Morgunblaðið - 13.11.1965, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Laugardagur 13. nóv. 1965
Fjársöfnun HGH
gengur mjög vel
FJÁÍtSöFNUN Herferðar gegn
hungri hefur farið fram á Eski-
firði, en þar sofnuðst alls kr.
71.380, þar af kr. 40.380, frá ein-
staklingum, en kr. 31.000 frá fé-
lögum og fyrirtækjum. Sam-
kvæmt framkomnum tölum er
Eskifjörður nú hæsti söfnunar-
staður á landinu m.v. fólks-
fjölda, en íbúataian þar er 860-
Fjársöfnun HGH fer fram á
» eftirtöldum stöðum um eða upp
; úr næstu helgi: Reyðarfjörður,
j Seyðisfjörður, Neskaupstaður,
Húsavík, Hveragerði, Akranes,
Borgarnes.
Telpur í 6. bekk C í Laugar-
nesskóla hafa hlutaveltu til á-
góða fyrir HGH í skólanum n.k.
sunnudag. Verzlanir og fleiri að-
ilar hafa lagt muni til hluta-
veltunnar, sem hefst kl. 2. —
Kvennaskólastúlkur í Rvík héldu
bögglauppboð í þessari viku og
færðu HGH ágóðann, kr. 13.235.
Stúlkurnar gáfu sjálfar innihald
böglanna. — Börn í Breiðagerðis
skóla (5 G) færðu HGH kr.
2.305; starfsfólk við byggingu
Kolviðarnesskóla á Snæfellsnesi
sendi kr. 15.200; Veitingahúsið
Röðull og starfsfólk þess krónur
20.000; starfsstúlkur í mötuneyti
Skógaskóla kr. 1500; æfingadeild
Kennaraskólans kr. 1.200; kenn-
arar og nemendur gagnfræða-
skólans í Kópavogi um 3000 kr.
innkomið á knattspyrnukappleik
til ágóða fyrir HGH.
Vorbiðofiudar d
mónudogskvöld
HAFNARFIRÐI. — Næstkom-
andi mánudagskvöld heldur Sjálf
stæðiskvennafélagid Vorboðinn
fund í Sjálfstæðishúsinu og hefst
hann kl. 8,30. Á fundinum flyt-
ur frú Ragnhildur Helgadóttxr,
formaður landssambands Sjálf-
stæðiskvenna, ræðu og sýnd
verður fræðslumynd um fryst-
ingu matvæla. Frú Sigríður
Haraldsdóttir húsmæðrakexmari
skýrir myndina.
Félagskonur eru hvattar til að
fjölmenn og taka með sér
gesti.
Vurðbergsiund-
ur í dug
FRSTI hádegisfundur Varð-
bergs og Samtaka um vestræna
sámvinnu á þessum vetri ve.rður
haldinn í Þjóðleikhúskjallaran-
um í dag og hefst hann kl. 12:30.
Á fundinum mun Niels P. Sig
urðsson, deildarstjóri í utanrik-
Ísráðuneytinu, segja frá störfum
20. állsherjárþings Sameinuðu
þjóðanna, serh nú stendur yfir.
Skátamessa
KLUKKAN 11 í fyrramálið
(sunnudag) verður skátaméssa
í Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði í
tilefni skátadags hjá hafnfirzk-
,um skátum . Munu skátarnir
, annast messuna að öllu leyti en
því, að sóknarpresturinn séra
Garðar Þorsteinsson prófastur,
þjónar fyrir altari. — Stóræð-
una flytur Hörður Zóphaníasson Fyrsti 7 ára bekkurinn gengur
skátaforingi. ’ skólann.
Kristján Sigtryggsson, yfirkennari og Ragnar Júlíusson, skólastjóri Áiftamýrarskóla, taka á
móti fyrstu nomendunum í hinn nýja Hvassaieitisskóla.
