Morgunblaðið - 07.11.1965, Side 17

Morgunblaðið - 07.11.1965, Side 17
Sunnuðagur 7. nóv. 1965 MOkGUNBLAÐIÐ I t „Merkasti kennari oj> \ísindamaður við læknadeild*’ Prófessor Níels Dungals hef- ur verið minnzt svo rækilega og lofsamlega í blöðum nú við and- lát hans, að þar verður ekiki um bætt. Dr. Tómas ifelgason, nú- verandi forseti læknadeildar, sem er allra manna dóimbærast- ur um þessi efni, segir í minn- ingargrein hér í blaðlnu: „Og nú er hann látinn, þessi svipmikli og merkasti keni ari og vísindamaður, sem starfað hefur við læknadeild Háskóla íslands“. Með þessu er mikið sagt, svo margir ágætir menn sem við iæknadeildina hafa starfað. Prófessor Dungal var ekki einungis svipmikill og merkur kennari og vísindamaður, heldur meiri fjársýslumaður, háskólan- unum, þegar Tíminn taldi hinn nýja forsætisraðherra Noregs, Per Borten, vera Framsóknar- mann, af því að hann hefði breytt „íhaldssömum bændaflokki" í víð sýnan framsóknarflokk. Aðalaf- rek Bortens er það, að hann hef- ur leitt flokk sinn úr einangrun til þátttöku í borgaralegu sam- starfi, þar sem íhaldsflokkurinn norski, hægri flokkurinn, er sterkasta aflið. E.t.v. er hér þó ekkert gaman á ferðum heldur kemur Tíminn hér upp um æðstu hugsjón sína og Eysteins Jónsson ar, sem sagt þá, að forða Fram- sókn úr núverandi einangrun með því að knýja Sjálfstæðis- flokkinn til stjórnarsamvinnu við Framsókn. Allar skammirnar um „íhaldið" miði í raun og veru að því, að fá mennina, sem 1958 var fagnandi lýst yfir, að búið væri að „setja til hliðar“, til að taka upp samvinnu við Framsóknar- flokkinn! Stórlep;a drep;ið úr verðbólguvexti um til hags, en flestir eða allir Þyrill í HvalfirðL Ljosm. Ól. K. M. REYKJAVÍKURBRÉF Laugard 6. nóv. starfsbræður hans við þá stofn- un. Við upphaf styrjaldarinnar 1989 sá hann mann fyrstur fram á, að henni munidd fylgja verð- fall peninga, og beitti sér þess vegna fyrir könnun á því, hvern- ig koma mætti sjóðum háskólans í öruggari verðmæti. Sú athugun leididi ti'l stofnunar Háskólabíós, sem a.m.k. lengi vel reyndist háskólanum mjög arðbært. Eins Og af þessu sézt og raunar al- kunnugt er, batt Níels Dungal huga sinn aldrei eingöngu við sérfræði sína, þó að hann kæmist þar lengra en nokkur annar samtímamaður hans hérlendis. Á ferðum sínum erlendis fylgdist hann einnig vel með almennri atburðarás og gerði sér, a.m.k. einu sinni eftir slíka ferð, það ómak, að ganga á fund ráðherra til að vekja athygli hans á hversu þeir, er hann hafði hitt, hefðu óttazt, að til nýs ófriðar kynni að draga, og hversu gagngerðar varúðarráðstafanir væru í fram- kvæmd þar, sem hann hafði far- ið. Níels Dungal var maður sí- vakandi og vildi ætíð láta skyn- semd sína verða íslandi til góðs. Erlingur átti hug- myndina að íþr óttamann virk j - um í Laugardal Fáir starfa að staðaldri jafnt I almenningsaugsýn og lögreglu- menn. I>eir eru þess vegna mjög háðir gagnrýni, eru ýtnist sak- •ðir um óhóflega afskiptasemi eða aðgerðaleysi. Erlingur Páls- son hefur nú nokkuð á fimmta áratug verið yfirlögregiuþjónn í ört vaxandii höfuðborg íslands. Á þessum árum hefur hann þurft að leysa óteljandi vandamál, og, í bókstaflegum skilningi, átt í höggi við fleiri, en í fljótu bragði verði tölu á komið. Engu að síð- ur er Eriingur fiestum mönnum vinsælli hér í borg. Yfirgnæfandi meirihluti borgaranna veit, að hann hefur leyzt farsællega þann vanda, sem á hann hefur lagzt, og miklu fleiri hafa notið verndar hans heldur en hinir, sem hann hefur þurft að beita valdi við. Erfitt hefur verið að' bregðazt rétt við öllum breyting- um, sem orðið hafa á þessum mesta breytingatíma í sögu ís- lendinga. Svo vel sem til hefur tekizt, hefði þess vegna mátt ætla, að Erlingi gæfist ekki tími til að sinna öðru en sínu eigin- lega Skyldustarfi. Saimleikurinn er samt sá, að nafn hans mun lifa í sögunni fyrir önnur