Morgunblaðið - 28.07.1965, Qupperneq 23
MvðvrkuÆafur 28. júlí 1965
23
Loftárásir á eldflaugastöðvar
Ein stöðin eyðilögð — unnur skemmd
1 Saigon og Washington,
' 27. júlí (AP-NTB)
BANDARÍSKAR þotur gerðu
í dag loftárásir á tvær stöðv-
ár fyrir loftvarnareldflaugar
í Norður-Vietnam um 65 km
fyrir norð-vestan Hanoi. Gjör
eyðilagðist önnur stöðin, en
miklar skemmdir urðu á
hinni. Segja Bandaríkjamenn
að þrjár flugvélar þeirra hafi
verið skotnar niður, en út-
varpið í Hanoi segir að vél-
árnar hafi verið sex.
' Ekki hafa fyrr verið gerðar
loftárásir á eldflaugastöðvar í
Norður-Vietnam, þótt vitað hafi
yerið að þær væru í smiðum.
En bent er á að sl. laugardag
var bandarísk flugvél skotin nið-
ur yfir Norður-Vietnam, og talið
að henni hafi verið grandað með
eldflaug.
Fleiri loftárásir voru gerðar í
dag, m.a. á orkuver í Norður-
Vietnam, og vegi og brýr á slóð
um Viet Cong skæruliða í Suður
Vietnam.
Eldflaugarnar, sem komnar
eru til Norður Vietnam, eru frá
Sovétríkjunum. Er talið fullvist
að sovézkir sérfræðingar hafi
unnið að uppsetningu stöðvanna
og jafnvel að sovézkir hermenn
sjtórni þeim, eins og á Kúbu. En
yfirvöíldin í Washington Jiafa
lýst því yfir að nærvera sovézku
hermannanna muni ekki koma
í veg íyrir að stöðvarnar verði
eyðilagðar, ef þess er talin þörf.
Hins vegar kerhur árásin á
stöðvarnar í dag að takmörkuðu
gagni fyrir Bandaríkjamenn, því
það tekur aðeins um sólarhring
að koma þeim upp að nýju ef
efniviðurinn er fyrir hendi.
Eldflaugarnar eru af sömu gerð.
og þær. sem notaðar voru til að:
skjótá niður bandaríska könn-
unarflúgvél af gerðinni U-2 yfir
Sovétríkjunum 1960 og U-2 flug-
vél yfir Kúbu.
Síðustu viku varð mikið mann
fall í liði Viet Cong skæruliða í
Suður Vietnam, að sögn varnar-
málaráðuneytisins í Saigon.
Segir í skýrslu rá'ðuneytisins að
682 skæruliðar hafi fallið og
109 teknir til fanga. Á sama
tíma missti stjórnarherinn
287 hermenn auk 123, sem er
saknað. Nokkrir árekstrar urðu
í dag milli stjórnarhersins og
skæruliða í Suður Vietnam, aðal-
lega nálægt landamærum Kamb-
odia. Ekki er vitað um mannfall,
en talið að það hafi orðið lítið.
Fra danskn badstdond.
Fimmburar Fjárfesting takmörkuð
- útflutningur efldur
Komnir af foringja
uppreisnarinnar
á Bounty
Auckland, Nýja Sjálandi,
27. júlí (AP)
FRÚ Shirley Ann Lawson ól'
i dag fimmbura í Rikissjúkra^
húsinu í Auckland á Nýja
iJSjálandi, dreng og fjórari
itúlkur. Líður börnunum og’
móðurinni vel. Eru þetta
iyrstu fimmburarnir, sem |
fæðst hafa þar í landi.
Faiðiirinn, D. W. Lawson,
rekur litla matsölu í Auck-
land, óg tóku þau hjónin ál
Jmóti fréttamönnum í sjúkra-
ynúsinu í dag, skömmu eftirj
^fæðinguna. Sat þá frú Law-'
son uppi í rúmi sínu og drakk I
;e. Sagði Lawson að sér liði |
sins og ef umferðarlögreglan}
hefði stöðvað sig fyrir eitt-
hvert brot á reglunum, og ]
hann gæti ekki borið framl
neina afsökun aðra en: „ég(
íetlaði ekki að gera þetta.“
Frú Lawson sagði, að hún
nefði búizt við fjórburum ,alls
íkki fimmburum. Móðir frúar
innar bætti því við, að fimm-|
aurarnir væru afkomendurj
Fletchers Christians, þess er
stóð fyrir uppreisninni á’
Bounty, því eiginmaður henn|
ar væri einn afkomenda hans.j
Nýjar aðgerðir brezku
stjórnarinnar
London, 27. júlí (NTB).
