Morgunblaðið - 21.09.1965, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 21.09.1965, Blaðsíða 2
MORCU N BLAÐIÐ f>rið.iudagur 21. sept. 1965 i Strauss og stjórnar- myndunin í V-Þýzkaiandi EINS og kunnugt er, unnu Kristilegir demókratar mik- inn sigur í vestur-þýzku þing- kosningunum og er þegar vit- að að Ludwig Erhard núver- andi kanzlara verði falin stjórnarmyndun að nýju. — Engu skal hér spáð um, hvern ig hin nýja stjórn verður skipuð. Telja má hins vegar líklegt, að ýmislegt óvænt kunni að koma á daginn áð- ur en ný stjórn verður mynd- uð þvi að viðhorfin hafa mik- ið breytzt við úrslit kosning- anna nú. Eranz Josef Strauss er kom- inn fram á sjónarsviðið að nýju. Hann er leiðtogi Kristi- legra sósíalista í Bæjaralandi, en þessi flokkur er sjálfstæð- ur flokkur, sem verið hefur í bandalagi við Kristilega demó krata, flokk Erhards, og hafa þessir flokkar komið frani sem einn flokkur í Samtr.ndsþing- inu. Sem kunnugt er, var Strauss um alllangt skeið ráð- herra í stjórn Adenauers á meðan hann var kanzlari. — Strauss varð fyrst ráðherra 1953. Varnarmálaráðherra varð hann 1956 og þeirri stöðu gegndi hann til ársins 1962, er hann sagði af sér vegna málaferla þeirra, sem urðu vegna vestur-þýzka tímarits- ins Der Spiegel. Spiegel-málið kom sem þruma úr heiðskíru lofti. í>að varð með þeim hætti, að lög- reglan lét handtaka útgefanda og helztu ritstjórnarmeðlimi Der Spiegel, en þetta tíma- rit, sem gefið er út í Ham- borg, hafði að þessu sinni birt ítarlega grein um heræfingar Atlantshafsbandalagsins í Vest ur-Evrópu í september sama ár undir nafninu „Fallex 62“. í þessari grein var hlutur vestur-þýzka hersins gagn- rýndur mjög og látið í það skína, að hernaðarundirbún- ingur Vestur-Þýzkalands gagn vart árás að austan væri í handaskolum. Franz Josef Strauss snerist mjög harkalega gegn þessari gagnrýni og beitti lögreglunni gegn tímaritinu sem að fram- an segir. Helztu ritstjórnar- meðlimir þess voru ekki ein- ungis handteknir, heldur voru skrifstofur og húsakynni tíma Flugvél skemmíst í lendingu Akraiiesi, 20. sept.: — HÉR Á flugvellinum við Berja dalsá laskaðist síðdegis sl. laug- ardag í nokkru hvassviðri flug- vél af gerðinni Cessna 170 í lendingu, þannig, að annað lend- ingarhjólið brotnaði undan henni. Sprengdi hjólið upp gólfið í vél- inni. Skemmdist vélin talsvert, svo að taka varð hana í sundur. Tveir vörubilar voru á staðn- um meðan verið var að raða flug vélarhlutunum kyrfilega á þá. Að því búnu fluttu þeir vélina svona sundurlausa til Reykjavíkur. — Þrír farþegar voru auk flug- manns í vélinni og sluppu allir ómeiddir, sem betur fór. Flug- vélin var trá flugskólanum Þyt. • Fimm „Kosmos". Moskvu, 20. sept. (NTB) Sovétríkin skutu á loft á laugardagin fimm gerfihnött- um af gerðinm „Kosmos“. Heppnaðist geimskotið vel, og var það sama eldflaugin, sem bar alla hnettina á braut. ritsins rannsöknuð af lögregl- unni, hirzlur brotnar upp og lögreglan hafði skjöl og ann- að þessháttar á brott með sér. Þessar aðgerðir fóru fram undir því yfirskini, að Der Franz Josef Strauss. Spiegel hefði með því að birta framangreinda grein haft í frammi landráðastarf- semi. Þessar lögregluaðgerðir fóru fram án vitneskju dómsmála- ráðherrans, Dr. Wolfgang Stanbergs, sem var einn af fimm ráðh. Frjálsra demó- krata í ráðuneyti Adenauers, og sagði hann af sér í mót- mælaskyni. Der Spiegel hafði, áður en allt þetta gerðist, hvað eftir annað ráðizt á Franz Josef Strauss vegna meintra mis- ferla í starfi. Það leiddi m.a. til gruns um að aðgerðirnar gegn blaðinu hefðu verið hefndarráðstafanir. Áður en yfir lauk höfðu allir ráðherrar Frjálsra demókrata lýst því yfir, að þeir myndu segja af sér ef Strauss yrði áfram ráð- herra og sagði Strauss þá af sér sem varnarmálaráðherra. Gangur Spiegel-málsins eft- ir þetta varð þannig, að ásak- anir á hendur blaðinu um landráð voru felldar niður, en Strauss var á hinn bóginn ekki sakfelldur fyrir