Morgunblaðið - 31.10.1965, Side 11

Morgunblaðið - 31.10.1965, Side 11
11 1 Súnnudagur 31. oktober 1965 MORCUNBLAÐIÐ Einn helztl leifftogl nppreisnarmanna gegn ríkisstjóminni í Kongó er Gaston Soumialot. Ný- lega kom upp orðrómur um að hann hefði verið fellður, en það reyndist ekki rétt. Soumi- alot var >á staddur í borginni Dar-Es-Salaam í Tanzaniu, og boðaði þar fréttamenn á sinn fund s.l. sunnudag. Var mynd þessi tekin við það tækifæri. Soumialot er maðurinn meff húíuna. BREF ÚR SVEITINNI Miðhúsum, 10 .október 1965. VORIÐ var þurrt og kalt, gróð ur kom því í seinna lagi. Sau'ð- burður gekk vel, þó að flest ai ánum bseru í húsi. Hlunníndi munu víðast hvar fcafa gengið í meðallagi. Sumarið var þurrviðrasamt, mikið um sólfar, en þó heldur kalt. Grasspretta var víðast ágæt, en á harðbala túnum undir meðal lagi. Heyfengur er hér víðast hvar með bezta móti og óhrakin. í>ó að háarspretta hafi verið mjög léleg. Kartöfluspretta var yfirleitt Égæt þó-misjöfn eins og gengur, en engir stórframleiðendur eru hér í þessari búgrein. Þetta er þriðja sumarið í röð sem berja uppskera bregst hér og stafar það af því að vorkuldarnir eyði- lögðu blómin áður en frjógun hafði farið fram. Umferð hefur verið með svip- uðu móti og síðast liðið sumar. Nokkuð hefur borið á því sem oftar áður að ekið sé á sauðfé og það skilið limlest ftir við vegina, en sumir eru það drenglundaðir eð gera vart við þessi óhöpp sín, evo hægt sé að stytta hinum kvöldu skepnum aldur. Ég hygg oð með aukinni fræðslu og leið beiningum um það hvernig bú- té hagar sér við þjóðveginn mætti draga verulega úr þessum elysum og er hér verkefni fyrir dýraverndara, tryggingar og elysavarnafélögin að annast þessar leiðbeiningar í gegnum blöð og útvarp. Rekstur Hótel Bjarkalundar hefur gengið með svipuðu sniði og áður, en þó verður að átelja Barðstrendingafélagið fyrir það eð gefast upp við að halda sumar hátíð sína í Bjarkarlundi með nokkrum menningarblæ og æsku fólk okkar er verðmætara en það að hægt sé að gefa Mammoni og Bakkusi alla dýrðina. Aðalfundur Sambands breið- firzka kvenna var haldinn að Reykhólum dagana 1S. til 21. júní 6Íðast liðinn og þar skeði það eð sambandið klofnaði í tvennt. Bnæfellsnesskonurnar sögðu sig úr en Breiðfirzkar stofnuðu sitt eigið. Sú hugmynd bréfritara um það að konur væru yfirleitt miklu betur félagslega þroskað- ar en karlmenn, varð fyrir áfalli, €n kannski er hér aðeins um und •ntekningu að ræða Fulltrúar á Sambandsfundinum gáfu Reyk- hólakirkju rúmlega 3000 kr. í fánasjóð og þökk sé þeim. Á þessu fundi flutti Helga Halldórsdóttir ljóð til Reykhóla- j sveitar og þar sem mér finnst kvæðið fagurt og það eigi fullan rétt á sér að fleiri lesi það en þeir sem sjá fundargerð Sam- bands breiðfirzka kvenna hef ég skrifað það hér upp. Til Réykhólasveitar Reykhólasveit hér er fögur þá sólargeislar blika á sæ, er oftast blundar ef kári ei hann vekur I með eyjar sker og hólma er öll af lífi kvika | en auð til lands og sjávarins mannsorkan þar tekur Hér sofnar enginn maður við sjávarniðinn þunga Hér sést ei þegar hafaldan rífur , grjóti úr skorðum. Við fjarðarströnd í hvíslingum mælir marar tunga líkt móður er við barnið sitt talar kærleiksorðum. Hér ræður særinn ríkjum en ekki ægisdætur Þær annarsstaðar skauta með sín hvítu falda | en straumsins þunga iða ei að sér hæða lætur hún allt vill niður draga I sjávardjúpið kalda. í suðvestri rís ásinn sem fengurstur er fjalla og forðum Verner réð klæða í skáldlistanna hökul. Hann Indverjarnir guðdómsins orkustöðvar kalla en íslands goða tungumál nefnir Snæfellsjökul. Barmahlíð er falleg með laufsins litum fríðum. í ljósum orðum stórskáldin vottað