Morgunblaðið - 16.09.1965, Page 15
Fimmtudagur 1«. sept. 1965 MORCUNBLAÐIÐ 15
Forystumenn borgaraflokkanna í Noregl sem hlutu óskorað traust kjósenda í Noregi sl. sunnudag. Frá vinstri: John Lyng (Hægri), Kjell Bondevik (Kristil. fL)
Per Borten (Miðfl.) og Bent Röiseland (Vinstri). Þeir hafa sannarlega ástæðu til að vera broshýrir.
„Þrjátíu ára stríðiö er unnið“
- segja borgaraflokkarnir, og
Noregsbréf frá Skúla Skúlasyni
14. ágúst: —
KOSNINGAÚRSLITIN i gær
komu flestum á óvart. í her-
búðum tveggja höfuðaðila ríkja
annarsvegar vonbrigði yfir
meiri ósigri en búizt var við,
hinsvegar fögnuður yfir meiri
sigri en hægt var að gera ráð
fyrir. Fyrir kosningarnar gizk-
uðu glöggir jnenn á, að meiri-
hluti borgaraflokkanna gæti
aldrei orðið meiri en 4—5 þing-
sæti, en þau urðu tíu. Þessi liðs
munur styrkir mikið aðstöðu
væntanlegrar nýrrar stjórnar,
því að hann gerir einstakling-
um innan borgaraflokkanna ó-
kleift að hrella stjórn sína og
spilla stefnumálum hennar, eða
fella stjórn á ágreiningsatrið-
um og endurreisa hana síðan,
undir því yfirskyni að „kæru-
lantinn“ hafi fengið sínu fram-
gengt, svo sem Finn Gustavsen
gerði um þetta leyti árs 1963.
Sá skollaleikur hefur orðið
vsrkamannastjórninni dýr, því
að hann þjappaði borgaraflokk
unum saman til þeirrar sóknar,
sem nú hefur borið þann árang-
ur er kom í ljós í gær. Og þó
að Finn Gustavsen þreyttist
ekki á þvi í kosningaumræðun
um, að lýsa fylgi flokks síns við
verkamannastjórnina þá stoð-
aði það lítið. Hann jók að vísu
atkvæðamagn sitt úr 2,4 í 3,7%
með því að bjóða fram í miklu
fleiri kjördæmum en áður, en
uppskeran varð þó eins og síð-
ast: 2 þingsæti. Líklega er eng-
inn vonsviknari yfir kosninga-
úrslitunum en einmitt Finn
Gustavsen. því að hann mun
vissulega hafa gert sér von um
*ð verða þyngra lóð á voginni
en hann reyndist, og geta jafn-
að metin hjá verkamannaráðu-
neytinu framvegis, með því að
minna stjórnina á þá stefnu-
breytingu til vinstri, sem hún
lofaði er Gustavsen endurreisti
Gerhardsen í september 1963.
En nú er ,.stjórnarhatturinn“
fokinn af Gustavsen og það get
ur orðið langt þangað til hann
finnst aftur. Ósigur hans er í
rauninni meiri en Gerhardsens,
því að sigurvon hins fyrra var
meiri en hins sjðarnefnda. —
Um kommúnistaflokkinn er
fátt að segja í sambaridi við
kosningaúfslitin. Hann hafði að
vísu skipt um formann fyrir
kosningar, og nýi formaðurinn,
Reidar Larsen, ritstjóri, lofaði
meiri frávikum frá „línum“ en
áður. En Lövlien, hinn gamli
foringi var samt boðinn fram í
því kjördæmi, á Heiðmörk, sem
þótti vænlegast til sigurs, en
hann féll eins og síðast, þrátt
fyrir þá sveigjanlegu línu, sem
Reidar Larsen hafði boðað. Fyr
ir kosningarnar var það fullyrt,
að ef kosningin gæfi kommún-
istum núll í þetta sinn, mundi
flokkurinn hætta að starfa. Eigi
veit ég hvort það verður, en at-
kvæðamagn hans rénaði úr
2,9% í 1.4 í gær.
Foringjar vinstriflokkanna,
sem útvurpið hafði tal af í nótt,
eftir að úrslitin voru orðin aug-
ljós, tóku ósigrinum með mik-
illi stillingu, þó hann væri
meiri en þeir væntu. Gerhard-
sen lýsti því yfir, að hann
mundi biðjast lausnar undir-
eins og þing kæmi saman. Hann
gat þess að fjárlagafrumvarpið
fyrir 1366 væri svo áð segja full
samið, og mundi nýja stjórnin
fá það til endursamningar.
