Morgunblaðið - 16.09.1965, Blaðsíða 27
MORGUNBLADIÐ
27
Fimmtudagur 16. sept. 1965
Verzlunarskólinn
settur í gær
Nemendur fleiri en nokkru sinni fyrr
r" r 8 fnjff ~~ ‘^1 *"|^i^jiri n ,T^.?p
Útför Maríu Andrésdótíur,
elzta íslendingsins, var gerð
sl. laugardag, og var mjög fjöl
menn. Kirkjuathöfnin var í
Stykkishólmi og flutti sr. Sig
urður Ó. Lárusson, sóknar-
prcstur, líkræðuna, en kirkju
kór Stykkishólmskirkju söng
undir stjórn Þórðar Þórðarson
ar. Þá var kistan flutt að Narf
eyri þar sem María var jarð-
sctt við hlið manns síns, Daða
Danielssonar. Sungnir voru
sálmar og sóknarprestur flutti
bæn. Athöfnin var í senn
virðuleg og hátíðleg. María
var heiðursborgari Stykkis-
hólms, og sá Stykkishólms-
hreppur um útför hennar i
virðingarskyni við hina látnu.
— Myndin sýnir er kistan var
var borm úr Stykkishólms-
kirkju.
VERZLUNARSKÓLI ÍSlands var
settur í gær í samkomusal skól-
ans. Skólastjóri, dr. Jón Gísla-
son, minntist í upphafi Sigríðar
Árnadóttur skriftarkennara,
sem lézt í sumar. Hafði hún
Ikennt í 40 ár við Verzlunarskóíl-
ann, eða frá 1909-1949. Bað hann
viðstadda að risa úr sætum í
virðingarskyni við hina látnu
heiðurskonu.
Skráðir nemendur eru nú
fleiri en nokkru sinni fyrr, eða
527 samtals í 20 bekkjardeildum.
Allir bekkir í verzlunardeild eru
nú fjórskiptir og 5. bekkur tví-
skiptur í fyrsta sinn. Auk þess
starfar við skóla,nn námskeið í
hagnýtum verzlunar- og skrif-
stofugreinum fyrir gagnfræðinga.
Við skólann starfa nú samtals 30
kennarar auk skólastjöra. Fast-
ráðnir kennarar eru nú að skóla-
stjóra meðtöldum 16. Er það í
fyrsta skipti í sögu skólans, að
fastráðnir kennarar eru fleiri en
stundakennarar. Tveir nýir fast-
ráðnir kennarar hafa bætzt skól-
anum, Friðrik Sigfússon, BA,
sem kennir ensku, og Lýður
Björnsson, cand. mag., sem kenn
ir landafræði . og sögu. Nokkrir
nýir stundakennarar hafa einnig
verið ráðnir að skólanum.
Að lokum ávarpaði skólar
stjóri nemendur með ræðu,
hvatti þá til ástundunar og reglu
semi.
— U Thant
Framhald af bls. 1.
ú Thant sl. laugardag. Eru þau
á þá leið, að Indverjar verði á
brott með her sinn úr landi Pak-
istans — að þegar verði hætt bar-
dögum — að hersveitir frá Asíu-
og Afríkuríkjum tryggi öryggi
Kasmír og — að þjóðaratkvæða-
greiðsla verði látin fara þar fram
innan þriggaj mánaða.
♦ Ayub Khan, forseti, skýrði
frá þessum skilyrðum í dag og
bætti því við að Pakistan myndi
halda áfram bardögum þar til
trygging fengist fyrir þvi, að
þjóðaratkvæðagreiðsla færi fram
i Kasmír.
VÍGSTAÐAN
Af hálfu stjórnar Pakistan var
sagt í dag, að síðustu-tvo sólar-
hringana hafi allt verið með
kyrrum kjörum á vígstöðvum í
landi, en flugher Pakistans hafi
haldið áfram loftárásum á her-
stöðvar Indverja.
Af hálfu Indverja segir hins
vegar, að sókn þeirra hafi hald-
ið áfram. Hafi hersveitir þeirra
náð á sitt vald járnbrautarlín-
unni milli bæjarins Sialkot og
Pasrus, sem er 50 km suðaustur
af Sialkot. Er lína þessi aðeins
hlífðarlína, en mikið notuð til
herflutninga. Fylgir fregninni, að
her Indverja hafi í dag verið að-
eins sex km frá Sialkot og búist
nú til að umkringja bæinn.
