Morgunblaðið - 17.07.1965, Side 8

Morgunblaðið - 17.07.1965, Side 8
9 MORGUNBLAÐID Laugardagur 17. júlí 1965 GRIMSBY er meðal þeirra staða í Englandi, sem ís- lendingar hafa hvað mest skipti við, og svo skemmti- lega vill til, að um þessar mundir er íslenzk kona borgarstjórafrú í þessari útgerðarborg. Hún heitir Kristín Guðmundsdóttir Petchell og maður hennar, kaupsýslumaðurinn Denys Petchell, tók við borgar- stjóraembættinu í lok maí síðastliðins. Fréttamaður blaðsins hringdi til Grimsby fyrir nokkrum vik um og ætlaði að rabba um . stund við Kristínu, en fékk þá þær fregnir, að borgarstjóra- Heimili Petchell-hjónanna skammt fyrir utan borgina. íslenzk borgarstjórafrú í Grimsby Stutt rabb við Kristínu Guðmundsdóttur Petchell hjónin væru í fríi og kæmu heim um miðjan júlí. Við náð- um sambandi við Kristínu strax og hún kom heim. Hún sagði okkur, að eftir dvöl í sól og sumarhita í Suður-Frakk- landi hefði verið heldur öm- Kristín Guðmundsdóttir Petchell. urlegt að koma heim til Grimsby, þar sem rigndi stanzlaust og virtist lítil von um að upp stytti í bráð. Við höfðum fregnað að Kristín talaði íslenzkuna enn reiprennandi og byrjuðum á að spyrja hana hvort hún kysi heldur að tala íslenzku eða ensku. Hún kaus enskuna, en þegar að því kom, að frétta- manninn rak í vörðurnar á því máli og hann tók að stama, greip Kristín til ís- lenzkunnar og talaði alveg lýtalaust. • í Grimsby í tæp 30 ár — Hvað hafið þér búið lengi erlendis? spyrjum við Kristínu. — Ég konr til Grimsby 1936, þegar ég var 15 ára, og hef búið hér síðan. Ég giftist 18 mánuðum eftir að ég fluttist hingað til móður minnar, Guð nýjar Guðmundsdóttur, og stjúpföður míns, Ágústs Eben- ezersonar, togaraskipstjóra. — Hvar eruð þér fæddar? — Á Akranesi, en ég átti ekki lengi heima þar. Faðir minn, Guðmundur Erlingsson, lézt skömmu eftir að ég fædd- ist, og ég ólst upp hjá afa mín- um, Guðmundi Vilhjálmi Jóns syni, og ömmu, á Bíldudal, þar til ég hélt til Grimsby. — Hafið þér heimsótt ís- land síðan? — Já, við höfum komið tvisvar, ég og maðurinn minn, í seinna skiptið fyrir firrim ár- um. Við ferðuðumst þá um Reykjavík og nágrenni, og fór um m.a. upp á Akranes til þess að sjá húsið, sem ég fædd ist í, en auðvitað þekkti ég það ekki, þegar mér var bent á það. Við höfum verið að hugsa um að heimsækja ís- land aftur á þessu ári, en ég veit ekki hvort af því verður. Mig langar mjög mikið, því að mér finnst svo gaman að koma heim og hitta ættingj- ana, sem ég á þar. Móðir mín býr enn í Grimsby, en hún er nú að leggja af stað til íslands og ætlar að dveljast þar í tvo eða þrjá mánuði. — Búa margir íslendingar í Grimsby? — Já, þeir eru nokkuð marg ir, óg ég hitti af og til íslenzk- ar konur, sem hér eru búsett- ar. Einnig koma hingað marg- ar íslenzkar stúlkur, sem vinna á enskum heimilum í eitt eða tvö ár. • 17. júní hátíð — Hafa íslendingarnir með sér félag? — Nei, það hefur ekki verið til þessa, en 17. júní sl. héldu þeir skemmtun í tilefni þjóð- hátíðarinnar. Er það í fyrsta skipti, sem slík skemmtun er haldin hér í Grimsby. Við hjónin gátum því miður ekki verið viðstödd, en ég held að þangað hafi komið um 30 ís- lendingar. — Hve langt er kjörtímabil borgarstjóra í Grimsby? — Hann er kjörinn til eins árs í senn. — Bættust ekki á yður ýmis skyldustörf, er maðurinn yðar tók við embætti? — Jú, jú, borgarstjóraifrúin hefur í mörgu að