Morgunblaðið - 17.07.1965, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 17.07.1965, Qupperneq 10
10 MORGUNBLADID Eaugardagur 17. júlí 1965 J ÖfcOÍN viS c«a.'nTi lÖRÖÍN MmmTM km áewoittc. ■ bctaf MARS ■ MARINER S E M kunnugt er, virðist geimför bandaríska geimfars ins Mariners IV hafa heppn- azt mjög vel og fyrstu mynd irnar, sem geimfarið tók af yfirborði plánetunnar, hafa þegar horizt til jarðar, en ráðgert er að alls sendi'geim farið um 20 myndir. — Auk myndanna sendi það ýmsar upplýsingar og af þeim er m.a. ljóst, að Mars hefur nær ekkert segulsvið og engra geislabelta varð vart um- hverfis plánetuna. Þegar Mariner IV hóf myndatökuna af Mars 14. júlí sl. voru liðnir 288 dagar frá því að geimfarinu var skotið á loft, 28. nóvemher 1964, frá Kennedy-höfða með eldflaug af gerðinni Atlas-Agena. — Á þessum tíma hefur geimfarið lagt að baki 530 milljón km boga- dregna braut og var, þegar myndasendingarnar hófust, í 215 milljón km fjarlægð frá jörðu. • RANNSAKAR ANDRÚMS- LOFTID Auk þess er áður getur, var Mariner IV ætlað að rannsaka andrúmsloftið, sem umlykur Mars, sem tilliti til mannaðra geimferða til plánetunnar í framtíðinni. Er vonast til að unnt verði að fá vitneskju um þéttleika andrúmslotsins, hvort unnt sé að lenda þar í fallhlíf eða vængjuðu farartæki, og síð- ast en ekki sízt, hvort líf geti þróazt þar. Fyrir utan þessa spurningu um lífið, hefur lands- lagið á Mars vakið hvað mesta forvitni mannanna. Vitað er, að landslagið á plánetunni var varanlegt þ.e. það tekur ekki sífelldum breytingum, en beztu myndirnar, sem til voru áður en Mariner IV hóf sendingar til jarðar, voru mjög óljósar. 1 því sambandi má benda á, að áður en geimför Bandaríkja- anna af gerðinni „Ranger" sendu myndir af yfirborði tunglsins til jarðar, var ekkert unnt að greina á tunglinu, sem var minna um sig er íþrótta- leikvangur. En nú hafa verið greindir þar hlutir á stærð við lítinn þvottabala. Én þar sem Mars er miklu fjarlægari jörðinni en tunglið, hljóta hlutir sem þar sjást að vera miklu stærri, en þeir, sem virðast sambærilegir að stærð á tunglinu. Þegar Mars er næst jörðu er plánetan um 150 sinn- lun fjær okkur en tunglið. Og það gerir athuganir á yfirborði Mars enn erfiðari, að andrúms- loftið umhverfis plánetuna 'virðist vera mettað ryki. • SÖGUR UM MARSBÚA ítalski stjörnufræðingurinn Giovanni Virgino Schiaparelli, vann að 'rannsóknum a' Mars 1877, sama árið og Asaph Hall sá fylgihnetti eða tungl plánet- unnar, Deimos og Phobos, fyrst- ur manna. Schiaparelli skrifaði og gaf út lýsingu á yfirborði Mars og ræddi m.a. ítarlega lín- ur, sem liggja um það þvert og endilangt. Nefhdi hann þær skurði (canali). Frásögn hans vakti mikla athygli, og brátt komust á kreik furðusögur um vitsmunaverur, sem væru að berjast fyrir lífi sínu á deyj- andi plánetu og reyndu að þurrka heimskautasvæði henn- ar með kerfi gífurlegra áveitu- skurða. Upp af þessum hug- myndum spruttu sögur um Marsbúa og gátu höfundar Brautir Mars, jarðarinnar og Ma riners IV frá því að geimfarinu var skotið á loft í nóv. 1964. Mariner IV skotið á loft frá Kenniedy-höfða. sér líf á öðrum hnetti án þess að það væri ógnun við öryggi mannanna á jörðinni, og í með- förum þeirra tóku Marsbúar á sig ógnarlegar myndir. Nær óhugsandi er að Mariner IV svari spurningunni um það, hvort líf sé á Mars, en flestir vísindamenn eru þeirrar skoð- unar, að við getum þegar svar- að henni að nokkru. Telja þeir sig geta fullyrt, að hvorki finnist þar lífverur á borð við spendýr né risaeðlur. Þær hafi ef til vil getað lifað á Mars fyrr á tímum, en við nú- verandi skilyrði á plánetunni sé tilvera þeirra óhugsandi. En meðal líffræðinga eru margir þeirrar skoðunar, að á Mars geti þrifizt líffræðileg samsetn- ing tveggja tegunda einfrumu- jurta. • VATNSSKORTUR OG ÞUNNT LOFT Megin orsakir þess að líf á erfitt uppdráttar á Mars eru hið þunna andrúmsloft og vatns skorturinn. Hugsanlegt þykir, að finna megi vott vatnsgufu í andrúmsloftinu og breyting- in, sem stundum verður á stærð „íshettanna" á heimBskautun- um bendir til þess, að úr þeim bráðni á hlýjasta tíma ársins. Við rannsóknir hafa menn komizt að raun um að tveir þriðju hlutar af yfirborði Mars séu rauðgulir að lit, en margir telja sig einnig hafa greint dökka bletti, sem breyti um lit eftir árstíðum og séu grænleitir er hlýjast sé. Talið er að hitinn á Mars fari aldrei upp fyrir 18 gráður á celsíus, en frostið