í kvöld viðurkenndi talsmað-
ur Pakistana í Rawalpindi, að
Indverjar hefðu reynt að sækja
fram á ný á Sialkot-svæðinu, en
sagði að sóknin hefði verið stöðv-
uð í fæðingu. Einnig hefði her
Pakistans í dag hrundið árásum
Indverja í Punjab og skotið nið-
ur þrjár orrustuþotur þeirra.
INDVERJAR NÁLGAST
LAHORE
Þá staðhæfa Indverjar, að her-
sveitir þeirra eigi nú aðeins sex
kílómetra ófarna til bæjarins
Lahore.
f fregnum frá AP segir að u.þb.
600 bandarískar konur og börn
hafi í dag verið flutt flugleiðis
frá Lahore. Hefur fólk þetta beð
ið í vikutíma eftir að komast á
brott, en til þessa hafa deiluað-
ilar ekki fengizt til að tryggja
öryggi bandarísku flugvélanna,
sem áttu að sækja það. Er fólkið
lagði upp frá flugvellinum í La-
hore mátti glöggt heyra skothríð
í nágrenni borgarinnar. Karl-
menn verða eftir í borginni og
gegna áfram störfum sínum, unz
öðru vísi verður ákveðið.
í dag fóru einnig fjöldi brezkra
kvenna og barna frá Lahore. —
Fóru Bretarnir í 17 bifreiðum
til Rawalpindi. Áður voru flú-
in frá Lahore um það bil 250
brezkar konur og börn og 142
Þjóðverjar, einnig nær eingöngu
konur og börn.
Indverska stjórnin birti í dag
tölu fallinna í styrjöldinni. Segir
þar, að 1847 hermenn hafi fallið
úr liði Pakistana en aðeins 612
Indverjar. Þá hafi verið eyði-
lagðir 284 skriðdrekar og her-
bifreiðar Pakistana en Indverj-
ar hafi misst 50—60. Loks hafi
55 flugvélar Pakistana verið eyði
lagðar.
I kvöld birti stjórnin svo ljós-
prentun af bréfi frá yfirmanni
12. herdeildar hers Pakistans,
Akhtar Hussein Malik, þar sem
getur að líta nákvæmar fyrir-
skipanir varðandi undirróðurs-
starfsemi í Kasmír.
KHAN HVETUR TIL
AFSKIPTA USA
Ayub Khan, forseti, ræddi í
dag við blaðamenn, í fyrsta sinn
í sex vikur. Hvatti hann þar
stjórn Bandaríkjanna til þess að
láta Kasmírdeiluna meira til sín
taka — sagði, að Bandaríkja-
stjórn hefði fyrr átt að beita á-
hrifum sínum til þess að binda
enda á bardaga og knýja fram
viðunandi lausn. Khan neitaði
þeim ummælum Deans Rusks,
utanríkisráðherra Bandaríkjanna
að Pekingstjórnin kynnti undir
eldunum. Kvað Khan Kínverja
ekki hafa haft áhrif á afstöðu
stjórnar Pakistans í þessu máli
og sagði, að þeir hefðu ekki ver-
ið beðnir að aðhafazt neitt þar
að lútandi. Hins vegar sagði
Ayub Khan, það lið í utanríkis-
stefnu Indverja, að „limlesta“
Pakistans, „gera það að leppríki“
eða ef þeir gætu, „að svelgja
Pakistan í sig“, eins og hann
komst að orði. Bætti hann því
við, að Indverjar yrðu að láta af
þessari stefnu — hún mundi að-
eins verða þeim sjálfum til vand-
ræða. Indverjum og Pakistönum
bæri fremur að berjast sameigin-
legri baráttu gegn sjúkdómum,
fátækt og fáfræði en að berast
á banaspjót.
Varðandi ósk Khans um af-
skipti Bandaríkjastjórnar sagði
talsmaður Lyndons B. Johnsons,
forseta í kvöld, að sér væri ljúft
að stuðla að friði í Kasmír, ef
unnt væri — á hinn bóginn teldi
hann heppilegast, að mál þetta
væri leyst á vettvangi Samein-
uðu þjóðanan og allir hlutaðeig-
andi reyndu að styðja friðarvið-
leitni U Thants.
