Morgunblaðið - 02.07.1965, Síða 21

Morgunblaðið - 02.07.1965, Síða 21
r Föstudagur 2. júlí 1965 MORCUNBLADID 21 Össur Sigurvinsson, Húsasmlðameistari — Minning F. 23. áffúst ‘29 — D. 23. júní ‘65 „Aldrei er svo bjart yfir öðlingsmanni, að ekki geti syrt jafn sviplega og nú. Aldrei er svo svart yfir sorgarranni að ekki geti birt fyrir eilífa trú.“ JAFNVEL á heiðríkjunótt í sól- mánuði getur sorgin verið á ferð. Jafnvel kappinn, sem knástur er getur fallið í örstuttum leik ör- laganorna. Ég hugsaði um það, hvernig ég ætti að skilja það. I>að var svo erfitt, nei, það var svo ótrú- legt og ómögulegt, að hann væri eigraður í einu vetfangi á auiga- bragði, lægi örmagna og ætti ekki framar mátt til að rísa á fætur. En samt var það staðreynd. Hann Össur þessi þrekmikli, sterki maður, þetta kempulega karlmenni, sem aldrei virtist afl- fátt, hann var ekki lengur í vina hópnum. f>ví sitjum við orðlausir, hljóð it og gneypir og látum hugann reika til liðinna samverustunda til sólskinsbletta þar sem sunna ekein í heiði og hvergi bar skugga á. Þar sem vongleði og léttir hlátrar áttu ein völd. „Það er svo tæpt að trúa heimsins glaumi og táradöggvar falla stundum skjótt og vinir berast burt með tímans straumi og blómin fölna á einni hélunótt.“ Þessi kveðjuorð eiga ekki að vera ævisaga, heldur aðeins minning vina um góðan dreng, glaðan félaga, traustan þegn. Össur Sigurvinsson, húsasmíða meistari var glæsimenni að vall- arsýn, sterkur, þolgóður og slík- ur vinnuvikingur er sjaldgæfur nú á dögum vélanna. Það var iunun að horfa á hann að starfi. Hann vann á við þrjá, að hverju eem hann gekk. Hann virtist ofur- menni að burðum, og skyldu- rækni, trúmennska og vand- virkni var allt eftir því. Við Vissum það vinir hans, að væri honum falinn starfi, þá varð ekki betur gert. Fljótt og vel fylgdist þar að í hugþekku sam- rsemi. Og nú hin síðari ár eftir að hann tók að sér að skipulaggja, stjórna framkvæmdum fremur en að vinna allt með eigin höhd- um kom einnig glöggt í ljós, að eálargáfur hans voru í réttu hlut falli við líkamsatgjörvi. Hann skipulagði, teiknaði og *agði fyrir af slíkri fyrirhyggni og ráðdeild, að ekki varð betur gjört að dómi þeirra, sem áttu «ð njóta verksins. Framsýni og hagsýni hjálpuðust að við hvern Þátt framkvæmdanna, ef ráðum hans var fylgt. Slíkir menn eru æðsti auður lítillar þjóðar, kannski á við marga af meðalmönnum miljón- anna. Þær eru margar byggingarnar 1 borginni, sem handibragð Öss- urs prýðir. Hver kannast ekki við Hressingarskálann, „Sæla- kaffi“, Tíbrá, nýtízku dömubúð við Laugaveg eða þá húsasam- etæðu pg verkstæði Hrafns Jóns- sonar við Brautarholt, að ó- igleymdum hinn nýja svip Val- hallar á Þingvöllum, svo að eitt- hvað sé nefnt af því, sem hann hefur unnið að á allra síðustu tímum. Á fundi alla fylgdi Össuri hressandi 'blær karlmannlegrar glaðværðar og kæti, sem gerði allt og alla ánægða og glaða með honum. Hann kom öllum í gott «kap með fyndni sinni og hlýleg- um igáska. Hann glataði aldrei þessum drengjalega léttleika og æskugleði, sem margir týna svo snemma ævinnar. Hann var sportmaður að eðlis- farj og unni veiðiferðum og íþróttum. íslenzk sveit var hon- um ríkt að skapi með ám og fossum, fjöllum og gróandi grund um, birkikjarri og lækjarnið. Þá var honum einnig hafið kært með öllum þess aflraunum og hildarleikjum, sem öllu fremur reyndu á kjarkog þor. > vb-. Jxv. v.v. ■■ y-twxWrfK-ííí: En samt var það bezt hve góður félagi hann var, traustur vinur hjálpsamur, greiðvikinn