Morgunblaðið - 02.07.1965, Síða 12

Morgunblaðið - 02.07.1965, Síða 12
12 MORGUNBLAÐID Fostu'dagur 2. júíl 1965 SAGA AF TVEIM ÞJODUM Morgunblaðið birtir hér á eftir grein Juan Bosch, fyrrum forseta Dóminikanska lýðveld- isins, en hún er svar við grein þeirri eftir John Bartlow Martin, sem blaðið hirti í gær og fjallaði um ástandið í landi Bosch og viðræð- ur Martins við hann. San Juan, Puerto Rico. ÞEGAR Abe Portas, náinn vin- ur Johnsons forseta, hringdi til að skýra mér frá því, að John Bartlow Martin, sendiherra, yrði sendur til Santo Domingo sem sérlegur fulltrúi Hvíta húss ins urðu fréttirnar mér gleði- efni. Ég áleit, að Martin þekkti ástandið í landinu og yrði fær um að sjá í gegn um þann falska áróður, sem hafði stuðl- að að öngþveiti erfiðustu daga hinnar lýðræðislegu og stjórnar farslegu byltingar sem átti sér stað í landi mínu. Eftir að hafa rætt við Martin tvívegis þann 3. maí gerði ég mér þó grein fyrir því, að sendiherrann var ófær um að skilja hugarfar Dóminikumanna, jafnvel þótt hann hafi búið meðal vor í meira en ár og jafnvel þótt ég hafi oftar en einu sinni rætt við hann um afstöðu þjóðarinnar til byltingar. Hann var og er viðkvæmur og góðhjartaður maður, maður sem finnur til samúðar með- þeim, sem þola hungur í Dóminikanska lýðveld inu, en hann hefur aldrei orðið sér meðvitandi um, hvað þessi þjóð er, hvert hún stefnir eða fyrir hverju hún berst. I>essi misbrestur hans var ekki móðgandi fyrir mig eins og hann gefur í skyn í grein sinni I Life, þegar hann segir: „Bosch auðsýndi mér vináttu persónulega .... en hann vildi ekki tala við mig um atburðina, þar sem ég hafði sagt opinber- lega, að samkvæmt áliti mínu hefði flokkur hans fallið í hend- ur ævintýramanna og Castro- kommúnista . ..“ Ég fær ekki skilið, hvers vegna Martin skrifaði þessi orð. Þegar rektor háskólans í Puerto Rico, Jaime Benitez, hringdi til að segja mér að Martin væri heima hjá honum og vildi ræða við mig (kl. var 12.30 árdegis 3. maí) lagði ég þegar af stað heim til Benítez án nokkurra athugasemda. Mér var þegar kunnugt um, að Martin hafði sagt, að byltingin væri í hönd- um kommúnista og ég hafði heyrt sjálfan Johnson halda því fram, en það hafði ekki áhrif á mig. Þvert á móti höfðu þeir Martin og Johnson gert sig seka um fölsun með því að staðfesta nokkuð, sem þeim yrði ekki unnt að sanna fyrir þjóð sinni eða umheiminum, fölsun, sem á endanum myndi koma þeim í erfiða aðstöðu og reynast til hagsbóta fyrir frelsisbaráttu dóminikönsku þjóðarinnar. Sá áburður, að stjórnréttinda- hreyfingin dóminikanska væri undir stjórn kommúnista, mátti ekki bíða, þar sem bandarísk- ur her var sendur að mínum dómi til Santo Domingo til að kæfa þessa hreyfingu — þótt ekki væri unnt að segja svo opinberlega. Ég er þess full- viss, að Johnson forseti hafi einlæglega trúað því, að land- gönguliðarnir færu til Santo Domingo til að bjarga manns- lífum, en ég verð einnig að segja, að jafnskjótt og fyrstu landgönguliðarnir lentu í iandi mínu vissi ég, að þeir voru þar til annars meira. i»ar sem ég gerði mér grein fyrir, hvaða öfl væru að verki í Washington, sendi ég John- son forseta skeyti frá Puerto • Rico og varaði hann við því, að hópar manna ynnu að því að fá hann til að senda meira herlið til Santo Domingo en nauðsynlegt væri til að flytja burtu bandaríska borgara. Ég vissi, að þessir hópar myndu færa fram þau rök til að ná til- gangi sínum, að byltingin hefði fallið undir stjórn kommún- ista. Þar sem ég var bæði stjórn- málalega og sálfræðilega’búinn undir yfirlýsingar Martins og Johnsons, hvers vegna skyldi ég þá neita að tala við sendi- herrann sökum þess sem hann hafði sagt? Mér virðist Martin hafi lýst ótta sínum en ekki af- Juan Bosch stöðu minni, þegar hann heldur því fram, að ég hafi ekki vilj- að ræða við hann um atburð- ina í landi mínu. Ég fagnaði honum af þeirri vináttu, sem ég bar, og ber enn, til hans. Martin hóf fyrstu viðræður okkar