Morgunblaðið - 17.07.1965, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 17.07.1965, Qupperneq 9
Laugardngur 17. júlí 1965 MORGUNBLAÐIÐ 9 Guðrún Þórðardóttir og Halldór Sveinsson Minning ÞEGAR Guðrún fraenka mín, I>órðardóttir frá Patrcksíirði, hef ur nú lokið ferð sinni meðai okk- ar, eftir 87 ára ævigöngu, tel ég mér shylt, jafnframt því að minn ast hennar, að minnast einnig manns hennar, Halldórs Sveins- sonar, er lézt á Patreksfirði á afmælisdegi sínum, 22. sept. sl., einnig 87 ára. Haunar tel ég mér það til van- rækslu að hafa ekhi minnzt hans fyrr, úr því að öðrum láðist að gera það. í minningu frá þernsku og seskuárum mínum, lýsir af tveim- uru ngum persónum, karli og konu, eh bæði voru í vist á seskuheimiii mínu. Þetta írsendfólk mitt, Guðrún Þórðardóttir og Halldór Sveins- son, þótti til fyrirmyndar ungu fólhi og gátu sér orðstír, hún íyr- ir franaúrskarandi dugnað, trú- mennsku og hagsýni í öllum at- höfnum ,hann einnig fyrir atorku og hreysti, glæsileik og prúð- mennshu í orðúm og gerðum. Hjá báðum sameinuðust þær dyggðir, er mest voru metnar hjá hjúum þeirra tíma. Þessir mannkostir samófust í hugum þeirra, svo áð til hjú- skapar Ieiddi árið 1906, meðan þau dvöldust á heimili foreldra minna. t>au hjúskaparbönd ent- ust þehn meðan bæði lifðu, í nær sex tugi ára, í inniilegri og gagnvirkri sambúð. Guðrún lézt í Landsspítalan- um eftir langa og erfiða legu er ©rsakaðist af byltu, er hún hlaut og slæmu beinbroti. Með rósemi og Ijúflyndi bar hún þrautir sín- ar til binztu stundar. Guðrún var fædd að.l>órisstöð- um í Gufudalissveit 15. ágúst 1878, elzt af þremur dætrum hjónanna Jngibjargar Gísladóttur og Þórðar Þórðarsonar, er þar fcj uggu. Ólst bún upp í foreldrahúsum til 9 ára aldurs, fyrst á Þóris- rtöðum, síðan í Langabotni í Geir þjófsfirðd, en flúttist þé með móð trr sinni og systrum, eftir andlát föðurins, að Auðshaugi, til Jóns Þórðarsonar, föðurbróður síns. Jón fluttist skömmu síðar að Ekálmarnesmúla og gerðist þar rtórbóndi og atgervismaður í landbúnaðar- og sveitarmálum. í vist hjá föðurbróður sinum og síðar seinni konu hans, Hólm- frlði Ebenesersdóttur, var Guð- rún til tvítugsaldurs. Vistréðist hún þá með móður sinni óg systr- um til Maríu Gísladóttur, móðúr- eystur sinnar í Skáleyjum, og manns hennar, Jóhannesar Jóns- eonar, bónda þar. Samvistaráriii með Guðrúnu, frænku minni, móður hennar og eystrum geymast í huga mínum eem heiðrík minning. Þau ár voru heillarík foreldrum mínum, sem þá höfðu nýlega tekið við hús- forráðúm á hálfum Skáleyjum. Bezta trygging fyrir farsælum búskap var á þeim tímum, góð, dygg og dugleg hjú. Þau voru jnáttarstólpar hvers beimilis. í ödum verkum og allri ráð- deild, utan húss sera innan, var Guðrún framúrskarandi. Hin erfiðu og sérstæðu störf, «r *fylgdu eyjabúskap, einkum við heyskap í úteyjum, var henni leikur einn, vegna þreks og vilja- krafts. Þá var árabátaöldin ekki liðin hjá. Kvénfólk varð þá að ■tunda sjóferðir, svo að segja sem daglega iðju, jafnt kbrlurn og leggjast fast á árar 1 slark- ferðum. Guðrún reyndist þar ótrauður, hiklaus og dugandi liðsmaður. Tíúmennska hennar og um- hyggjusemi fyrir mönnum og mál leysingjum bar þess Ijósan vott, að þar færi mikilhæít húsmóöur- efni og búkona. Halldór, maður Guðrúnar, var fæddur í Æðey í ísafjarðardjúpi 22. sept. 1877, næst elzta barn hjónanna Pálínu Tómasdóttur, útvegsbónda að Nesi í