Morgunblaðið - 16.11.1965, Blaðsíða 32
Lang stærsia og
íjölbreyttasta
blað landsins
Helmingi útbreidaara
en nokkurt annað
íslenzkt blað
Eldhnöttur með Ijósan
hala sást á himni
í GÆRMORGUN laust fyrir kl. 7
svo ug um 7 leytið í fyrrakvöid.
sást kynlegt fyriibrigði á himni
yfir Jandinu. Virtist þetta vera
eldhnöttur með lýsandi hala, sem
fór mjög hratt yíir himinhvolfi'ð.
Sáu menn í Reykjavík, Keflavík,
Breiðdal og Akureyri og víðar,
þetta fyrirbrigði.
Starfsmenn í flugturninum á
Kefiavikurflugvelli, sem voru á
vakt í gærmorgun sáu kl. 6,49
Ijós, sem kom frá NV og fór
með miklum hraða um himin-
hvolfið í SA átt. Virtist það vera
stór eldhnöttur með langan eld-
haia aftur úr, svipað og aftur-
brennari úr þotu, nema hvað
þetta ljós var hvítt. Ennfremur
voru mörg smáljós í kring og á
eftir stóra ljósinu Fór þetta með
jniklum hraða yfir hvolfið og
tók 2—3 mínútur að fara yfir
sjóndeildarhringinn, sem er
nxargfaldur hraði gerfitunglanna
sem fara hér yfir.
Þetta sást víðar að af Suður-
nesjum. T.d. sá fólk, sem var á
leið til vinnu og statt skammt
fyrir sunnan tollskvlið á Kefla-
víkurflugvelli, þetta, og fór út
úr bíl til að horfa á það.
Starfsmenn í flugturninum í
Reykjavík kváðust ekki sjálfir
hafa séð þetta, en bæði í fyrra-
kvöld og í gærmorgun hefðu
margir hringt til þeirra, og skýrt
frá því. Kvaðst einn maður hafa
horft á þetta í 7 mínútur í fyrra
kvöld og annar sagðist hafa horft
á þaö í sjónauka og hefði það
verið líkast blævæng í laginu.
Ekki er vitáð hvað þetta hefur
verið. Sumir hafa látið sér detta
í hug loftsteinai', sem voru að
koma inn í gufuhvolfið og eyðast,
en þá er skrýtið a'ð þeir komu
tvisvar með svo stuttu millibili.
Þá gæti verið um gerfitungl að
ræða, en gerfihnötturinn Berg-
mál II, er áberandi á næturhimn
inum í ár. Hann fer iwnhverfis
jörðu á 1 klst. 48 mín. og liggur
braut hans 8 gráður frá heim-
skautunum og stefnir hann því
annaðhvort í suðurátt e’ða norð
ur, er hann fer yfir ísiand. En
þeir sm sáu fyiirbrigðið telja
það hafa farið hraðar en gexfi-
tunslin.
Fyrir einu ári, 16. nóvember, sáu 4 menn á Seltjarnarnesi kyn-
legt fyrirbrigði á himninum, riss uffu þaff upp hver í sínu lagi,
báru saman og einn þeirra Falk Konráff Kinsky málaði þessa
mynd af fyrirbrigffinu, sem kem ur nákvæmlega heim viff lýs-
ingu á fyrirbrigðinu, sem sást í gær á himninum.
Loffleiðaflugvélinni
flogið vesfur á 3
hreyflum
FLUGVÉL Loftleiða, sem hiekkt
ist á í fyrri viku á Keflavíkur-
flugveiii, var fiogfð vestur um
haf í gærmorgun á 3 hreyflum.
Höxðu tveir hreyfianna skemmst,
en aðeins einn varahreyfill var
til á staðnum. Ónýti hreyfillinn
verður seudur vestur, þar sem
hann verður xannsakaður með
tilliti til þess að komast að því
hvort hann kunni að hafa bilað.
Ekki er enn vitnð hversu miklu
tjónið nexnur, en skipta þarf um
tvo mótora í flugvélinni. Nýir
mótorar kosta um 250 þús. doll-
ara, en hins vegar eru siikir
mótorar venjulega gerðir upp.
Um heigina voru hér tveir
menix frá Canadair verksmiðjun
um, sem framleiddu flugvélina,
einn frá Rolls Royce og einn frá
Lockheed. Þeir eru farnir. Einnig
var /neð þeim mr Dans frá ís-
lenzka loftferðaefitirlitinu.
Mbi. spurði Sigurð Jónsson
hjá Loftferðaeftirlitinu hvort
þeir hefðu nokkuis orðið visari
um hvað fyrir flugvélina kom,
en hann sagði of snemmt að
segja neitt um það. Mótorinn ætti
eftir að fara í rannsókn.
