Morgunblaðið - 02.07.1965, Síða 24

Morgunblaðið - 02.07.1965, Síða 24
24 MORCUNBLAÐIÐ Föstudagur 2. júlí 1965 CEORCETTE HEYER FRIÐSPILLIRINN — Nei, hann væri nú ekki lík- legur til að. taka neinni afskipta semi vel, en þetta er gert með svoddan hræsnis-umhyggjusemi, svo að hann sér alls ekki, hvað það er í raun og veru.....Ekki ennþá, agði Soffía. — Þetta er hábölvað, sagði hr. Wychbold. — En það er víst bara ekkert við því að gera. — Það segja menn nú alltaf, þegar þeir eru of latir eða of- hræddir til að letggja það á sig að hjálpa náunganum. Ég hef ýmsa galla til að bera, en ég er hvorki löt né hrædd...... þó það sé nú kannski ekki nein dyggð, því að ég er fædd tauga laus og pabbi segir tilfinninga- laus. Ég veit það nú ekki, því að ég hef enn ekki ákveðið hvernig ég ætla að fara að því en ég kynni að þurfa á yðar hjálp að halda til þess að splundra þessari ásnalegu trúlofun. Hún leit snöggvast framan í hann og sá, að hann var hræddur, svo að hún bætti við hu**eandi: — Það er fremur c' en þó veit maður ald' . fyrir kann að koma, c. _ier gott að vera við öllu V iinn. En nú verð ég að skilja iö yður, því að ég sé, að hún Jecilia er farin að bíða eft'r már og ég hef lofað henni að aka henni einn hring kring um Garðinn, úr því að hún er-fárin að trúa því, að ég velti ekki vagn inum. — Það er engin hætta, sagði hr. Wychbold, en hugsaði um leið, að hún kynni að velta hinu og þessu öðru, meðan hún stæði við á Berkeleytorginu. Hann kvaddi hana með virkt- um og lét þess getið, að ef kon- um leyfðist aðgangur að Fereyk- isklúbbnum, skyldi sér verða það ánægja að mæla með upptöku hennar þar. Hún steig út til að heáisa Cctciliu, sem stóð utan við brautina, ásamt ungfrú Add- erbury og börnunum. Gertrude Amabel og Theódór heimtuðu auðvitað öll að fá að aka með þeim, en Wychbold tók þá í taum ana og róaði þau, hjálpaði síðan Geciliu upp í vagninn og labb- aði svo burt. Soffía hafði þegar tekið eftir því, að Cecilia var eitthvað föl og litla kennslukonan þjáðist undir einhverju, sem henni lá þungt á hjarta, en nú vildi hún alltaf kafa til botns í hverju máli, án allra málaleniginga, og- spurði því hiklaúst: — Hvers- vegna ertu eins og tuska, Cecy? — Eugenia, svaraði Cecilia án frekari skýringa. — O, fjandinn hirði hana. Hvað hefur hún nú gert af sér? — Hún var hér á gangi með Alfred og rakst á okkur. — Nú, jæja, svaraði Soffía. — Ég skal játa, að ég er ekkert hrifinn af henni, og Alfred er einhver andstyggilegasta skepna, en þar fyrir þarft þú vonandi ekki að komast úr jafnvægi. Varla hefur hann farið að taka utan um þig, úr því að systir hans var viðstödd. — Hann Alfred, sagði Cecilia með fyrirlitningu. — Nú, ekki þar fyrir, að hann vildi láta mig leiða sig undir arminn og kleip mig svo andstyggilega í hand- legginn og gaf mér þetta and- styggilega auga og sagði hitt og þetta, svo að mig langaði mest til að gefa honum einn á hann. En mér er annars alveg sama um hann. Þú skilur, .......hann Augustus var með mér. — Nú, hvað um það? — Jú, þú skilur, við höfðum dregizt ofurlítið aftur úr Addie og krökkunum, því að hvemig tr hægt að segja nokkurt orð að viti, þegar krakkarnir eru alltaf að gjamma fram í?.......en hún var ekki langt frá okkur og við höfðum ekki læðst út á neinn leynistíg.....