Grunna- vík, og Sveins Péturssonar, sjó- manns, breiðfirzkrar ættar. Sveinn var kunnur maður, hvar sem bann. fór, fyrír líkamsat- gervi, fimi og dirfsku, bæði á sjó og landi. Tólf ára gamall fór Halldór úr foreldrahúsum, með elztu syst- ux sinni, Maríu, að Brjáns- læk á Barðaströnd, til læknishjón anna, Davíðs Sebevings Thor- steinssonar og frú Þórunnar, og átti heimili hjá þeim um 5 ára skeið. Með þeim fluttist hann til Stykkishólms, er Davíð varð hér- aðolæknir þar. Meðan Halldór var á Brjáns- læk fluttust foreldrar hans í Skáleyjar. Til þeirra fór hann frá læknishjónunum og stundaði sjómennsku um skeið með föður sínum, bæði á opnum bátum ©g þilskipum. Skömmu eftir aldamótin vist- réðist hann hjá foreldrum min- um. Þeirri vist lauk, er hann sjálíur hóf búskap með konu sinni 1907, á hálfri jörðinni Skála nesi í Gufudalssveit. Halldór var gervilegur maður, i hærra meðallagi að vexti, fríður sýnum og bjartur yfirlits. Hann var ©rkumaður í öllum störfum, vandvirkur og verkséður. En það sem einkum gerir Hall dór minnisstæðán þeim, er hann átti samleið með, var hin íágaða framkoma hans og prúðmennska, sem aldrei brást, Þótt skapheitur væri bann, hafði hann áunnið sér þá geðþjálfun, að aldrei brá til stóryrða né óvildar í garð annarra. Hann ávann sér því ó- skorað traust allxa er kynntust honum. Hygg ég, að á mennta- og menningarheimili læknishjón anna að Brjánslæk hafi mótast í næmum og opnum hug ung- lingsins, sú siðfágun, er rótíöst með honum alla ævi. Ég og önnur bÖrn heimilis míns hændumst að Halldóri Hann Iaðaði okkur að sér. Það var eitthvað framandi og fínt við hann, sem við gjarnan vild- um tileinka Okkur, þó að misjaín lega tækist. Halldór var söngvís, hafði fclæfallega baritónrödd og var því forsöngvari á heimiliu við alla húslestra og annarsstað- ar, þegar lag var tekið, væri hann nærstaddur. Hann var einn ig lesari góður og gegndi þeirri föstu reglu, fyrri hluta vetrar, áður en vetrarvertíð hófst, að lesa fyrir heimilisfólkið, þegar setzt var. við innivinnu á kvöld- vökum. Það eru mér ógleyman- legar stundir. Það sem hér hefur verið sagt, í lausum dráttum, en minningar mínar frá æsku og unglingsárun- um um þessí mætu hjón. En nú er komið að því, er lífs- starf þeirra hófst ís amfcúð, er varð þeim löng og farsæl. Á þeim tímum var það metn- aðarmál og markmið ungra, dugandi hjóna, að fá jarðnæði og byrja búskap. Bújarðir lágu þá ekki lausar fyrir, en bæði voru þau hjónin fastráðin í því að helga krafta sína landbúnaði, enda þótt Halldór hefði jöfnum höndum við landlbúnaðarstörf, stundað sjómennsku, en Guðrún átti, sem áður er sagt alla kosti góðrar búkonu og húsmóður. Þeim tókst þó, að íá í búð á hálfu Skélanesi, skemmtilegri jörð með nokkrum hlunnindum, dúntekju og selveiði. En bústofn hjónanna óx ort, svo að þröngbýlt varð. Fjarðárhorn, í sömu sveit, varð næsta bújörð þeirra. Seinna Skálmardalur og Svínanes Múlasveit. Þessir búflutningar kunna að vekja hugleiðingar una að hjón- in hafi skort gtaðfestu þegar á herti í önnum og umstangi bú- sýslunnar. Slíkt er fjarstæða, svo sem öllum er kunnugt, er til þekktu. Á bújörðum sínum bjuggu þau vel, við sæmilegan efnahag og sívaxandi bústofn, þó að segja megi, að þau hafi lagt meiri áherzíu á að bæta stofnin en fjölga honum. Bújarðir sínar allar bættu þau. Ástæðan fyrir búferlaflutningunum var sú ein, að leita betra hagræðis fyrir sig og bústofn