Morgunblaðið - 16.11.1965, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 16.11.1965, Blaðsíða 8
8 MORGU N BIAÐIÐ ' Þriðjudagur 16. nóv. 1965 /i V fj Cji tiTcTC Sexföldun fasteignamats nær aðeins til kaupstaða og kauptúna IJtlán tíl íbúðabygginga hafa aukizt um 280% frá 1958 í GÆR var íramhaldið uimrseð- um um HúsnæðismálastoÆrmn ríkisins í efri deild. Lauik um- ræðum, en atkvæðagreiðslu var frestað. KaTl Kristjánsson (F) sagði að búast mætti við því að endur skoðun hiúsaleigulaganna tæki langan trma og ætti því ekki að afnema núgild- andi lög fyrr en önnur væru f yrir hendL Á þeim tíma sem engin lög um hámark húsa- leigu stæði gæti orðið til margir óþurftarsamningar á þessu sviði sem væntanleg lög mundu ekki ná tiL Eggert G. Þorsteinsson félags- málaráðherra, taldi að þær breyt ingatillögur sem Karl Kristjáns- í son hefur flutt i við fru'mvarpið í gætu stuðlað að ! seinkun á setn- jj ingu nýrra húsa- j leigulaga. Ef hús eigendum væri j heimilt að leigja út húsnæði á sanngjörnu verði gæti það stuðlað að því að fleiri réðust í að 'byggja leiguhús. Eins og er væru lögin þv-erbrotin og aðeins notuð við síbattaiframtal leigu- sala. Með afnámi laganna rnundi þess vegna engin sikriða fara af stað, því hún faefði þegar fallið. Magnús Jónsson fjármálaráð- herra, sagðist vilja taka undir orð félagsmáiaráðherra varðandi skattaframtal leigusala. Leigu- sali gæti aðeins leyfilega há- marksleigu upp til skatts, þrátt fyrir svo og svo mikla leigu. Ætti það sinn þitt í því að leigu- kaupi þyrfti oft á tíðum að greiða mikið fyrirfram og fengi auk þess ekki að gefa upp nema hluta af leigunni. Væri af þessu nauðsyn þess að fella þessi lög úr gildi augljós. Hefði uppruna- lega verið ákveðið að tekna skyldi aflað með eignaskatti og um það hefði ekki orðið deilur. Sexföldun fasteignamats næði aðeins til eigna í kaupstöðum og kauptúnum og væri það ekki nema sanngjamt þar sem verið væri að afla fjár til húsbyg.ginga á þessum stöðum. Það væri rétt að erfitt væri að áætla nákvæm- lega hver upphæð sikattsins yrði, og ætti það sér víða hliðstæðu, þegar tekjur ríkissjóðs væru áætlaðar. Ólafur Jóhannesson (F) sagði að í samningum við verkalýðs- félögin væri ' enginn stafur um það að finna, að \ , framlag ríkis- 1 sjóðs til Hús- næðismálastofn unarinnar yrði aukið og hefði það verið 40 milljónir kr. Hór væri um að ræða hreina tekjuöflun fyrir ríkissjóð og væri sama hversu mikið inn kæmi Húsnæðismála- stjém fengi ekki nema 40 milljón ir króna til yfirráða. Magnús Jónsson fjármálaráð- herra, sagði að enginn hefði haldið því fram að sexföidun fasteignamatsins væri til komin vegna samninga við verkalýðs- féiögin í sumair. Það hefði verið tekið skýrt fram, að þessar ráð- stafanir væru til komnar vegna samkomulagsins í fyrra þar sem kveðið hefði verið á um viðtoótar- láu til faanda þeim er höfðu feng ið lán áður. Enginn fjárveiting væri í fjárlögum til að mæta þessari útgja'ldaaukningu ríkis- sjóðs nema í lögunum um Hús- næðismálasitjórn. Grunnmunur væri á fasteignaskatti og