þó að það væri nú ekki fjölfarnasti stígurinn og Addie var alltaf innan sjónmáls .....og að segja, að ég sé að hitta hann Augustus leynilega það er skammarleg skreyti. Mað- ur hefði getað haldið, af því, sem 17 hún sagði, að hann væri einhver viðsjálsgripur og ævintýramað- ur, en ekki maður, sem ég hef þekkt síðan ég man eftir mér. Hvers vegna ættum við ekki að geta gengið saman í Garðinum? Úr því að við hittumst, hvers vegna skyldi ég þá ekki mega tala við hann? — Þáð væri nú skárra. Fór þessi andstyggðar manneskja að skamma þig? — Ekki svo mjög mig, heldur vesalinginn hana Addie. Hún er r,ú alveg miður sín, af því að Eugenia bar það upp á hana, að hún væri að bragðast trúnaði mömmu, og ýta undir þetta leyni pukur okkar. Við mig var hún lika andstyggileg, en þorði bara ekki mikið að segja, af því að Augustus var með mér. Hún lét han ganga með sér í staðinn og skipaði Alfred að taka mig und- ir arminn, og svei mér ef mér fannst ég ekki saurguð. — Það mundi hverri finnast, sem þyrfti að taka Alfred undir arminn samþykkti Soffía. — Það var nú minnst. En þessi framkoma hennar Eugeníu. Það var rétt eins og hún stæði mig að einhverju skammarlegu at- hæfi. Og þó var það versta eftir. Charles er að aka hérna, og rétt augnabliki áður en ég hitti þig, fór hann framhjá með Eugeníu við hlið sér. Og hann sendi mér þetta líka auga. Hún var auðvit- að búin að segja honum frá öllu saman, vértu viss, og nú verður hann vondur við mig, og fer lík- lega í mömmu með þetta og allt fer í háaloft. — Nei, það gerir það ekki, sagði Soffía. Og meira að segja er ég ekki viss um nema þetta snúist einmitt allt til góðs. Ég get nú ekki skýrt það nánar strax, en ég bið þig bara, Cecy, að taka þér þetta ekki svona nærri. Ég fullvissa þig um, að það er engin þörf á því. Trúlegast nefnir Charles þetta ekki einu orði við þig. Cecilia gat illa trúað þessu. — Að hann segi ekki orð. Þá þekkirðu hann lítið. Hann var eins og þrumuský í framan. — Það hefur hann sjálfsagt ver ið og er oft, og þú ert nú svodd- an bjáni, að þú skelfur strax eins og soðhlaup. Ég ætla að setja þig út bráðum og þá ferðu aftur til hennar Addie gömlu, og heldur áfram að ganga. En ég fer heim og þar hitti ég áreiðan- lega hann bróður þinn, því að hann var að segja við pabba þinn, að þeir ættu von á ein- hverjum Eckington klukkan 5. — Það er umboðsmaðurinn hans pabba, svaraði Cecilia dauf- lega. — En ég sé ekki, Soffía mín, hvaða þýðingu það hefur, hvort þú hittir Charles eða ekki, því að ekki fer hann að talfæra þetta við þig, og til hvers væri það lika? — Nú, það . heldurðu ekki? svaraði Soffía. — Vertu viss, að hann er búinn að koma sér niður á því, að allt sé þetta mér að kenna, frá upphafi til snda. Svo er hann auk þess bálvondur við mfg fyrir að hafa keypt þessa hesta, án þess að spyrja hann fyrst, já, bg fyrir að hafa leigt mér hesthús út af fyrir mig. Hann hlýtur að þrá heimkomu mína, svo að hann geti rifizt við mig í næði. Vesalings manngrey- ið. Ég held ég ætti að setja þig út strax, Cecy. — Hvað þú getur verið hug- rökk, sagði Cecilia. — Ég skil ekki hverrnig þú þorir þetta. — Hvað? Þó að hann broóðir þinn fái kast? Ég sé ekki, að ég þurfi að vera neitt hrædd við það. Cecilia fékk hroll. — Það er ekki beinlínis það að verða hrædd, en mér er meinilla við þegar fólk reiðist mér. Ég veit, að það er aumingjaskapur af mér, en ég kikna alveg í hnján- um, ef einhver verður vondur við mig. — Það kemur ekki til í dag, sagði Soffía. — Ég ætla að slá vopnin úr hendi hans. Þagar Soffía kom heim, varð hún þess vör, að hr. Rivenhall var alveg nýkominn á undan henni, og hafði komið gangandi beint frá hesthúsunum. Hann var enn í reiðfötunum og stanzaði í forsalnum til að taka upp bréf frá einhverjum kunningja sín- um. Han leit upp og gretti sig, þegar Dassett hleypti Soffíu inn. — Þú ert þá kominn á undan mér? sagði Soffía og dró af sér hanzkana. — Segðu mér nú hrein skilnislega, hvernig þér lízt á þá jörpu. Hr. Wychbold segir, að þú hafir sjálfur verið að gefa þeim hýrt auga. Er það satt? - Ég hef ekki efni á því, frænka. — Á ég að trúa því? Ég gaf fjögur hundruð pund fyrir þá og þóttist gera góð kaup. — Var þér alvara þegar þú sagðist ætla að koma þér upp eiigin hesthúsi? — Auðvitað var mér alvara. Það væri fallegt, ef frænka mín ætti að bera allan