BREZKA stjórnin skýrði i dag
frá víðtáekum aðgerðum, sem
gripið verður til i þeim tilgangi
að draga úr fjárfestingu heima
fyrir og efla útflutninginn. Er
þetta gert til að styrkja sterlings
pundið og bæta gjaldeyrisstöð-
una. Kom þetta fram í skýrslu,
sem fjármálaráðherrann, James
Callaghan, flutti í Neðri mái-
stofu þingsins í lag.
Dregið verður úr öllum opin-
berum útgjöldum, bæði hjá ríki
og bæjarfélögum og eftirlit haft
með gjaldeyrisnotkun. Einnig
verður dregið úr fjárveitingu til
landvarna, og ,hún lækkuð um
100 milljónir punda.
Aðgerðir þessar fela m. a. í sér
að allir opinberir aðilar, ráðu-
neyti, bæjaryfirvöld, sveitar-
stjórnir og ríkisfyrirtæki, verða
að fresta vörukaupum og birgða-
söfnun. Dregið verður úr opin-
berum lánum til húsbyggjenda,
og takmörk sett á vörukaup ein-
LÆGÐINNI suður í hafi.
fylgdi allmikið regnsvæði, og
fer loftraki nú yfir leitt vax-
andi, svo sem venja er til,
þegar halla tekur sumri. Á
Suðurlandi voru einnig skúr-
ir, sem þó var ekki beint
hægt að rekja til lægðarinn-
ar. Voru þrumur á stöku
stað, svo sem á Kirkjubæjar-
klaustri, en norðan lands var
sól og blíða. Var 14 stiga hiti
á Nautabúi, en 7 stig í Skoru-
vík.
í gærmorgun reyndist hafa
verið frost um nóttina suras
staðar fyrir norðan, m.a.s. 3
stig 1 Aðaldal. 1 Reykjavík
var 0,3 stig á grasi.
Veðurspá kl. 22 í gærkvöldi:
SV-land og Faxaflói og mið
in: Hægviðri, léttskýjað með
köflum, en víða síðdegisskúr-
ir.
Breiðafjörður til N-lands og
Breiðafj.mið til Vestfj.miða:
Hægviðri. Víða léttskýjað.
NA-land til SA-lands og N-
mið til SA-miða og Austur-
djúp: Hægviðri. Víðast skýj-
að.
Veðurhorfur á fimmtudag.
Hæg, norðlæg átt. Bjart-
viðri víðast hvar, en senni-
lega síðdegisskúrir suðvestan
lands.
staklinga gegn afborgunum. Hing
að til hefur hámarktími afborg
ana verið þrjú ár, en verður nú
2% ár. Ákveðið hafði verið að
lækka vexti af lánum til hús-
byggjenda, en þeirri íækkun
verður frestað.
Varðandi .útflutninginn frá
Bretlandi sagði Callaghan að
ákveðið væri að veita útflytjend-
um aukna aðstoð. Til að efla út-
flutninginn verða útflytjendum
veitt sérstök lán með lágum
vöxtum.
— Heath
Framhald af bls. 1
ast ekki um að hagsmunum
flokksins er bezt borgið.með
því að draga framboð mitt til
baka. Ég vonast til að fá tæki-
færi til að vinna að því undir
leiðsögn Heaths að fella nú-
verandi ríkisstjórn hið fyrsta".
Edward Heath er 49 ára og
ókvæntur. Hann hefur gegnt
mörgum ábyrgðarstöðum á
vegum Ihaldsflokksins, og
telja menn að undir leiðsögn
hans verði baráttan gegn nú-
verandi ríkisstjórn hert að
mun, en ríkisstjórnin hefur að
eins þriggja atkvæða meiri-
hluta í Neðri málstofunni. Bú-
ast má við nýjum þingkosning
um í Bretlandi á næsta ári og
álitið að íhaldsflokkurinn
muni þá hafa góða möguleika
á því að fá þingmeirihluta, en
þá yrði Heath að öllum líkind-
um forsætisráðherra.
í*ótt Heath sé nú einn í
kjöri, kemur þingflokkur í-
haldsmanna saman á fimmtu-
dag til þess formlega að kjósa
nýjan leiðtoga. Frestur til að
bjóða fram við þær kosningar
rennur ekki út fyrr en í fyrra-
málið, en eini frambjóðand-
inn, sem til greina kom lýsti
því yfir í dag að hann yrði
ekki í kjöri. Var það Peter
Thorneycroft, fyrrum varnar-
málaráðherra. Er því tryggt
að Heath verður kjörinn með
svo til öllum atkvæðum.
Mikil umi'erð
Aosta, Ítalíu, 27. júlí (AP). -
Um 26 þúsund bílar fóru um
bílagöngin undir Mont Blanc
fyrstu vikuna sem þau voru
opin.
Ódýrar Danmerkurferðir
FERÐASKRIFSTOFAN Sunna
mun í sumar gangast fyrir ódýr-
um sumarleyfisferðum til Dan-
merkur. Þar sem flugferðir og
vikudvöl með öllum máltíðum á
baðstrandarhóteli kostar krónur
8.018.00, eða sama og flugfarið
eitt kostar. Hver viðbótarvika á
baðstrandarhótelum, eða í Kaup-
mannahöfn, kostar kr. 2.100.00.
