Morgunblaðið - 21.09.1965, Blaðsíða 21
Þriðjudagur 21. sept. 1965
MORGUNBLAÐID
21
Guðrún Sigurðar-
dóttir —- Minning
„f grandvarleik hjartans vil I
ég ganga um í húsi mínu“. Þessi
orð koma mér í huga nú, er ég |
minnist kynna minna aí Frú
Guðeúnu Sigurðardóttur, Skóla-
vörðustíg 41.
Hún lézt á sjúkrahúsi þann 29.
égúst s.l., eftir vanheilsu, um
inokkurt skeið. Ég hygg það eigi
ofmælt, að í grandvarleik hjart-
ans hafi hún sína lífsbraut
gengið hiljóðlátlega, ljúfmann-
lega og skilningsrík, einlæg í
trú feðra sinna.
Það var ljóst að hún óskaði,
að leita sannleikans og forðast
Villuna- Ekki var það í samræmi
vi'ð lífsskoðun Guðrúnar að
ekifta sér mikið af högum ann-
arra, en væri til hennar leitað,
voru ráð hennar holl og traust,
mótuð af einurð, skapfestu,
breinskilni og sannri vináttu
greindrar konu.
Gleði hennar var jafnan hóg-
látleg, hugarró og æðruleysi I
Ihverjum vanda. Með virðingu
og þakklæti minnist ég hjálpar
(hennar og einlægrar vináttu vi’ð
móður mína. Með þakklátum
huga hugsa ég til þeirra mörgu
góðu stunda, sem ég átti á heim-
ili hennar sem unglingur, er ég
dvaldi þar oft í lengri eða
skemmri tima.
Börnum sínum var hún án
efa góður leiðbeinandi, sanngjörn
og umburðarlynd, svo hverjum
einum fannst sinn hlutur góður.
Heimili hennar var hennar
vettvangur, þar og hvergi ann-
ars staðar vildi hún fyrst og
fremst starfa. Þar lagði hún fram
óskipta krafta sína til þess síð-
asta. Fórnfýsi og umhyggju Guð-
rúnar fyrir heimili sitt, eigin-
mann og börn, var heil og sönn.
Hún óskaði að geta glaðst yfir
velferði þeirra- Það voru hennar
laun, fyrir þau laun sem hún
fékk, var hún mjög þakklót.
Guðrún Sigurðardóttir fæddist
8. febrúar 1899 í Barðsvík
Grunnavíkurhreppi.
Hún kvæntist 1924 eftirlifandi
manni sínum Jóni Bjarnasyni,
sjómanni, síðar starfsmanni
Reykjavíkurborgar um árabil.
Þeim varð fjögurra barna auð-
ið, sem öll eru á lífi, en þau eru:
Aðalsteinn efnaverkfræðingur
ókvæntur, Svava gift Stefáni
Þórðarsyni bankafulltrúa, Sig-
urður símvirki kvæntur Hjördísi
Guðmundsdóttur, Hör'ður efna-
verkfræðingur, kvæntur Þor-
gerði Brynjólfsdóttur. Öll sam-
vistarár sín áttu þau hjónin
heimili sitt í Reykjavík.
Var sambúð þeirra í rúm fjöru
tíu ár, grundvölluð á gagn-
kvæmum og traustum trúnaði,
sem aldrei skyggði á.
Af fyrirhyggju, ráðdeild og
dugnaði byggðu þau upp heim-
ili sitt, stóðu um það trúan vörð
og studdu börn sín til þroska og
mennta.
Það hefur færst skuggi yfir
friðsælt hamingjusamt heimili-
Góð eiginkona, móðir, tengda-
móðir og amma, gengur eigi
lengur um hús sitt. Hún hefur
hafið ferð sína, hina síðustu
hér.
Söknuðurinn er mikill, hugg-
un mannanna oft ófullkomin, en
hugþekkar ljúfar minningar
megna að milda hann. Þær munu
verða okkur, sem kynntumst
henni mikilvægur og óbrotgjarn
minnisvarði um langan tíma.
„Sælir eru þeir, sem breyta
grandvarlega". Ég trúi að þa’ð
séu sannindi, að þeir sem svo
breyta hljóti milda hvíld og frið
Guðs hinna sólufegri heima.
Ég votta öllum hennar nán-
ustu innilegustu hluttekningu.
B- Ó.
4ra herb. íbúðarhæð
Höfum til sölu 4ra herb. íbúð á 3. hæð í villubygg-
ingu við Goðheima. — Stórar svalir. — Tvöfalt
gler. — 3 svefnherbergi. — Séi hiti.
Skipa- og fasteignæalan sS“ívsio“„,„
AðstoðarstúEka
óskast á tannlæknastofu um næstu mánaðamót
Tilboð er greini aldur og fyrri storf sendist blaðinu
merkt: „Stundvís og rösk — 2278“.
Vinna
Óskum að ráða húsgagnasmið og nokkra
lagtæka menn til iðnaðarstarfa.
Stálhúsgögn
Skúlagötu 61.
Stúlka óskast
við afgreiðslustörf strax. — Upplýsingar á skrifstofu
SÆLA CAFÉ Brautarholti 22 í dag og næstu daga.
/
GOOD^ÍEAR GáunÍSAB
Áratugum saman hafa Goodyear verksmiðjurnar verið í fremstu röð gúmml
framleiðenda. Nú hafa þær einnig tekið forystu í Vinyl fiamleiðslu.
GOOD YEAR Vinyl gólfflísar eru heimsþekktar fyrir gæði.
Fjölbreytt litaval — auðveld hirðing — þarf ekki að bóna.
aðeins gœðavara frá, GOOH/VlAIÍ;
MALNING-& JA’RNVÖRUR
LAUGAVEGI 23 SIMI 11295