kostnaðinn af hestunum mínum. Auk þess kaupi ég líklega tvo í viðbót, ef ég finn ^ tvo, sem passa við þá jörpu. Ég heyri, að það þyki mjög í tízku að hafa fjóra fyrir svona vagni, þó að það kosti að breyta vagninum.og það er leið- inlegt_ að þurfa þess. — Ég ræð ekki neitt yfir þin- um athöfnum, frænka, sagði hann kuldalega. — Ef þig langar njikið að halda sýningu á þér í Garðinum, þá er það þitt mál. En þú gerir svo vel að taka ekki systur mínar með þér. — En það þóknast mér nú ein- mitt ekki, sagði hún. —. Ég hef þegar ekið Ceciliu heilan hring. Þú ert dálítið gamaldags í hugs- unarhætti, finnst þér ekki sjálf- um? Ég sá sjálf marga sport- vagna, sem fínustu dömur óku sjálfar. — En hef ekkert á móti phae- ton með tveimur fyrir, saigði hann og varð enn kuldalegri. — En slíkur vagn með yfir- byggingu er algjörlega óviðeig- andi fyrir dömu. Þú fyrirgefur ef ég segi það, en slíkt þykir bera vott um lauslæti. — Hver í veröldinni hefur nú verið svo illkvittinn að innbyrla þér þetta? Hann roðnaði en svaraði engu. — Sástu hana Ceciliu? sagði hún. — Alveg var hún töfrandi með nýja hattinn, sem hún mamma þín var svo smekkleg að velja handa henni. — Jú, ég sá Ceciliu, og — engu síður en þú — vissi ég, hvernig hún var að eyða tíman- um. Ég ætla að vera fullkom- lega hreinskilinn við þig. — Ef þú ætlar að fara að verða hreinskilinn við mig, tók hún fram í fyrir honum, — þá komdu með mér inn í bókastofuna. Það er alveg óviðeigandi að tala um fjölskyldumál, þar sem hægt er að heyra til manns. Ennfremur hef ég nokkuð að segja við þig, sem ég tel vera afskaplega við- kvæmt mál. Hann stikaði að dyrunum og JAMES BOND í í Eftir IAN FLEMINC hratt upp hurðinni. Hún gekk inn á undan og hann á eftir . . . ., og lokaði á eftir sér og ofsnemma fyrir Tinu, sem varð eftir fyrir utan. Þetta neyddi hann til að opna aftur, því að Tina lét í ljós ósk sína um inngöngu, og var há- vær. Þetta smáatvik gerði ekk- ert til að bæta skap hans, og hann var kuldalegur í málrómn- um er hann sagði: — Við skulum ganga hreinlega að verki, Soffía. Hvort sem þú hefur átt þátt í því að Cecilia hitti hann Fawnhope eða ekki, þá er að minnsta kosti ýmislegt annað, sem þú......... — Já, er ekki Cecilia mikið piltatál? sagði Soffía vingjarn- lega. — Hún var á gangi með Fawnhope og síðan með Alfred Wraxton, og þeigar ég skildi við liana, var hún með Fracis lá- — Svo að það ert þú! — Ég er kominn frá París, einkum með þetta útvarpstæki, herra. Nú skulum við athuga móttökuskilyrðin. Það vai ánægjulegt að hitta Mat- hias aftur — en hvern f járann meinar hann með þessu? Þórshöfn Umboðsmaður Morgun- blaðsins á Þórshöfn er Helgi Þorsteinsson, kaupmaður og í verzlun hans er blaðið selt í lausasölu. Reybarfjörbur KRISTINN Magnússon, kaupmaður á Reyðarfirði, er umboðsmaður Morgunblaðs- ins þar í kauptúninu. Að- komumönnum skal á það bent að hjá Kristni er blað- ið einnig selt í lausasölu. Seyðisfjörður UMBOÐ Morgunblaðsins í Seyðisfjarðarbæ er í Verzl. Dvergasteinn. Blaðið er þar einnig í lausasölu fram til kl. 11,30 á kvöldin. „Bar- inn“, veitingastofa, hefur blaðið í lausasölu. AKUREYRI Afgreiðsla Morgunblaðs- ins er að Hafnarstræti 92, sími 1905. Auk þess að annast þjón- ustu blaðsins við kaupend- ur þess í bænum, er Akur- eyrar-afgreiðslan mikilvæg- ur hlekkur í dreifingarkerfi Morgunblaðsins fyrir Norð- urland allt. Þaðan er blaðið sent með fyrstu beinu ferð- um til nokkurra helztu kaup staða og kauptúna á Norður- iandi, svo og til fjölda ein- staklinga um allan Eyjaf jörð Á Egilsstöðum HJÁ Ara Björnssyni í Egils- staðakauptúni er tekið á móti áskrifendum að Morg- unblaðinu. Þar í kauptún- inu er Morgunblaðið selt gestum og gangandi í Ás- bíói og eins í Söluskála kaup félagsins.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.