Morgunblaðið - 12.12.1965, Blaðsíða 30
MORCUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 12. des. 1965
VOLGA MEÐ
5'^ BIESELVÉL
Leigubílstjórar
VOLGA er nú fáanleg með enskri Rover diselvél
samsettur í Belgíu, verð til leigubílstjóra ca. 208
þúsund krónur.
Sýningarbíll á staðnum mánudag og þriðjudag n.k.
Bifreiðar & landbúnaðarvélar
Suðurlandsbraut 14.
— Hannes Jónsson
Framhald af bls. 25.
búnaður hjónalífsins eigi eftir að
gjörbreytast á þessum sviðum
með þeirri breytingu á þjóð-
félagsstöðu hennar, sem gáfur
hennar, hsefileikar og stóraukin
sérþjálfun og • æðri menntun
munu óhjákvæmilega hafa í för
með sér.
Það leiðir t. d. beint af auk-
inni þátttöku konunnar á vinnu-
aflsmarkaðinum, að dagleg barna
gæzla og umsýslan með börnum
breytist eitthvað í þá átt, að
hún fari æ minna fram á hinum
einstöku hjúskaparfjölskyldu-
heimilum, nema þá allra fyrstu
árin, en SB meira á sérstökum
uppeldisheimilum, þar sem há-
menntaðar konur og sérþjálfað
aðstoðarfólk þeirra stendur fyrir
daglegum rekstri, en á kvöldin
hafi foreldrarnir börnin hjá sér
og annist félagsmótun þeirra í
frístundum. Sama má vafalítið
segja um skólana. Þegar skóla-
aldurinn tekur við verða það
skólarnir, sem taka að sér að sjá
fyrir fræðsluþörfum og skipu-
lagningu á tíma barna og
unglinga meginhluta dagsins. Og
þetta skólastarf verður vafalítið
æ meira í höndum konunnar.
Skólaárið 1964/65 voru samtals
1711 kennarar hér á landi, þar
af 1155 karlar en 556 konur. Nú
eru hins vegar fleiri stúlkur en
Ekki of sterk...Ekki of létt...
VICEROY geíur bragðið rétt
% 111 # /
mmum
Reykiö allar helztu filter tegundirnar og þe'r muniö
•finna, aösumar eru of sterkar og bragöast eins og
enginn filter se—aörar eru of léttar, því allt bragö
síast ur reyknum og eyöileggur anægju yBar—En
Viceroy, meö sínum djúpofna-filter, gefur yöur
re'tta bragðið.
Bragöiö sem mílljónir manna lofa-kemur frá
VICEROYsIze
'
>1005 BROVVN éc WILLIAMSON TOBACCO COHPOHATION LOUI8V1L1.& KKNTUCKY. UAA-
piltar í Kennaraskólanum. Við
eigum því e. t. v. eftir að sjá þá
tíð að hlutföll karla og kvenrfa
við kennslu eigi eftir að snúast
við, þannig að % kennara velrði
konur en aðeins % karlar.
Vinnuhagræðing
og heimilisrekstur
framtíðarinnnr
En aukin hlutdeild konunnar
á vinnuaflsmarkaðinum mundi
líka hafa í för með sér mikla
breytingu á heimilisrekstrinum.
Nú á dögum er Það svo, að
hvert heimili er rekið sem eins
konar matstofa í smáum stíl,
fataviðgerðarstofa í smáum stíl,
þvottahús í smáum stíl, fata-
sauma- og prjónastofa í smáum
stíl — auk alls annars — og í
slíkum störfum, að ógleymdu
uppvaskinu, eru konur bundnar,
hvort sem þeim líkar betur eða
verr. Engin sérhæfing, fram-
leiðslusérgreining og framleiðni-
aukning getur átt sér stað við
þessar aðstæður. Heimilisrekstur-
inn er þar af leiðandi og verður
óhagkvæmur og dýr.
