Morgunblaðið - 11.08.1965, Page 8
8
MORGUNBLADID
Miðvikudagur 11. ágúst 1965
HRAFNTINNUSKER
HRAFNTINNUSKER er fjaTI,
1128 m hátt, og stendur við
Austur-Reykjadali, austan
Heklu og í suðvestur af Land-
mannalaugum. Leiðin liggur
því upp Landssveit framhjá
efsta bænum, Galtalæk, og
áfram Landmannaleið. LiggUr
vegurinn framhjá Tröllkonu-
hlaupi, sem er foss í Þjórsá,
allmikill og fallegur. Foss
þessi er á móts við Búrfell.
veginum til hægri og skoða
svokallaðar Fossbrekkur í
Rangá. Liðast áin þarna áfram
milli grasi gróinna hólma í
mörgum smáfossum. Býst ég
við, að flestum þyki áin þarna
fallegust.
Áfram er síðan ekið og þeg-
ar komið er á móts við Rauð-
fossafjöll, blasir við fallegur
foss, sem Rauðfoss heitir.
Sveigt er út af veginum við
Hrafntinnusker við jökulsprungu.
Þjóðsagan segir, að tröllkonur
tvær, er voru nágrannar, bjó
önnur í Búrfelli og hin í Bjól-
felli, hafi þarna stiklað yfir
ána þegar þær heimsóttu hvor
aðra, og dTegur fossinn nafn
af því. Ekki hefur stökkið
verið árennilegt, því áin er
þarna allbreið og fossinn
vatnsmikill, þó ekki sé hann
hár. Sjálfsagt er að tefja
þarna um stund og skoða
vatnsfallið.
Aðeins fyrir ofan girðing-
una, sem lokar Landmanna-
afrétti, er rétt að beygja út af
hæstur liggur í um það bil
1000 m hæð og er útsýni það-
an skemmtilegt yfir afréttinn.
Ber þar að sjálfsögðu mest á
fjallinu Loðmundi.
Af hálsinum er stutt að
ganga alveg upp á Litla-
Mógilshöfða, sem er 1159 m
hár, en af honum er mjög gott
útsýni og er sjálfsagt að gera
það, ef tími er til.
Nú er ekið niður að Hrafn-
tinnuhrauni og slegið upp
tjöldum við hraunjaðarinn
móts við upptök Markaðs-
fljóts. Öll er þessi leið heldur
ógreiðfær og tafsöm og má
því búast við að komið sé
seint í tjaldstað.
Þess má geta hér, að úr
Hrafntinnuhrauni var tekin
hrafntinna sú, er skreytir
Þjóðleikhúsið. Var hún flutt
stærðar ísbjörg, sem hrunið
hafa niður og mynda þarna
nokkurs konar varnarvegg,
eins og sá sem inni fyrif býr
vilji ekki að neinn gangi um
höll sína. Innganga er þó auð-
veld, en rétt er að fara að
öllu með gát, því að alltáf má
búast við íshruni. Þeim, sem
skoðað hafa hella þessa, líða
þeir seint úr minni.
Ekki er þó síður skemmtilegt
að skoða hverasvæðið sjálft,
sem er alsett óteljandi smá-
hverum og heitum lindum. Er
litadýrð þarna mjög mikil og
hlýtur að gleðja auga hvers
þess manns sem litum unnir.
Fyrir þann, sem gaman hefur
af ljósmyndum, er svæði þetta
heil náma skemmtilegra verk-
efna, hvort heldur tekið er í
lit eða svarthvítu. Þegar
hverasvæðið er skoðað, er
haldið í átt að Hrafntinnu-
hrauni og þannig gengið í
hring að þeim stað þar sem
bílarnir voru skildir eftir.
Sem fyrr getur eru allir hver-
ir þarna litlir, en þó er einn
allstór. Sýður hann og bullar
í sífellu af heljarkrafti og
skvettir vatninu hátt i loft
upp. Er hver þessi næstur
hrauninu.
Heimleiðin liggur svo um
Vestur-Reykjadali, gegnum
Ljósártungur undir Laufafelli,
yfir Langvíuhraun, sem var
illfært yfirferðar þar til Hekla
gaus 1947 og fyllti það vikri.
