Morgunblaðið - 11.08.1965, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 11.08.1965, Blaðsíða 2
MOHCUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 11. ágúst 1965 z Miðstjórnarfundur í Sovétríkjunum 23. kommúnistaflokksþingið i febrúar-marz? Moskvu, 10. ágúst (NTB) OÓÐAR. heimildir í Moskvu fcermdu í dag að miðstjórn Komimúnistaflofcks Sovétríkj- anna myndi koma saman til áundar í næsta mánuðí til þess ®ð ræða tillögu um að 23. Flokks þingið komi saman í febrúar eða ■narz naesta ár. Ólíiklegt er talið að miðstj órnin muni á fundi sín- um ræða hugsanlegar breyting- ax á flokknum og stjórn Sovét- r.íkjanna, en hinavegar er full- víst talið að í lok 23. flokksþings ins verði þau mál rædd. Þeir, sem með málum fylggj- ast í Moskvu, telja að flokksþin/g ið muni einkum ræða þrjú höf- uðatriði, er það kemur saman, þ.e. aimenna stefnu kommún- istaflokksins takmark utanríkis- málastefnunnar og hverjir skuli sitja í æðstu valdastólum. Fregnirnar um miðstjórnar- fundinn í september virðast benda til þess að „hreyfing“ sé nú enn komin á Sovétríkin, eftir að landið hafi allt síðan Krúsjeff var veit úr stóli, „safnað kröft- um.“ Auknir flutningar Pan American Blaðið sneri sér í gær til 3olla Gunnarssonar, forstöðumanns Pan American flugfélagsins hér- lendis, og spurðist fyrir um farþegaflutninga félagsins til og frá íslandi. Þotur Pan American af gerðinni DC8 hafa viðkomu tvisvar í viku á Keflavíkurflug- velli, þ.e.a.s. á miðvikudags- morgnum á leið til Glasgow og Berlínar og síðan á miðvikudags kvöldum, er vélin fer vestur um haf frá Evrópu. Bolli Gunnarsson sagði, að um helmingur allra farþega með vélinni, sem tekur 140 manns færi til eða frá íslandi. Hefur skrifstofa Pan American annast fyrirgreiðslu fyrir útlendinga, sem óska að dveljast hér á milli ferða á leið sinni milli megin- landanna. Þá nota íslendingar sér ferðir Pan American í vax- ar ferðir til og frá Islandi í andi mælí og var fullbókað í all- júlímánuði og sama er að segja um ágústmánuð, en nokkur sæti munu laus í ferðum í september. Bát hlekkist á Akranesi, 10. ágúst. FISKASKAGA hafði rétt áður verið rennt á flot niður úr drátt- arbrautinni eftir eins dags við- gerð, er hann um kl. 6.30 í gær- kvöldi strandaði í klettunum undan hraðfrystihúsabyggingum Fiskivers h.f. sunnanvert inni í Lambhúsasundi. Á-flóðinu í nótt milli 4 og 5 dró Sæfaxi, Fiska- I skaga af klettunum og keyrði báturinn þegar aftur að dráttar- brautinni, en fór of nærri sleð- anum og tók niðri í annað sinn. Þetta eru sérstök óhöpp því veður var lygnt. Báturnn er á leið upp í slippinn núna. Talið er að hann hafi ekki skemmst. — Oddur. Árni Grétar Finnsson. Ásgeir Pétursson. Sumarmot í Húsafellsskógi UM næstu helgi efna ungir Sjálfstæðismenn til Sumar- móts í Húsafellsskógi og eru það félög ungra Sjálfstæðis- manna á Suður-Norður- og Vesturlandi, sem að því standa ásamt Sambandi ungra Sjálfstæðismanna. Komið verður í Húsafells- skóg á laugardag og þá um kvöldið verður kvöldvaka. Þar munu Ásgeir Pétursson, sýslumaður og Árni Grétar Finnsson, formaður Sam- bands ungra Sj álf stæðis- manna flytja stuttar ræður og ýmislegt verður til skemmtunar. Á sunnudag verður m.a. farið í Surtshelli. Ungir Sjálfstæðismenn eru eindregið hvattir til að gera þetta Sumarmót sem glæsi- legast með því að fjölmenna á mótið og tilkynna þátttöku til skrifstofu SUS í