í TILEFNI af 90 ára af-
mæli Thorvaldsensfélagsins
19. nóvember n.k. gefur fé-
iagið út sérstaka minningár-
örk með jólafrímerki sínu í
bláum lit, en hið almenna
merki er rautt í ár. Örkina
selur félagið á kr. 25. Upp-
lagið er mjög takmarkað.
Eftirleitir í þyrlu
Síffastliffinn laugardag fóru
þrír bændur úr Borgarfirði í
eftirleitir í þyrlu landhelgis-
gæzlunnar og fundu tvö lömb og
tóku þau með sér í þyrlunni.
Horfin rjúpnaskytta
fannst örend
AÐFARANÓTT mánudags var
hafin leit að rjúpnaskyttu, sem
ekki hafði komið fram, og fannst
maðurinn iátinn um ki. 4 um
nóttina, hafði iagt sig og fengið
hjartaslag. Hann hét Halldór
Magnússon, lyfjafræðingur, Ból-
staðahlíð 25. Halldór heitinn vár
65 áxa að aldri og hefur lengi
starfað í Ingólfsapóteki. Hann
var einnig kunnur golfmaður, og
hefur átt sæti í stjórn Golf-
klúbbs Reykjavikur.
Halldór hafði farið á rjúpna-
veiðar ásamt tveimur öðrum
mönnum snemma á sunnudag,
austur að Kárastöðum. Er Hall-
dór kom ekki fram við bíl sinn,
var hringt til aðstandenda hans
frá Kárastóðum. Var Slysavarna
félagið beðið um ‘ að leita og fóru
leiarmenn frá þeim ásamt
hjálparsveit skáta o.fl. austur og
hófu leitina um miðnætti. Voru
um 40 manns í leitarflokknum
og voru þeir í fylgd með Guð-
birni bónda á Kárastöðum.
Farin einn ieitarmanna lík Hall-
dórs í svokölluðum Lákabrekk-
um og virtist hann hafa lagt sig
þar, en ekki vaknað aftur.
OíElinn ónýtur
- stúlkurnar
sluppu
BORGARNESI, 15. nóv. — Á
sunnudag valt Volkswagen-bíll á
veginum fyrir ncðan Bifröst. —
Stakkst hann á nefið niður í
hraungrjót og má furðulegt telja
að stúlkurnar þrjár, sem í hon-
um voru, skyidu sleppa ómeidd-
ar. Bíllinn er mjög mikið
skemmdur.
— Hörður.
Seldu ung-
lingum áfengan
bjór
Á SUNNUDAGSKVÖLD tók lög
reglan tvo unga menn, 18 og 20
ára gamla, sem staðnir voru að
því að selja unglingum í Gagn-
fræðaskóla Austurbæjar áfengan
bjór. Höfðu þeir selt tvær flöskur
af Polarbjór, er þeir voru hand-
tekr.ir en voru með heilan kassa j
sem þeir sögðust hafa keypt af
einhverjum manni við höfnina.
Kunn verzlun í Bandaríkjunum setur
listmuni frá Glit á markaðinn. i
í GÆRKVÖLDI varð maður
fyrir bíl á gatnamótum Höfða-
túns og Skúlagötu. H'ann heitir
Óskar Guðmundsson og var á
reiðhjóli. Var hann fluttur á
slysavarðstofuna.
HRAUNKERAMIK — mwnir
frá Glit h.f. virðast vera um
það bil að komast inn á hinn
stóra markað í Bandaríkjun-
um. Hin þekikta verzlana-
keðja Woodward & Lothrop
hefur tekið að sér að selja
muni frá Glit og setti þá á
markaðinn 8. nóvemlber í
verzlunarhúsi sínú í Washing-
ton. Verzlun þessi er ein
kunnasta húsgagna og list-
munabúð þar um slóðir.
Um þetta leyti á Glit enn-
fremur 6 sýningargripi á
stórri keramiksýningu í
Smithsonian-safningu í Was-
hington, sem Kiln-klúlbburinai
bauð fyrirtækinu að taka þátt
í.
Mbl. spurði Einar Blíasson,
sölustjóra hjá Glit um þetta.
Hann staðfesti að þetta væri
rétt, en kvaðst lítið hafa frétt
af þessu enn. Woodward &
Lothorp hefðu verið búnir að
tilkynna að hafin yrði sala á
Glit mununum mánudaginn 8.
nóvemiber. Mundi þeim verða
komið fyrir á 6. hæð í verzl-
uninni, þar sem væri svo-
kölluð „World Accents Shop“
fyrir erlendan listvarning
og nútima húsgagnasýning.
