Morgunblaðið - 02.07.1965, Side 2

Morgunblaðið - 02.07.1965, Side 2
 MORGUNBLAÐIÐ Fðsturtagur 2. juíí 1965 Fyrstu bátarnir farnir ásíld fí ísafirði, 1. júíi., FRÉTTIN um lausn siidar- áleilunnar varð ölilum mikið fagn Beiboingu Rvíkurborgu fyrir 1964 sunþykktir somhljóðn Á FUNDI borgarstjórnar Reykjavíkur í gær voru reikn ingar Reykjavíkurborgar fyr ir árið 1964 til annarrar um- ræðu. Umræður um reikning- ana voru stuttar og voru þeir samþykktir að þeim loknum með 12 samhljóða atkvæðum, en kommúnistamir þrír sátu hjá. Það vakti athygli, að gagn- rýni minnihlutaflokkanna var að þessu sinni mjög kraftlítil Endurskoðendur minnihlutans gerðu engar athugasemdir við reikningana og sú gagnrýni, sem á fundinum var höfð uppi á fjármálastjórn borgarinnar, var mjög veigalitil. Verður skýrt frá umræðun um síðar hér í blaðinu. Atvinnuflug- menn ljúkju prófum NÝLEGA hefur hópur atvinnu flugnema lokið bóklegum próf- um frá flugskóla Flugsýnar á Reykjavíkurflugvelli, og stóðust allir prófið. Hæstu meðaleink- unn hlaut Sigurður Elli Guðna- son, Suðurlandsbraut 64, Reykja vík, 94,2 stig, en hæst er gefið 100 st. Skólastjóri bóklega skóla Flugsýnar er Jón Óskarsson, flugumsjónarmaður, og kenndi hann síglingafræði. Veðurfræði kenndi Jónas Jakobsson veður- fræðingur, flugreglur kenndi Valdimar Ólafsson, yfirflugum- ferðarstjóri, og flugeðlis- og vélfræði kenndi Lárus Gunnars- son flugvirki. Nú stendur yfir innritun nem enda í bóklega skólann fyrir næsta vetur, bæði fyrir einka- flugmenn og atvinnuflugmenn. Kennsla byrjar 15. október n.k. (Fréttatilkynning frá Flugsýn). AKRANESI, 1. júlí. — Humar- báturinn Ásmundur kom inn í morgun og landaði 7 tonnum af fiski og 10 kg af slitnum humar. Þilfarstrillan Frosti, fjórir á, landaði sl. þriðjudag í Reykja- vík 4,5 tonnum af ísvörðum fiski, sem þeir veiddu á handfæri vest- ur af Flaki á Breiðafirði. aðarefni hér um slóðir og strax fyrir kl. 8 voru sjómenn komnir niður að bryggju að bátum sín- um, en í höfninni hér lágu um 10 síldarbátar frá ísafirði, Hnífs dal og Rolungarvík. Margir höfðu tekið næturnar upp á bryggju og var strax hafizt handa um að taka þær um borð. Guðbjörg frá ísafirði komst fyrst af stað kl. 2)1.30. Guðbjartur Kristján mun vera rétt á förum nú um kl.22 og síðan fara bátarnir hver af öðrum í kvöld, þótt vera kunni að 2 eða 3 þeirra verði síðbúnir, þar sem allmargir skipverja eru í Reykja vík eða annars staðar fjarri, en þó munu einhverjir þeirra vænt anlegir hingað með flugvélum i kvöld. — H.T. . ., ■ “ ■■ : >- i '' ■ *■ Það var uppi fótur og fit við höfnina í gær, er það sþurðist, að síldveiðideilan væri leyst. — Myndir þessar tók ljósm. Mbl. Ól.K.M. í gærkveldi, og á þeirri efri sést fyrsta síidarskipið leggja úr höfn í Reykjávík í gær, en það var Guðmundur Þórðarson. Á neðri myndinni sést hvar Þorsteinn leggur úr höfn og fyrir framan hann er Guðmundur Þórðarson að skríða út úr hafn- armynninu. — Nokkur skip héldu á miðin frá Seyðisfirði og Norðfirði, þegar í gærkvöldi. í gærkvöldi og í nótt var stöðugur straumur fólks til Austfjarða. Voru það bæði áhaínir sildveiði skipanna og annað fólk, sem vinnur við síldina í sumar. Sumarferð Sjálf- stæðisfélaganna í Hafnarfirði HIN árlega sumarferð fulltrúa- ráðs sjálfstæðisfélaganna í Hafn arfirði verður farin sunnudag- inn 4. júlí n.k. Lagt verður af stað frá Sjálf- stæðishúsinu kl. 8 f.h. stundvís- lega. Ekið verður til Selfoss, að Múlakoti og þar snæddur hádeg- isverður. Síðan verður ekið a5 Keidum, Gunnarsholti, Hellu Skálhólti um Laugardal, Lyng- dalsheiði og síðan að Gjábakka á Þingvöllum.og þar snæddur kvldverður. Að því loknu verð- ur ekið um Þingvelli heimleiðis. Þátttökugjald er kr. 300, há- degis og kvöldverður er inni- falið í verðinu. Þátttakendur eru beðnir að hafa með sér kaffi fyrir feiðina. Væntanlegir þátttakendur eru vinsamlega beðnir að tilkynna þátttöku sína í dag föstudag kl. 14 — 18 í Sjálfstæðishúsinu, Hafnarfirði. Sími 50228. Varðskipið