Er leið þessi heldur eyðileg.
Komið er síðan í byggð á
Rangárvöllum hjá Keldum.
Þess má geta hér, að í Hrafn
tinnusker er mjög skemmtileg
ganga úr Landmannalaugum.
Er þá gengið yfir Námshraun
upp að Brennisteinsöldu og er
síðan greiður gangur eftirslétt
um melum allt að skerinu. Til
að gana ekki sömu leið til
baka má koma niður i Brands
gil. Þetta er 8—10 tíma róleg
gönguferð.
Ég held að óhætt sé að ráð-
leggja öllum þeim, sem ferða-
lögum og fögru landslagi
unna, að fara þessa helgarferð
í Hrafntinnusker, sem er ein
sú skemmtilegasta, sem Ferða
íélag íslands hefur upp á að
bjóða á þessu sumri.
' Grétar Eiríksson.
Á slóðum Ferðafélagsins
(Ljósm. Páll Jónsson)
Litla-Mógilshöfða til suðvest-
urs og tekur þá við allógreið-
fær vegarslóði, sem ekki er
fær öðrum bílum en þeim,
sem hafa drif á öllum hjólum.
Er jarðvegur heldur blautur
og leiðin því ekki fær fyrr en
seinni hluta sumars. Erfiðasti
kaflinn á vegarslóðanum er
brekkan upp hálsinn í höfðan-
um og er hann venjulega geng
inn, því að brekkan er allbrött
og jarðvegur þungur. Er þetta
þó ekki nema 15—20 mínútna
léttur gangur. Vegurinn á
hálsinum þar sem hann er
á hestum yfir hálsinn og nið-
ur á veginn og hefur það ver-
ið mikið erfiði fyrir þá, sem
það verk unnu, bæði menn og
hesta. Má enn sjá menjar
þeirra flutninga á leiðinni.
Næsta morgun er lagt á
Hrafntinnusker. Er það mjög
auðvelt, því að hægt er að
aka næstum alveg upp á sker-
ið, svo varla er meira en hálf-
tíma gangur frá bílnum og
upp. Af Hrafntinnuskeri er
ágætt útsýni í allar áttir í
björtu veðri. í suðri blasa við
Eyjafjallajökul‘1, Mýrdalsjök-
ull, Kaldaklofsfjöll með Há-
skerðingi, Stóra-Grænafjall og
Hattfell. í suðaustri sést Torfa
jökull og í suðvestri Tinda-
fjallajökull. í norður Hofs-
jökull og Kerlingafjöll, í norð
vestri ber mest á Þórisjökli
og sést á Geitlandsjökul. í
norðaustur sjást Hágöngur,
Bárðarbunga og Tungnafells-
jökull. í vestur Laufafell,
Rauðfossafjöll og Hekla.
Þegar við höfum virt fyrir
okkur þennan fjallahring,
göngum við niður af skerinu í
vestur og komum á mikið
hverasvæði, en þar eru til-
komumiklir íshellar, sem
myndast við hinn mikla jarð-
hita, sem er undir skerinu og
bræðir ísinn jafnóðum og
hann skríður fram. Fyrir fram
an hellana liggja venjiilega
A leið á Hrafntinnusker.
Kunnur ferða-
skrifstofumaður
hér á landi
Hefir verið kvæntur þrisvar
Fjórir einkaritarar.
ÞESSA dagana dvelst hér á
landi kunnur danskur ferða-
skrifstofumaður, Simon Spi-
es, með fjórum einkariturum
sínum ,sem allt eru ungar og
laglegar stúlkur.
Fréttamaður blaðsins hitti
hann skamma stund að máli
á skemmtistaðnum Klúbbn-
um á sunnudagskvöldið, þar
sem hann sat að snæðingi
með einkariturunum og
Guðna Þórðarsyni, forstjóra
ferðaskrifstofunnar Sunnu.