hafa þetta. En mér er kærast skrautið í háum jökulhlíðum sem hraunið og gamburmosinn og lyngið saman flétta. Hér búa margskyns töfrar í fegurð fjalla sala. Hér finnst mér gott að hvílast og láta hugann dreyma, og við mig smáu fossarnir tungum vina tala þeir tilkynna mér sögur um dulda álfaheima. Vort land er töfra fagurt. Hver sveit á sína prýði og sínar auðsins lindir er hvetja fólk til dáða. Guð blessi þetta hérað. Guð blessi þetta land og lýði og láti jafnan kærleikans orku gjörðum ráða. Haustið hefur verið þurrviðra- samt það sem af er, en september mánuður var þá sérstaklega kald ur og næðingssamur. Sauðfjárslátrun er nú senn að Ijúka og munu dilkar vera í kringum meðallag. Byggingarframkvæmdir eru hér nokkrar. í byggingu eru 3 íbúðarhús, í Múla í Geirdal, Sím stjórahús í Króksfjarðarnesi og eitt íbúðarhús á Reykhólum. Auk þess er í byggingu útíhús og kaupfélag Króksfjarðar er að stækka útibú sitt á Reykhólum. Eitt af því sem menn eru yfir leitt óánægðir með hér er vara- hluta þjónustan frá þeim fyrir- tækjum sem flytja inn landibún- aðar vélar og veldur það bœnd- um miklu tjóni, óþægindum og margskonar leiðindum. Þó ætla ég að Dráttavélar h.f. eigi hér metið og er það mjög leitt að jafn góðar vélar sem þetta fyrirtæki hefur umboð fyrir séu nær því óeigandi vegna framúrskarandi lélegrar þjón- ustu fyrirtækisins við viðskipta- menn þess og kveður svo rammt að þessu að afgreiðslufrestur á varahlutum fer allt að 5 til 6 mán uðum og auðvitað með tilheyr- andi símkostnaði sem getur orð ið meiri en varahluturinn kostar Hér er vandamál á ferðinn sem að dómi bréfritara verður að koma á réttan kjöl og verður Stéttarsamband bænda á að taka hér i taumana og sýna þeim inn- flytjendum á landbúnaðarvélum sem ekki treysta sér að hafa vara hluta þjónustuna í forsvaranlegu lagi fram á það að umboðið verði fengið þeim aðilum í hendur sem hafa áhuga getu og vilja til þess a inna þessa þjónustu af hendi svo viðunandi sé. Nú fara barnaskólarnir hér að byrja og verða nú í vetur tveir kennarar við barnaskólann á Reykhólum og í því sambandi mætti minna á það að fræðslu- löggjöfin okkar er harla ^ein- kennileg þar sem upprennandi æsku sveitarinnar er raunveru- lega refsað vegna þess að fpr- eldrar þeirra eiga heima í sveit eða sveitaþorpi. Það hljóta því að vera skýlausar kröfur til löggjafavaldsins að æskufólki sveitanna verði veitt sömu mennt unarskilyrði og æskufólki þétt- býlisins og þetta má ekki drag- ast lengur en til haustsins 1967 að þessu jafnvægi verði komið á. Framleiðsluráð hefur mælt á móti því að haldið verði áfram með mjólkurbúsbygginguna á Reykhólum og þar sem sú sága öll, ef rakin verður, er lengri en rúm er fyrir í einu fréttabréfi véður látið hér staðar númið að sinnL Sveinn Guðmundsson 1 Konur, ást og orö TIL ERU þeir menn, sem standa á því fastar en fótun- um, að það sé með öllu óþarft að þeir segi konum sínum að þeir elski þær, það sé meira en nóg að þeir geri það. Það fer oft illa fyrir þessum mönnum. Konur þeirra eru nefnilega yfirleitt á annarri skoð- un. Þeim er ekki nóg að vita — eða halda — að menn þeirra elski þær, þær vilja heyra það af vörum þeirra og ekki bara einu sinni heldur oft og mörgum sinnum. Þær þreytast aldrei á því að heyra að þær séu dásamlegar verur, sem eiginmenn þeirra dái og tilbiðji eins og frá fyrstu tíð og skilji hreint ekki, hvernig þeir hafi verið svo ótrúlega heppnir að eignast nokkru sinni fyrir konu. Og hvað er því til fyrirstöðu, að þær fái að heyra það eins oft og þær langar til? Hvað er indælla en segja eiginkonu sinni eða ástkonu að maður elski hana, hversu lengi maður hafi elskað hana og hversu mikið, og síðast