Verðið miðast við góð hótel í
„túristaklassa", en hægt er að fá
dýrustu lúxushótel landsins og
greiða þá verðmismun hótelanna.
Sunna hefir íslenzkan starfsmann
sinn til að sinna ferðafólkinu í
Danmörku. Tekur hann á móti
því á flugvelli á hverjum föstu-
degi og dvelst með því á bað-
strandarhótelunum á Jótlandi. En
Geir Aðils, fulltrúi Sunnu i Kaup
mannahöfn, sér um fyrirgreiðslu
— Grikkland
Framhald af bls. 1
eins og: „Niður með morðingj-
ana,“ „Þjóðin ræður, ekki Banda
ríkjamenn, ekki NATO, ekki
konungshöllin" o.fl. Síðan var
farin hópganga að þinghúsinu,
en þar var fyrir lögregluvörður,
og dreifðist þá mannfjöldinn án
þess að til árekstra kæmi.
I Saloniki komu um fimm þús-
und byggingaverkamenn saman
til útifundar. Þar var aðal slag-
orð fundarmanna: „Niður með
Bandaríkjamenn frá Texas“, og
áttu fundarmenn þar sennilega
við Lyndon B. Johnson, forseia.
— Bridge
Framhald af bls. 3
2. C. Goldstein og J. Tarlo
3. S. Lee og L. Tarlo
Enska bridgesambandið bauð
41 spilara að taka þátt í keppni
þessari, en aðeins 24 þáðu boð-
ið. Af þessum 24 spilurum er að-
eins einn úr sveitinni, sem sigr-
aði glæsilega á Evrópumótinu i
BADEN-BADEN og er það Harri
son-Gray. Af þessum 24 spilur
um eru aðeins 5 spilarar, sem
keppt hafa í Evrópumótum.
þar, frá skrifstofu sinni í Helgo-
landsgade 13, þar sem Sunna hef-
ir nú í tvö ár haft ferðaþjónustu
fyrir farþega sína í Kaupmanna-
höfn.
Farþegar, sem taka þátt í þess-
um ferðum til Danmerkur, fara
frá Reykjavík á hverjum föstu-
degi með flugvél Flugfélags ís-
lands hf. til Kaupmannahafnar,
og er rúm fyrir 20 farþega í
hverri ferð. Skömmu eftir komu
íslenzku vélarinnar til Kastrup-
flugvallar er flogið til Álaborgar
með SAS, en sú ferð tekur tæpa
klukkustund og þaðan er ekið
beint af flugvelli til baðstrandar-
hótelanna, þar sem dvalizt er í
viku.
Þeir, sem vilja, geta framlengt
dvölina í Danmörku að vild, á
baðströnd eða í Kaupmannahöfn,
og eins geta þeir sem vilja dvalið
fyrstu vikuna í Kaupmannahöfn,
áður en farið er á baðstrandar-
hótelið.
Fyrir hið fasta verð, 8.018.00
kr., er hægt að velja um tvö
hótel, sem valin hafa verið úr
mörgum. Annað er Hotel Höjen-
gran á Gl. Skagen. Hótelið stend-
ur í friðsælu umhverfi og fögrum
skógi og eru aðeins 800 metrar
niður að baðströndinni. Skammt
er í Skagabæina tvo, þar sem
. fjörugt skemmtanalíf er á kvöld-
in. Möguleikar eru til sjóstanga-
veiða, sem er mikið stunduð í-
þrótt á þessum slóðum. Hitt hótel
ið er Hotel Kanderhus Kro, sem
ste/iur aðeins um 500 metra frá
sjálfri baðströndinni, skammt ut-
an við borgina.
Þriðji möguleikinn, sem um er
að velja fyrir sama verð, er dvöl
í nýtízkulegum sumarbústöðum
j við ströndina, rétt hjá Thisted.
Húsin eru alveg nýbyggð og verð
ið miðast við tvo farþega í íbúð.
Möguleikar eru þarna til sól- og
sjóbaðs við ströndina og fiskveiða
í vötnum og sjó.
Þá er gefinn aukaafsláttur fyr-
ir börn í fylgd með foreldrum,
fyrir börn 2—12 ára greiðist hálft
I gjald-
Minningarathöfn um móður okkar og tengdamóður,
HÓLMFRÍOI IMSLAND
Selvogsgrunni 26,
sem andaðist í Landsspítalanum 26. þ. m. fer fram í
Hallgrímskirkju fimmtudaginn 29. þ. m. kl. 3 e.h.
Albert og Asta Imsland,
ína og Bþrge Bildsoe — Hansen,
Svava og Haraldur Jóhannsson.
Kristján Stejngrímsson.