Spies hafði þá skroppið um
Þingvelli að Laugarvatni og skoð
að sie um hér í nágrenninu. Lét
hann furðu vel af vegum okkar
og þótti ekki tiltakanlega örð-
ugt að aka þá. Við spurðum hann
hvort honum þætti ekki mikil
viðbrigði frá því sem gerðist
niðri í Evrópu og í hinum suð-
rænu sólarlöndum við Miðjarð-
arhaf, sem hann þekkir bezt, en
ferðaskrifstofa hans annast fyrst
og fremst fyrirgreiðslu fyrir fólk,
sem þangað á leið.
— Ég hef haft gaman af að
sjá ísland. Það er frábrugðið. Ég
hef því miður engan áhuga á iax-
veiðum. En ef öll lönd væru eins,
þá væri engin ástæða tíl að ferð-
ast.
— Ætlið þér að beina ferða-
mönnum hingað?
— Já. Eitthvað. Það er áreið-
anlega vilji fólks fyrir að
skreppa til íslands. Það eru
fyrst og fremst hinir almennu
borgarar landanna, sem vilja
ferðast og ef verðlagið er við-
ráðanlegt þá er enginn vandi að
fá gesti. En mér finnst vínmálin
ykkar og ölbann nokkuð erfitt
til skilnings fyrir ferðamenn.
— Hvað annast skrifstofa ykk-
ar fyrjrgreiðslu fyrir marga
ferðamenn á ári?
— Um 75 þúsund manns. Við
höfum 350 manna starfslið. Einn-
ig skrifstofur í Svíþjóð, þ.e. í
Gautaborg og Stokkhólmi og svo
víða við Miðjarðarhaf, Grikk-
landi, Ítalíu, Spáni og víðar.
— Og þér hafið eigið flugfé-
lag?
— Já, það heitir CONAIR og
höfum við 3 DC7 flugvélar, sem
einvörðungu eru notaðar til að
flytja okkar farþega.
— Hafið þér komið hingað áð-
ur?
— Nei. Ég fór einnig til Vest-
mannaeyja í gær. Þar var tals-
vert fjör. Sýnilega voru einstöku
menn ekki í neinum vínvand-
ræðum þar.
— Það er kannski óþarflega
i persónuleg spurning hr. Spies, en
I ég hef aldrei fyrr hitt mann, sem
ferðast með fjóra einakritara.
Hafa þær svona mikið að gera
við að halda uppi samböndum
fyrir yður um allan heim.
— Nei. Raunar ekki hér. Við
erum í einskonar fríi. Við erum
að halda upp á 10 ára afmæli
ferðáskrifstofu minnar.
— Og hvert á að halda á morg-
un?
— Til Akureyrar og í Mý-
vatnssveit. Koma hingað á mánu
dagskvöld og halda á þriðjudags
morgun til Danmerkur aftur.
— Eruð þér giftur?
— Nei. Ég hef verið það þrisv-
ar og er búinn að fá nóg af gift-
ingum, segir þessi annars prúði
og látlausi ferðaskrifstofueig-
andi að lokum.
Við fáum ekki almennilega
skilið allt þetta tilstand sem
danska pressan gerir með mann-
inn. Hann er ósköp blátt áfram,
drekkur kampavín i hófi og þótt
hann hafi fjóra einkaritara, þá
fáum við ekki betur séð en að
það sé hans mál.
Hafnaríramkvæmdir
til umræðu á Akraneni
AKRANESI, 9. ágúst — Bæj- i stjórinn var búin að ákveðe að
arráðsfundur var haldinn hér sl. [ láta hefjast í sumar. Fundur var
föstudag kl. 21. Þennan dag kom haldinn í vörubíilastjórafélaginu
vitamálastjóri, Aðalsteinn Júlíus ' í gærkvöldi. Því að þeir vænta
son, hingað upp á Akranes. Ek/ki j sér mikillar vinnu við fram-
hefúr harnn setið fundinn, þvi að kvæmdirnar. Siazt hefur út það
hann fór héðan kl. 18. A'ðalmálið an, að enn yrði doikað við í viku
á bæjarráðsfundinum voru hafn ; áður en framkvæmdir geta hafizt
arframikvæmdirnar, sem bæjar- — Oddur.