afrek. — Einkum fyrir hugmynd hans um að gera Laugardalinn að íþróttamiðstöð í borginni. Sú hugmynd Erlings er nú þegar að verulegu leyti orðin að veruleika. Á næstu misserum verður hún fullkomnuð með opnun nýrrar sundiaugar og mikils íþrótta- og sýningarskála. Ekki marp;ra mairna maki Öðrum blöðum verður tíðrætt um Reykjavíkurbréf og höfund þess. Vissa þeirra um hinn ímyndaða höfund er svo mikil, að engu breytir þó að hann sé staddur austur í Finnlandi, Reykjavíkurbréfið er engu að síður honum eignað. Tíminn og Dagur láta sér m.a.s, ekki þetta nægja, heldur hafa nýlega bætt því við, að forsætisráðherra skrifi Staksteina Morgunblaðsins, og telja skoðanir þær, sem þar eru settar fram tvímælalaust vera hans kenningar. Ef Bjarni Bene- diktsson samhliða embættis- störfum sínum skrifaði allt það, sem með þessu móti er honum eignað, væri hann vissulega margra manina maki. Fjarri fer, að svo sé. Hið rétta er, að það, sem nafnlaust er skrifað í blöð, hvort heldur Morguntolaðið eða önnur, er skrifað á ábyrgð rit- stjóra. Eftir atvikum fer, hvort þeir skrifa það sjálfir eða ein- hverjir aðrir gera það. I>að er engu að síður gert á ábyrgð rit- stjóranna. Þetta er sagt til leið- beiningar, af því að ætla má að flestir vilji hafa það, sem sann- ara reynist, en ekki af því að vit- að sé um neitt ósamþykki milli höfunda Reykjavíkurbréfs og Staksteina — hverjir, sem þeir eru hverju sinni. Uppþotið út af vep;askattinum Eitt af því, sem menn munu lengi eiga eftir að fura sig mjög á, er uppþotið út af vegaskattinum. Skoplegt er að sjá, hvernig sum- ir, sem skattinum voru áður eindregið fylgjandi og þora ekki vegna eftirtímans að snúast al- veg gegn honum, reyna nú að velta ábyrgðinni yfir á aðra. Þeir, sem svo fara að, hafa ber- sýnilega ekki það þolgæði, sem gerir þá traustsverða. Með þessu er engan veginn sagt, að fyrir- komulag skattheimtunnar eða hæð hennar sé komið í fast og endanlegt horf. Hér er um ný- mæli að ræða, sem auðvitað þarf endurskoðunar við eftir því, er reynsla segir til um. Einmitt þess vegna ætlaðist Allþingi til þess, að ríkisstjórnin fengi ákvörðunarvaldið. Of svifamikið væri fyrir Alþingi sjálft að kveða hér á um. Fróðlegt er að bera uppþotið hér saman við það, sem nú er mikið skrifað um í Bretlandi. Þar þykir vegakerfið með öllu ófullnægjandi fyrir hina miklu umferð, enda eru daglegar um- ferðatafir ótrúlega miklar. — Brezka ríkisstjórnin segist ekki hafa fé til nauðsynlegra umfoóta, en stjórnarandstæðingar benda á handtækt ráð, sem hvarvetna hafi gefizt vel, þ.e. vegaskatt. f einu fjöllesnasta blaði í London var t.d. nýlega birt bréf frá les- anda, sem gerði tillögu um fjölgun ráðuneyta og sagði, að enn skorti eitt ráðuneyti, þ. e. „ráðuneyti heilbrigðrar skyn- semi“. Ef slíku ráðuneyti væri fcomið á, mundi meðal fyrstu verkefna þess vera að stöðva álestur og innheimtu rafmaigns og gas, hvors í sínu lagi, og koma á vegaskatti! Viðfangsefnin hvarvetna lík Þó að sinn sé siður í landi hverju, þá eru viðfangsefnin víð- ast ótrúlega lík. Hvarvetna geng- ur illa að forðast verðhækkanir og halda réttu hlutfalli á milli kaupgjalds og verðlags. í Finn- landi horfði fyrir skemmstu til stórdeilna milli atvinnurekenda og launþega af þessum sökum. í Danmörku gekk ekki saman á milli hóps yfirmanna á farskip- um og útgerðarmanna. Sáttatil- laga var gerð og hún samþykkt af launþegum, en felld t einu hljóði eða því sem næst af út- gerðarmönnum. Alþýðuflokks- stjórnin danska vildi þá knýja fram lögfestingu á sáttatillög- unni. Borgaraflokkarnir neituðu henni algerlega en kváðust geta fallizt á gerðardóm. Verkalýðs- hreyfingin danska, sem ríkis- stjórnin styðzt mjög við er gerðar dómum andvíg. Þó lét ríkis'stjórn in strax í minni pokann og varð við kröfu borgaraflokkanna um lögfestingu gerðardóms. Vilja þeir hlíta fordæmi Breta í Bretlandi er stöðug