Hvassa-
börnin í hverfinu, sem í vet-
ur fá kennslu í nýja skóla-
húsinu, enda mest aðkallandi
að færa þau nær. Voru inn-
réttaðar 3 kennslustofur til
bráðabirgða á efri hæð nýja
skólahússins. En allur skólinn
á að verða tilbúinn til notk-
unar næsta haust. Þá verða í
honum 7 kennslustofur.
Skólahverfi þetta nær frá
Kringlumýrarbraut að vestan,
norður að Miklubraut og aust
ur að Grensásbraut. Sækja
eldri börnin í vetur áfratn
Hlíðarskóla og Breiðagerðis-
skóla. Starfslið í Hvassaleitis-
skólanum í vetur eru 6 kenn
arar, auk yfirkennarans.
Byrjað að kenna í
leitisskólanum
7 og 8 ára börnín komin þangað
1 GÆR var í fyrsta skipti
kennt í hinum nýja Hvassa-
leitisskóla í Reykjavík. En
skólinn verður í vetur rekinn
sem útibú frá Álftamýrar-
skóla og hefur Kristján Sig-
tryggsson, yfirkennari, um-
sjón þar.
í skólanum verða í vetur
163 nemendur í 6 bekkjar-
deildum. Það eru 7 og 8 ára
HITI var um frostmark á
Norðurlöndum í gær. í allri
Vestur-Evrópu streymdi fram
kalt loft frá víðáttum Rúss-
lands.
Hjá okkur var hins vegar -
mild austlæg átt sunnanlands
en sums staðar vægt frost á
Norðurlandi, enda stilLt og
bjart.
Veðurhorfnr í gærkvöldi:
Suðvesturxnfð: Allhvass A,
skúrir. SuðvestUrland ög Fdxa
flóamið: A-stihhingskáldi, víð
ast úfkomuláust. Faxaflói,
Brei'ðafjöfðuf og miðin: Aust-
an gola eða kaldi, léttskýjað.
Vestfarða- og Norðurmið: A-
goia og síðan NA-kaldi, skýj-
að. Vestfirðir til Austfjarða
og Norðausturmið: Hægviðri,
léttskýjað. Suðausturland,
Austfirðir og austurdjúp: A-
gola eða kaldi, víðast skýjað.
Suðausturmið: A-stinhíngs-
kaldi, skúrir.
Veðurhorfur á sunnudag:
Austlæg átt og heldur kald-
ara í veðri, bjart vestan lands,
skúrir við Suður- og Austur-
ströndina. en ól á annesjum
fyrir norðan. . ■
ásamt kennslukonu sinni inn í
Sýninga
Hnrðnr að ljúkn
SÝNING Harðar Ágústssonar,
listmálara, í Bogasal Þjóðminja-
safnsins hefur nú staðið í viku.
Hefur aðsókn verið góð og 16
myndir sélzt.
Sýningunni lýkur á sunnudags
kvöld, svo nú eru síðustu forvöð
að sjá hana. í þetta sinn sýnir
Hörður emgöngu teikningar, 39
talsins. Sýningin er opin kl.
14r—22 e.h.
Merkir íslendingar
Nýtt blndl komlð úf
ÚT er komið fjórða bindið af
nýjúm flokki Merkrd' íslend-
inga. Jón Guðnason, skj'alavörð-
ur, bjó það til préntunar. Hann
segir m. a. 1 formála:
„Ævisögur í þessu bindi eru
tólf að tölu eins og verið hefir
í hveru hinna fyrri binda.
Fyrsta ævisagan bregður Ijósi
yfir 11. — 12. öld sögu vorrar.