Öll þekkjum við nú á dögum
hagræðið af verkaskiptingu og
vinnusérgreiningu, en Adam
Smith benti m.a. á kosti hennar í
bók sinni Þjóðaauðurinn, sem út
kom árið 1776, og nefndi m.a.
dæmi um það, að títuprjónafram-
leiðsla hefði 24-faldazt eftir að
verkaskiptingu og vinnusérgrein-
ingu var við komið við framleiðsl
una. í beinu framhaldi af þessari
vitneskju er sprottin sú grein
hag- og verkfræði, sem nefnd
hefur verið vinnuhagræðing og
framleiðnitækni og Bandaríkja-
mennirnir Gilbert og Taylor eru
upphafsmenn að fyrir um það bil
60 árum. Hafa vinnuhagræðing-
arsérfræðingar nútímans sýnt
undraverðan árangur við fram-
leiðniaukningu með betra skipu-
lagningu vihnu og fjármagns.
T. d. tóku þeir að sér að endur-
skipuleggja framleiðsluna fyrir
norsku framleiðendur Atlas-ís-
skápanna með þeim árangri, að
eftir endurskipulagninguna fram
leiddi fyrirtækið 40.000 ísskápa
á ári í stað 8.000 áður með sama
mannskap, sama vélakosti og í
sama húsnæði og áður en vinnu-
hagræðingartækninni var beitt.
Áhrif þessarar nýju tækni- og
vísinda-greinar, vinnuhagræð-
ingar og framleiðnitækni, á vafa-
lítið eftir að gæta æ meira í fram
tíðinni og á mjög mörgum svið-
um mannlífsins. Og þar sem
heimilisreksturinn lýtux ekki öðr
um efnahagslögmálum en t. d.
títuprjónaframleiðslan, sem Ad-
am Smith hefur lýst svo vel fyrir
okkur, eða ísskápaframleiðslan,
sem forstjóri Atlas-fyrirtækisins
getur verið svo hreykiiwn af að
lýsa, þá er ekki fjarri lagi að
álykta, að hin unga vísindagrein
framleiðnitækninnar eigi eftir að
hafa nokkur áhrif í þá átt, að
gera heimilisreksturinn í senn
hagkvæmari og frelsa konuna
jafnframt að einhverju leyti und-
an bindingu heimilisrekstursins.
I stað þess, að hvert heimili
verði þvottahús í smáum stíl,
eiga vafalítið eftir að rísa upp,
e. t. v. fyrir atbeina konunnar
sjálfrar eða kvennasamtaka, stór-
kostleg þvottahús, sem rekin
verða í svo stórum stíl og á svo
hagkvæmum grundvelli undir
umsjón sérmenntaðra kvenna, að
framtíðarkonunni dettur vafalítið
ekki í hug að skola svo mikið
sem úr sokk hvað þá heldur að
þvö stórþvott. — Þvottadagarnir
hljóta sem sé að hverfa úr heim-
ilisrekstri frá’mtíðarinnar fyrir
atbeina þeirra afla, sem móta
mannfélaggþróunina.
Sama er að segja um fatasaum
og fataviðgerðir. Allt nema það
allra minnsta, eða það sem gert
er af sköpunargleði við prjónles
o. fl. þ. h., kemur að líkindum
til með að hverfa af heimilum
framtíðarinnar og færast yfir á
hagkvæmari rekstur í stærri stil,
•þar sem sénþjálfuðu fólki og
vélakrafti er beitt í samræmi við
vitneskjuna um mesta möguleika
framleiðni.
Og sjálf eldamennskan, sem
fram að þessu hefur tekið svo
mikið af tíma konunnar, á vafa-
lítið eftir að hverfa að verulegu
leyti.
Ekki þó svo að skilja, að fólk
hætti að matast á heimilunum.
Eftir sem áður borðar það morg-
unverð og aðalmáltíð dagsins,
kvöldmáltíðina, saman á heimili
sínu. En allur matartilbúningur-
inn verður með allt öðrum hætti
en kokkamennskan í dag og í
gær. Matvælaframleiðslan er á
miklum timamótum og bendir
allt til þess, að í stað þess að
kjöt- og fiskfrystihúsin leggja nú
áherzlu á að útbúa og frysta hrá*
efni til matar, þá muni í stað
þeirra rísa upp stórar mat-
vinnslustöðvar, sem fullmatreiða
en frysta svo tilbúna rétti í
pökkum fyrir t. d. 2, 3, 4, eða
10 manns, en þessar tilbúnu mál-
tíðir kaupir svo húsbóndinn eða
húsfreyjan í matvörubúðinni, og
2—3 mínútum fyrir kvöldmatar-
tíma er matarpökkunum stungið