og góðgjarn, drengskaparmaður í hvívetna. Það er því sízt að furða, þótt hans sé sárt saknað af samferða- íólkinu. En þó vitum við vinir hans, að svo hugþekkur og kær, sem hann var okkur þá hafa ástvin- irnir meira misst. Eiginkona og sjö börn, hið elzta 15 ára ganga nú þyngri spor en tárum taki að hinztu hvílu hans. En samt má huggast við þá trú, sem vorið veitir, að eins og skammdegisskuggar breytast í bjartar Jónsmessunætur, eins víkja skuggar harmanna fyrr eða síðar fyrir veldi ljóss og vona. Við vinirnir biðjum því ástvin um hans öllum styrks og huggun ar, sem geislar um vegu manna frá ljósi og lífstrú hjartans, sem veit að lífið er allt ein heild með þáttaskil. Megi sólgeislar sumardaga, vin átta og ástúð, von og trú gefa þeim týnda gleði að nýju, en leiða anda hans til sælusala æðri heima. Þökk fyrir samfylndins góði vinur. Samferðamenn. — Æskulýðssfarf Auk unglinganámskeiósins, sem þarna var haldið, dvaldi að Núpi hópur pilta og stúlkna, sem æfðu frjálsar íþróttir undir handleiðslu Valdimars örnólfs- sonar, með þátttöku fyrir augum í héraðsmóti HVÍ og jafnvel í landsmóti IJMFÍ að Laugar- vatni. Það má hiklaust telja, að þessi vornámskeið að Núpi, eru Hér- aðssambandi Vestur-ísfirðinga og formanni þess Sigurði Guð- mundssyni, til sóma. Væri æski- legt að fleiri héraðssambönd gætu fengið aðstöðu við héraðs- skólana á sinum svæðum til að koma af stað æskulýðsstarfi, sem því, sem rekið er að Núpi í Dýrafirði. — Samningur Framhald af bls 28 ir þeirra. Handritin eru okkur íslendingum dýrmæt. Þau eru í okkar augum óaðskiljanlegur hluti menningararfs okkar og þjóðernistilfinningar. Þó skiljum við, að þau eru dönsku þjóðinni einnig dýrmæt. Við vitum, hve mikla þýðingu þau hafa haft fyr ir danskt menningarlíf á liðnum árum. Við vitum, að gleðin yfir því að gefa er í hugurn margra Dana blandin trega og sársauka. Þeim mun meir metum við þenn an stórhug og einstæðan, norræn an vinarhug. Það er auðskilið, að þetta mál hefur vakið um- ræður í Danmörku, en það er von okkar, að deilurnar falli í gleymsku, og að sú lausn hand- ritamálsins, sem við vonumst eftir, megi treysta vináttubönd Danmerkur og íslands. í einni fornsagnanna, Njáls- sögu, er skýrt frá þakkarorðum Gunnars á Hlíðarenda til Njáls, sem færði honum góðar gjafir. í þessi gömlu orð vildi ég mega vitna nú, og beina þeim til dönsku þjóðarinnar: „Góðar eru gjafir þinar, en meira þykir mér vert um vinfengi þitt og sona þinna“. Per Hækkerup svaraði, og sagði, að tvennar tilfinningar byggðu að baki afhendingunni. Þau væru gefin af Dönum með ósk um, að enn mætti treysta vináttu Dana og Islendinga, en sú von væri tengd söknuði, vegna verðmæta, sem Danmörk hefði geymt um svo langt skeið. Hækkerup sagði síðan: „Það er eðlilegt, að handritin verði send til heimalands síns, en af- hendingin má ekkf teljast verk, sem dregið geti úr möguleikan- um til vísindalegra rannsókna". Sagði ráðherrann síðan, að hann vonaðist þvert á móti til þess, að takast mætti með íslenzkum og dönskum vísindamönnum enn betri samvinna. „Ég vona“, sagði Hækkerup að lokum, „að afhendingin megi verða báðum löndum til gæfu“. Undirritun sammingsins í dag táknar þó ekki, að handritin úr Árnasafni séu á leið til íslands nú þegar. Hún er frekar tákn þess, að lokabaráttan um afhend Að marggefnu tilefni í blaðaauglýsingum fasteignasala undanfarna daga, vill húsnæðismálastjórn taka fram eftirfarandi: 1. Engin ákvörðun hefur um það verið tekin að lokað yrði fyrir móttöku lánsumsókna miðað við tiltekinn mánaðardag, enda rhundu slíkar ákvarðanir auglýstar af Húsnæðismálastofnun- inni sjálfri. 