Trygve Brattelie dró ekki dul
á, að ósigurinn kæmi ekki á
óvart, en þó hefði hann ekki
búizt við honum svona mikl-
um. Hann gat þess, að það væri
einkum nýju kjósendurnir (þeir
sem bætzt hafa við síðan 1961).
sem hefðu brugðizt vonum
stjórnarfljkksins. Og þetta
mun vera rétt. Stjórnarflokkur
inn hefur ekki náð tökum á
yngri kynslóðinni, þrátt fyrir
skipulagt starf Æskulýðsfylk-
ingarinnar („Arbeidernes Ung
domsfyiking" eða ,,AUF“) og
yfirleitt eru það eldri árgangar
flokksins, sem mest hefur bor-
ið á í víglínunni. Bratteli sjálf-
ur, sem nú er formaður flokks-
ins, er orðinn roskinn maður
og mjög fullorðinslegur í ræð-
um sínum og alls ekki eins sann
færandi og Gerhardsen getur
verið þegar honum tekzt upp.
En sjálfur var Gerhardsen
þreytulegri I síðustu kosninga-
baráttu en ég hef heyrt hann
nokkurntíma áður, og auk þess
orkuðu ýms ummæli hans svo
mikils tvímæiis, að andstæðing
arnir hentu þau á lofti og báru
upp á hann að hann hefði farið
með rarigt mál.
— — Lesandinn spyr: hvað
hrósa meiri sigri
er það, sem fyrst og fremst olli
ósigri verkamannastjórnarinn-
ar? Ég hika ekki við að svara:
— Að hún er orðin gömul í sess
inum. Síðan 1935 hefur verka-
mannastjórn verið ráðandi í
Noregi. Það er þessvegna, sem
stjórnarandstæðingar segja i
dag: „Þrjátíu ára stríðið er
unnið“. Og Einar Gerhardsen
hefur setið að völdum í 20 ár
(að undanteknu stuttu tíma-
bili er flokksmaður hans hafði
skipti við hann á forsetastól
ráðuneytisins og þingsins).
Þetta er svo langur tími, að
jafnvel sumir flokksmenn
stjórnarinnar töldu forvitnilegt
að reyna annað. í rauninni hef
ir verkamannaflokkurinn haft
einræðisstjórn í Noregi síðan
1945, þó hann hafi ekki beitt
henni á sama hátt og Argentínu
Peron eða Stalín og Hitler. Ger-
hardsen hefur farið sér hægt í
þjóðnýtingunni, þ.e.a.s. einoka
eldri atvinnugreinar undir rík-
ið ég man í fljótu bragði ekki
eftir öðru en lyfjaverzluninni
og innflutningi á efni til veið-
arfæra. En hinsvegar hefur
stjórn hans verið ótrauð á að
fþsta fé ríkisins í ýms fram-
leiðslufyrii tæki, sem hafa orð-
ið að sýndarbagga en ekki þjóð
inni til velfarnaðar, og er þar
fyrst að nefna járnbræðsluna í
Mo í Rana og koksvinnsluna,
sem átti að vinna koks til gas-
gerðar úr Svalbarðskolum (en
þau reyndust óhæft til þeirrar
framleiðslu). Járnbræðslan hef
ur kostað ríkið 800 milljón n.
kr. eða margfaldan áætlunar-
kostnaðinn, og andstöðuflokkar
stjórnarinnar hafa margsinnis
lagt til að fyrirtækið verði selt,
en að svo stöddu hafa ekki boð
izt í þáð nema 50 milljónir. —
Andstöðuflokkarnir, sem nú
eiga að taka við stjórninni telja
að þessarí rniklu fjárfestingu
væri betur varið til þess að efla
framkvæmdir. sem á rikis-
stjórnum hvíla, svo sem bygg-
ingu skóla og sjúkrahúsa.
Beinar árásir fyrir vanrækslu
hafa einkum verið gerðar á
stjórnina vegna margra mis-
taka, sem orðið hafa í iðnaðar-
málaráðuneytinu, einkum með-
an Kjell Holler stjórnaði því.
Þar er sannanlega um að ræða
miklar misfellur. ekki sizt óaf
sakanlega flaustursmeðferð á
undirbúningi ýmissa stórmála.
en vonað var
Og einn háttsettur embættis-
maður þaðan liggur undir á-
kæru um glæpsamlega meðferð
á opinberu fé. En Holler fyrrv.
ráðherra nýtur þú enn þess
trausts, að hann var fulltrúi Nor
egs, við hvalveiðisamningana í
Tókíó nýlega. Misfellurnar í iðn
málaráðuneyt.inu hafa eflaust
reytt mörg atkvæði af stjórnar-
flokknum í gær.
