Morgunblaðið - 02.07.1965, Page 5

Morgunblaðið - 02.07.1965, Page 5
Föstudagur 2. jðlí 1965 MORGU N BLADID 5 ÞEKKIRÐU LANDIÐ ÞITI? Mynd þessi er aí hurðar- spjaldi, sem geymt er í Þjó’ð- minjasafni. Er spjaldið úr maihogny og með upphleyptu flúri. Taldi dr. Matt'hías Þórð arson að það mundi vera kom ið úr ,,gullskipinu“ hollenzka, sem strandaði á Skeiðarársandi 19. september 1667. Tvennt þótti merkilegast um þetta strand. Fyrst var nú það, að aldrei hafði dýrari skipsfarm ur farið forgör’ðum í brimróti við íslandsströnd, hann var talinn um 8,6 millj. króna virði á þeirrar tíðar mæli- kvarða. Hitt var það, að aldrei hafa farist jafn margir menn af strandskipi hér, 150 — 200. Skipið brotnaði við sandinn og rak tailsvert af varningi úr því, svo sem silkiklæði og kryddvörur. Var talað um a'ð bænduir í öræfum hefði sölsað aJLmikið undir sig og falið í skxjguim, og því kvað Þorsteinn tód Gizurarson svo: Flestir hafa fengið nóg, fælist hrafn og refurinn, út er kominn um allan skóg ind'íanski þefurinn. En það sem bændur náðu ekki í, lét Otto Bjelka flytja til Bessastaða, kallaði vogrek og kóngsins eign, en íslendingar grunuðu hann um a'ð hafa söls að mest af því undir sig. — Nú hefir þetta skip, „Het Wapen van Amsterdam”, komist á dagskrá að nýu, vegna þess að menn hafa verið að leita að þvi á söndunum, í von uim að finna þann fanm, sem eftir var í skipinu, kopar, gull og gimsteina. En miklar breytingar hafa orðið á þess- um slóðum seinustu 300 árin. Skeiðarárhlaup hafa fært strönrdina út og má því vera áð skipið ligigi nú kafið í sandi langt frá sjó. Ekki er beldur á vísan að róa, því að engar nákvæmar heimildir eru um hvar skipið strandaði. En nú fara menn með Geiger- mæla fram og aftur um óra- víddir sandsins og vona að þeir bendi sér á hvar skipið liggur. Þangað til að úr ræt- ist verður þessi fjöl í Þjóð- minjasafni eini minjagripur- inn úr skipinu, þessu mikla skipi, sem borið hefir dýrast an farm að landi, en liggur nú grafið einhvers staðar á Skeið arársandi. VISUKORN Sólin hellir geisla glóð gleður kellu ljóminn, þegar elli yfir fljóð er að fella dóminn. Guðlaug Guðnadóttir frá Sólvangi. «ð hann væri nú kominn úr sum erfríi, og auðvitað skiptust á skin og skúrir. Jafnvel gerði iandsynning undir það síðasta, og hann er nú ekki barnanna beztur sífelldur stormur og vindgangur, rétt eins og segir í Prédikarah- um: „Allt var hégómi og eftir- eókn eftir vindi.