Albert flytur fólk frá Ingólfsfirði Skagaströnd, 1. júlf. VARÐSKIPIÐ Albert kom hér í dag með 29 farþega, sem það tók á Ingólfsfirði. Fólk þetta er úr Árneshreppi, og hafði það með sér þrjá jeppa og eina fólks bifreið, sem ætlunin er að nota á ferðalagi um landið. Þettá fólk var flest að fara á landsmót Ungmennaféiags Islands að Laugarvaini. — Þórður, Flugþjonustan hf. Nýtt flugfélag Flugfélagsins og Björns Pálssonar SAMNINGAR hafa nú tekizt með Flugfélagi lslands og Birni Fáls- syni um stofnun félags, sem tek- 1 ur að sér flugrekstur þann, er Björn Pálsson hefur haft á hcndi og kaupir eignir flugþjónustu Björns Pálssonar. Þetta nýja fé- Alþingi ekki kvaft saman EINS og skýrt var frá í Mbl. i gær, fóru þingflokkur og framkvæmdarstjóm Framsóknar flokksins svo og formaður þing- flokks Aiþýðubandalagsins þess á leit við forsætisráðherra í fyrra dag, að Alþingi yrði kvatt sam- an til fundar vegna síldardeil- unnar. Ríkisstjórnin hefur nú svarað þessu með svohljóðandi tilkynningu: „Tilmælum Alþýðubandalags- ins og Framsóknarflokksins um að Alþingi verði kvatt til fund- ar hefur ríkisstjómin svarað þannig: „Fo.rsætisráð uney tið Reykjavík, I. júlí 1965. Ríkisstjórnin telur að kvaðn- ing Alþingis til aukafundar nú mundi ekki greiða fyrir lausn aðsteðjandi vandamála, sem ríkisstjórnin ásamt ýmsum öðr- um vinnur að lausn á eftir þeim leiðum, sem líklegastar eru til árangurs. 1 þessum efnum hcfur ríkisstjórnin samráð við stuðn- ingsflokka sína og mun að sjálf- sögðu taka til athugunar allar tillögur frá öðrum þingflokkum tii lausnar vandanum, ef ein- hverjar siíkar kynnu að koma fram. Af þessum ástæðum verð- ur ekki fallizt á máialeitan þá, sem felst í erindum þingflokks og framkvæmdastjórnar Fram- sóknarflokksins og þingflokks Alþýðubandalagsins da&S. 30. júní 1965. Bjarní Benediktsson (sign) Birgir Thorlacius (siguj. lag heitir Flugþjónustan h.f. og eru hluthafar í henni annars veg- ar Björn Pálsson og sonur hans Sveinn, sem eiga 40%. Hins veg- ar Flpgfélag Islands ásamt fjór- um einstaklingum: Erni Ó. John- son, Birgi Þorgilssyni, Einari Helgasyni og Jóhanni Gíslasyni, en þeir eru allir starfsmenn Flugféiagsins. Hlutafé hins nýja félags er 3,5 millj. króna og keypti félagið eignir Björns Páls- sonar fyrir tæpar 6,3 millj. króna. Framkvæmdastjóri Flugþjón- ustunnar h.f. verður Björn Páls- son og verður rekstrinum hagað á svipaðan hátt og Björn Páls- son starfaði áður: Vélar verða leigðar til sjúkraflugs og annarra ferða og auk þess verður haldið uppi áætlunarferðum á þeim leið- um, þar sem Björn hefur sérleyfi. í viðtali við fréttamenn'í gær sögðu þeir Örn Ó. Johnsori og Björn Pálsson, að þeir vonuðust tii að þessi nýja flugsstofnun yrði til að styrkja innanlands- flugið og auka flugþjónustu við landsbyiggðina. Félaginu verður ætlað að starfa sjálfstætt að mestu leyti. Farþegaafgreiðsla verður á sama stað og áður hjá Birni Pálssyni — og viðhald flugvéla fer áfram fram í gömlu húsakynnunum. Samt er líklegt að samvinna verði milli Flug- þjónustunnar og Flugfélags ís- lands í daglegum flugrekstri eftir því sem henta þykir, en frá þeim hliðum málsins er enn ekki gengið. Samningarnir voru undir ritaðir í gærmorgun en ekki hef- Ur enn verið gengið frá öllum framkvæmdáratriðum. Sagði Björn Pálsson, að Slysa- varnafélagið ætti hlut í tveimur flugvéla sinna og hefði félagið óskað að eiga þann hlut áfram. Annars eru flugvélar Björns, þær sem hann nú selur, fjórar talsins og hafa þær samtals 34 farþegasæti. Björn Pálsson hefur fengið sér- leyfi til að fljúga til eftirgreindra staða, en reiknað er með að Flugþjónustan h.f. taki nú að sér flug þangað: Patreksfjarðar, Hellissands, Þingeyrar, Önundar- fjarðar, Reykjaness, Gjögurs, Stykkishólms, Vopnafjarðar oig Hólmavíkur, en til síðastnefnda staðarins hefur lítið verið flogið vegna lítils flutnings samkv. þvi er Björn Pálsson sagði á blaða- mannafundinum í gær.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.