með því að skýra frá því, að öllu væri lokið í Dómini- kanska lýðveldinu. Það væri ekkert sem unnt væri að gera þar og enginn yrði fær um að finna lausn á því öngþveiti sem ríkti þar. Ég sagði, að væri á- standið þannig skyldi hann út- vega mér flugvél svo ég gæti farið til Santo Domingo. „Nei, það er útilokað. Þeir munu drepa yður,“ svaraði hann. „En ef svo margir Dómini- kanar eru að deyja þá skiptir það litlu máli, hvort ég dey,“ sagði ég. „Hr. forseti, þér skiljið ekki hvernig ástandið er. Yðar menn, menn Wessin y Wessins, jafnvel landgönguliðarnir, hafa skotið á mig. Það er algjör ringulreið á staðnum. Ef þér farið munu þeir drepa yður og þér eruð leiðtoginn. Þér megið ekki deyja.“ Ég bjóst við þessu svari. — Þriðjudaginn 27. apríl hafði annar sendiráðsritari banda- rísku sendisveitarinnar í Santo Domingo kallað til nokkurra af forystumönnum Dómini- kanska byltingarflokksins (P.R. D.), að ég gæti ekki snúið aft- ur til lands míns.“ Við munum ekki fallast á afturkomu Bosch“ voru orð hans. Laugardaginn 1. maí — tveim dögum fyrir samtalið við Martin — þegar Fortas sagði mér í símtali, að eftir 10 mínútur fengju land- gönguliðarnir skipun um að ráð ast á lið byltingarmanna, svar- aði ég því til, að sem stæði væri aðeins ein lausn á málinu að mínum dómi. Að ég færi til Santo Domingo. Ég óskaði eft- ir að fá flugvél til ferðarinn- ar, en Fortas gaf enga bend- ingu um að stjórn hans myndi fallast á bón mína. Svo við komum aftur að sam- tali mínu við Martin, þá hélt hann áfram að tala um stjórn kommúnista á byltingaröflun- um í dóminikanska lýðveldinu. Það var tilgangslaust að reyna að skýra málið. Martin vissi ekki að 50 árum áður hafði verið gerð svipuð bylting' í Mexíco og að hún var ekki kommúnistísk. Hann vissi ekki, að byltingar kommúnista fara eftir ólíkri uppskrift og sam- kVæmt henni koma kommún- istar sér fyrir. í valdastöður og hleypa svo byltingu sinni af stað. Sovézkur embættismaður mundi aldrei falla í þá gildru að rugla saman kommúnistískri byltingu og byltingu lýðræð- issinna, en bandarískir embætt- ismenn nú til dags eru ljóslega þeirrar skoðunar, að lýðræðis- sinnar geri ekki byltingar. Ef til vill liggur skýringin í því, að sovézkir embættismenn leggja stund á stjórnmál, þeir vita hverjir kommúnistarnir eru, hverjir eru bandamenn þeirra og óvinir,- en bandarísk- ir embættismenn eru yfirleitt fólk, sem hefur öðlazt stöður sínar fyrir skriffinnskuhæfi- leika ,vegna vináttu við yfir- boðara sína eða vegna náðar flokkanna. Þess vegna hafa Bandaríkjamenn ekki þörf fyr- ir að leggja stund á stjórnmál, upplsýingalindir þeirra láta stjórnast af duttlungum og dómar þeirra eru oft háðir til- finningum og persónulegum skoðunum. Yfirleitt vita þeir ekki hverjir eru lýðræðissinn- arnir í löndum Ameríku. Það virðist næstum vera höfuð- regla, að þeir vírðast gruna um kommúnisma sérhvern mann sem talar um frelsi og þjóðfé- lagslegt réttlæti. Kommúnista- hræðslunni er svo stöðugt hald- ið við í Bandaríkjunum án nokjcurrar alvarlegrar skýring- ar á hvað kommúnisminn er eða hvernig hann hegðar sér, að rökfastur maður eins og Martin varð að álíta, að bylt- ingin í Santo Domingo væri kommúnistísk, þar sem hún svaraði ekki til þess s,em hann og milljónir Bandaríkjamanna halda að bylting sé. í Bandaríkjunum hefur sú skoðun unnið á, að hernaðar- legt coup d’état sé bylting, en þjóðfélagslega séð er coup d’ état aðeins uppþot, ekki bylt- ing. Bylting er nokkuð sem á sér miklu dýpri rætur. Það er þegar fólkið snýst gegn hinum hefðbundnu kúgurum sínum. Við Suður-Ameríkumenn höf- um upplifað margar byltingar. Sum lönd, eins og Venezuela og Mexico, hafa haft fleiri en eina. Og auðvitað hafa verið fjölmörg dæmi um valdatöku hers án þess að um byltingu hafi verið að ræða. John Bartlow Martin vissi, þar sem hann hafði verið sendi herra í Santo Domingo í meira en ár, að það voru ekki nægi- lega margir kommúnistar í landi mínu til að