Morgunblaðið - 16.05.1965, Síða 10

Morgunblaðið - 16.05.1965, Síða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ Sunnudagur 16. maí 1965 ■ . 4 Þakhvelfing Lutfoliah moskunnar. VIÐ norrænu og bandarísku blaðamennirnir, sem ferðuð- umst fyrir nokkru um Persíu í boði flugfélagsins SAS og irönsku stjórnarinnar, vorum allir sammála um, að skemmti legasti og forvitnilegasti stað- urinn, sem við heimsóttum í landinu, hefði verið borgin Isfahan. Boygin er nærri því um mið- bik landsins og er á víðáttu- mikilli hásléttu, sem er um 1500 metra yfir sjávarmál. Isfahan á sér um 3000 ára sögu að baki og hefur séð margt um dagana. Nebúkad- nesar hinn assyríski sendi þangað Gyðinga í útlegð um 700 árum fyrir Krist og Alex- ander mikli er talinn hafa dvalið í borginni um hríð. Enn þann dag í dag er talvert um Gyðinga þar, eitthvað um 6.500 talsins, og hafa þeir sitt eigið borgarhverfi. Hin langa og fjölskrúðuga saga borgarinnar kemur m. a. fram í nafni hennar. Vestrænir menn kalla hana yfirleitt Isfahan, en nútíma Persar kalla hana Esfanhan. Álitið er að fyrsta nafnið hafi verið Sepahan, en „sepah“ þýðir her á persnesku, enda þykir trúlegt að hún hafi verið setu liðsborg í upphafi vegna hinn- ar mikilvægu legu sinnar hern aðarlega séð. Múhameðstrúarmenn unnu borgina árið 644 eftir Krist eftir 4 ára styrjöld og hefur hún alla tíð síðan borið svip 'þeirra trúarbragða, ekki sízt í byggingarlist, en hún ber einnig merki um yfirráð Araba, Mongóla, Tyrkja, Afgana og að sjálfsögðu Persa sjálfra. Það var á öndverðri 17. öld, sem mesta blómaskeið borgar innar rann upp. Árið 1590 gerði Abbas hinn mikli Isfa- han að höfuðborg sinni og það var hann, sem lét byggja hin- ar miklu moskur og hallir sem enn þann dag í dag eru hin mesta prýði borgarinnar. Það var á hans tímum, sem nafnið Isfahan festist við borgina, en íbúarnir sögðu með stolti, að hún væri hálfur heimurinn, Nesf-e-Jahan. í dag mætist gamli og nýi tíminn í þessari sögufrægu borg. Maður sér karlana ríð- andi á ösnum sínum innan um nýtízku bíla og Pepsi Cola auglýsingar eru allsstaðar. Þó Isfahan telji um hálfa milljón íbúa finnst manni þar allt með kyrrð og ró, mikil um- skipti frá ysnum og þysnum í Teheranborg. í Isfahan dvöldum við blaða mennirnir í geysifögru hóteli, sem ekki var búið að opna fyrir ferðamenn, því ekki var að fullu lokið við að búa það út fyrir móttöku gesta. Hótelið er byggt upp af gam- alli höll og hefur arkitektinn látið það halda sínum sér- stæða gamla stíl. Umlykur hótelið fagran garð, sem gerð- ur hefur verið af mik)” l:st- fengi. Af öllu því, sem ménn mun fýsa að sjá í Isfahan, mun ég aðeihs minnast á nokkur atriði. Þá er fyrst að telja höllina Chehel Sotoon eða Höll hinnk fjörutíu súlna. Hún var byggð af Abbas hin- um mikla og var í fyrstu not- uð til skemmtanahalds en síðar sem móttökusalur fyrir keisarann. Þakið yfir anddyr- inu er borið uppi af 20 súlum, en þegar taldar eru með súl- urnar 20, sem endurspeglast í tæru vatninu fyrir framan höllina, verða þær alls 40 talsins. Það er ástæðan fyrir nafngiftinni. Inni í höllinni eru fagrar veggmyndir og mót tökusalurinn er nú notaður til að varðveita fornmuni og mátti þar meðal annars sjá forn handrit, sum meira en 1000 ára gömul. Sumir dönsku blaðamannanna í hópnum reyndu í gamni að stríða okk- ur íslendingunum á því, að hér væri nú eitthvað fyrir okkur að heimta heim til ís- lands. Þegar við heimsóttum Chehel Sotoon var verið að vinna að því að bjarga göml- um veggmyndum,' sem enginn hafði hugmynd um að væru þarna, þar til myndirnar upp- götvuðust fyrir tilviljun. Hafði einhver gáfumaðurinn látið þekja hinar fornu vegg- skreytingar með gibsi. Pers- arnir, sem með okkur voru, áttu ekki orð til að lýsa