en ekki sízt, hvers vegna maður elski hana? Auk þess er hún vís til að slá manni sínum forláta gullhamra í stað- inn. Ekki lét Salómon konungur sig muna um að syngja stúlkunni sinni lof og dýrð forðum daga og þó við séum ekki allir skáld á þorð við Salómon, eru stúlkurnar okk- ar vísastar til að taka viljann fyrir verkið og meta ljóð okkar öðru mati en bókmenntagagnrýnendur og Biblíu- skýrendur. Ég hef þekkt fjölda manna, sem gátu ekki, annað hvort af feimni eða af fyrirlitningu á „þvílíkum barna- skap“ fengið af sér að „daðra“ við konur sínar eins og í gamla daga, þegar þau voru ung, menn, sem fannst allt hjal um ást og indælar minningar „endemis þvætting- ur“ eða „bölvaður kjánaskapur". Kannske gekk þeim til staurblinda á eðli kvenna, ellegar þeim var óvenju stirt um mál, en rnikils var þeim — og konum þeirra — í misst fyrir bragðið. Þetta er ekki eins ðskaplega erfitt við- fangs og sumir virðast haida. Eitt hrósyrðið leiðir af sér annað og fyrr en varir er svo komið, að bæði eru orðin svo örugg um sig, að þau geta farið að úthúða öðrum og þá er markinu náð. Robert Louis Stevenson sagði einhverju sinni, að allar samræður elskenda mætti stytta í þrjár setningar og þær harla stuttar, sem sé: „Ég er ég. Þú ert þú. Allir aðrir eru ómögulegir11. Og þetta er hreint ekki svo f jarri lagi — þó ég vilji að vísu gera eina undantekningu, þar sem eru vinir þeggja aðila. Fyrst í stað kunna þeir að valda einhverjum erfiðleikum og jafnvel vekja afbrýði- semi á stundum, en er frá líður verða vinir annars vinir hins og þá er hægt að tala fram og aftur um þá líka. En þess gerist kannski ekki einu sinni þörf. Það er lengi hægt að tala um sjálfan sig. „Ég er ég“, er dágott efni : framhaldssögu. Að vísu skirrist maður yfirleitt við að tala mikið um sjálfan sig, ýmist af meðfæddri hæversku, ótta við að verða til athlægis eða þeirri stöku tillitssemi við náungann að vilja ekki valda honum syfju sökum leiðinda. En þegar ástin er annars vegar þurfum við ekki að bera kvíðboga fyrir neinu slíku. Konan, sem elskar okkur, hefur að sjálfsögðu ekki á öðru meiri áhuga en einmitt á okkur og umburðarlyndi hennar eru tæpast nokkur takmörk sett — a.m.k. ekki til að byrja með. Hún hlustar á sömu sögurnar upp aftu; og aftur og hefur meira að segja ánægju af þeim hverju sinni, því alltaf finnur hún eitthvað nýtt og for- vitnilegt, annaðhvort í sögunni sjálfri eða frásagnar- mátanum eða einhverju öðru, sem kannski á ekkert skylt við söguna, en grípur hug hennar fanginn einmitt þessu sinni. Og þá er „þú ert þú“ ekki síðra umræðuefni. Það jafnast fátt á við að hljóta langþráða viðurkenningu, að heyra sjálfum sér sungið lof, finna einlægnina og hlýjuna í röddinni, sem slær okkur gullhamra, sjá sjálf okkur í nýju ljósi með augum þess er við elskum. Það er meira að segja hægt að koma við smávegis umvönd- unum eða gagnrýni, ef með þarf, koma á framfæri ein- hverju, sem okkur þykir ábótavant, þegar þannig stend- ur á, því ástin dregur fjöður yfir það allt saman og færir til betri vegar. Seint og um síðir, þegar svo er komið kynnum elskendanna, að þeim finnst þau hafa sagt hvort öðru allt og þekkja hvort annað út í yztu æsar, geta þau leyft sér þann munað á samverustundum, að segja hreint ekki neitt, láta hugsanirnar einar um að fylía kyrrláta þögnina þeirra í milli. En til þess að svo megi verða, má mikið vatn til sjávar renna og margar sólir upp rísa. Konur, ást og orð eiga saman langleiðina til þessarar seinunnu, indælu þagnar, sem sumir kynnast aldrei af eigin raun. Þeim er vorkunn, en þeir geta sjálfum sér um kennt, orðin eru öllum föl.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.