Morgunblaðið - 16.11.1965, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 16.11.1965, Blaðsíða 10
10 MORGU N BLAÐIÐ Þriðjudagur 16. nóv. 1965 Eldsvoði á hafinu — lýsing þeirra sem björguð ust af „Yarmouth Castla46 MIKILL, óviðráðanlegur eldur brauzt út í farþega- skipinu „Yarmouth Castle“, snemma á laugar- dagsmorgun, er skipið var statt um 170 km austur af Miami-strönd á Florida. 550 manns, farþegar og áhöfn, voru um borð í skip inu, er eldsins varð vart. Tókst að bjarga 460, en 90 manns fórust. Er hér um að ræða eitt meiriháttar sjó slysa af völdum eldsvoða, á síðari árum. Ekkert er enn ljóst um upptök eldsins, sem breidd ist út með gífurhraða. Hef- ur slysið, svo og allar að- stæður um borð í „Yar- mouth Castle“, vakið mikið umtal. Vitað er nú, að ekkert björgunarkall barst frá skipinu, og þykja frásagnir farþega, sem af komust, benda til þess, að mjög hafi skort á, að öryggisútbúnað- ur hafi verið í lagi. Er eldurinn kom upp, voru tvö skip nærstödd, bandaríska farþegaskipið „Bahama Star“, og finnska skipið „Finnpulp". — Mun það vera því að þakka, og skjótum viðbrögðum björg unarliðs frá Miami, að af- leiðingar slyssins urðu ekki enn hörmulegri, en raun ber vitni. Bygfft 1927 „Yarmouth Castle" Var 50000 tonn að stærð, byggt 1927, af félaginu W. Cramp & Sons í Fíladelfíu, Pensylvan- íu, fyrir Nova Scotia gufu- skipafélagið. Um skeið var skipið í förum milli Boston Massachusetts, og Nova Scotia Kanada. Á styrjaldarárunum var það i herflutningum. 1954 var skipið endurskírt „Queen of Nassau“, en þrem- ur árum síðar fékk skipið aft ur sitt gamla nafn, „Yarmouth Castle". Fyrir ári keypti skipafélagið Yarmouth Cruise Lines skip- ið, en það félag gerir skip sín út frá Panama. Skipið sökk á fjórum tímum. Eldsins varð fyrst vart um kl. 6 á laugardagsmorgun, eft ir ísl. tíma. Einn farþega, Dominick Cosentino, 58 ára gamall New York-búi, lýsir eldsupptökum þannig: „Ég vaknaði við mikinn hávaða á þiljum uppi, en hélt í fyrstu, að þar væru einhverj ir farþega að leik. í»á heyrði ég, að inhver kallaði, að eld- ur væri uppi. Ég greip buxur mínar og skó, og hljóp út úr káetunni. Gangurýin var þá fullur af reyk, en ég komst upp á þilfar, og í einn björgun arbátanna. >á hafði eldurinn þegar náð að bátnum, og ég varð að yfirgefa hann. Ég komst yfir borðstokkinn, og í annan bát, sem sjósettur hafði verið“. Annar farþegi, ungfrú El- iseusen, frá Missouri, segir, að hún hafi reynt að komast úr káetu sinni, er hún heyrði kallað, að eldur væri laus. Ég komst að borðstokknum, inn, því að þar var svo mikill reykur", segir hún.. „Hins vegar tókst mér að brjóta rúðu, og skríða út um glugga. Ég komst að borðstokknum, og renndi mér niður á kaðli. Síðan var mér bjargað upp í björgunarbát". Thompson, öldungardeildar þingmaður frá Nassau, og dótt ir hans, hafa bæði lýst því yfir að þeim hafi ekki verið gert viðvart. Hafi þau komizt í björgunarbáta af eigin ramm leik, en þá hafi brennt fólk legið á þilfarinu. „Hneyksli". Mörgum farþeganna, sem fréttamenn hafa rætt við, ber saman um, að öryggisútbúnað ur hafi verið í ólagi. Mun neyðarbjöllum m.a. ekki hafa verið hringt, er eldsins varð vart. Gerald McDonnell, frá Sil- ver Spring, Maryland, sem bjargaðist naumlega, segir: „Skipinu var illa stjórnað. þetta er hneyksli. Engin björg unarvesti voru í káetunum. Reipin höfðu verið máluð, og því var erfitt eða ómögulegt að sjósetja suma bátana. Eng in björgunaræfing hafði farið fram. Okkur var ekki gert viðvart Neyðaribjöllunum var ekki hringt, og slökkvitækin voru í ólagi“. McDonnell segir, að hann, móðir hans og bróðir, hafi komizt um borð í björgunar- bát, en ómögulegt hafi verið að sjósetja hann. „Við sátum föst í nokkrar mínútur“, seg- ir hann. „Meðan við biðum í bátnum, féll kona ofan af efsta þilfari, á borðstokk björgunarbátsins, og rakst um leið í móður mína. Svo féll konan í sjóinn. Einn úr áhöfn