Morgunblaðið - 16.11.1965, Side 6

Morgunblaðið - 16.11.1965, Side 6
6 MORCU N BLAÐIÐ Þriðjudagur 16. nóv. 1965 Glæsilegasta skólahús Vesturlands vígt Laugagerðisskóli við Kolviðarneslaug SL. laugardag var mikil hátíð í Eyjahreppi á Snæfellsnesi, en einmitt þennan dag var vígt eitthvert stærsta skóla- hús á Vesturlandi, en það var barnaskólinn við Kolviðarnes laug eða réttara sagt Lauga- gerðisskóli, sem er heimavist- Sigurður Helgason skólastjóri arskóli 5 hreppa í Snæfells- ness- og Hnappadalssýslu. Við vígslu þessa voru fjöl- margir samankomnir bæði í- búar úr þeim hreppum sem að skólanum standa, svo og margir boðsgestir, þar á með- al Gylfi Þ. Gíslason, mennta- málaráðherra, Bjarni Bene- diktsson, forsætisráðherra, Helgi Elíasson, fræðslumála- stjóri, Hörður Bjarnason, húsameistari ríkisins, allir þingmenn Vesturlandskjör- dæmis, og margir fleiri, auk þess þeir sem unnið hafa að byggingunni. Meðan fólkið streymdi að til hátíðarinnar, lék Lúðra- sveit Stykkishólms undir stjórn Víkings Jóhannssonar í hinum fallega sal skólans og setti það sinn svip á þennan dag. Formaður hyggingarnefnd- ar, Gunnar Guðbjartsson, sem óslitið hefur unnið með alveg sérstökum áhuga að hygg- ingu skólans, setti vígsluhá- tíðina og bauð gesti velkomna. Það er ekki ofmselt að það er mikið að þakka ósérplægni Gunn ars að bygging þessi er nú tekin í notkun. Þó hefur hann unnið þetta allt í sjálfboðavinnu ,en hagnaður hans er fólginn í þeim fögnuði að sjá mikinn árangur erfiðis síns. Gunnar las í upphafi mörg heillaóskaskeyti til skólans, m.a. fré fjármálaráðherra, Magnúsi Jónssyni, og frú. Þá gerði hann grein fyrir bygg ingunni, tildrögum að því að hafizt var handa um hana. Sagði hann að fyrstu hugmynd að sam- eiginlegum skóla sunnan fjalla, myndi Stefán Jónsson, fyrrver- andi námstjóri, eiga en hann hefði hreyft því árið 1928, hvort ekki væri rétt að athuga um og mæla jaröhita í hreppunum sunnan fjalls með það fyrir aug- um að þar gæti við góðar að- stæður risið menntasetur. Varð þetta til þess að fyrir forgöngu menntamálaráðherra voru þess- ar aðstæður athugaðar óg kom mjög til greina Kolviðarnes, enda var þar ekki löngu síðar staðsett sundlaug fyrir hrepp- ana, sem hefur verið mikið notuð undanfarin ár. Þessari hugmynd var svo hreyft öðru hverju en þegar Stefán var námstjóri hér á svæðinu, kom sú tillaga fram hvort ekki væri rétt að 5 hrepp- arnir sunnan fjalla mynduðu sam tök um að koma upp heimavist- arskóla í Kolviðarnesi. Varð þetta til þess að fræðsluráð sýslunnar kom saman og ræddi þessi mál. En svo er það árið 1957 að fyrst kemur skriður á málið, en þá var og hélt hann fund með fræðslu- ráði sýslunnar og varð það að ráði að fela Gunnari Guðbjarts- syni að kaila saman ráðamenn úr þessum fimm hreppum á fund sem haldinn var að Breiðabliki 31. ágúst 1957. Þar mættu 38 menn frá fareppunum. Var kosin nefnd til undirbúnings að staðar- vali og fleiru: Kristján Jónsson, Snorrastöðum, Þorsteinn L. Jóns- son, Söðulsholti, Gunnar Guð- bjartsson, Hjarðarfelli, Þorgrím- ur