Og svo eru skattarnir, við-
kvæmasta mál kjósandans. Ekki
aðeins útsvar og tekju- og
eignaskattur, heldur allskonar
aukaskattar, og þá fyrst og
fremst sö.'uskatturinn, sem er
12,5% og nær eigi aðeins til al-
mennrar vöru heldur og skipa
leigu og byggingakostnaðar, en
allt þetta hleður undir verð-
bólguna — Við hana hefur
stjórnin ekki ráðið, og því er
ekki leynt. að kaupmáttur krón
unnar hafi minnkað um helm-
ing síðustu 15 árin.
Velheppnað
þing Iðnnemn-
snmbnnds
íslnnds
Á ELLEFTA timanum á sunnu-
dagskvpld lauk í húsakynnum
Slysavarnafélags íslands í Rvík
velheppnuðu þingi Iðnnemasam
bandsins. Þingið sátu fleiri full-
trúar en nokkru sinni fyrr, eða
taeplega 60. Umræður um hin
ýmsu mál er fyrir þinginu lágu
voru mjög miklar, og verður
frekar skýrt frá þeim síðar í
blaðinu. í stjórn sambandsins
fyrir næsta starfsár voru kjorn-
ir: Formaður Gylfi Magnússon
húsasmíðanemi og auk hans í
aðalstjórn Helgi Guðmundsson
húsasmíðanemi, Guðný Gunn-
laugsdóttir hárgreiðslunemi, —
Haukur Már Haraldsson prent-
nemi og Magnús Pétursson járn-
smíðanemi. í varastjórn voru
kjörnir Einar Gunnarsson járn-
smíðanemi, Halldór Guðmunds-
son húsasmíðanemi, Ingi Torfa-
son húsasmíðanemi og Ragnar
Snæfells húsasmíðanemi.
Getur nýja stjórnin lagfært
allt það, sem aflaga hefur far-
ið í stjórnarfarinu síðustu 20
ár? Fæstir gera sér von um það,
en fleiri ala von um, að sumt
verði lagfært. Eftirlaunamálið,
sem hefur verið ofarlega á
baugi í kosningabaráttunni,
siglir heilu skipi í höfn og vænt
anlega má fleiri góðra tíðinda
vænt’a. En um það tala ég sem
fæst fyrr tn í næstu grein.
Maður veit ekki ennþá hvern
ig stjórnin verður skipuð —
ekki einu sinni hver verður
höfuð hénnar. John Lyng sett
ist í fylkismannsembættið á
Akurhusi 1 september sl. — en
fylkismehn mega ekki skipta
sér af pólitík. Samt virðast nú
horfur á, að úr því að kosning-
arnar fóru svona verði Lyng
í fylkismannsstólnum líkur krí
unni, sem sezt á steininn, og
að hann hverfi frá Akurhúsi,
en setjist í forsætisráðherrabú-
staðinn, í sætið, sem Gerhard-
sen hefur átt lengi.
Slótrun hefst d
Hellu og
Djúpudal
Hellu, 13. september: —
Á MORGUN hefst sauðfjárslátr-
un hjá sláturhúsum Sláturfélags
Suðurlands á Hellu og Djúpadal.
Á Hellu er ráðgert að slátra rúm
lega 24 þúsund fjár og er það um
3 þúsund kindum fleira, en í
fyrra.
í Djúpadal er ráðgert að slátra
19 þúsund fjár og er þar um
svipaða aukningu að ræða og á
Hellu.
í sláturhúsunum munu vinna
um 100 marms óg er ráðgert að
sauðfjárslátrun ljúki 26. októ-
ber.
Sláturhússtjóri á Hellu er Jón
Egilsson, Selalæk, og í Djúpadal
Árni Sæmundsson, Stóru-Mörk.
— J. Þ.
Ölvun við akstur eykst hröð-
um skrefuim. Árið 1961 voru tek-
in blóðsýnishorn úr 250 ö'kumönn
uim, en árið 1963 nam sú tala 5®2
er rannsakaðir voru og árið 1964
sairvtals 677. Er hér um Rieykja-
vík eina að ræða.
(Áfengisv.n Rivífcur)
Skúli Skúlason.