snúast, fyrst og fremst er það góðgerðar- starfsemi. Þegar við kveðjum Krist- ínu, biður hún fyrir mjög góð- ar kveðjur heim og spyr af áhuga hvernig veðrið sé. Við komumst að þeirri niðurstöðu, að þessa dagana að minnsta kosti, sé betra veður í Reykja- vík en Grimsby. • Petchell-hjónin búa skammt fyrir utan Grimsby í húsi um- kringdu stórum og fögrum trjá- og blómagarði. Þau eiga eina dóttur, Díönu, sem er fædd J940. Denys Petchell er 48 ára og einn þeirra yngstu, sem setið hafa á borgarstjóra- stóli í Grimsby. Hann hefur verið formaður íhaldsflokks- ins í borginni frá 1954, en í borgarstjórn hefur hann átt sæti frá 1950. Petchell er umsvifamikill kaupsýslumaður, er m.a. einn af framkvæmdastjórum Ross- fyrirtækjasamsteypunnar og hefur auk þess með höndum framkvæmdastjórn 6 verzlun- arfyrirtækja í Grimsby. Borgarstjórahjónin í Grimsby. Myndir: Geoffry Pass, Grimsby. IMorrænt IjóstæknimÖt haldið hér í Reykjavik AÐALFUNDUR Ljóstæknifélags íslands var haldinn 27. apríl s.l. í Tjarnarbæ.-Formaður félagsins, Aðalsteinn Guðjohnsen, verk- fræðingur, flutti skýrslu um störf félagsins á liðnu starfsári. Hans R. Þórðarson, gjaldkeri las reikninga félagsins. Úr stjórn áttu að ganga, Aðal- steinn Guðjohnsen, Kristinn Guðjónsson, Jakob Gíslason og Guðmundur Marteinsson, en voru allir endurkjörnir. í skýrslu formanns kom m.a. fram: Mikið hefur verið leitað til félagsins um leiðbeiningar, at- huganir á lýsingu og teikningar á lýsingarkerfum. Mestu af þess- um verkefnum hefur verið vísað til meðlima félagsins. Formaður hefur haldið nokkra fyrirlestra um lýsingu og lýsingartækni fyrir félög og í skólum. Félagið hefur nú opnað eigin skrifstofu, sem er til húsa í Hafnarhúsinu á fjórðu hæð. Skrifstofan verður framvegis opin á þriðjudögum, frá kl. 17.—19. Þar sem dregizt hefur að ráða sameiginlegan starfs- mann Ljóstæknifélagsins og Sam bands íslenzkra rafveitna, hefur Magnús Oddsson, tæknifræðing- ur, verið ráðinn framkvæmda- stjóri félagsins út þetta starfsár. Aðalfundi Ljóstækifélagsins lauk með erindi, sem Ólafur S. Björnsson, verksmiðjustjóri, hélt og fjallaði um þróun lýsingar- tækninnar á árinu 1964. Sýndur var fjöldi mynda með erindinu, en síðan fóru fram umræður. Stjórn Ljóstæknifélagsins er nú þannig skipuð: Formaður: Aðalsteinn Guðjohn sen, verkfræðingur, varaformað- ur: Jakob Gíslason, raforkumála- stjóri; gjaldkeri: Hans R. Þórðar- son forstjóri; Meðstjórnendur: Hannes Davíðsson, arkitekt: Berg sveinn Ólafsson, augnalæknir; Kristinn Guðjónsson, forstjóri og Guðmundur Marteinsson, verkfræðingur. Dagana 17.—20. ágúst n.k. verður haldið í Reykjavík Norr- ænt ljóstæknimót. Slíkt mót er nú í fyrsta sinn haldið hér á landi, en norræn ljóstæknimót eru haldin 4. hvert ár. Rúmlega 80 erlendir þátttakendur munu sækja mótið og verða þar flutt erindi um ýmsa þætti lýsingar- tækni. Nánar verður tilkynnt um mót þetta síðar. (Frá Ljóstæknifélagi íslands) Bygginga — Verkamenn Nokkrir verkamenn vanir byggingavinnu óskast nú þegar í Hótel Loftleiðir á Reykjavíkurflugvelli. Fæði á staðnum. — Upplýsingar í síma 20-200 á dag inn og 11759 eftir kl. 7 á kvöldin. Þórður Kristjánsson. Kópovogur og nágrenni Allt til húsamálunar úti, sem inni. Við lögum litina. Við sendum heim. — Opið til kl. 10 og til kl. 6 á laugardögum. Litaval Álfhólsvegi 9 — Sími 41585.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.