Morgunblaðið - 01.10.1965, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 01.10.1965, Blaðsíða 3
MORCU N BLADID 3 ! Föstudagur 1. október 1965 I i MÁNUDAGINN 4. október opnar BanrlarLska Upplýsinga- þjónustan geimferðasýningu í Eðlisfræðistofnun Háskólans. Sýning þessi nær yfir flest svið geimrannsókna Banda- ríkjamanna og stendur yfir í tólf daga. i sambandi við sýn- inguna verða kvikmyndasýn- ingar daglega í Háskólabíói og jafnframt bókasýning í Ameríska bókasafninu við Hagatorg. Blaðamönnum var í gær boðið að fylgjast með undir- ibúningi að geimferðasýningu Syncom-deildin. XiX vinstri er sjónvarpsskermur, sem sýnir kvikmynd um Syncom. : Geimferðasýning í Eölis- fræðistofnun Háskólans Upplýsinga'þjónustunnar í Eðl isfræðistofnun Háskólans, Gerðu þeir Don R. Torrey, forstöðumaður USIS og Reub- en Monson, fulltrúi, grein fyrir sýningunni. Sýningin' verður opnuð fyr- ir almenning kl. 19 n.k. mánu- dagskvöld. Verður hún í fimm deildum, þar sem sýnd verða ýms atriði úr geimferðasögu Bandardkjanna. í einni deild- inni verður sýnt líkan af geim farinu Gemini. Þá verður sýnt líkan af sjónvarpshnettinum Syncom, geimferðabúningur, Ijósmyndir, sem teknar hafa verið úti í geimnum og margt fleira. f einni deildinni verða sýndar kvikmyndir allan dag- inn og verður skipt um mynd- ir daglega. í Háskólabíói verða daglega sýndar kvikmyndir um geim- rannsóknir Bandaríkjamanna og ýms atriði í sambandi við þær. Þá flytur dr. Þorsteinn Sæmundsson erindi um geim- rannsóknir og sýnir skugga- myndir föstudaginn- 8. okt. í Háskólaibíói. Hér á eftir verða taldar upp þær kvikmyndir, sem sýndar verða í Háskóla’bíói. Sýningarnar fara fram kl. 20, nema annað sé tekið fram. Mánudagur . okt.: Desti- nation Man (ísl. tal. í litum), The Four Days og Gemini IV (enskt tal. 1 litum), Banda- rískir geimfarar á íslandi (ísl. lit.). Sýningartími 59 min. Þriðjudagur 5.: The World Beyond Zero, Path of Venus og Project Apollo. (Allar á ensku og 1 litum). Sýningart. 68 mín. Miðvikudagur 6.: Albove Earth and to the Moon (e.sv./ hv.), Clouds of Venus (Marin- er II) (e. lit.), Lunar Bridge- head (e. sv./hv.). Sýningart. 70 mín. Fimmtudagur 7.: Saturn, Project Telstar og Atoms for Space (e. lit.). Sýningart. 60 mín. Föstudagur 8.: Fyrirlestur með skuggamyndum: „Geim- ransóknir“ eftir dr. Þorstein Sæmundsson. Sunnudagur 10.: Destinati- on Man (ísl. lit.), Friendship 7 (e. lit), Bandarískir geim- farar heimsækja Island (ísl. lit.). Sýningart. 89 mín. Mánudagur 11.: Survey of Astronautios (ísl. lit.), Profile of Gordon Cooper (e. sv./hv.) X-15 (e. lit.). Sýningart. 78 min. Þriðjudagur 12.: Lunar Bridgehead (e. sv./hv.), Above Earth and to the Moon (e. sv./hv.), Project Telstar (e. lit.) og Ranger VII (e. sv./hv.). Sýningart. 68 mín. Miðvikudagur 13.: Banda- rískir geimfarar heimsækja Island (ísl. lit.), Four Days of Gemini IV (e. lit.), Desti- nation Man (ísl. lit.). Sýning- art. 59 mín. Fimmtudagur 14.: Survey of Astronautics (ísl. lit), The World Beyond Zero (e. lit.) og Þessi geimferðabúningur ‘ verður til sýnis á geim- ferðasýningunni. Project Apollo (e. lit.). Sýn- ingart. 63 mín. Föstudagur 15.: Saturn (e. lit.), Clouds of Venus (e. lit.), Path of Venus (e, lit.) og Bandarískir geimfarar heim- sækja ísland (ísl. lit.). Sýn- ingart. 70 min. Þess má einnig geta að sér- stök sýning verður fyrir skóla föstudaginn 7. október frá kl. 14-16. Sýning Upplýsingaþjónust- unnar í Eðlisfræðistofnun Há- skólans verður opin frá 4. okt. til 15. okt. daglega kl. 14-22, nema laugardaga frá 14-19. Þess má að lokum geta, að ef sérstaklega er um beðið, verður sýningin opnuð að morgni fyrir skóla. Svavar Hansson málar skllti, sem á að standa utan við húsið. Skiltið er í laginu eins og eldflaug og á því stend- nr „Út í geiminn“, en það nafn hefur sýningin hlotið. Síldin skánar aftur skipin verið að vinna talsvert 1 geer og mörg kastað