Væri ákveðið að bjóða sendi-
herra íslands í Washington og
fleiri gestum til hádegisverð-
ar í tilefni af þessu og sýna
þeim munina. Er áformað að
hafa Glit keramikmunina til
sýnis til áramóta, og verða
gluggasýningar á þeim o.fl.
Einar sagði að Glit hefði
áður selt muni til ýmissa
landa, svo sem Danmerkur,
Svíþjóðar, Belgíu, Þýzka-
lands, Englands og Banda-
ríkjanna, en ekki í stórum
stíl. Mestur slægur virtíst
bandaríska markaðinum. Og
nú hefði Woodward & Lot-
hrop ákveðið að kaupa af Glit
og selja varning þess. Hefði
verzlunin beðið um sýnishorn
af nær öllu, sem Glit hefur á
boðstólum, og vilja kanna
markaðinn fyrst um sinn,
hversu miki/1 eftirspum verð-
ur og þá eftir hverjxx.
Vekja athygli vegna hrauns-
ins, litar og forms.
Sýningin í Smithsonian-
safninu, sagði Einar, að væri
ek'ki í neinium tengslum við
þessa sölu. Hefði Glit sýnt
þarna áður, árið 1961, og feng-
ið m.jög góða dóma, einkum
munir eftir Steinunni Mart-
einsdóttur og Ragrnar Kjart-
ansson í Washington Post.
Undanfarin 3—4 ár hefur
Glit verið að vinna að því að
komast með var.ning sinn inn
á erlendan markað. Og hefur
fyrirtækið sýnt víða hraun-
muni sína á erlendum listiðn-
aðarsýningum. Til dærnds
voru 15 munir eftir Þorbjörgu
Höskuldsdóttur, Hring Jó-
hannesson og Ragnar Kjart-
ans.son á alþjóðlegri sýningu
í Genf, sem nefnist „Les
Emaux dans la Ceramique
Actuelle“. Stóð sú sýnihg 15.
júní til 15. september sl., og
var megintilgangur hennar að
sýna áferð gleruuga í kera-
mik.
Hraunkeramik Glits vek-
ur mesta athygli erlendis fyr-
ir efnið, sem er hraun, fonm-
ið og litina, sem þykja sér-
kennilegir. Eftir siíkar sýn-
ingar koma jafnan fyrirspurn-
ir víða að og beiðni um upp-
lýisingar um framleiðslu og
verð. T.d. hefði nýlega komið
beiðni um sýnisíhorn írá Nýja-
Sjálandi.
Er fréttamaður Mbl. hafði tal
af Magnúsi Kristjánssyni oddvita
í Norðtungu, sagði hann að hann
hefði áður flogið yfir afréttir í
þyrlunni, þótt hann hefði ekki
verið með að þessu sinni, og
leizt honum vel á að reyna þyrl-
una við eftirleitir. Kom hann að
máli við Pétur Sigurðsson, er
brást vel við beiðni hans og
léði honum vélina, en flugmað-
ur í þessari ferð var Björn Jóns-
son. Kveðst Magnús hafa verið
uggandi um að veðrið mundi
bregðast þeim, en þegar til kom
var afbragðsgott veður og ekki
föl á jörðu. Lömbin voru hin
spökustu í þyrlunni og má til
gamans geta þess, að fjárhund-
ur var með í ferðinni, sem að-
stoðaði við leitina, og er þyrlan
lenti í Norðtungu vildi hann ekki
yfirgefa hana og þegar loks
hafði tekist að fjarlægja hann
stökk hann tvisvar upp í þyrl-
una áður en hún fór aftur til
Reykjavikur.
IHanns
saknað
f GÆRKVÖLDI var auglýsl eftir
Einari Sigurðssyni, Vestu g. 50,
sem ekki hafði spurzt txl síðan
kvöldið áður. Einar er 61 árs,
méðalmaður á hæð, gráhærður,
klæddur gráum tíglóttum fötum,
í dökkum frakka, með derhúfu
og sennilega gleraugu. Hafði
hann rýnilega komið heim í fyrra
da,g áður en kona hans kom úr
vinnu, en síðan ekki til hans
spui-zt, þrátt fyrir auglýsinguna
í útvarpinu í gær.
Tveir togarar
stöðvast
í viðbót
f GÆR komu tveir togarar úr
sölufer'ð, til Reykjavíkur, og
stöðvuðust þar vegna verkfalls
yfirmanna á togurum. Þetta voru
Bjarni Ólafsson og Askur, sem
bættust í hóp þeirra f jögurra sem
fyrir voru í Reykjavíkurhöfn,
en það eni Jón forseti, Egill
Skallagrímsson, Hallveig Fróða-
dóttir og Haukur.
Engir samningafundir voru um
helgina í vinnudeilunni, en sátta
semjari hefur boðað fund með
deiluaðilum í dag kl. 2.