síma 17100. Verð er 325 kr. og er innifalið í því ferðakostnaður og gjald fyrir tjaldstæði. Menn eru beðnir að hafa með sér viðleguútbúnað. Tímornir hcaffca ataikið breytzt til hins betrca — segir Asgeir Asgeirsson, kaupmaður dttræður í dag Ásgeir Ásgeirsson. ÁTTRÆÐUR er í dag Ásgeir Ásgeirsson kaupmaður, Þing- holtsstræti 17. Ásgeir er fædd ur á Stað í Hrútafirði árið 1885. Við heimsóttum hann í verzlunána í gær, þar sem hann stóð fyrir innan af- greiðsluborðið og afgreiddi viðskiptavinina hress og ern. — Hvenær byrjaðir þú verzlunarrekstur? — Ég hóf verzlunarrekstur árið 1925 og þá' í næsta húsi hér við. Hingað fluttist svo verzlunin fyrir átta eða níu árum og hér er ég enn, segir Ásgeir og brosir. — Við hvað starfaðirðu áð- ur en þú hófst verzlunar- rekstur? — Þegar ég varð 17 ára fór ég til Akureyrar og vann þar við smíðar, en fluttist síðan árið 1907 norður í Steingríms- fjörð og hóf þar búskap á jörð er heitir Heydalsá. Þá hafði ég nokkru áður kvænzt fyrstu konunni minni, en ég er þrí- kvæntur. Nú konan var heilsu laus og við urðum að flytjast suður. Lézt hún á Vífilsstöð- um eftir að við höfðum verið 9 ár í hjónabandi. Þá fluttist ég til ísafjarðar og var þar í tvö ár við smíðar. Ég kvænt- ist svo í annað sinn og fluttist til Reykjavíkur og gerðist verzlunarmaður í Laugavegs Apóteki hjá Stefáni Thorar- ensen. Ég sá um reikninga og annað fyrir apótekið og féll mér alltaf vel við Stefán. Hann var mér alltaf ágætur. Svo hef ég verzlunarrekstur- inn í Þingholtsstræti 1925. — Finnst þér ekki vérzlun- arhættir hafi breytzt mikið? — Jú, það hafa þeir gert. Þeir fóru hríðversnandi um 1930, Þá var kreppan og fólk háfði hvorki peninga né at- vinnu. Það var hörmungar- ástand og ekki unnt að verzla án þess að lána öllum. En svo kom seinna atriðið og þá breyttist þetta allt óskaplega mikið. Þá fékk fólk meiri ráð og gat farið að kaupa. — Og vöruval. Hefur það ekki breytzt mikið? — Vöruval þá og nú, það er nú ólíkt. Nú er veröldin miklu betri. Nú fær maður ávextina ferska og góða, sem maður fékk áður skemmda og vonda, þannig að það kom ekkert annað til greina en bafa kasta þeim i tunnuna. Það eru svo sannarlega aðrir og betri tímar nú. — Eru ekki margir búnir að vinna hjá þér í verzluninni um dagana? — Nei, ekki svo margir. Mágur minn var nú lengst af hjá mér eða í 20 ár og ég hef alltaf verið sjálfur við þetta að undanteknu hálfu ári, en þá var ég lasinn. — Og í hverju finnst þér svo mesta breytingin vera fólgin, þegar þú lítur yfir þessi 40 ár? —. Mér finnst hin síðari ár hafa verið einstaklega góð, allt hefur gengið betur og bet- ur. Lífið hefur og verið að mörgu.leyti þægilegra. Morgunblaðið óskar þessum heiðursmanni til hamingju með þennan merkisdag í lífi hans og óskar honum alls góðs í framtíðinni. Demantssíld út af Langanesi Treg veiði — Fólksekla á Raufarhöfn ÁGÆTT veffur var á síldarmiff- unum í fyrradag og fyrrinótt, og voru skipin aðallega aff veiðum á svæffinu 180—200 milur AaN frá Raufarhöfn. Alls tilkynntu 51 skip um afla samtals 39.595 mál og tunnur. Guðbjörg ÍS 1600 mál, Odd- geir ÞH 1000, Ólafur Magnússon EA 1000, Sigrún AK 708, Bjarmi II EA 1000, Búðaklettur 1000, Ásþór RE 1500, Framnes ÍS 1100, Eldey KE 300, Glófaxi NK 390, Jón Gunnlaugs GK 225, Stein- unn SH 400, Guðrún GK 900, Áskell ’&H 200, Sif ÍS 900, Sæ- þór OF 1000 mál og tunnur, Höfr ungur II AK 