Morgunblaðið - 31.10.1965, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 31.10.1965, Qupperneq 16
16 MORGUNBLAÐIÐ Sunnudagur 31. október 1965 Ctgefandi: Framk væmdastj óri: Ritstjórar: Ritstjórnarfulltrúi: Auglýsingar: Ritstjórn: Auglýsingar og afgreiðsla: Askriftargjald kr. 90.00 1 lausasölu kr. Hf. Árvakur, Reykjavík. Sigfús Jónsson. Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Þorbjörn Guðmundsson. Árni Garðar Kristinsson. Aðalstrseti 6. Aðalstræti 6. Sími 22480. á mánuði innanlands. 5.00 eintakið. ISLAND OG EFTA Að undanförnu hefur staðið ** í Imatra í Finnlandi fund ur forsætisráðherra Norður- landa og forseta Norðurlanda- ráðs. A fundum þessum hafa að sjálfsögðu margvísleg mál- efni verið rædd, en sérstaka eftirtekt íslendinga á slíkum fundum munu vekja umræð- ur og upplýsingar, sem þar koma fram um þátttöku hinna - Norðurlandanna í Fríverzlun- arbandalagi Evrópu. Innan Fríverzlunarbanda- lagsins og innan Efnahags- bandalagsins er við margvís- leg vandamál að etja um þess- ar mundir. Innflutningsgjald- ið, sem verkamannaflokks- stjórn Wilsons setti á fyrir rúmu ári hefur valdið mikilli óánægju meðal annarra aðild- arríkja Fríverzlunarbanda- lagsins, en Bretar hafa nú heitið því að fella það niður áður en langt um líður. Inn- an Efnahagsbandalagsins hafa miklar deilur staðið milli Frakka annars vegar og hinna fimm aðildarríkjanna hinsveg ar, og enn er ekki Ijóst hvern- ig þeim deilumálum lyktar. Meðan þessi tvö bandalög eiga við margvísleg vandamál að etja er ekki líklegt að um- ræður um sameiningu þeirra komist á raunhæft stig. Miklu fremur má telja að ríki Frí- verzlunarbandalagsins stefni að því, að styrkja samtök sín svo sem þau mega, og öll eru > þau sammála um að samstarf innan Fríverzlunarbandalags- ins hafi verið þeim verulega hagkvæmt. Innan Fríverzlunarbanda- lagsins eru nú þær þjóðir, sem við höfum átt nánust sam- skipti við, og eru sumar hverjar meðal stærstu við- skiptaþjóða okkar. Óumdeilt er, að tollakerfi Fríverzlunar- bandalagsins er farið að valda okkur verulegum erfiðleikum. Margar framleiðsluvörur okk ar eru tollaðar hærra, en samskonar framleiðsluvörur Norðurlandaþjóðanna, og þar sem tollamismunurinn mun aukast jafnt og þétt, er fyrir- sjáanlegt að erfiðleikar okk- ar í þessu sambandi munu enn vaxa mikið. Því verður að telja tíma- bært, að íslendingar taki til gaumgæfilegrar athugunar afstöðu landsins til þeirra við skiptabandalaga, sem mynduð hafa verið í Evrópu, fyrst og fremst til þess að viðskipta- legir hagsmunir landsins verði tryggðir og að tollamis- munurinn hrekji íslenzkar framleiðsluvörur ekki út af gömlum og hefðbundnum mörkuðum okkar. Öll rök mæla með því að heppilegra sé að nálgast Frí- verzlunarbandalagið heldur en Efnahagsbandalagið. Bygg ist það bæði á því, að innan Fríverzlunarbandalagsins eru þær þjóðir, sem við höfum haft nánust og bezt samskipti við, bæði í viðskiptalegum efnum og á öðrum sviðum, og einnig á hinu, að uppbygging Fríverzlunarbandalagsins er með þeim hætti, að auðveld- ara er fyrir okkur að tengjast því. íslendingar verða að gæta þess að lenda ekki algjörlega fyrir utan þau tvö bandalög, sem myndazt hafa í Evrópu á síðustu árum. Það mundi hafa mjög alvarlegar afleiðingar í för með sér fyrir útflutnings- atvinnuvegi okkar, og þótt einhvers konar tengsl við Frí- verzlunarbandalagið kunni e. t.v. að hafa erfiðleika í för með sér fyrir vissar greinir íslenzks iðnaðar, er þess einnig' að gæta að aðild að Fríverzlunarbandalaginu gæti einnig orðið lyftistöng bæði gömlum og nýjum iðngrein- um. ÍÞRÖTTAMIÐ- STÖÐ íLAUGARDAL ÍZ appsafhlega er nú unnið að því að fullgera íþrótta- og sýningahöllina í Laugar- dal. Þegar hún verður tekin í notkun, mun gjörbreytast aðstaða til íþróttaiðkana inn- anhúss hér á landi, og