vald- níðslu. Aðgerðirnar gegn Der Spi- egel urðu engu að síður orsök mikillar gagnrýni á Strauss og vestur-þýzku blöð- in fordæmdu almennt aðgerðir stjórnarvaldanna og sögðu þær minna á aðferðir NaZista og v*ru._ harkaleg skerðing á ritfrelsinu. Ekki leikur vafi á því, að þær sköpuðu Strauss á k a f a r óvinsældir meðal fjölda aðila. Forystumenn Jafnaðarmanna og Frjálsra demókrata höfðu fyrir kosn- ingarnar nú lýst því yfír, að ekki kæmi til mál-a, að Strauss fengi saeti í stjórn, sem þeir yrðu aðilar að. Ýmsir höfðu talið, að Spieg- el-málið myndi spilla mjög fyrir Strauss í kosningunum nú. Raunin varð hins vegar allt önnur. Flokkur hans bætti við sig atkvæðum, enda þótt hann fái tveimur þing- sætumyfærra nú en í síðustu þingkosningum, eða 48 í stað 50. Samkvæmt úrslitum kosn- inganna nú virðist eðlilegt að Kristilegir demókratar og Kristilegir sósíalistar (flokk- ur Strauss) myndi stjórn með Frjálsum demókrötum, því hinir fyrrnefndu hafa ekki bolmagn til þess að mynda einir stjórn. Frjálsir demó- kratar hafa hinsvegar, eins og áður er sagt, marglýst því yfir að þeir muni ekki vera aðilar að ríkisstjórn, sem Strauss á sæti í. Haldi þeir fast við þessa afstöðu sína, hver verða þá viðbrögð Strauss og Kristi- legra sósíalista? Ætla má að Strauss verði ófús til að styðja stjórn Kristilegra demó krata og Frjálsra dem- krata, sem hann og hans flokkur ætti ekki aðild að. Kristilegir demókratar og Frjálsir demókratar geta hins vegar ekki myndað stjórn einir. Þeir verða að hafa stuðning Kristilegra sósíalista og þann stuðning verða þeir að öllum líkindum að greiða fyrir með þátttöku Strauss í ríkisstjórninni. Ekki er því ólíklegt að nokkrir erfiðleik- ar geti orðið á stjórnarmynd un, enda þótt Erhard hafi í gærmorgun lýst yfir, að hon- um muni ganga greiðlega að mynda stjórn að nýju. Skipið ofhlaðið Á MIÐVIKUDAG fóru fram hjá borgardómaraembættinu í Rvík, sjópróf vegna Rifsnesslyssins, sem varð fyrir Austfjörðum á sunnudag í fyrri viku. Kristján Jónsson, borgardómári, stjórnaði sjóprófum, en skipstjóri, stýri- maður og fjórir hásetar á Rifs- nesi voru yfirheyrðir. Orsök slyssins virðist vera sú, að skipið hafi verið ofhlaðið og lestarlúgur ekki skálkaðar und- ir síldinni sem var á þilfari. — Skipið fékk á sig sjó með þeim afleiðingum að ábreiða losnaði og sjór gekk í síldarstíurnar. Skipið lagðist þá á hliðina og Ulbricht í IVIoskvu Moskva, 17. september — NTB- LEIÐTOGI a-þýzkra komm- únista, Walter Ulbricht, kom í dag til Moskvu. Mikojan, for- seti Sovétríkjanna og Kosygin, forsætisráðherra, voru meðal þeirra, sem buðu hann velkom- inn. tók á sig meiri sjó. Síldinni var þá hleypt út og skipinu snúið upp í vindinn, en samt sem áður rétti það sig ekki við. Þá var siglt áfram og í hring, til þess að fá skipið á réttan kjöl, en þá lagðist það á hina hliðina og sjórinn gekk inn á lúgurnar og streymdi í lestarnar. Var þá öll von úti um að bjarga skipinu. Papandreou gagnrýn- ir Slephanopoulos Talið að hin nýja stjórn muni halda velli Saloniki, 20. se’pt. — (NTB): GEOKGIOS Papandreou, fyrrver andi forsætisráðherra Grikk- lands, réðst í gærkvöldi harka- lega á núverandi forsætisráð- herra landsins, Stephan Stepano poulos og hina nýmynduðu stjórn Goð síldveiði á sunnudag í SKÝRSLU Fiskifélagsins um veiðarnar yfir helgina segir að 37 skip hafi tilkynnt síldarleit- inni um afia sinn á laugardags- kvöld og aðfaranótt sunnudags, samtals 13.750 mál og tunnur. Á sunnudagsmorgun var góð veiði í Norðfjarðardýpi og á Gerpis- flaki, 36—42 mílur undan landi. Upp úr hádegi fór að bræla og hefur ekki verið veiðiveður síð- an. Síldin er mjög góð til sölt- unar Ennfremur fengu tveir bát ar góða veiði 135 mílur NA af A frá Raufarhöfn. Samtals fengu 69 skip alls 59.390 mái og tunnur. Seint í gærkvöldi hafði Mbl. samband við síldarleitina á Rauf arhöfn, og sagði hún að 37 skip hefðu fengið um 28 þús. mál frá kl. 7 i gærmorgun. Síldin veiddist 45—60 mílur út af Norðfirði. Slys í Svlna- hrauni Á TÓLFTA tímanum á laugar- dagskvöld varð maður fyrir bíl skammt fyrir austan Litlu-kaffi stofuna í Svínahrauni. Þar var kyrrstæð vörubifreið á veginum með jeppa á pallinum og hjá vörubifreiðinni verziunarmaður frá Selfossi, Arnold Pétursson, eigandi jeppans. Bifreið var ek ið austur veginn í Svínahrauni og varð Ainold fyrir henni, er hún ók framhjá vörubifreiðinni. Arnold var fluttur í slysavarð- stofuna og síðan á sjúkrahúsið á Selfossi. Hann mun hafa bein- brotnað. Norðursíld hæsta stöðin á landinu / Raufarhöfn. 