“ En allt um það, sumarfrí eru dásamleg, og svona ætti að vera hvert einasta kvöld. Storkurinn hitti mann í góða veðrinu í gser, en þá hafði rign- ingunni slotað hér syðra. Hann var líka áð koma úr sumarfríi, og lék við hvern sinn fingur, sól- brúnn og sællegur. Storkurinn: Nú, svo að þú hefur fangið sól ellan tímann. Maðurinn: Ó, nei, en svona til ekiptis. Bara að bíða og vera ró- legur, þótt hann rigni um stund, eins og útlendingurinn sagði hér é árunum. Það styttir ailltaf upp um síðir. Og eitt er nauðsynlegt, eð halda alltaf við sólskininu innra me'ð sér. Þá verður alltaf ellt hlýtt og gott í kringum *nann. Þá verður sól úti, sól inni ©g sól í sálu minni. Storkurinn var manninum hjartanlega sammála og með það flaug hann út í sólskinið, rétt tyllti sér á turninn á Heiisuvernd erstöðinni, og raulaði Sólseturs- ijóð fyrir munni sér. Minningarspjöld Minningarspjöld Óháðasafnaðarins Cást á eftirtöldum stöðum: Andrési Andréssyni, Laugaveg 3, ísleiki íK>r- Bteinissyni, Lokastíg 10, &te>fáni Árma- eyni Fálkagötu 9, Ranniveigu Einars- dóttur, Suðurl.andsbraut 9óe, Björgu Ólafsdóttur, Jaðri við Sundlaugaveg og Guðbjörgu Fálsdóttur, Baldursgötu 5 Spakmœli dagsins Ég er að leita að manni. (Hominem quaero). — Diogenes <413 — 323 t. kr.). Grískur heimspekingur, (er hann gekk með ljósker um hábjartan dag). LÆKNAR FJARVERANDI Alfreð Gíslason verður fjarve'randi frá 28/6. til 19/7. Staðgengill Bjarili Bja-rnason. Björn Gunnlaugsson f.iarverandi frá 18/6. óákveðið. Staðgengill: Jón R. Árnason. Björn Önundarson fjarverandi frá 24. um óákveðinn tíma. Staðgengill er Jón Gunnlaugsson til 1. 4. Þorgeir Jónsson frá 1. 4. óákveðið. Eyþór Gunnarsson fjarverandi 6- ákveðið. Staðgengill: Erlingur Þor- steinsson, Stefán Ólafsson, Guð- mundur Eyjólfsson, Viktor Gestsson og Björn Þ. Þórðarson. Eggert Steinþórsson fjarverandi frá 7/5. — 7/7. Staðgengill: Jón Gunnlaugs son, Klapparstíg 25 sími 11228. Heima sími 19230. Viðtalstími 10—11 miðviku- daga og fimmtudaga 5—6. Guðmundur Eyjólfsson fjarverandi frá 1. júlí til 3. ág. Halldór Arinbjarnar fjarverandi júl’ímán. Staðgengill Ólafur Jónisson frá 1/7. — 15/7. Ragnar Arimbjarnair frá 15/7. og út júlí. Hinrik Linned fjarverandi 14/6. — 14/7. Staðgengill Hannes Finnboga- son. Hulda Sveinsson verður fjanceraindi frá 29/6. um óákveðinn tíma. Stað- genigili: Snorri Jónsson, Klapparsiíg 25, sími 11228. Viðtalstími 10 — 10,30, miðvikudaga 5 — 5,30. Jakob V. Jónsson fjarverandi frá 12/6—28/6. Jón Hannesson fjarverandi frá 14/6 til 8/7. Staðgengill Þorgeir Jónsson, Klapparstíg 25, s: 11228, heimas: 12711 viðtalstími 1:30—3. Jón Hj. Gunnlaugsson fjarverandi júlimánuð. Staðgengilil Þorgeiir Jóns- son, Klapparstig 25, s: 11.228, viðtals- tími 1.30 — 3. Jón K. Jóhannsson, sjúkrahúslækn- ir í Keflavík fjarverandi júnímánuð. Staðgengill: Ólafur Ingibjörnsson. Jónas Sveinsson verður fjarverandi um skeið. Ófeigur Ófeigsson gegnir sjúkrasamlagsstörfum til 8. júlí. Eftir það Haukur Jónasson læknir. Karl Jónsson fjarverandi frá 30/6. til 1/9. Staðgengill: Þorgeir Jónsson Klappastíg 25. Viðtalstími 1.30 — 3.00. Sími 11228, heimasími 12711. Kjartan R. Guðmundsson fjarver a>ndi frá 1/7. — 10/7. Kristinn Björnsson fjarverandi til júliloka. Staðgengill