sinn. Hvorki Fjarðar- horn né Skálmardalur uppfylltu óskir þeirra, enda harðbýlar dalajarðir. Á Svínanesi fengu þau aftur á móti ákjósanlegt verkefni og bjuggu þa rgóðu búi um skeið, en þar fór heilsa Halldórs að bila. Það varð að slaka S klónni og leita hægari bújarðar, en nauð ungakostur var það. Ilæsta og seinasta bújörðin er þau hjón sátu, var Móberg á Rai ðasandi, lítil og hæg jörð. Þangað fluttu þau árið 1934. En vegna heilsu- tjóns Haildórs, er ágeroist með ári hverju, létu þau fyrir fullt og allt af búskap árið 1950 og fluttu til Patreksfjarðar, þar sem læknishjálp var nærtæk og áttu þau heima til æviloka. Guðrún og Halldór eignuðust fjögur börn, sem öll eru á lífi. au eru: Pálina, fyrrum Ijósmóðir á Patreksfirði. Er hún enn búsett þar, gift Guðmundi Friðrikssyni vélgæzlumanni, Ingibjörg, gift Kristjáni Jónssyni verkamanni á Patreksfirði, Þórður, fyrrum póst fulltrúi í Reykjavík, nú bygg- ingaverkstjóri á Keflavíkurflug- velli, kvæntur Sigríði Guðmunds dóttur frá Ólafsfirði og Sesselía, gift Halldóri Halldórssyni vél- gæzlumanni í Reykjavík. Frá heimilislífi hjónanna barst einatt sama sagan, það var góð saga um ástúðlegt og reglubund- ið fjölskyldulíf. að var athyglis- verð saga um samstillt og hik- laust lífsstarf hjóna en afslátta- laust kepptu að því að bæta bú sitt og jarðir, sér og öðrum til hagsældar og það var skemmti- leg saga u mrisnu, alúð og gleði sem allir nutu, en að bæjardyr- um þeirra bar, en þeir voru marg ir, er fyrirgreiðslu þurftu á sjó og landi. Hjá þeim var ávallt ' hjálp að fá undir öllum viðráðan legum kringumstæðum. Hinir voru einnig margir, sem löðuðust að heimili Halldórs og Guðrúnar og lögðu lykkju á leið sína, án brýnna erinda, aðeins til þess að njóta samverustunda með glöðum og hlýhuga hjónum og háttprúðum börnum þeirra. Langur starfsdagur þeirra er að lokum liðinn. Þau voru þreytt orðin og vildu hvílast, þakklát lífinu og tilverunni. Útför Guðrúnar var gerð frá Patreksfjarðarkirkju mánudag- inn 5. júlí, að viðstöddu fjöl- menni. Var henni búinn legstað- ur við hlið manns síns. Júlisólin í hásumardýrð signdi moldu þeirra, það var fögur kveðja og að þeirra geði. Bæði unnu þau sól og mætti sumarsins. Þau trúðu á Ijósið að ofan er. leiða mundi þau, að þessu lífi loknu til meiri starfa Guðs um geim. Vinafjöldinn þakkar líf þeirra og störf. Guðm. Jóhannsson. Frá og með laugardeginum 17. júM verða fargjöld með Strætisvögnum Reykjavíkur, sem hér segir: Faigjold fullorðinna: Einstök fargjöld kr. 5,00. Farmiðaspjöld með 30 miðum kr. 100,00. Farjjjiðaspjöld með*6 miðúm kr. 25,00. Sama gjaldskrá gildir fyrir leiðina Reykjavík — Baldurshagi. Foigjöld bama (innan 12 ára): Einstök fargjöld kr. 2,00. Farmiðspjöld með 18 miðum kr. 25,00. Sama gjaldskrá gildir fyrir leiðina Beykjavík — Balduxshagi. KEIMDALLARFERÐ \ SIÆFELLSKES Heinidallur F. 17. S., efnir til helgarferðar á Snæfellsnes í dag og verður lagt af stað frá Valhöll v/Suðurgötu kl. 2 e.h. — Ekið verður að Búðum og tjaldað þar, en á morgun verður farið fyrir jökul, ekið um Hellissand og Ólafsvík og til baka um Fróðár- heiði. — Þátttakendur hafi með sér viðleguútbúnað. Verð kr. 375,00. — Tilkynnið þátttöku í sima 17-100. FERÐIZT MEÐ HEIMDALLI hvert sem þér faríð hvenær sem þér farið hvernig sem þér ferðist tlMENNM mtaiuu PGSTHðSSTUEn ð SIM117710 > ferðaslysatrygging

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.