Morgunblaðið - 07.11.1965, Qupperneq 23
Sunnudagur T. n<5Y. 1965
MORGUNBLAÐIÐ
GuBmundur Guð-
laugsson Minning
GUÐMUNDUR fæddist 2. dag
septembermánaðar 1898 að I>óru-
koti í Selvogi, og voru foreldr-
ar hans Guðrún Guðmundsdótt-
ir og Guðlaugur Hannesson. And
lát Guðmundar bar að sunnudag
inn 31. okt, eftir erfiða legu á
ILandsspítalanum, og verður út-
tför hans gerð á morgun, mánu-
daginn 8. nóvember. Systkinin
voru alls tíu, og kann sá er þetta
ritar ekki að nefna þau öll, en
af þeim eru nú sex á lífi.
Á æskuárunum stundaði Guð
mundur sjómennsku, fyrst á
róðrarbátum, en síðar á þilskip-
um og togurum. Árið 1924 fiutt-
ist hann tii Reykjavíkur og réðst
þá að stórbúinu Austurhlíð, sem
Carl Olsen rak á þeim tíma, en
í mar2anánuði 1926 gerðist hann
starfsmaður hjá Nathan & OLsen
og var það síðan til dauðadags.
Þann 21. desember 1933 kvænt
ist Guðmundur eftirlifandi konu
sinni Guðfinnu Guðmundsdóttur,
ættaðri frá Kambi í Holtum, Og
varð þeim þriggja barna auðið.
Þau eru Guðmundur Jóhann,
skólastjóri, kvæntur spænskri
konu Önnu Maríu, og var dóttir
þeirra Rósa, séstaklega handgeng
in og hjartfólgin afa sínum. Ann-
ar sonur þeirra Guðmundar og
Guðfinnu er Guðlaugur Rúnar,
cand. mag., en yngst þeirra syst-
kina er Guðfinna Inga, kennarL
Þetta er í stuttu máli lifsferill
Guðmundar, en línur þessar eru
einkum ætlaðar til þess að minn
ast starfa hans hjá Nathan &
Olsen í nær 40 ár, en þau leysti
hann öll með slíkri trúmennsku
og ósérplægni að dæmafátt mun
vera, óg fyrir þau færi ég hon-
um mínar innilegustu þakkir, svo
og móður minnar, systkina og
fyrri stjórnenda, en svo má heita
að „Gumrni", eins og hann var
jafnan kallaður, hafi verið snar
þáttur I lífi okkar allra. Mörg
voru erindin, sem hann rak fyrir
okkur og aðra og var þá aldrei
litið á klukkuna eða spurt hvað
deginum liði.
Slík var öll breytni hans Og
framkoma, að hljóti hann ekki
vist á betri staðnum, sem svo
er kallaður, hefi ég ekki trú á
að þar séu þéttsetnir bekkir,
enda er ég viss um að engan
óvildarmann hefur hann átt.
Við samverkamenn Guðmund-
ar, sem margir hverjir hafa átt
samleið með honum í 30—40 ár,
sendum konu hans og afkomend
um samúðarkveðjur, Og minn-
umst hans sem fágæts drengs og
vinnufélaga.
Hilmar Fenger.
Blaðburðarlólk vantar í eftirtalin hverfi:
Skerjaí sunnan Túngata
flugvallar Tjarnargata
Lindargata Suðurlandsbraut
Laufásv. IL Óðinsgata
Snorrabr. frá 61-87 Kirkjuteigur
Lambastaðahv. Skólavörðustígur
Laugarásvegur Leifsgata Barónsstígur
P)íra*i0jjítí>Tííí>ití
SÍMI 22 - o 00 1 i
TEIKNIVÉLAR og
ÁRITARAR
Af ófyrirsjáanlegum ástæðum verður áður auglýstri
sýningu á Gritzner teiknivélum og áriturum, sem
fram átti að fara 9. nóvember nk. að Klapparstíg 17,
frestað um óákveðinn tíma.
NÁNAR AUGLÝST SÍÐAR.
OTTO A. MICHELSEN HF.
Klapparstíg 25—27. — Sími 20560.
F.U.S. ARNESSÝSLU:
NÁHSKEII) IIM MBUMENNSkU OC FUNUAIiSklll'
hefst á vegum FUS, Árnessýslu í Landsbankasalnum á Selfossi
í dag, sunnudag kl. 15.00.
Sunnudagur 7. nóv.
1. INGÓLFUR JÓNSSON, landbúnaðarráðherra
flytur ræðu.
2. MAGNÚS ÓSKARSSON, hrl. flytur erindi
um FUNDARSKÖP.
3. KVIKMYNDASÝNING.
Laugardagur 13. nóv. kl. 14
1. MAGNÚS JÓNSSON, fjármálaráðherra flytur
erindium RÆÐUMENNSKU.
2. UMRÆÐUM STJÓRNAR
MAGNÚS ÓSKARSSON, HRL.
AÐRIR FUNDIR Á NÁMSKEIÐINU VERÐA BOÐAÐIR SÍÐAR. ' -
Ingólfur Jónsson Magnús Jónsson ; l Magnús Óskarsson
oY ftrömborq At>
Heildsölubirgðir:
Rafmótorar
Strömberg-rafmót-
orar, vatnsþéttir
ávalt fyrirliggjandi,
0,25—11 kw.
Lægsta fáanlegt
verð.
Hannes Þorsteinsson, heildverzlun
Hallveigarstíg 10. — Sími 2-44-55.
Verzlunarhúsnœði
Húsnæði, sem nota má til verzlunar- eða iðnaðar
er til leigu, hornlóð á hitaveitusvæði í Vesturborg
inni. Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir nk. mánudags-
kvöld, merkt: „Verzlunarhúsnæði — 2775“.
ESWA - rafmagnshitun
E S W A - umboðið
Víðihvammi 36, sími 4 13 75.
Speglar — Speglar
— fyrirliggjandi —
SPEGLAR í fjölbreyttara
úrvali en áður hefir sézt.
Verð og gæði við allra hæfi.
LUDVIG
STORR
SPEGLABUÐIN
Sími 1-9*635.