eigna- skatti. Eignaskatturiran væri mið aður við nettóeignir en í fast- eignaskatti reiknuðust allar eign ir, sama favort á þeim hvíldu skuldir eða eikki. Greinilegt væri að þreföldun fasteignamats næði ekki til að afla þeirra 40 millj- óna er ákvæði væru um að veita Húsnæðismálastjórn, en hins- vegar miklar líkur til þess að það tækist með sexföldun fasit- eignamatsins Þorvaldur Garðar Kristjánsson tók fyrir og gagnrýndi nokkur atriði í ræðu Ólafs Jóhannesson- ar. Sagði hann að taka mætti undir það eir fjárrraálaráð- faerra sagði að í þessu tilfelli sem mörgum öðrum væri erf- itt að áætla upp á krónu hvað tekjustofnar riik isins gæfu af sér. Menn yrðu að skilja það, að á undanförraum árum hefði verið gert stórátak i húsnæðismálum með því að efla byggingasjóð ríkisins með því að afla honum tekjiustofraa og hefði þetta tekizt m.a. í samvinnu við verkalýðsfélögin. Mætti í þessu sambandi benda á, að á tíma- bilinu 1. okt. 1058 til 1. okt. 1065 hefði byggingarvísitalan faækkað um 133 stig eða 09,3%, en á sama tíma hefðu íbúðalán- in hækkað úr 100 þúsundum kr. í_ 280 þúsund kr. eða um 280%. Á þessu ári mundi Húsnæðismála stjórn koma til með að úthluta 310—320 milljóraum króna, en árið 1958 hefði upphæðin hins- vegar numið 40—50 milljónum króna. Reiðingstímabilið er Karl Krist jánsson hefði drepið á í ræðu sirani væri liðið, þótt svo virtist á tíðum, að Framsó'knanneran hrærðust enn í þvL Guðjón Kr. Hjörleifsson múrarameisfari - Kveðja Fæddur 29. júní 1919. Dáinn 8. nóvember 1965. OFT VERBUM við þess áþreif- anlega vör, mannanna börn, hve ,,örskammt er bil milli blíðu og éls“, í okkar daglega lífi. En aldrei verður sú reynsla þó eins átakanlega sár, eins og þegar — Laugagerðisskóli Framhald af bls. 6. ar gat þess í ræðu sinni að eng- inn árekstur hefði orðið milli manna í framkvæmd þessa verks og væri það að sínum dómi lík- lega einsdæmi þegar um svo mikla smíði væri að ræða. Erfið- asta málið var þó að lokum að fá rafmagn til skólans. Var um tvær leiðir að ræða, önnur sú að fá díselvélar sem myndu hafa kostað offjár eða reyna að ná línu úr aðaltaug frá rafveitum rikisins, en framkvæmdum í raf- væðingu sunnan fjalla á Snæ- fellsnesi hefur seinkað það að ekki voru horfur á að næstu 3 árin myndi verða leitt rafmagn þangað frá héraðsveitum. Tókst því samvinna við rafmagnsveitur ríkisins um síðari lausnina og daginn fyrir vígsluna eða sl. föstudag komu svo ljósin í skól- ann. Byggingarkostnaður skólans mun verða um 18 milljónir. — Ríkið hefur þegar lagt til krónur 9.743.000.00 og fyrir velvild menntamálaráðherra fengust greiddar 2 millj. kr. sem ekki voru þá gjaldfallnar. Úr gisti- húsasjóði fengust 200 þúsund krónur en hugmyndin er að nota skóiann sem greiðasölu og gisti- stað fyrir ferðafólk að sumri til og mun það mælast vel fyrir, enda skólahúsið teiknað einnig með það fyrir augum. Sýslusjóð- ur hefur greitt 120 þúsund til byggingarinnar. Skipting kostn- aðar milli hreppa er þannig: Kolbeinsstaðahreppur 22%, Eyja hreppur 11.5%, Miklaholtshrepp- ur 