hægt verður að stunda ýmsar þær innanhússíþróttir, sem ekki hefur verið aðstaða til hingað til. Þá er einnig fyrirhugað að vörusýningar verði haldnar í þessum miklu húsakynnum, og mun það einnig gjörbreyta viðhorfum iðnaðarins og ann- arra þeirra, sem áhuga hafa á vörusýningum hér á landi. Má t.d. búast við að ýmis er- lend fyrirtæki, sem viðskipti hafa við ísland, mundu hafa áhuga á að sýna vörur sínar hér í stærri stíl, þegar slík að- staða er fyrir hendi. Laugardalurinn er nú smátt og smátt að verða hin mikla íþróttamiðstöð höfuðborgar- innar, eins og fyrirhugað hef- ur verið, og vissulega hefur verið ánægjulegt að fylgjast með þeim framkvæmdum, sem þar hafa orðið, og sem skapað hafa íþróttafólki okk- ar allt aðra og betri aðstöðu til að stunda íþróttir, en það hefur fram til þessa haft. RHÖDESÍA TO7ilson, forsætisráðherra ** Breta, hefur að undan- Breytingar í finnsk- um stjórnmálum • 1 Finnlandi eru á döfinni ýmsar breytingar á sviði stjórnmálanna, sem Aeiga ef- laust eftir að auka á eftir- væiTitinguna um úrslit næstu kosninga þar í landi, sem fram eiga að fara eftir tæj>t ár. Ber þar hæst stofnun nýs frjálslynds stjórnmálaflokks, sem Samband frjálslyndra og Finnski þjóðarflokkurinn standa að £ sameinimgu. Fregnin um stofnun þessa flokks kom mjög á óvart í Finnlandi en talsmaður finnska þjóðarflokksins, Esa Kaitila, f jármál aráðherra, sagði, að hún væri til þess ætluð að draga úr klofningn- um í finnskum stjórnmálum. En jafnframt er Ijóst, að flokksstofnunin er mótleikur gegn þeirri ákvörðun Bænda- flokksins að breyta um nafn — heitir nú Vinstri — og miða stefnu sína í framtíðinni við að efla sem mest áhrif sín í þéttbýlinu. Á núverandi þingi hefur Finnski þjóðarflokkurinn 13 þingsæti og Samband frjáls- lyndra aðeins eitt, ér fékkst með samvinnu við Sameining arflokkinn, sem er hægri flokk ur. Er talið, að myndun nýja flokksins muni hafa í för með sér að það dragi úr fylgi hægri manna, — en haft er eftir talsmanni þeirra, að þeir telji flokksmyndunina engum breytingum valda á stjórn- málasviðinu. Jafnframt legg- ur flokkurinn áherzlu á, að hann sé jafnan reiðubúinn til samvinnu við flokkana tvo. Finnski þjóðarflokkurinn og flokkur frjálslyndra hafa báð- ir talið sig arftaka Þjóð-* lega framsóknarflokksins, sem leystist upp árið 1951. Þjóðar- flokkurinn tók við þingsætum gamla flokksins og tókst að auka fylgi sitt meðal mið- stéttanna (Framsóknarflokkur inn hafði- aðeins fimm þing- sæti, þegar hann var leystur upp). Þeir fylgismenn flokks- ins gamla, sem gátu sætt sig við stefnu hins nýja þjóðar- flokks, stóðu síðan að stofnun Sambands frjálslyndra, en það bauð ekki fram í kosningum fyrr en árið 1962. Leiðtogi þess hefur um árabil verið Teuvo Aura, aðalframkvæmda stjóri Póstsparibankans. Nýi flokkurinn verður ekki endanlega stofnaður fyrr í nóvemberlok, að afloknum la'ndsstjórnarfundum flokk- anna, sem að honum standa, þvf að fyrir þurfa að liggja flokkssamiþykktir beggja. Eng in hætta er talin á, að upp úr samningum slitni, því að mál- ið er sagt vel undirbúið — munu viðræður um það hafa staðið yfir frá því snemma sL vor. Er talið næsta víst, að formaður nýja flokksins verði Mikko Juva. prófessor í kirkju sögu, og varaformenn Kaitila og Aura. Sem fyrr segir getur nýi flokkurinn talið sér næsta ör- ugg fjórtán þingsæti í kosn- ingum. Hinsvegar benda leið- togar flokkanna á, að atkvæða fylgi þeirra hefur farið vax- andi undanfarið. Hefur það komið fram { bæja- og sveita- stjórnarkosningum, sem haldn ar hafa verið frá síðustu þing- kosningtfm. Sem dæmi er nefnt, að frjálslyndir fengu aðeins 12 þúsund atkvæði árið 1962 en 27 þúsund atkvæði í síðustu bæja- sveitastjórnar- kosningunum. Dagblöðin finnsku ræða að sjálfsögðu mikið um þessar breytingar og eru öll sam- mála