en nokkuð illa gengið að nó síldinni, sem SAMKVÆMT skýrslu Lands- sambands íslenzkra útvegismanna í gær vax góð veiði i fyrradag og tM M. T í gærmorgun 90 míl- ur undan landi í Norðfjarðar- dýpi og 60 mílur í Reýðaifjarða- dýpi. Samtals fengu þá 71 skip 73.690 miál og tunnur. í fréttum frá Dalatanga í gærkvöldi höfðu var stygg. í gær hötflðu 30 skip tilkynnt afla, alls 36.700 tunnur og mál. Veiðisvæðið færðist i gær aðeins suður á bóginn og sildin sem veiddist var heldur betri til söltunar en í fyrradag. Inflúenza Akranesi, 30. sept. INFLÚENZA er að ganga' hér í bænum. Línubátarnir öfluðu í gær frá 4,5 — 5 tonn á bát. Aflahæstur var Reynir með 5 tonn. Landlega er hjá bátunum hér í dag. Gufu- rok er úti á miðum af suðaustri. — Oddur. STAKSIEINAR Einar að hætta? Svo virðist sem Einar Olgeirs son, hinn gamii og tilfinninga- heiti boðberi kommúnismans á íslandi, muni láta af for- mennsku Sósíalistaflokksins. og ef til vill einnig þingmennsku * innan næstu tveggja ára. A.m.k. benda fregnir nr herbúðum kommúnista eindregið tU þess, og eru menn ýmist þeirrar skoð unar, að Einar hyggist hætta af eigin hvötum, eða áhrifamikil öfl innan flokksins ætli að boia honum í burtu. Átökin í Sósíal- istaflokknum siðustu ár hafa auðvitað valdið formanni hans margvíslegu hugarangri. Hanu hefur ekki verið þar sá valda- maður, sem margur hefur ætl- að. í Reykjavíkurdeild kommún ista hafa Brynjólfur Bjamasou, Jón Rafnsson og gömul klika harðsnúinna kommúnista f kringum þá, verið honum yfir- sterkari. en Einar hefur reynt að halda flokknum saman meS því að styðja á víxl hinar ýmsu klikur flokksins. En einmitt fyir' ir þann leik hefur hann hlotiS ámæli margra áhrifamikilla manna kommúnistaflokksins. Það er því ekki óeðlilegt aS ætla, að senn muni ljúka stjóm málaferli Einars Olgeirssonar, sem leiðtoga kommúnista hér á landi. Þá ris sú spurning hver verða muni eftirmaður hans. Hvað verður um Lúðvík? Lúðvík Jósepsson er nú vara- formaður Sósíalistaflokksins, og er því í sterkri aðstöðn til þess að gera tilkail til formennsku í flokknum. Lúðvik hefur jafn- an verið mjög volgur í stuðn- ingi við hina svoköiluðu Al- þýðuhandalagsmenn í þessari fylkingu, og hvorugur aðili tel- ur sig geta treyst Lúðvík. Orsök in fyrir þessari hálfvelgju Lúð- viks Jósepssonar er auðvitað sú^- að hann hefur augastað á for- mennsku í Sósíalistaflokknum, og hefur ekki viljað sleppa þeirri aðstöðu, sem hann hefur haft til þess að komast í hana. Hitt er ljóst, að Lúðvík hefur mjög takmarkaðan stuðning kommúnista hér í Reykjavík, og jafnvel þótt hann næði kjöri, sem formaður Sósíalistaflokks- ins á flokksþingi, mundi hann vera valdalítill sem slíkur, þar sem Sósíalistafélag Reykjavík- ur er langsterkasti aðilinn í Sósíalistaflokknum og getur sett flokknum stólinn fyrir dyrnar. Þar ræður Brynjólfur enn ríkj- um, og mundi vafalaust gera Lúðvík lifið leitt ef til kæmi. Krónprínsirm Þá er einnig á það að líta, að Einar Olgeirsson hefur fyrir löngu útnefnt sinn krónprins í kommúnistaflokknum, og sá er Magnús Kjartansson, ritstjórl Þjóðviljans. Er ekki ólíklegt að ætla, að Einar hyggist arfleiða Magnús að þingsæti sínu i Reykjavík og formennsku f flokknum. Verði Magnús Kjart- ansson arftaki Einars í Sósíal- istaflokknum má búast við, að deilurnar við Alþýðubanda- lagsmenn harðni enn ef kosn- ingabandalag þetta verður þá ekki klofnað, en hitt «r meiri spurning, hvernig hlnar ýmsu klíkur mundu bregðast^ við formennsku Lúðviks Jóseps- sonar. En ljóst er af öllu, að þegar er hafin harátta fyrir því að ryðja Einari Olgeirssyni nr formannsstóli með góðu eðá illu á næsta flokksþingi kommúnistaflokksins. sem vænt- anlega verður næsta haust, og fylgismenn Lúðvíks Jósepst- sonar og Magnúsar Kjartansson ar munu vafalaust vinna að því af vaxandi krafti ,að tryggja sínt- um manni formannstítii.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.