Andrés Ásmunds son Aðalistræti 18. Mg.gnús Ólafsson fjarverandi frá og með 18/6. í hálfan mánuð. Staðgengill: Jón Gunnlaugsson. Ólafur Helgason fjarverandi frá 25/6. — 9/8. StaðgengiU: Karl S. Jónasson. Ólafur Geirsson fjarverandi til 4/8. Páll Sigurðsson yngri fjarveraindi júlímánuð StaðgengiH: Jón Gunnlaugs son, Klapparstíg 25. Ragnar Arinbjarnar fjarverandi frá 15/6—17/7. Staðgengill Halldór Arin- bjarnar til 1/7 en Ólafur Jónsson síð- an. Stefán Bogason fjarverandi júlímán. Staðgengill J óhannes Björnis®on tH. 16/7. Geir H. Þorsteinsson frá 16/7. og út mámiðinn. Stefán Guðnason fjairveramdi ó- ákveðið. S'taðgemgill: Jón Gunmlaaags- son, Klapparstíg 25. Sveinn Pétursson fjarverandi til 20. júlí. Staðgengill: Kristján Sveins- son. Viðar Pétursson, tannáæknir fjar- veraindi til 3. ágúst. Viktor Gestsson fjarveramdi júlí- mánuð. StaðgengiH: Stefán Ólafsson. Víkingur Arnórsson fjarveramdi júlámánuð StaðgemgiH: Geiir H. Þor- steinsson. i. SÖFN i Listasafn íslands er opið 4 illa da.ga frá kl. 1.30 — 4. Ásgrímssafn, Bergstaða- stræti 74, er opið alla daga í júlí og ágúst, nema laugar- daga, frá M. 1,30 — 4. Listasafn Einars Jónssonar eir lokað vegna viðger'ðar. Minjasafn Reykjavíkurborg ar, Skúlatúni 2, opið daglega frá kl. 2—4 e.h. nema mánu daga. Þjóðminjasafnið er opið alla laga frá kl. 1,30 — 4. ÁRBÆJARSAFN opið dag- lega, nema mánudaga kl. 2.30 — 6.30. Strætisvagnaferðir kl. 2.30, 3,15 og 5,15, til baka 4,20, 6,20 og 6,30. Aukaferðir um helgar kl. 3, 4 og 5. , ÍRÉTTIR Kvenfélag Hafnarfjarðarkirkju fer í skemmtiferðal'ag að Skóga>fossi fimm tudaginm 8. júlí kl. 8.30. Upplýsingair 1 sím-a 50948. Fótaaðgerðir 1 kjallara Laugarmes- kirkju fyrir aldrað fólk, falla niður vegna sumarleyfa 1 júlí og ágúst. Kvemféliag Laugarnessóknar. Nessöfnuður gengst fyrir almenmri skemmtiferð í Þjórsárdal sunmidaginn 4. júlí, kl. 9 árdegis frá Neskirkju. Farmiðar seldir í Neskirkju fimmtu- dag og föstudag frá 6—9. Safnaðar- félagið. Leiðbeiningarstöð húsmæðra, Laufás vegi 2 er lokuð til 1. september. Kristileg samkoma verður í sam- komusalnum Mjóuhlíð 16 sunnudags- kvöldið 4. júlí kl. 8. Allt fólk hjartan- lega velkomið. Frá Hafnarf jarðarkirkju: í nokkurra vikna fjarveru séra Garðars Þorsteins sonar prófasts gegnir séra Helgi Tryggvason störfum fyrir hann. Við- talstími hans er þriðjudag og föstu- daga kl. 5—7 í skrúðhúsi Hafnar- fjarðarkirkju (syðri bakdyr). Heima sími séra Helga er: 40705. Orlofsnefnd húsmæðra í Reykjavík hefir opnað skrifstofu að Aðalstræti 4 hér í borg. Verður hún opin alla virka daga kl. 3—5 e.h. sími 19130. Þar er tekið á móti umsóknum og veittar allax* upplýsingar. Ennfremur vill nefndin vekja at- hygli á því, að skrifstofan verður að- eins opin til 6. júlí og skulu um- sókni-r berast fyrir þann tíma. Einn- ig veittar upplýsingar í