Morgunblaðið - 31.10.1965, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 31.10.1965, Blaðsíða 5
SunnuclEf’ur 9t. október 196? 'MORGUNBLADIO FUGLASPJALL f DAG skulum við spjalla svolítið um fallegan svartfugl sem heitir TEISTA. Teistan er lítið eitt minni en lundi, alsvört, en með græn leitri slikju og stórum, hvít- um vængspeglum eða skellum Nef hennar er mjótt og hvasst, svart að lit. Gómar og tunga er hárautt, og er þessi litur mjög áberandi- Þegar fuglinn gefur hljóð frá sér og opnar nefið. Fæturnir eru hárauðir, klærnar grásvartar. f vorbún ingi be mest á grænu slikj- unni, en í vetrarbúningi er teistan hvít að neðanverðu með grásvörtum ýrum á síð- um, brjósthliðum og neðst á hálsi. Varpheimkynni teistunnar eru strendur og eyjar Norð- ur-íshafsins og nyrsta hluta Atlantshafsins. Teistan er algeng umhverf- is allt ísland. Kjörlendi henn- ar eru stórgrýttar og klett- óttar strendur og eyjar. Varp Teista í vorbúningi í Fapey, S.-Múl. 1941. stað velur teistan sér í fjöru- urðum eða í holum og glufum í lágum klettum við sjó. Teistan verpur 2 eggjum, oftast nær- Eggin eru skol- hvít, oft með daufblágrænum blæ, og ávallt með gráfjólu- bláum og dökkbrúnum drop- um, dílum og blettum. Teistan er alger staðfugl hér við land. Sá, sem þetta Teista með uppáhaldsfæðu sina, sprettfiskinn í nefinu. Myndin er tekin á Flatey á F.reiðafirði, júní 1945. skrifar hefur aðeins merkt eina Teistu, fyrir Náttúru- gripasafnið, og var það í Hval firði. Hreiðrið var í kletta- snös, fram við sjó. Þar inni í holunni var teistan. Setti ég net fyrir holuna og náði henni þannig. Langt er liðið síðan, én það man ég vel, hve Teistan brást reið við þessari röskun á heimilshög- um sínum- Hún beit mig og klóraði og varð ég að lokum að stinga spýtukubb upp í gogg hnnar og binda hann síð- an saman með snæri, meðan ég merkti hana. Að því loknu flaug hún af skyndingu út á sjó, en eitthvað fannst mér hún samt upp með sér af þess um gljáandi alúminiumhring, sem ég hafði sett á hægri löpp hennar, hárrauða löpp, með grásvörtum klóm. Myndirnar, sem með þessu birtast eru teknar af einum bezta fugla- ljósmyndara okkar, Birni Björnssyni frá Norðfirði, og birtust þær á síiíum tíma í N áttúruf r æðingnum. Fr. S. s sá NÆIT bezti Árni Böðvarsson, sparisjóðsstjóri á Akranesi var eitt sinn stadd- ur á bæjarfógetaskrifstofunni, einhverra erinda. Þórhallur Sæm- undsson, bæjarfógeti, kemur skyndilega fram úr skrifstofu sinni og biður Árna að lar.a sér reiðhjólið sitt, en altítt er að fólk á Akranesi noti reiðhjói, enda er bærinn ein löng flatneskja. Árni varð við bón bæjarfógeta. Þegar fógeti kemur til baka fer Árni út Eftir stundarkorn kamur Árni ínn aftur og segir við fógeta: „Það var.tar bjölluna á hjóhð.“ Þórhallur fógeti snöggur og svarar um hæl: „Það er ekki mér að kenna — bjallan var áreiðanlega á hjolinu, þpgar ég skilaði því-“ — „Einkennilegt“, tautaði Árni um leið og hann gekk úr, og hélt svo áfram: „Það hefur nefnilega aldrei verið nein bjalia á hjóiinu mínu!“ Munið happdrætti Lögreglukó rsins, grein um kórinn og mynd byrtist í næsta þriðjudagsblaði. KAU PMAN NASAMTÖK ÍSLANDS KVÖLDÞJÓNUSTA VERZLANA Vikan 1. nóv. til 5. nóf. Verzlun Páls Hallbjömsson-ar, Leifs götu 32. Matvörumiðstöðin, Laugalæk 2. Kjartansbúð, Efstasundi 27. M.R.- búðin, Laugavegi 164. Verzlun Guð- jóns Guðmundssonar, Kárastíg 1. Verzlunin Fjölnisvegi 2. Reynisbúð, Bræðraborgarstíg 43. Verzlun Björns JónsDonar Vesturgötu 28. Verzlunin Brekka, Ásvallagötu 1. Kjötborg h.f. Búðargerði 10. Verzlu/n Axels Sigur- geirssonar, Barmahlíð 8. Kjötmiðstöð in, Laugalæk 2. Barónsbúð, Hverfis- götu 98. Verzlunin Vísir, Laugavegi 1. Verzlunin Geislinn, Brekkustíg 1. Skúlaskeið h.f., Skúlagötu 54. Silli og Valdi, Háteigsvegi 2. Silli og Valdi Laugavegi 43. Melabúðin, Hagamel 39. Kron, Langholtsvegi 130. Smith þiggur boö Wilsons um að heimsækja Rödesíu Forsætisrí'nMierrann brezki gerir síðustn tilraun uð kwma i veg fyrir einbliða sjálfstædisyfirlýsw'igu ifcriúfliT- • WILKÍNSON iP^’sw'oitífáO ISSvað eru beztu blöðin? Fyrir yður verða það hiklaust blöðin, sem yður fellur bezt við, hvað sem þau heita. Hafið þér reynt WILKINSQN Super safety rakvélablöðin úr ryðfríu stáli, sem bíta mjög vel endast ótrúlega vel fara vel með húðina Fást í næstu búð, eða rakarastofu. Heildsölubirgðir: H. Ólafsson & Bernhöft Sími 19790. BINGÓ Bingó í Góðtemplarahúsinu kl. 9 í kvöld. Aðalvinningur eftir vali. - Borðapantanir frá kl. 7,30 Sími 13355. — 12 umferðir. Góðtemplarahúsið. Aígresðs’usfúlka Afgreiðslustúlka óskast. — Upplýgingar ekki veittar í síma. T ömstundabúðin Aðalstræti. Falkinn A IVIORGIJIM <■ Fálkinn kynnir sölumenn bíla- umboðanna og lœtur þá velja bíla af árgerð 1966, sem þeir vilja helzt selja. Þeir, sem hafa áhuga á bílum, þurfa að eignast þetta blað «• Rabb við Helga Bergmann v' Fjörlegt viðtal við HLJÓMA FALKINIM FLÝGIiR IJT

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.