800, Ól. Sigurðsson Ak 1000, Guðrún Þorkelsdóttir SU 350, ólafur Bekkur OF 700, Einar Hálfdáns ÍS 800 tn., Súlan EA 900, Heimir SU 700, Mummi GK 400, Hrönn ÍS 1000, Guð- mundur Péturs ÍS 525 mál, Kefl- víkingur KE 1100, Pétur Jóns- son ÞH 312, Freyfaxi NK 335, Björg II NK 1200 mál, Jón á Stapa SH 700, Haimravík KE 1100, Inigiber Ólafsson II GK 1050, Sólrún IS 1120, Höfrungur III AK 900, Garðar GK 500, Skáilaberg NS 450, Hugrún IS 800, Skírnir AK 20 Sig. Jónsson SU 800, Húni II HU 1100 tm., Sól- fari AK 1300 mál og tn., Guðm. Þórðaraon RE 680, Arnkell SH 500, Gjafar VE 600, Jón Eirikseon SF 1200 tn. Sæúlfur BA 400, Gullfaxi NK 500, Blíðfari SH 850, Sunnutindur SU 1000, Akur- ey SF 500. 1 gærkvöldi átti blaðið samtal við Raufarhöfn og fékik þær frétt ir að skipin væru flest á svæði um 90 mílur austur af Langa- nesi. Síldin var þar í peðrum og fremur stygg og fremur lítil veiði. Miikið kastað þó, en lítill árangur. Síld sú sem fæst er ágæt, svonefnd demantesíld. Fer hún í söltun öll. í gær var kunn ugt um þessi skip sem fengið höfðu síld þarna nyðra: Eldborg 700 tunnur, Jón Garðar 350, Kristján Valgeir 300, Björgvin 250, Ólafur Magnússon, 400, Ingi ber Ólafss. II 300, Sigurður Bjarnas. 350 og Straumnes 100. Tólf lcaxes? lógu Akranesi, 10. ágúst. RÉTT fyrir hádegið síðasta föstu dag gengu tveir menn til dyngju húsfreyju þar sem hún sat við sauma meðan var að soðna í pott inum. — Hafðu til nesti og nýja skó á nóni, báðu þeir. — Hvert skal halda? — í Dal vestur til laxveiða. — Ekki skal á nestinu standa, en stærsta laxinn heimta ég í í pottinn. — Já. ef við ekki missum i hann. — Launhált er loforð það, kvað húsfreyja og hló við. Klukkan þrjú settust þeir upp í bílinn og smá juku ferðina upp í þriðja og fjórða gír og rakleitt vestur að Flekkudalsá. Steng- urnar á loft. Flugurnar snurfus- aðar og ánamaðkarnir teknir fr.am. Veitt var um kvöldið, laugardaginn og fram á hádegi á sunnudag. 12 laxar lágu, 13 pund sá þyngsti. — Oddur. Gert er ráð fyrir að flest skip- in komi til Raufarhafnar og síld- in fari til söltunar. Fólk var flutt þangað í gær með bílum og flugvélum, flest sunnan at Seyðisfirði og þá fyrst og fremst frá þeim saltendum, sem hafa stöðvar bæði þar og á Raufar- höfn. Tilfinnan-legur fólksskortur er nú á Raufarhöfn. Þær stöðvar sem hafa fólk at Raufarhöfn og úr nærliggjandi sveitum hafa saltað stanzlausfc allan sl. sólarhring. Eitthvað af skipum fer á Bakkafjörð og suður á Vopna- fjörð. Frá Dalatanga voru þær fréttir að lítil síld eða engin var á suð- lægari miðum í gær. í fyrrinótt fékkst eitthvað lítilsháttar við Hrollaugsey j ar. Happdrætti Háskti sj Þriðjudaginn 10. ágúst var dregið í 8. flokki Happdrættis Háskóla íslands. Dregnir voru 2.300 vinningar að fjárhæð 4.120.000 krónur. Hæsti vinningurinn, 200.000 krónur, kom á heilmiða númer 51.681. Báðir heilmiðarnir voru seldir í umboðinu í Bolungarvík. Sami maðurinn átti miðana í báð um flokkunum og fær því krón ur 400.000.00. 100.000 króna vinningurinn kom á númer 46,585, sem eru heilmiðar er seldir voru í um- boði Frímanns Frímannssonar í Hafnarhúsinu. 10.000 krónur komu á eftirtal- in númer: 601 1004 1126 6349 7604 8426 8452 10182 11601 16746 17975 18623 19794 21014 22866 24971 27809 34624 43534 44904 48201 51680 51682 56085 56539 58917 59086 59313. (Birt án ábyrgðar).

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.