ætlun |
klúbbsins er einmitt sú að |
stuðla að auknum jazzáhuga §
meðal borgarbúa.
,m in iii iii iii 111111111111
1111111111111111111111111111111111!11111111111MlllllllllII1111111111111111111111111
11111111111111111111111111111111 iniiiiinimiiii iiiiiiiiniiiiiiii 11111111111111111111111
1111111111111111111111111
111111111111111111
im
Rússnesk ungmenni
koma tíl skemmtanahalds.
N.K. MIÐVIKUDAG er væntan-
legur hópur rússneskra ung-
menna er mun koma fram á veg-
um Skrifstofu skemmtikrafta í
Þjóðleikhúsinu fimmtudaginn 20.
maí kl. 9. Þetta er 8 manna flokk-
ur, sem ferðazt hefir um Norður-
lönd að undanförnu og hlotið af-
braigðsgóðar undirtektir.
Vaelanttin Bjeltsjemko er pí-
anóleikari sem hlaut 1. verðlaun
í alþjóðásamkeppni sem haldin
var í Búdapest og kennd er við
Fr. Liszt og Bela Bartok.
Anatolij Tikhinov, balalaika-
snillingur leikur í Ríkishljóm-
sveit rússneskrar tónlistar. Hann
fcefir tekið þátt í alþjóðíegri
keppni tónlistarmanna sem leika
á þjóðleg hljóðfæri og hlotið 1.
verðlaun.
Stanislav Linkevitsj leikur á
bajan, rússneska tegund har-
moniku. Hann hefir hlotið 1.
verðlaun í samkeppni Sovétríkj-
anna fyrir leik á þjóðarhljóðfær.
Linkevitsj leikur sigild lög auk
rússneskra þjóðlaga.
Tatjana Melentjeva, lyriskur
sópran er stúdent við framhalds-
deild Ríkistónlistarskólans í Len-
ingrad og syngur jafnframt í
flokki á vegum háskólans. Hún
syngur rússnesk lög.
Andrei Khramtsov, baryton-
söngvari syngur við Kirovleik-
húsið í Leningrad, sem er annað
stærsta óperu- og listaleikhús
Sovétríkjanna. Hann syngur
rússnesk þjóðlög, nútímalög og
óperuaríur.
Ludmila Philina og Valeri
Dolgallo frá Malileikhúsinu
(Akademiska óperuleikhúsinu í
Leningrad) hafa sýnt í Ástralíu,
Nýja-Sjálandi, Afríku og Vestur-
Evrópu. Þau dansa Adagio úr
Svanavatninu, Norskan dans eft-
ir Grieg o. fl.
Töframaðurinn Grigorij Pank-
ov hefir hlotið 1. verðlaun í sam-
keppni áhugalistamanna í Sovét-
rikjunum.
Samkvæmt blaðafréttum hefir
hópnum verið tekið með miklum
fögnuði á Norðurlöndum. Andrei
Khramtsov söng á Youngtorginu
hinn 1. maí og segja norsk blöð
að slíka rödd hafi menn eigi
UFRERÐARFRÆÐSLA í barna-
skólum borgarinnar á vegum um
ferðarnefndar og lögreglunnar í
Reykjavík, fyrir þau börn er eiga
reiðhjól, verður mánudaginn 17.
maí kl. 16.00 í eftirtöldum sól-
um. m
Austurbæjarskóli, Hlíðarskóli
og öldugötuskóli.
Þriðjudaginn 18. maí kl. 16.00
verður kennt í þessum skólum:
Laugarnesskóla, Laugalækja-
skóla ofi Langholtsskóla.
heyrt síðan Paul Robeson söng
þar. Norska ríkisútvarpið hljóð-
ritaði margra stunda efni af söng
og hljóðfæraleik hinna rússnesku
ungmenna.
Miðvikudaginn 19. maí í eftir-
töldum skólum á sama tíma:
Breiðagerðisskóla, Álftamýrar
skóla og Vogaskóla.
Fimmtudaginn 20. maí á sama
tima í:
Melaskóla, Miðbæjarskóla og
Árbæjarskóla.
Lögreglumenn munu heim-
sækja skólana og kenna börnun
um umferðareglur og rétta stað
setningu í umferð, ennfremur
verður þeim gefið blaðið Um-
íerðamál 1965.
Umferðarfræðs! a
fyrir börnin