UMMÆLI KRISHNA MENON
í viðtali við AP-fréttastofuna,
sagði Krishna Menon, fyrrver-
andi landvarnaráðherra Indlands
í dag, að brýna nauðsyn bæri til
að binda enda á átökin. „Heri
Indlands og Pakistans ætti að
stöðva þegar í stað, þar sem þeir
eru komnir og halda þeim í skefj
um þar til einhver lausn er fund-
in, hversu skammvinn sem hún
kann að vera“ sagði Menon, og
bætti við, að hvorki Pakistan né
Indland hefði efni á að heyja
þetta stríð. Taldi Menon augljóst
að Sameinuðu þjóðirnar skorti
vald til að stöðva átökin. — og
því yrðu deiluaðilar að hafa vit
til þess að gera það sjálflr. Þá
taldi hann mikilvægt að koma í
veg fyrir íhlutun fleiri aðila, t.d.
Tyrkja og írana. Síðan sagði
Krishna Menon: „Pakistanar eru
fasistar. Þeir ætla sér að ná
meira en Kasmir. Eins og Hitler
eru þeir óseðjandj, vilja smám
saman fá meira, þar til þeir hafa
fengið allt. Engin indversk stjórn
gæti fallizt á að leyfa þjóðar-
atkvæðagreiðslu í Kasmír, —
engin stjórn mundi lifa slíkt af“.
flthugnserad
VEGNA ummæla Gunnars Steins
sonar í viðtali við Mbl. 14. þ.m.
og birtust í greininni: „Hross og
lömb flutt úr landi“, kom Skúli
Sveinsson varðstjóri hjá lögregl-
unni að máli við blaðið og bað
um að eftirfarandi athugasemd,
sem er frá Dýraverndunarfélag-
inu og lögreglunni, yrði birt:
„Að gefnu tilefni vil ég mót-
mæla því, að betra sé að hafa
5—6 hesta í stíum þeim, sem not-
aðar eru til að flytja hesta í milli
landa. Hestar þeir, sem þannig
hafa verið fluttir, hafa oft stór-
slasazt og stundum drepizt eða
orðið hefur að aflífa þá. Þess
vegna var sá háttur upp tekinn
að hafa einn hest í stíu og veit
ég ekki til, að neitt verulegt hafi
komið fyrir, síðan það var upp
tekið. Hins vegar er hrein neyð
að þurfa að flytja hesta með
svona útbúnaði. Bezt væri ef-
laust að flytja hestana með flug-
vélum, en kannski er ekki gott
að koma því við.
Það er unnið að því að fá sér-
stök gripaflutningaskip til flutn-
inganna og er það sennilega eina
lausnin. Hægt mun vera að fá
skip af ýmsum stærðum.
Það hlýtur að vera áhugamál
allra, sem hér eiga hlut að máli,
að sem bezt fari um hestana í
flutningunum.“
— Slldarfólkið
Framhald af bls. 28
— Ég var að salta í gær og
(hafði þá fullskipað lið, en í dag I
fóru hé’ðan 11 síldarstúlkur. Nú
er kominn sá árstími, að skólarn
ir eru að byrja. Þá fer miki'll \
fjöldi fólks héðan, hvort sem
nokkur söltunarsíld er eða ekki. ]
Ef fólikið er ekki sjálft að fara í
skóla, þá á það börn í skóla, sem
Ihugsa verður um. I dag er saltað
hér á 3 plönum. Ég saltáði í gær
í 527 tunnur. Það verður varla
hægt að salta nokkuð að ráði
hérna nema fram til 25- septem-
ber eða svo.
— Við hér fyrir austan erum
mjög óánægðir méð það, að allt
virðist vera gert sem hægt er
til að draga síldina burtu frá
Austfjörðum. Hún er flutt í stór
um stíl í síldarverksmiðjur á
Suðvesturlandi, og svo er greidd
ur 60 króna ríkisstyrkur á sölt
unarsíldina á Norðurlandi.
Söltuðu 23 þúsund í fyrra, miklu
minna núna.
Þá hringdum við í Aðalstein
Jónsson, forstjóra söltunarstöð-
varinnar Auðbjargar á Eskifirði.
Hann sagði:
— Þetta ætlar ekki að verða
gott sumar hjá okkur. Við söltuð
um í 23 þúsund tunnur í fyrra,
en núna vetður það miklu minna.
I gær fengum við samt um 900
tunnur. Á Eskifirði eru 4 sölt-
var hgr í sumar af aðkomu/fólki,
sem ætlaði að vinna að síldar-
söltun. Nú er það flest fari'ð, en
við erum ek'ki á flæðiskeri stadd
ir samt, því að margt af heima
fólkinu getur unnið að söltun-
inni. Þess vegna er því ekkert til
fyrirstöðu að salta eitbhvað fram
eftir hausti, ef við þá bara fáum
sild.