31.5%, Breiðuvikurhrepp- ur 20.5% og Skógarstrandar- hreppur 14.5%. Að lokum þakkaði Gunraar ríkisstjórn, þingmönnum Vestur- landskjördæmis og hreppsnefnd- um sem að skólanum standa fyr- ir sérstakan stuðning og fyrir- greiðslu, svo og öllum sem hér hafa lagt hönd að verki. í héraði því sem að þessum skóla stendur eru um 700 íbúar og er hluti þeirra í skólabygg- ingunni um 5 milljónir svo þess- ir hreppar leggja mikið á sig fyrir þetta skólahús og var það að seinustu ósk Gunnar að þau andlegu verðmæti sem ættu eft- ir að skapast við þennan skóla yrði þjóðinni heilladrjúgt og þá ' væri umbun fyrir erfiði næg. Skólastjóri verður Sigurður Helgason sem áður var skóla- stjóri í Stykkishólmi en skóla- nefndarformaður er séra Árni Pálsson og afhenti formaður byggingarnefndar honum við þetta tækifæri skólann til um- sjónar. í skólanum eru skráðir 106 nemendur og 11 úr Helgafelis- sveit. Kennsla hefst mánudaginn 15. nóv.Verða þá nemendur 53 í 4 barnadeildum og einnig verður starfandi unglingadeild við skól- ann og svo er fyrirhugað aö 8 ára börn verði þar á námskeiði. Skólastjóraíbúð er í húsinu og er hún glæsileg og vönduð i alla staði. Sömuleiðis er þar kennara- íbúð og svo tvær íbúðir fyrir einhleypa kennara, en í þær íbúð ir vantar nú tilfinnanlega kenn- ara. >á er rúmgóður matsalur í skólanum, herbergi fyrir nemend ur og vistlegar kennarastofur. — Kennarar auk skólastjóra eru ráðnir Gísli Kristjánsson og Rósa Björk Þorbjarnardóttir, prests- frú í Söðulsholti. Á eftir ræðu Gunnars Guð- bjartssonar tóku til máls mennta- málaráðherra, dr. Gylfi Þ. Gísla- son, sem færði skólanum árnað- aróskir ríkisstjómarinnar. Aðrir ræðumenn voru fræðslumála- stjóri, Helgi Elíasson, Hörður Bjarnason, húsameistari rikis- ins, Stefán Jónsson, fyrrum nám- stjóri, frú Rósa B. Þorbjarnar- dóttir, séra Þorgrimur Sigurðs- son prófastur, frú Guðrún Krist- jánsdóttir, Skógarnesi, sem færði skólanum 30 þúsund kr. til orgel- kaupa frá Kvenfélaginu Liljan í Miklaholtshreppi, Halldór Sig- urðsson, alþm., Guðlaugur Jóns- son, lögregluþjónn, Guðmundur Guðjónsson frá Saurum, dr. Bjarni Benediktsson, forsætisráð- herra, og séra Árni Pálsson i Söðulsholti. Árnuðu þeir allir skólanum gæfu og gengis um leið og þeir glöddust yfir þessu glæsilega framtaki. Sigurður Helgason hélt að lok- um ræðu og lýsti tilhögun náms og gat um byrjunarörðugleika í starfinu. Talaði hann um sam- starf skóla og heimilanna og lagði áherzlu á að kennslan ein væri til lítils og menntun öll ef manndómur fylgdi ekki í kjölfar- ið. Manngildið væri sá auður sem íslendingum lyfti hæst og að vexti þess yrðu skólarnir að stefna. Mér er sjálfum ljóst, sagði Sigurður að lokum, að mér er vandi á herðum að móta þenn an skóla og með styrk frá höf- undi lífsins er lagt á þessa braut og ég vil gera það að mínum seinustu orðum hér að orð skálds ins mættu rætast: Sú gjöf mér yrði gleðilegust send, að góður vinnudagur fari í hönd. Síðan sungu allir viðstaddir: fs land ögrum skorið. Hátt á annað hundrað manna voru við vígsluna og þágu ágætis