Sigurðsson, Söðulsholti, og Karl Magnússon, Knerri. Nokkru eftir að nefndin hóf htörf sín var það að Staðarsveit skarst úr leik, því forráðamenn þar töldu réttara að byggja tvo skóla sunn- an fjalla með tilliti til framtíðar- innar og vildu láta rannsaka jarð hita við Lýsuhólslaug. Árin 1958 og 1959 fóru svo í undirbúning að gagnasöfnun og teikningum, staðarvali og fleiru. Árið 1960 var svo öllum hreppsnefndum skrifað og samþykktu þær að standa að byggingu skólans. Síð- ar varð svo Skógarstrandar- hreppur aðili byggingarinnar. Nefndin samdi svo við eigend- ur Hrossholts í Eyjarhreppi um kaup á landi undir skólann þar sem hann nú er. Arkitekt byggingarinnar er Guð- mundur Þór Pálsson og hefur hann leyst sitt verkefni af sér- stakri prýði og vandvirkni og er til fyrirmyndar. Vann hann þetta í samráði við húsameistara ríkis- ins og á skrifstofu hans. Almenna pípulagnir og járnateikningar, raflagnir teiknaði Ólafur Gísla- son en ísleifur Jónsson verkfræð- ingur sá um heita vatnið. Fyrsta ríkisframlagið til byggingarinn- ar var 150 þúsund á fjárlögum 1961. En það ár var lokið við teikningar. Tólf tilboð komu I byggingu hússins og var lægsta tilboði tekið en það var frá Jóni Guðmundssyni, húsasmíðameist- ara á Akranesi og kom hann skólanum undir þak við hin erf- iðustu skilyrði. Sigurgeir Sigur- geirsson vélsmíðameistari i Stykkishólmi tók að sér hita- og vatnslagnir. Haraldur Gislason, rafvirkjameistari í Stykkishólmi annaðist raflagnir en múrverk annaðist Jón Dagsson ásamt fleiri mönnum úr Skagafirði. —. Málun sá Lárus Árnason, málara meistari á Akranesi um. Tré- smiðjan Ösp í Stykkishólmi hef- ur haft allan veg og vanda af smíði hússins eftir að það var steypt upp, bæði innréttingar og allan frágang. Hörður Kristjáns- son húsasmíðameistari hefur gegnt þar forystuhlutverki og leyst það með einstakri prýði, enda voru honum sérstakar þakk ir færðar í samsætinu fyrir hversu vel honumh efur á allan hátt tekizt að ganga frá hverj- um hlut þannig að allir dáðust að. Hörður er ungur trésmíða- meistari í Stykkishólmi og er gleðilegt að hann skuli hafa stað- ið sig svona vel. Því má heldur ekki gleyma að hann hefur haft ágætis lið sér til aðstoðar. Gunn- Laugagerðisskólinn — vígsludaginn. Veitingahús Ekki verðua: annað sagt en veðurguðimir hafi farið milduim höndum um okkur yfir helgina, a.m.k. hér sunnan lands. Margir bíleigendur (og þeir eru ekki svo fáir nú orð- ið) óku út úr bænum, fjöldinn allur til þess að prófa nýja Keflavíkurveginn — aðrir aust- ur fyrir fjall. Ég komst ekki lengra en að Skíðaskálanum og ætlaði reyndaa: að £á mér kaffi þar. Fyrir mig og mína fannst ekkert laust borð í skálanuim og urðum við frá að hverfa við svo búið. Ég harmaði það i rauninni ekki mikið eftir að hafa litið inn þama. f sannleika sagt vantar okk- ur þægilegan og vistlegan veit- ingastað í nágrenni borgarinn- ar. Hingað til hefur enginn sýnt framtak í þá átt að reisa og starfrækja einn slíkan. Er vænt anlogt veitingahús „Hlaðs“ í Hvergagerði þvi tilhlökkunar- efni