2. Enginn aðilji utan stjórnar stofnunarinnar sjálfrar, getur ráðstafað íbuðalánum eða gefið vilyrði fyrir þeim. 3. Lánsumsækjendur almennt eru alvarlega aðvar- aðir við því að leggja trúnað á auglýsingar eða auglýstar reglur varðandi ibúðalán Húsnæðis- málastofnunarinnar frá öðrum en stofnuninni sjálfri og því er birt kann að verða í Stjómar- tíðindum. HtJSNÆÐISMÁLASTOFNUN RÍKISINS. ingu handritanna sé að hefjast af hálfu hóps danskra vísoinda- manna og stjórnmálamánna, sem telja afhendinguna ólöglega, brjóta í bága við stjórnarskráma og ólöglegt nám einkaeigna, sem séu dönskum vísindum ómetan- leg, vegna frekari rannsókna á fornnorrænu. Stjórn Árnasafns hefur, eins og kunnugt er, ákveðið að leita til æðstu dómstóla í Danmörku, og kanm sú barátta að taka nokk- urn tíma. Síðan verður að stað- festa samning þann, er gerður var í dag, í þingum beggja land- anna, verði úrskurður dómstól- anna afhendingunni í vil. IMorrænn húsmæðra- kennarafundur í Reykjavik Fyrírlestrar, sýningar og ferðalög fundinn og er þátttaka mikil. Um 77 fara í 6 daga ferð til Norður- og Austurlandsins; 22 í 3. daga ferð urr. Borgarfjörð og Snæfellsnas; 16 til Græn- lands. Norrænn húsmæðrakennara- fundur verður haldinn í Haga- skólanum í Reykjavík, dagana 4.—7. júlí n.k. Hinir norrænu gestir — 92 að tölu — koma til landsins með flugvélum n.k. laugardag, 3. júlí. Fundurinn hefst á sunnudag- inn, 4. júlí, kl. 11.00 f.h. með guðsþjónustu í Dómkirkjunni. Ingólfur Jónsson, landbúnaðar- ráðherra setur fundinn í hátíða- sal Hagaskólans, kl. 14.00. Fundur þessi er haldinn á vegum Nordisk Samarbejdskom- ité for Husholdningsundervisn- ing — samtaka norrænna hús- mæðrakennara. Kennarafélagið Hússtjórn er meðlimur í þessum samtökum og sér að öllu leyti um þennan fund. Þátttakendur verða alls um 140. Aðalfyrirlesarar fundarins verða: dr. Baldur Johnsen; Björn Th. Björnsson, listfræðing ur; frú Elsa E. Guðjónsson, mag ister; Hörður Ágústsson, listmál- ari; dr. Sigurður Þórarinsson og prófessor Steingrímur J. Þor- steinsson. í sambandi við fundinn verða settar upp sýningar: ,,3úrið í gamla daga“, en þar verður reynt að bregða upp mynd af mataræði þjóðarinnar fyrr á tímum. Handíðasýning, þar sem sýnd verða sýnishorn af vinnu nem" enda í Handavinnudeild Kenn- araskóla íslands, og Vefnaðar- kennaradeild Handíða- og mynd listaskólans. Skipulagðar hafa verið styttri og lengri ferðir í sambandi við Ályktun Búnaðar- sambands Austur- lands AÐALFUNDUR Búnaðarsam- bands Austurlands var nýlega haldinn að Hallormsstað og hef- ur Mbl. borizt útskrift úr funda- bók fundarins, en þar var gerð ályktun er fjallar um nýfallinn hæstaréttardóm um tekjuöflun vegna stofnlánadeildar landbún- aðarins. f ályktun þessari segir m.a.: 1. Að dómsorð Hæstaréttar haggi eigi þeirri staðreynd, að skatturinn til Stofnlánadeildar landbúnaðarins er lagður á eftir öðrum leiðum og bændum óhag- stæðari en gjöld þau, sem inn- heimt eru fyrir stofnlánastarf- semi annarra atvinnugreina. Skattheimtan ec því óréttlát þegar af þeirri ástæðu, auk þess sem hún skerðir tekjur þeirrar stéttar, sem endurteknir útreikn- ingar Hagstofu íslands sýna að er tekjulægst allra starfsstétta þjóðfélagsins og hefur ekki á löngu árabili hlotið meðaltekjur til jafns við þær stéttir, sem tekjur hennar skulu miðast við að lögum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.