Sú sem er önnur í röðinni fjall
ar um örlög og fræðslustörf á
17. og 18. öld. Næstu fjórir
menn, sem um er ritað, teljast
til 19. aldar, að því ógleymdu,
að einn þeirra, listaskáldið góða,
mun lifa í vitund þjóðar sinnar
um aldir. Þeir sex, sem þar á
eftir koma, mega kallast alda-
mótamenn, því að á þeim tíma-
mótum voru þeir allir á bezta
skeiði, hinir elztu um fertugt,
sá yngsti innan við þrítugt. Er
vart ofmælt, að í ævisögum
þeirra birtist oss merkir þættir
þjóðarsögu vorrar á fyrri hluta
þessarar aldar.“
Ævisögurnar eru þessar: Jón
Ógmundsson helgi, biskup á
Hólum, eftir Jón Helgason, Þor-
móður Torfason sagnritari, eftir
Halldór Hermannsson, Jónas
Hallgrímssón skáld, eftir Hannes
Hafstein, Oddgeir Stephensen
stjórnardeildarforseti, eftir Jón
Þorkelsson, Skúli Gíslason
prófastur á Breiðabólsstað, eftir
Jón Helgason, Gunnar Gunnars
son prófastur á Svalbarði, eftir
Björn Halldórsson, Jón Þorkels-
son þjóðs.kjálavörður eftir
Hannes Þorsteinsson, Þorvaldur
Jakobsson prestur í Sauðlauks-
dal, eftir Lúðvík Kristjánsson,
Jón Helgason biskup, eftir Eirík
VörasýaUg
ó véluira
og verkfæram
FJÓRÐA' vörusýningin á vélum
og verkfærum verður haldiiti í
Palais de la Defense' i París dag-
ana 15,—24, apríl 1966. Þar verð
ur til sýnis 550 þús. ferfeta
svæði framleiðsla yfir þúsund
fyrirtækja í 20 löndum, en þau
eru: Austurríki, Belgía, Banda-
ríkin, Danmörk, Frakkíand, Hol
land, ítalía, Júgóslavía, Kanada,
Noregur, Pólland, Rússlahd,
Spánn Svfþóð, SvisS, Stora-Bret
láhd, Þýzkalánd, Ungveralandl
Albertsson, Guðmundur Hahnea
son prófessor, éftir Niels Dun-
gal, Þorst'einn Gíslason ritstjóri,
eftir Alexander Jóhannessort: og
Björn Bjarnason frá Viðfirði,
eftir Guðmund Finnbogason.
Bókin er 336 bls. að stærð £
vandaðri útgáfu. Útgefandi er
Bókfellsútgáfan.
Hreppsljórar
mótmæk
ÍMBL HEFUR borizt eftirfarandi
afrit af bréfi til dómsmálaráðu-
neytisins til birtingar:
Við undirritaðir hreppstjórár j
Gullbringusýslu, mótmælum' éin
dregið veitingu sýslumannsem-
bættisins í Gullbringu- og Kjós-
arsýslu og bæjarfógetaembættis-
ins í HafnarfirðL
Bjcrn Sveinbjörnsson hefir ver
ið i þjónustu embættisins í 20
ár, og gengt því, sem settur sýslu
maður í níu og hálft ár hinn 1.
marz nk.
Að okkar áliti hefir hann gegnt
embættinu með sérstakri sam-
vizkusemi, lipurð og réttsýni og
því ósæmilegt að vísa svo gþð-
um dreng og ágætum embættis-
manm burt úr starfi eftir svo
langan og mistakalausan embætt
isferil.
11. nóvember 1905.
(Sign)
Guðsteinn Einarsson,
Grxndavíkurhreppi;
Hinrik ívarssou,
Haínahreppi;
Gunnlaugur Jósefsson,
Miðneshreppi;
Sigurbergur H. Þorleifsson,
Gerðahreppi;
Ólafpr Sigurjónsson,
.Njarðvíkurhreppi;
Magnús Agústsson,
Vatnsleysus tr andarhreppi;
Guðmann Magnússon, .
Gaíðahreppi;
Sve.inn Erlendsson,
Bessastaðahreppi.