um, að nafn- og stefnu- breyting Bændaflokksins sé meginástæða flokksmyndunar innar. „Helsingin Sanomat", sem er óháð, skrifar, að varla hefði orðið nokkuð úr flokks- stofnuninni hefði Bændaflokk urinn ekki ákveðið að beita öllum ráðum til þess að fjölga flokksfélögum sínum og kjós- endum í þéttbýlinu og auka áhrif sfn meðal almennra launþega. Málgagn Bændaflokksins „Suomenmaa" skrifar, að ótt- inn við að stefna Bænda- flokksins kynni að skerða kjörfylgi Þjóðarflokksins hafi leitt til myndunar nýja flokks ins. Bætir blaðið því við, að sízt bæri þó að harma þótt fylgi flokksins minnkaði — það yrði þjóðinni eflaust til blessunar. Á hinn bóginn geti hinn nýi flokkur orðið til góðs, svo framarlega sem hann verði í raun og veru frjálslyndur, en láti ekki hægri öfl frjálslynda flokks- ins ráða of miklu um stefn- una. Hægri blaðið „UUsi Suomi“ segir, að ákvörðunin um flokksmyndunina hafi komið mjög á óvart, — ekki aðeins flokkunum, sem utan hennar standa, heldur einnig innan hinna flokkanna tveggja, m.a. hafi einn þingmanna þjóðar- flokksins ekki vitað, hvað til stóð fyrr en rétt áður en mál- ið var opinbert. Loks segir Huvudsstads- bladet“, að gengi hins nýja flokks muni fyrst og fremst byggjast á því, að hve miklu leyti hann reynist nýr flokk- ur — til þessa hafi „frjáls- lyndið" verið að heita má heimilislaust í finnskum stjórnmálum og þvf verði fylgzt af eftirvæntingu með þessari breytingu og stefnu flokksins í framtíðinni. BRIDGE LEIKURINN milli Finnlands og Svíþjóðar í opna flokknum I Evrópumótinu var mjög spenn- andi og skemmtilegur. í hálfleik var staðan 69:41 fyrir finnsku sveitina og leiknum lauk með finnsku sigri 83:60 eða 6—0. Hér kemur skemmtilegt spil frá þessu leik. Norður A — ¥ Á 10 8 6 ♦ K D G 10 9 « 9 7 5 3 Vestur A G 10 9 6 5 4 ¥ 4 3 ♦ 5 4 2 «84 Austur ♦ « K D 8 7 3 2 K G 7 5 2 7 6 Suður « Á ¥ D 9 ♦ Á 8 3“ * Á K D G 10 6 2 Þar sem sænsku spilarnir sátu N.—S. gegnu sagnir þannig: Suður Vestur Norður Austur 2 Lauf Pass 2 Grönd4 Spaðar 6 Lauf 6 Spaðar7 Lauf Pass Pass 7 SpaðarPass Pass 7 GröndPass Pass Pass Sænsku spilararnir áttu ekki í erfiðleikum með að vinna 7 grönd þar sem að minnsta kosti 14 slagir standa í háspilum. Finnsku spilararnir á hinu borðinu komust einnig í al- slemmu og gengu sagnir þánnig: Suður Vestur Norður Austur 1 Lauf Pass 1 Tígull 1 Spaði 3 Grönd4 Spaðar6 Lauf 6 Spaðar 7 Lauf 7 SpaðarDobl Pass 7 GröndPass Pass Pass Árangur varð sá sami á báðum borðum. en ekki er hægt að segja annað en sagnir séu hressilegar. förnu dvalizt í Rhódesíu, og reynt að finna lausn á deilu- málum Rhódesíu og Stóra- Bretlands. Samkomulag hefur tekizt um skipun þriggja manna nefndar til þess að fjalla um málið og hefur þar með tekizt að vinna dýrmæt- an tíma. En greinilegt er, að Rhó- desíumálið er eitt alvarleg- asta deilumál sem nú er við að etja, og erfitt er að gera sér grein fyrir afleiðingum þess, ef Rhódesíustjórn lýsir yfir sjálfstæði landsins án samþykkis Breta. Leiðtogar ýmissa Afríku- ríkja hafa haft við orð að senda her til Rhódesíu ef lýst verðúr yfir sjálfstæði lands- ins án þess að réttindi blökku- manna þar verði tryggð, og ýmsar efnahagslegar og póli- tískar refsiaðgerðir hafa ver- ið boðaðar gagnvart Rhódesíu stjórn. Bretum hefur tekizt ótrú- lega vel að leysa upp hið mikla nýlenduveldi sitt, og yfirleitt hafa þeir haft náin tengsl við fyrri nýlendur sín- ar, eftir að þær hafa fengið sjálfstæði. Það er óneitanlega hlálegt að það skuli vera hvít- ir menn í Afríku, sem nú valda Bretum mestum erfið- leikum við að losa þá við síð- ustu leifar nýlenduveldisins, en eins og málum er háttað nú, verður ekki við það unað, að fámennur hvítur minni- hluti í Rhódesíu virði rétt- indi hins blakka meirihlúta að engu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.