geti orðið allt að 70 gráðum á heims skautasvæðunum. Nokkrir vísindamenn eru þeirrar skoðunar, að loftþrýst- ingur sé jafnmikill á yfirborði Mars og tindi Mount Everest, en aðrir -telja loftið enn þynnra, eða eins og í um 30 þús. metra hæð frá jörðu. En þótt meðalvegurinn sé farinn og gert ráð fyrir að loftþrýstingur á Mars sé eins og í 15 þús. metra hæð frá jörðu, er þyngd loftsins aðeins 3% af loftþyngd við sjávarmál á jörðinni. Enginn hefur til þessa orðið var við óbundið súrefni í and- rúmslofti Mars, og sú staðreynd er nægileg til að útiloka mögu- leika á æðra lífi. Andrúmsloft jarðar er súrefni að einum fimmta hluta. Vísindamenn telja hugsanlegt að allt súrefni á Mars hafi gengið í samband við járn og það sé járnið, sem gefi plánetunni rauða litinn. Tilgátur eru uppi um, að um 98% af andrúmslofti Mars sé köfnunarefni, en hin tvö pró- sentin kolsýringur og argon. Og stjörnufræðingarnir Heyd- en og Kiess við Georgetown- háskóla í Washington halda því fram að allir litir og litabreyt- ingar á plánetunni stafi af eðlilegum breytingum á and- rúmsloftinu, sem samanstandi af köfnunarefnissýrum. • MARINER FLAUG Á „SÓLARVÆNGJUM" Mars, sem er um helmingi minni en jörðin, er á braut í milli 207 og 249 km. fjarlægð frá sólinni. Brautir þessara tveggja pláneta Mars og jarð- arinnar eru ekki eins í laginu og vegna þess nálgast þær hvor aðra mismunandi mikið frá ári til árs. Frá 1964—65 var minnsta fjarlægðin milli jarð- arinar og Mars tæpar 100 millj- ónir km., en 1971 verður minnsta fjarlægðin aðeins rúm- lega 56 milljónir km. Sólar- hringurinn á Mars er 37 mín- útum og 22,7 sekúndum lengri en á jörðinni, og Mars-árið er 669,6 Marsdagar, en það sam- svarar 687 jarðardögum. Svo vikið sé að geimfarinu Maririer IV, sem sendir nú til jarðar myndir af Mars, 80—100 sinnum skýrari en áður hafa sézt, er það búið fjórum svo- nefndum „sólarvængjum“. A vængjum þessum er fjöldi ljós- næmra sella, sem vinna orku úr sólinni og breyta henni í raí- magn. Og það er sólarorkan, sem hefur knúið Mariner IV áfram á ferð hans um hið lotft- tóma rúm milli plánetanna. Eft- ir að Mariner IV var kominn út fyrir andrúmsloft jarðar, var hæð geimfarsins 2,85 m, ea vænghafið 6,75 m. Flestum vís- indatækjum geimfarsins var komið fyrir í átthyrndu hólfi, um 125 cm í iþvermál, en tækin ganga fyrir rafhlöðum, sem nota ratfmagn er „sólarvængirn- ir“ vinna. Ferð geimfarsins stjórnaði lítill ratfreiknir, sem höfðu verið fengnar flestar þær upplýsingar, er að gagni máttu koma á ferðinni. Geimfarið var 259 kg að þyngd meðan það var hér á jörðinni, en úti í geimn- um er það auðvitað þyngdar- laust. VELHEPPNUÐ TILRAUN Mariner IV samanstendur aí 138 einstökum hlutum, og hver þeirra þurfti að komast klakk- laust 530 millj. km leið um geiminn til þess að ferðin mætti takast. Mikilvægastir af þessum hlutum voru þeir, sem tilheyrðu útvarpskerfi geimfarsins, því að án sambands við jörðina, var það einskis virði, þótt allt ann- að væri í lagi. Og það er furðu- legt að hugsa sér hve kraftlítið senditæki Mariners IV var, að- eins 10 vött. En iþótt aðeins sé unnt að kveikja á lítilli peru með þessu straummagni, reynd- ist það nægilegt til að senda merki til jarðarinnar um rúm- lega 200 hftllj. km veg. Þegar merkin náðu jörðinni var styrk- leiki þeirra aðeins um tíu trilljónustu (10/1 og átján 0) úr vatti. Þremur mjög kröftugum loftnetum var komið fyrir á jörðu til að taka við merkjum frá Mariner IV. Hvert þeirra 25,5 m í þvermál og er eitt í Astralíu, annað í S- Afríku og iþað þriðja í Kali- forníu. Nokkrar myndir af Mars, sem sinnum skýrari. W Æ teknar voru frá Jóhannesarborg 1956. Myndirnar, sem Mariner IV sendir frá Mars eru 80 til 100 Fyrstu vikuna, sem Mariner IV var á lofti, sendu vísinda- menn geimfarinu nokkrum sinn um merki til að breyta stefnu þess þannig að það færi ein ná- lægt Mars og unnt væri, er þangað kæmi. Og nú er ljóst, að þetta hefur tekizt vel. Öll hin nákvæmu tæki geimtfarsina hafa staðizt þolraunina, og eftir að Mariner IV hefur lokið við að senda myndir og upplýsing- ar til jarðar heldur það áfram í átt til sólar Og endar á braut umhverfis hana. Bandaríkjamenn ráðgera að senda næsta geimfar til Mars 1971, þegar fjarlægðin milli plánetunnar og jarðar er minnst. Verður miðað að því að geimfarið lendi á Mars og sendi enn nákvæmari upplýsingar um plánetuna en Mariner IV.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.