stjórna góðu hóteli, hvað þá landinu. En Martin sendiherra hafði ekki nægilega þjálfun til að greina á milli byltingu kommúnista og lýðræðissinna. Hefði fólkið ver- ið vopnað og skotum hleypt af öðru hverju hefðu komm- únistar verið að verki. Rússi hefði skilið umsvifalaust, að þetta var dæmigerð bylting lýð ræðissinna, sem skorti allt skipulag — þ.e. þveröfugt við kommúnistíska byltingu, sem er nákvæmlega skipulögð áður en henni er leyft að brjótast út. — Það var í rauninni enginn vegur að samrýma skoðanir okkar Martins. Eins og hann sjálfur gaf sem skýringu, þá hafði hann ekki borðað eða baðað sig í þrjá daga og hann hafði sofið í þrjár nætur á gólfi bandaríska sendiráðsins í Santo Domingo. Það var greinilegt, að einhver hafði af snilld sinni séð til þess, að hann fékk eins konar sálfræðilega þriðju gráðu meðhöndlun. Martin sendiherra gekk svo langt að segja mér fyrstu viðræðunótt okkar, að höfuð hefðu verið skorin af fólk inu og hann sagði mér meira að segja frá þeim stöðum, sem höfuðin hefðu verið á til sýnis. Hann talaði um aftökusveitir og alls kyns glæpi. Ég vona að Martin sendiherra sé nú sann- færður um að ekkert af þessu átti sér stað. Frá þeirri stundu er land- gönguliðarnir lentu í San Isidro fannst mér sem Bandaríkin hefðu komið sér í vandræði án þess að hafa reiknað með ai- leiðingum gerða sinna. Ennfrem ur fannst mér þetta vera al- varlegt mál, sem næði út fyrir landamæri Santo Domingo og Bandaríkjanna og að Washing- ton myndi eiga erfitt með að finna leið út úr ógöngunum. — Dóminikanska byltingin var kæfð í krafti öflugra hervalds, en álit Bandaríkjanna í hinum frjálsa heimi og einkum þó í Suður-Ameríku yrði skaðað um árabil. Johnson-stjórnin yrði að greiða mistökin dýru verði og myndi standa andspænis tveim möguleikum. Annað hvort að styðja hina löglegu stjórn, sem myndi létta þungu fargi af mönnum og vekja jafnvel gleði alls staðar þar sem lýðræði rík- ir í Suður-Ameríku. Eða þá her nám og stjórn hersins um ára- íaðir í Dóminikanska lýðveld- inu. Vegna þreytu Martins, vegna þess hve framorðið var og vegna þess að viðræður okkar þriggja (Benitez, Martins og mín) voru ekki til þess fallnar, þá fór ég ekki út í þessar skýr- ingar. Ég sagði Martin aðeins, að ég væri honum ekki sam- mála um, að það, sem hann kallaði „hið dóminikanska öng- þveiti“, væri óleysanlegt máL Fyrir hendi væru þeir tveir kostir, sem ég hef minnzt á hér að framan. En fyrir honum var ekki einu sinni einn. Klukkan var orðin meira en 2 um nótt- ina þegar við skildum án þesa að hafa komizt að nokkurri nið- urstöðu. Benitez vísaði Martin á síma, svo hann gæti hringt til Johnsons forseta. Hvorki þessa nótt né næsta dag sagði Martin sendiherra mér, að for- setinn hefði óskað eftir því að hann færi til Puerto Rico til við ræðna / við mig. Ég komst að þessu einungis með því að lesa grein sendiherrans í Life. Það er ástæðan fyrir því, að þegar hann fór til að hringja, lét ég hann ekki fá nein skilaboð til forsetans. Níu klukkústundum síðar, um kl. 11 árdegis, hittumst við á nýjan leik — að þessu sinni f húsi bandarískra hjóna, vina Benítez rektors. Það var þá, sem við Martin töluðum um dr. Rafael Molina Urena. Martitt skýrir frá því, að þessar síðari og síðustu viðræður hafi farið fram nóttina áður, en það er bending um hversu örmagna hann var. Þegar ég kom til þessa siðari fundar, spurði sendiherrana mig hvað ég héldi. „í dag kem- ur þingið saman til að kjósa forseta", svaraði ég. Ég vildi ekki bæta því við, að ég hefðl óskað eftir fundinum og kosn- ingunni, þar sem ég var ekki í neinum vafa um, að mér yrði ekki leyft að snúa aftur til Santo Domingo, því Bandarík- in gættu allra hafna og flug- valla í landi mínu. „Hver mun verða hinn nýi for seti?“ spurði Martin. „Caamano ofursti, eða verðl Framhald á bls. 17 Bennett, sendiherra, og Martin (ti».). Lífvörður úr landgöngu- liðinu að baki þeim.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.