20. sept.: — FRA HÁDEGI á laugardag þann 11. september til hádegis þann 18. svar saltað í 4000 tunnur hjá Norðursíld. Stúlkurnar söltuðu upp í 180 tunnur á emni viku og fá fyrir það 11 til 12 þúsund kr. í laun. Söltunin á Norðursíld er þá orð in 12.792 tunnur og er stöðin hæst á landmu og stúikurnar bún ar að vinna sér inn allt að 40 þús. kr. í sumar J J. hans. Sagðist Papandreou ætla að berjast rneð oddi og egg gega hinni nýju stjórn tíg það yrðí ekki löng harátta, því að stjórnin . væri þegar dauðadæmd. Papandreou viðurkenndi, að margir af flokksmönnum hana innan Miðílokkasambandsina hefðu svikið hann og snúizt á sveif með Stepharioupolos, en bætti við, að það væri vegna þesa að Stephanoupolos hefði beitt ólögiegum aðferðum til að ná þeim á sitt band. Hann sagði, að allt 43 af þingmönnum Miðflokka sambandsms styddu hinn nýja forsætisráðherra og bendir það til þess að þingið samþykki traustsyfirlýsingu á stjórn hans, er hún verður borin fram síðar í vikunni. Ekki léf Papandreou hjá líða að gagnrýna Konstantín konung og sagði, að hann hefði ekki not að, heldur misnotað þau rétt- indi, sem stjórnarskráin veitti honum. Samúðorskeyti til K.hafnar I HÉR Á lardi var tvíátta í aðeins tveggja stiga hiti um gær, þvi að lægðardrag var nónbilið. Austan lands var fyrir landinu frá norðaustri hægviðri, bjart og 10 til 12 til suðvesturs. Nyrzt á Vest- fjörðum var NA-kaldi, úði og stig, en SV-kaldi og skúrir á Suðuriandi. LÖGEEGLUSTJORINN í Reykjavík, Sigurjón SigurðsJ son, senöi um helgina lögreglu stjóranum í Kaupmannahöfn samúðarskeyti vegna hins 1 hryggilega atburðar, er fjórir i ungir lögreglumenn voru myrt ir á Amager á laugadags- mogun. Þá sendu lögreglumenn : Reykjavík einnig starfsbræðr- um síttum i Kaupmannahöfn samúðarskeyti vegna atburðar ins. — Hvergi séð Framha’d af bls 32 hefði hvað mesta undrun hér, væri hversu mikið væri af bóka- búðum í Reykjavík, sem stöðugt væru fullar af fólki. Sagðist hann hvergi sem hann hefur ferð- azt hafa séð tiltölulega jafnmarg- ar bókaverzlanir og hér. Bjarni Benediktsson sagði þá blaða- mönnunum frá því, hversu bók- elskir íslendingar væru, og á flestum íslenzkum heimilum væri mjög mikið af bókum, því að við- vildum eiga þær bækur, sem við hefðum ánægju af að lesa. Þegar rætt var um Mfsafkomu manna hér almennt, spurði einn blaðamaðurinn um, hvort verka- fólk byggi í þeim vönduðu hús- um, sem hvarvetna væri að sjá hér. Benti Bjarni Benediktsson blaðamönnum á, að það væri ein- mitt mælikvarðinn á lífsafkomu íslendinga, að flestir byggju hér í eigin húsnæði. Þá höfðu blaðamennirnir mik- inn áhuga á starfsemi íslenz u flugfélaganna, landhelgisdail- unni, íslenzkum stjórnmálaflokk- um og fleiru. Svaraði forsætis- ráðherra spurningum þeirra um öll þau atriði. Bandarísku blaðamennirnir komu hingað til lands sl. laugar- dag ásamt konum sínum og fleira skyldfólki og er í hópnum alls 65 manns. í dag mun hópurinn hlýða á fyrirlestur prófessors Jóhanns Hannessonar um Is- land, skoða borgina, heimsækja Penfield sendiherra Bandarikj- anna og Morgunblaðið. ísland er síðasta landið sem hópurinn heimsækir á ferð sinni um Evrópu, en áður höfðu þau heim- sótt írland, Skotland, England, Holland, Belgíu, Þýzkaland, Nor- eg, Sviþjóð og Danmörku. Héðan verður síðan haldið á morgun til Bandaríkjanna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.