inni stökk fyrir borð, og bjargaði henni". McDonell segist ekki hafa lent í neinum deilum við menn úr áhöfninni, enda hafi flestir þeirra komið fram af hugprýði, og sumir gefið far- þegum, sem engin björgunar vesti höfðu, sín vesti. George Brown, frá Deer- field Beach, Florida, er einn þeirra, sem gagnrýnt hefur harðlega allan öryggisútbún- að. Hann segir, að hann, og kona hans, hafi komizt að einum björgunarbátanna, en ómögulegt hafi verið að sjó- setja hann. „Loks var farið með okkur að öðrum bát“, segir hann. „Honum var hægt að koma út, en þá kom í ljós, að engir kefar voru í honum. Við urðum að róa bátnum eins og eintrjáningi. >á virtist ekkert vatn vera fyrir hendi, sem hægt var að nota við slökkvistarfið, og brunaslöngurnar lágu ónot- hæfar á dekkinu.“ lando, Florida, lýsir björgun sinni þannig: „Við heyrðum mikinn hávaða, og opnuðum hurðina. >á mætti okkur mik- ill reykur. Okkur tókst ekki að komast að björgunarbét- unum, en þeir voru allir of- hlaðnir. Við komust loks niður stiga, og um borð í björgunar bát frá „Bahama Star“. Við höfðum engin björgunarbelti, og við héldum, að við mynd- um farast. Við vorum ofsa- hrædd". Donald D’Ellia, frá Irving- ton, New Jersey, og kona hans segjast hafa verið uppi við, er eldsins var fyrst vart. „Við sáum fólk koma hlaupandi úr káetum sínum“, segir D‘Ellia, „og sumt var illa brennt. Unga konu sáum við, sem var svo skaðbrennd, að ég er viss um, að hún hefur látizt“. D’Ellia, og kona hans, stukku fyrir borð, og syntu að björgunarbát. Ekkert neyðarkall. Björgunarsveitir á Miami, sem eru meðal þeirra bezt búnu í heimi, segja, að ekkert neyðarkall hafi borizt frá „Yarmouth Castle“. í landi er hlustað eftir neyðarmerkjum allan sólarhringinn. Fyrsta tilkynningin, sem barst, kom írá finnska skipinu „Finnpulp“ Hefur enn engin skýring á því fengizt, hvers vegna neyð arkall var ekki sent frá „Yarmouth Castle“. Farþegaskipið „Bahama Star“ var svo nærri „Yarmo- uth Castle", er eldurinn kom upp, að vel sást milli skip- anna. „Bahama Star1* bjargaði 250 farþegum, og 110 úr áhöfn sem einnig var nærstatt, bjarg aði 90, en þyrlur bandaríska björgunarliðsins komu von bráðar á vettvang, og fluttu þá, sem verst voru brenndir, til sjúkrahúsa í landi. Kl. 11.45 á laugardagsmorg un, tæpum sex stundum eftir að eldurinn braust út, til- kynnti „Bahama Star“, að það hefði bjargað alls 360 manns, en víðtæk leit á slysstaðnum (>á var „Yarmouth Castle" sokkið fyrir tæpum þremur stundarfjórðungum) hefði ekki gefið árangur. Væri víst, að aðrir hefðu farizt. Kall „Finnpulp” barst kl. 6.20, aðeins um stundarfjórð- ungi eftir, að eldsins varð vart. í tilkynningu finnska skipsins sagði, að skipið væri alelda, allt niðuí að sjávar- máli. „Hryllileg sj.»n“. Einn flugmanna bandaríska björgunarsveitanna, W. R. Cooper, sem flaug með þrjá skaðbrennda farþega til Nassau, segir: „>að var hrylli legt að sjá skipið. Eldtungurn ar náðu 1200 metra í loft upp. Annar flugmaður, Hugh Kuleatt, segir, að hitinn af brennandi skipinu hafi verið svo mikill, að ekki hafi verið hægt að fljúga nær því en 60 m. „Sjórinn var þakinn í björg unarbeltum, og björgunarbát um, hlöðnum fólki“. Bæði björgunarskipin „Bahama Star“-og ,,Finnpulp“ héldu rakleiðis til hafnar, er ljóst varð, að frekari leit myndi ekki bera árangur. Er talið, að þeir, sem ekki tókst að bjarga, 90 talsins, hafi annað hvort drukknað, brunnið inni í skipinu, eða sokkið með því. Fréttamenn, sem flugu yf- ir slysstaðinn á laugardag og sunnudag, segja, að mikið brak fljóti á sjórium. Komu þeir m.a. auga á fjóra björg- unarbáta. Enginn var í þeim, og þrír þeirra voru á hvolfi. Hafin er rannsókn á orsök- um slyssins, og stjórnar henni V.G. Niebergall, forstöðumað ur öryggisdeildar kaupskipa- flotans. rX William R. Elder, frá Or- Einn farþeganna, sem bjargað var úr brennandi skipinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.