veitingar og var öll þessi vígslu- hátíð þeim sem að henni stóðu til sóma. Að lokum þakkaði Gunnar Guðbjartsson mönnum komuna og bauð öllum að skoða skóla- bygginguna. kær vinur er hrifinn burt úr tölu lifenda fyrirvaralaust og svo að segja á augabragði. En bjartar minningar geymast um góðan og göfugan dreng. Þær lifa, ylja og lýsa, þótt lík- aminn hyljist moldu. Einn þeirra, sem lætur eftir sig slíkar minningar er Guðjón Kristinn Hjörleifsson, múrara- meistari. Hann fæddist að Rauf- arfelli í Austur-Eyjafjalla- hreppi. Foreldrar hans voru hjónin Hjörleifur Guðjónsson og Soffía Runólfsdóttir. Þau eru bæði á lífi, búsett í Keflavík. Guðjón var næstelztur 9 syst- kina. Af þeim eru nú aðeins 4 á lífí. Elzt er Gróa húsfrú í Keflavík, Ingibjörg, húsfrú í Ytri-Njarðvík, Gísli Ágúst og Ingi, báðir búsettir í Keflavík. Guðjón ólst upp hjá foreldr- um sínum og fluttist með þeim til Vestmannaeyja 7 ára að aldri. Þar dvaldist hann fram á fullorðinsár og nam múraraiðn við Iðnskólann í Vestmanna- eyjum. Árið 1045 fluttist Guðjón til Keflavíkur ásamt foreldrum sín um. Á þeim árum var Keflavik urkaupstaður í sem örastri upp byggingu, og fékk Guðjón þar mörg stór verkefni til að fást við. Og allt, sem hann tók að sér var svo vel af hendi leyst, sem framast varð ákosið. Guðjón var félagi í Rotary. klúbbi Keflavíkur, og sýnir það eitt útaf fyrir sig álit manna á honum og hvert traust menn báru til hans, að hann <"kyidi valinn sem fulltrúi sinnar stétt ar í þann félagsskap. í Rotary- klúbbnum reyndist hann jafnan drengilegur félagi, starfsfús og traustur. Árið 1953 var Karlakór Kefla víkur stofnaður. Fljótt gerðist Guðjón einn af félögum hatis. og er þar skemmst frá að segja, að hann var upp frá því ein styrkasta stoð kórsins. Hann var afburða söngmaður, röddin bæði mikil og hljómfögur enda var hann um langt skeið einn af aðal einsöngvurum kórsins. Kona Guðjóns er Sigríður Þor valdsdóttir, ættuð úr Ytri-Njarð vík. Þau hófu búskap í Kefla- vik, en fluttu til Hafnarfjarðar árið 1960. Þau eiga tvær litlar dætur, Soffíu Hjördísi og Stefaníu Rósu. Einnig ólust tvö börn Sig ríðar frá fyrra hjónabandi henn- ar, Guðmunda Margrét og Þor- valdur, upp hjá þeim, og reynd- ist Guðjón þeim eigi síður en sínum eigin börnum. Guðjón var góður eiginmaður og heimilisfaðir, og ástríkur fað ir barnanna sinna. Þau voru samhent í því hjónin, að skapa sér hlýtt og vistlegt heimili, þar sem hamingjan átti æðsta sætið. Og enga ósk átti Guðjón heitari en þá, að honum mætti auðnast að skapa fjölskyldu sinni svo trausta og óbrotgjarna farsæld, sem í mannlegu valdi stendur. Að því marki stefndi hann, ótrauður, allt til hinzta dags. Foreldrum sínum reyndist Guðjón frábærlega góður son- ur. Og fáa hefi ég heyrt tala af meiri virðingu og einlægari hlýju um móður sína en hann. Guðjón Hjörleifsson var einn þeirra manna er ég kynntist fyrst, er ég kom til Keflavíkur, og tel ég mér það mikið happ að hafa átt hann að vini. Hann Framhald á bls. 31

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.