Morgunblaðið - 21.09.1965, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 21.09.1965, Blaðsíða 1
32 sicíur Adenauer fyrrum kanzlari, fagnar kosningasigri feftirmanns síns i embætti. Ludwig Erhard. Myndin er tekin á fundi flokksstjórn- arinnar í gær. — (AP) Kosningamar í V-Þýzkalandi: Flokkur Erhards sigraði FyEgisaukning Kristilegra demókrata 2.3% Verður Strauss í sljórniniii? Bonn, 20. septemlber. NT,3 — AP. KltlSTILEGI demókrataflokkur- inn fór með sigur af hólmi í kosningunum, sem fram fóru tii v-]jýzka þingsins í gær, sunnu- dag, og fékk flokkurinn ásamt bræðraflokknum í Bæjaralandi (Bayern), Kristilega sósíalista- flokknum, 47,6% greiddra atkv. en hafði 45,3% í síðustu kosn- ingum. Sósíaldemókratar juku einnig fylgi sitt úr 36,2% í 39,3%, en Frjálsir demókratar og smáflokkarnir báru flestir skarðan hlut frá borði. Kosninga úrslit þessi eru talin mikill per- sónulegur sigur fyrir Ludwig Erhard, kanzlara V-Þýzkalands, og stefnu hans. Ljóst varð þégar í nótt snemma hvert stefndi um kosn- Atkv.magn Kristil. demókratar 12.314.290 Kristil. sósíalistar 63.254 Sósíaldemókratar 12.697.992 Frjálsir demókr. 3.058.880 Mende, lýst því yfir, að flokkur hans vilji enga aðiid eiga að stjórn sem Strauss eigi sæti í. í morgun lágu fyrir úrslit kosninganna í öllum kjördæm- um landsins, en eftir var að gefa út tilkynningu um skipt- ingu uppbótarþingsæta af lands- lista. Atkvæði féllu sem hér segir (í svigum eru kosninga- úrslit 1961): 38,1% 9,5% 39,3% 9,5% Þingm.fjöldi (35,0%) 19.5 (192) ( 9,4%) 48 ( 50) (36,2%) 201 (190) (12,8%) 48 ( 67) Pakistanir og Indverjar ræða tilmæli Oryggisráðsins „Alvailegar ögranir" á landamærum Sikkim og Tíbe*" Nýju Dehli og Rawaipindi, 20. sept. — NTB — AP. STJÓRNIR Indlands og Pakist- ans ræddu í dag eindregin til- mæli Öryggfcráðsins um að ríkin hættu öllum vopnaviðskiptum klukkan sjö (að ísl. tíma) að morgni miðvikudagsins n.k., níu klukkustundum áður en rennur út frestur sá, sem Kínverjar hafa sett Indverjum til að verða á brott með herlið sitt frá landa mærunum að Sikkim. Engar opinberar fregnir er enn að hafa um afstöðu stjórn- anna tveggja^ til tilmæla S.Þ., en margt er talið benda til þess, að þær muni verða við þeim. Shastri, forsætisráðherra Ind- lands, sagði í Nýju Dehli í dag, að áiyktun ÖryggisráðSins ætti skilið vandlega yfirvegun, og lét að því liggja, að hann myndi gefa út yfirlýsingu um málið á morgun. Indverjar eru þó sagðir hafa að sumu leyti illan bifur á orðalagi ályktunarinnar, einkum að því er varðar tilvís- unina til „stjórnmálavanda þess, sem að baki liggur átökunum“ og telja að með þessu muni eiga að koma til móts við óskir Pakistana um að gert verði út um framtíð Kasmír, helzt með þjóðaratkvæðagreiðslu. Indverj- ar hafa alla tíð verið þeirrar skoðunar, að Kasmír sé ind- verskt land, líka sá hluti þess sem Pakistanar ráða nú, og því komi ekki til mála að þar fari fram nein þjóðaratkvæða- greiðsla. Pakistanar eru aftur á móti sagðir vonsviknir yfir ályktun- inni og þykir hún ekki kveða nógu fast að orði um Kasmír og segja að Indland geti enn sem fyrr haldið áfram að þvers kallast við að láta fram fara þjóðaratkvæðagreiðslu í land- inu. Tilkynnt hefur verið, að Bhutto, utanríkisráðherra Pak- istans muni halda til New York hið bráðasta að leita eftir því við stórveldin að þau ábyrgist, að á eftir vopnahléssamningn- um ko.