kröfu- gerð verkalýðsfélaga, hvers á fæt ur öðru, um kauphækkanir um- fram það, sem ríkisstjórnin telur samrýmast viðleitni til að tryggja óbreytt gengi pundsins. Áskoran- ir hennar um að gæta hófs í kröfugerð hafa borið nokkurn ár- angur, en engan veginn svo mik- inn, að fullnægjandi sé talið. Þess vegna hefur verið boðuð löggjöf, sem á að draga úr óhóflegri kröfu gerð eða a.m.k. gefa nægan tíma til, að aðilar geti áttað sig á að- stæðum, svo að ekki sé flanað í verkföll að ófyrirsynju. Fyrir okkur íslendinga er fróðlegt að fylgjast með því hvað ofan á verður í þessum efnum. Lær- dómsríkt er að sjá hvort „vinstri menn“ hér vilja í þessu taka sér „vinstri stjórnina" brezku til fyrirmyndar. „Framsókn tapaði New York“ Þegar úrslitin í borgarstjórnar- kosningunum i New York voru orðin kunn, varð gamansömum manni að orði: „Framsókn tapaði í New York“. Það er að vonum að menn hafi það að háði og spotti, hvern- ig Framsóknarmenn tileinka sér flesta þá, sem ofan á verða víða um lönd. Engum skyldi þess vegna koma á óvart, þó að af- staða Framsóknar til demókrata í New York færi nú að verða nokkuð tvíátta. Það kæmi á dag- inn áður en langtum líður, að hinn nýi borgarstjóri sé í raun og veru Framsóknarmaður! Ekki var síður skoplegt að sjá á dög- Eitt af þvi, sem að dómi stjórn- arandstæðinga á að sýna ófarnað í tíð núverandi ríkisstjórnar, er það, að á valdadögum hennar hafi verðbólgan vaxið meira en nokkru sinni áður. Ríkisstjórnin hefur aldrei mælt á móti því, heldur sjálf marglýst yfir því, að henni hafi ekki tekizt að stöðva verðbólguvöxtinn sem skyldi, og skorað á öll þjóðholl öfl um að leggjast með henni á eitt um lækning þess meins. Þó að betur megi gera en enn hefur tekizt, þá er fráleitt að telja það til sönn unar mistaka ríkisstjórnarinnar, að á valdatíma hennar hafi verð- bólga vaxið meira en á valda- tíma fyrri stjórna. Þessi ríkis- stjórn hefur setið miklu lengur að völdum en nokkur önnur á landinu. Að sjálfsögðu verður að taka tillit til þess þegar um þessi efni er dæmt. Ekki tjáir að bera saman fjölda vísitölustiga, því að gildi þeirra minnkar eftir því, sem fjöldinn eykst, heldur miða við aukningu hundraðshl. Þegar þetta er gert og rétt reiknað, þá verður Ijóst, að verðbólgan hefur í tíð núverandi stjórnarflokka vaxið mun minna að meðaltali á ári, en á því tímabili, sem Fram- sóknarflokkurinn var samfleytt í stjórn. Það eru þess vegna síður en svo líkur til þess, að endur- koma Framsóknar í valdastólana mundi gera hægara um vik í þess um efnum. Það, setn á þarf að halda er malefnalegt samstarf milli ríkisvalds, ríkisstjórnar og Alþingis og helztu almannasam- taka. Núverandi ríkisstjórn hefur einmitt tekizt betur en áður — þó að enn betur mætti takast — af því, að hún hefur lagt áherzlu á að ná slíku málefnasamstarfi, en ekki hirt um pólitískt sam- starf á slíkum óheilindagrund- velli, sem vinstri stjórnin var reist á og til allsherjarógæfu leiddi. Engum á óvart Reynt var að láta menn bíða í ofvæni eftir yfirlýsingu de Gaulle Frakklandsforseta um framboð hans til forsetadæmis að nýju. Yfirlýsingin mun þó hafa komið fáum eða engum á óvart. Fyrir löngu var ljóst, að de Gaulle hafði engan hug á því að sleppa völdum sínum. Enginn efi er á því, að de Gaulle er mikill og merkilegur maður. Allar líkur benda þó til þess, að hann reisi sér hurðarás um öxl, ef hann ætlar að splundra Atlantshafs- bandalaginu. Utan Frakklanis gera allir sér grein fyrir, að Frakkar biðu ósigur í síðari heimsstyrjöldinni, og fáir eða engir telja styrk þeirra nægan til þess, að tryggja áframhald- andi frið. Atlantshdfsbandalagið hefur reynzt vel, svo vel, að meira en lítið þarf að breytast til þess að þeir, sem notið hafa friðar í skjóli þess, vilji eiga Und- ir óvissunni sem skapazt hlyti, ef það væri úr sögunni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.