símum: 15938 og 19458. Ráðleggingrarstöðin um f jöl- skylduáætlanir og hjúskapar- vandamál á Lindargötu 9. Lækn ir stöðvarinnar verður fjarver- andi um óákveðinn tíma vegna veikinda. Prestur stöðvarinnar hefur viðtalstíma á þriðjudögum og föstudögum kl. 4 — 5. Konur i Kópavogi. Orlof húsmæðra verður að þessu að Laugum i Dala- sýslu (Sælingsdalslaug) dagana 31. júlí til 10. ágúst. Upplýsingar i sim- um 40117, 41129 og 41002. Maður um fertug't í fastri vinnu, óskar að kynnast stúlku á svipuðum aldri, með hjónaband fyrir augum. Þær, sem vildu sinna þessu, leggi nöfn sín inn á afgr. Mbl. merkt: „7954”. Hafnarfjörður! Húsnæði óskast! Ung hjón, barnlaus, v.antar húsnæði frá 20. ágúst n.k. til 30. maí 1966. Eitt her- bergi (stórt) ásamt aðstöðu til eldunar kæmi til greina. Uppl. í síma 51467. Óska eftir að kaupa miðstöðvarketil 2,5—3 fer metra, með brennara og öllu tilheyrandi. Sími 14209 Getum bætt við okkur smíði á eldhúsinnrétting- um, svefnherbergLSskápum og sólbekkjum. Sími 20572 Stúlku 13—16 ára vantar í sumar vinnu á gott sveitaheimili á Austfjörðum strax. Upp- lýsingar í sím'a 35219. Ung barnlaus hjón óska eftir íbúð frá 1. sept. (eða fyrr) í Keflavík eða Njarðvík. — Vinsamlegast hringið í- síma 51234. a5 Laugarvatni 3. og 4. júlí 1965 Mótsdagana verður umferð til Laugarvatns og frá Laugarvatni hagað þannig: TIL LAUGARVATNS: Laugardagur 3. júlí: Kl. 13 til 17 verður einstefnuakstur frá vega- mótunum við Svínavatn í Grímsnesi og að Laugar- vatni, og ennfremur á veginum um Gljábakkahraun (Lyngdalsheiði frá Þingvallavatni að Laugarvatni). Sunnudagur 4. júlí: Kl. 10 til 16 verður einsteínuakstur á sömu leiö- um og á laugardag. FRÁ LAUGARVATNI: Báða mótsdagana, 3. og 4. júlí, verður ávallt opin leið austur Laugardal um Hlíðaveg og um Reykja- veg. Sunnudagur 4. júlí: Kl. 16 til 24 verður einstefnuakstur frá Laugar- vatni um Gljábakkahraun (Lyngdalsheiði.) Fólk er beðið að athuga gaumgæfilega umferða- skilti, sem sett verða við vegina til leiðbeiningar um umferðina. Sýsiumaður Ámessýslu. Hlil'IIIIÐAMIIISIIImS Sf. 10 daga sumarleyfisferð Kjalvegur, Akureyri, Goðafoss, Mývatn, Náma- skarð, Herðubreiðarlindir, Askja, Dettifoss, Ás- byrgi og fl. — Ferðin hefst 10. júlí, verð 4500 kr. innifalið er fæði. Hægt er að sjá fólki fyrir tjald- plássi ef óskað er. Tilkynnið þátttöku fyrir mið- vikudag. — Upplýsingar og farmiðasala Ferðaskrifstofan Landsýn Skólavörðustíg 16, 2. hæð — Sími 22890. SíEdarstúlkur ! Getum bætt við nokkrum síldarstúlkum á söltunar- stöð okkar á Raufarhöfn, fríar ierðir, frítt húsnæði og kauptrygging. — Upplýsingar í sima 40692. B;örg hf. Raufarhöfn. T æknif ræðingur Tæknifræðingur (Produktion Ingeniýlr) óskar eftir vinnu í lengri eða skemmri tíma. Tilboð sendist í pósthólf 37, Hafnarfirði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.