-ni samningaviðræður sem miði að lausn Kasmír-málsins sjálfs. í Rawalpindi er það einnig haft á orði, að íhlutun Kína sé ekki með öllu Pakistan til stuðn ings, heldur sé það ógnun við allan Indlandsskaga og hafi flækt málið mjög, þar sem nú Framhald á bls. 6. Skotið á leigubíl í K.höfn Engan sakaði - Eeyniskytfan fundin Morð lögreglumannanna óupplýst Hiileröd, 20. sept. - NTB: ALLl’ ÞAÐ lögreglulið, sem í náðist í Danmörku í gær, var aftur kallað út í nótt og var- úðarráðstafanir auknar sem mest mátti verða, er uppvíst varð að skotið hafði verið á leigubíl stundu eftir miðnætti skammt frá Hilleröd, norðan Kaupmannahafnar. — Að minnsta kosti tvö skot hittu bifreiðina, og kom annað í hægri framliurð en hitt í aftur bretti sömu megin. Skotin komu frá Eiat- eða Morris- bifreið, rauðri að lit, sem lagt hafði verið á veginum við Asserbo, að sögn lögregl- unnar. Farþega í leigubifreið inni sakaði ekki. Vopnað lögreglulið, sem var á vakki um gjörvalla Kaup- mannahöfn vegna leitarinnar að morðingjum lögreglu- mannanna fjögurra, sem skotnir voru til bana á Amag er aðfaranótt laugardags, var þegar í stað látið hefja leit að rauða bílnum og sleginn var hringur lögregluliðs um höf uðborgina, en lögreglumenn einnig sendir til Norður-Sjá- lands. Leigubifreið sú sem fyrir skothríðinni varð, var full af farþegum Skotið var á hana, or bílstiórinn blindaðist af Ijósum bifreiðarinnar, er kyrr var. Kvaðst hann hafa heyrt nokkra hvelli, en ekki gert sér grein fyrir því af hverju þeir stöfuðu og ekki hafa komizt að raun um hið sanna í mál- inu fyn en hann skilaði far- þegunum á leiðarenda. Ti'l- kynnti iiann lögreglunni þeg- ar í stað um atvik þetta, en þá hafði leyniskyttan eða skytturnar fengið 40 mínútna forskot á flóttanum. \ Allir rauðir bíiar á vegum úti á Norður-Sjálandi voru stöðvaðir og gerð í þeim leit í nótt og sendar voru út að- vörunartilkynningar til fólks um að vera sem minnst á ferli. Skömmu fyrir klukkan sex í moigun tók lögreglan höndum 35 ára gamlan mann að heimili hans í Frederiks- værk, eftir að fylgzt hafði ver ið með ferðum biíreiðar hans frá Hilleröd til Frederiksværk þar sem útliti hennar bar sam an við lýsingu þé sem gefin hafði verið á bifreiðinni, sem lýst var eftir. í fórum manns þessa fannst hlaðin hríðskota byssa og var fyrsta ákæra á Framhald á bls. 31. ingaúrslitin og að ekkert myndi verða úr samstarfi Kristilegra demókrata og Sósíaldemókrata, sem rætt hafði verið lauslega fyrir kosningarnar, en allar lík- ur taldar á því að haldast myndi samstarf það sem verið hafði með Kristilegum demókrötum og bræðraflokknum í Bæjara- landi og Frjálsum demókrötum. Erhard kanzlari lét svo ummælt í nótt, að hann hefði sjálfur full an hug á að halda áfram sam- starfinu eftir sem áður og taldi það litlu skipta, þó Frjálsir demókratar hefðu tapað fylgi nú. Kanzlarinn hóf í dag undir- búningsviðræður að stjórnar- myndun, og er fylgzt með þeim viðræðum af miklum áhuga í V-Þýzkalandi, einkum að því er varðar leiðtoga kristilegra sósíal ista í Bæjaralandi, Franz Josef Strauss, fyrrum varnarmálaráð- herra. Er mjög um það rætt, hvort Strauss takist að tryggja sér sæti í stjórninni þrátt fyrir mótbárur Frjálsra demókrata. Hefur leiðtogi þeirra, Erioh Enginn smærri flokkanna fékk nokkurn mann kjörinn. Mest fylgi féll í hlut Þjóðl. þýzkra demókrata (nýnazista), sem fengu 2% greiddra atkvæða, en 5% þarf til þess að fá þingmann kjörinn. Flokkurinn hafði ekki mann í framboði í síðustu kosn- ingum. Þýzka friðarsambandið (DFU) fékk 431.651 atkvæði eða 1,3% og hafði áður 1,9, en aðrir flokkar fengu samtals 88.277 at- kvæði eða 0,3%. Tölur þessar taka til 246 kjördæma af 248, sem í landinu eru og fara kosn- ingar ekki fram í þeim tveim kjördæmum sem eftir eru fyrr en 3. október, og veldur þessari töf á kosningum fráfall fram- bjóðenda þar skömmu fyrir kosningarnar. Konrad, fyrrum kanzlari Adenauer, sem verið hefur óspar á gagnrýni í garð Erhards und- anfarin tvö ár, eða allt síðan hann tók við kanzlaraembætt- inu, varð til þess fyrstur manna að óska honum til hamingju með kosningasigurinn. Var það á fundi flokksstjórnar Kristilegra Framhald á bls. 6. Vopnaðir lögregluþjónar gera leit í ölluin bifreiðum, sem fara frá Amager til Kaupmannahafna r daginn eftir að lögregluþjónarn ir fjórir voru myrtir. (Nordfoto).

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.