Fyrsta sumar Sólbrekku
á Mjóafirði
Þá átti Mbl. tal við Gunnar Ó1
afsson, einn af eigendum hinnar
nýju söltunarstöðvar Sólbrekku
á Mjóafirði. Það er eina sölfun-
arstöðin á Mjóafirði, sett upp sl.
vor af eigendum Sólfara frá
Akranesi og 'Vilhjálmi Hjálmars
syni frá Brekku.
— Við byrjuðum 16 júlí í sum
ar og erum búnir að salta 2800
tunnur. Það er allt síld af Sól-
fara. Þetta hefur engin síld verið
og við höfum ekki samninga við
fleiri báta. En ætlunin er að taka
af fleiri bátum 1 framtíðinni.
— Bagar það ykkur ekki, að
ekki ef síldarbræðsla á Mjóa-
firði?
— Við verðum að flytja úr-
ganginn til Norðfjarðar. Til þess
höfum við innrásarpramma, sem
báturinn Guðrún dregur þangað
á hálfum öðrum tíma Það hefur
gengið ágætlega í sumar.
— Síldarstúikur? Bæði af
Mjóafirði og aðkomufólk. Og við
höfum um 20 stúlkur enn. Sein-
ast var saltað hér sl. sunnudag
657 tunnur. Við höldum áfram
eitthvað fram eftir mánuðin-
um. Fólkið fer að verða órólegt.
Þetta er skólafólk og fólk, sem
þarf að fara annað.
Enga sild í fyrra, lítið nú
Ein af gömlu síldarsöltunar-
stöðvunum á Siglufirði er stöð
Sigfúsar Baldvinssonar. Þar var
verið að salta í gær, er Mbl.
: hringdi. 1500 tunnur úr Súlunni,
1 en 1700 tunnum sem Lómur KE
kom með hafð: verið ráðstafað á
aðra söltunarstöð. Þetta var lang
bezti dagur sumarsins, því að-
eins böfðu fengizt 300 tunnur í
söltun 24 júní og 84 tunnur úr
Þorsteini þorskabít 10. ágúst, þeg
ar skipt var síld milli söltunar
stöðvanna. Og í fyrra fékkst eng
in síld í sö’tun. — Þetta er þriðja
slæma árið í röð, sagði Sigfús.
í gær var verið að salta á 4
söltunarstöðvum á Siglufirði. Að
komufólk er farið, aðeins Sigl-
firðingar eftir. En það ætti að
geta gengið, ef sí!d berst ekki
nema til 5 stöðva í einu. Sama
íólkið gengur þá á milli. Síldin,
sem verið var að salta i gær var
frekar smá. en bezta síld, sem
borizt hefur á sumrinu.
Siglfirðingar vondaufir
Þá hringdum við að lokum í
I Söltunarstöðina Nöf og ræddurp
I við Skafta Stefánsson. Hann
sagði, að í dag væri von að
' minnsta kosti fjögurra skipa til
Siglufjarðar með söltunarsíld, og
að í gær hefði hans stöð saltað
465 tunnur, sem Hugrún veiddi
norðaustur af Langanesi. Síldina
kvað hann hafa verið ágæta, nýt
ingu um 55%.
— Þessa dagana hefur verið
saltað í Urn 6000 tunnur hér á
Siglufirði. Við erum : -'V-,;rum
vandræðum með að f- því
að aðkomufólkið er flest farið
héðan. Annars verðum við að
styðjast við heimafólkið, ef við
skyldum fá ertthvað meira af
síld. Konur hér á Siglufirði eru
flestar alvanar síldarsöltun, og
það er mikill munur að hafa svo
góðu fólki á að skipa. Þorsteinn
þorskabítur hefur komið hingað
einu sinni í sumar með söltunar
síld, og var þeim farmi skipt á
milli állra stöðvanna. Menn eru
nú almennt vondaufir um, að úr
rætist á þessu sumri. Annars er
síldin kenjafiskur. Ég man t.d.
eftir því, að 1949 kom mikið af
bráðfallegri söltunarsíld dagana
: kringum 20. september. Einu
sinni í scptember fyrir mörgum
árum var saltað hjá Nöf í meira
en 800 tunnur sama daginn, svo
að enn getum við kannské feng-
ið einhvern reyting, þótt útlitið
sé ekki glæsilegt-
t
Systir mín,
JÓIIANNA JÓHANNESDÓTTIR
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni föstudaginn 17. þ.m.
kl. 10,30 f.h. — Jarðarförinni verður útvarpað.
Fyrir hönd vandamanna.
Guðmundur J. Breiðfjörð.