reiði sinni yfir þessari skemmdar- starfsemi, sem von var. Þó er haldið, að unnt verði að gera við skreytingarnar, svo þær verði í sínu upprunaiegu formi, en það kostar mikið fé og fyrirhöfn. Aðaltorg Isfahan nefnist Maidan-e-Shak, eða torg keis- arans. Það má með sanni segjá, að torgið sé hjarta borg arinnar, en það líkist fremur stórum garði en torgi á vest- ræna vísu. Það er 512 metra langt og 160 metra að breidd. Torgið er álitið meira en 2000 ára gamalt, en byggingarnar við það eru flestar frá 16. og 17. öld. Þá var torgið notað sem polo leikvöllur og horfði Abbas hinn mikli, ásamt er- lendum gestum sínum á beztu reiðmenn ríkisins leika þar polo og sýna listir sínar. Sat Abbas í mikilli stúlku, Ali- Qapu, sem var jafnframt inn- gangur að höllum hans. í dag er Ali-Qapu notað sem minja- safn. Við torgið eru einnig hinar miklu og fögru moskur, sem margir telja hinar fegurstu í veröldinni, Shah moskan og Lutfollah moskan. Shah moskan er miklu stærri, hefur fjórar minarettur (bæna- tuina) og eina þakhvelfingu. Moskan var byggð af Abbas hinum mikla á árunum 1612'— 1630 og var marmarinn í hana fluttur um 100 mílna vega- lengd frá Ardistan. Moskan er bláleit í grunninum og er með svo fínge.rðu útflúri að maður trúir varla sínum eigin aug- um. Hún er hreint listaverk, sem ómögulegt er að reyna að lýsá méð fátæklegum orðum. Anddyrið við torgið er með tveim minarettum, 48 metra háum, en minarettur þak- hvelfingarinnar eru 52 metra háar. Það er hægt að dvelja klukkustundum saman í mosk unni, reika um bænahvelfing- arnar og undrast snilld þeirra huga og handa sem skópu þetta furðuverk. Við torgið andspænis Ali Qapu er Lutfollah moskan sem byrjað var að byggja árið 1603 og lokið var 1618. Þar er enn eitt af verkum Abbas hins mikla. Þakhvelfing mosk- unnar er gulleit og skreyting- in er ekki síður fíngerð og listilega unnin en á Shah moskunni. Engar minaettur prýða Lutfollah móskuna, sem var upphaflega byggð til bæna fyrir konur keisarans. Fóru konurnar eftir gangi, sem lá undir torgið frá höll- um kéisarans og fluttu þær bænir sínar undir gólfi aðal- hvelfingarinnar. Þessi háttur var á hafður, þar sem enginn mátti líta andlit kvennanna. Múhameðstrúarmenn halda því fram, að hvergi finni menn betur til nálægðar guðs en í Lutfollah moskunni,- Isfahan hefur fleiri moskur til að státa/af og þar á meðal mosku og byggingar guð- fræðiskólans, Chahar Bagh. Loks er þá að minnast á það, sem heilla mun ferða- menn meira en nokkuð annað í Isfahan, meira en moskurn- ar og hinar fornu minjar, en það er bazarinn, sem er einn hinn mesti í heimi. Það er ævintýri líkast að reika um bazarinn, virða fyrir sér vörurnar og fólkið, finna hina sérkennilegu lykt, sem er mjög framandi Vesturlanda- búum. Erí - skemmtilegast af öllu er nú samt að prútta við karlana. Prúttið er ómissandi liður í allri verzluri í Persíu. Þar er alls staðar prúttað nema í bönkum, hótelum, veit ingahúsum og matvörubúðum. Allir vita að kaupmaðurinn setur upp hærra verð, en hann býst við að fá og hann veit að viðskiptavinurinn veit það líka. Þá hefst prúttið og fyrir Persana skiptir það kannski einna mestu máli þegar kaup eru gp^* Punktar úr Persiuferð Bazarinn í Isfahan er fræg- ur fyrir hvers kyns handurina muni, úr gulli, silfri, kopar, leðri, fyrir handmálaða dúka og klæði, fyrir teppagerð og útskorna muni svo eitthvað sé nefnt. Handiðnaðarmennirnir sitja í litlum kompum eða vinnu- stofum í bazarnum og þar fer salan fram. Talsverður hávaði Framhald á bls. 21 Ali Qapu, keisarastúkan, sem var yfir innganginum að höllum og görðum keisarans. Hún er við aðaltorgið í Isfahan gegn Lutfollah moskunni. Frá bazarnum í Isfahan.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.