þeirra, sem ánægju hafa af því að fara í stuttar öku- ferðir út úr borginni r..eð fjöl- skylduna og koroa við á snyrti- legu veitingahúsi til þess að fá sér kaffisopa. •jf Vinnuvélar Kunningi minn í Silfur- túni hringdi í mig á dögunum og vakti athygli mína á hinum tíðu truflunum á símasamtbandi þangað suður eftir veg i vinnu stórvirkra véla. Rafmagns- strengir eru líka oft slitnir af skurðgröfum og jarðýtum, eins Og kunnugt er. Sagði maðurinn, að stjóm- endiur slíkra vinnuvéla yrðu að teljast ábyrgir fyrir þessum spjöllum, sem ekki aðeins yllu óþægindum, heldur gætu líka skapað hættuásiand, þegar kalla þyrfti á sjúkra- eða slökkvilið Gerði hann það að tillögu sinni, að menn, sem fenigju þessi verkfæri til umráða yrðu að gangast undir próf, ekki aðeins hæfnispróf í notkun vélanna — heldur þyrfti líka at tryggja, að þeir vissu nákvæmlega hvert bæri að snúa sér til þess að fá upplýsipgar um jarð- strengi og leiðslur í jörðu. Enn- fremur, að þeir væru færir um að fara eftir uppdráttum af leiðslum í jörðu og gætu þar af leiðandi krækt fyrir hættu- svæðin, eða að sýna þá var- kárni, sem þyrfti við slíkar að- stæður. + Góður útvarpsþáttur Svavar Gests byrjaði með nýjan útvarpsþátt á sunnu- dagskvöldið og var hann skemmtilegur, eins og Svavars er von og vísa. Það er hægar sagt en gert að stjórna skemmti þætti — og gera hann í raun og veru skemmitilegan'. Márgir hafa reynt þetta í útvarpinu og fáum eða engum hefur tekizt betur en Svavari. Lesið fyrir blinua Og hér kernur stutt bréf: „Nú — að nýafsitaðinni fjár- söfnun fyrir blinda, þetta fólk, sem fer á mis-við svo óendan- lega margt, sem við sjáandi njótum — langar mig til að spyrjast fyrir um aðstöðu þess til að njóta bóka og annars lestrarefnis. Ég þekkti til danskrar konu, sem lengi hefur verið blind. Eiga blindir almennt segul'bands fjölda bóka, þar á meðal ís- lenzkar bækur, þýddar á sitt móðurmál. Auk blindunnar er kona þessi svo bækluð vegna liðagigtgr, að hún getur ekki notað hendurnar til að lesa blindraletur. Hún sagðist hafa „le_sið“ bækur af segulbandi. Á blint fólk á íslandi aðgang að sams konar „lestrarefni? “ Eiga blinir almennt segulbanda tæki og eru slíkar bókaspólur til hér að einhverju ráði? Á heilsuhæiujm — t.d. elli- heimilum — þar sem margir vistmenn eru blindir eða sjón- daprir — og að likindum lítt færir til að nema blindraletur, hlýtur slík tækniþjónusta að vera vinsæl. Þannig gæti einn maður lesið fyrir marga og væri það marg föld nýting á upplesfri og fjár- m/unum. Geri ég ráð fyrir að margir vildu stuðla að því, að hægt yrði að koma slíku í fram kvæmd bér hjá okkur, ef það hefur ekki verið gert nú þeg- ar. M.S.“ Ég verð að biðja viðkomandi aðila að upplýsa M.S. og okkur hin um það, hvort blinda fólkið okkar nýtur svipaðrar aðstöðu og þeir blindu í Danmörku — hvað þetta snertir. Kaupmcnn - Kaupfélög Gulu rafhlöðurnar fyrir segulbönd, myndavélar og mótora Bræburnir Qrmssonhf. Vesturgötu. 3, .Lágmúla 9. Simi 38820. -

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.