Morgunblaðið - 12.12.1965, Qupperneq 31
Sunnudagur 12. des. 19(?3
MQRGU N BLAÐID
2 7\
inn í sérstakan ofn, sem snögg- andi á konan eftir að setja æ
Og þjóðfélag, þar sem konan er
er sú Itona, sem sjálfviljug og af
ástúð og myndarskap. Hins vegaí
sýður, steikir eða hitar matinn,
þanuig að á 2 mínútum verður
hann girnilegur, hollur og góm-
sa tur á borðinu, tilbúinn til átu.
Við allar þessar breytingar á
heimilisrekstrinum skapast kon-
unni auknir möguleikar til frels-
is, binding heimilisrekstursins
verður minni, sjálfur heimilis-
reksturinn hagkvæmari, skilyrði
s"kapast til árangursríkarar fram-
kvæmdar á jafnréttishugsjóninni
á vinnuaflsmarkaðinum, þannig
að gáfur og hæfileikar konunnar
notast betur henni sjálfri til
ánægju og sóma og þjóðarbúinu
til hagsældar.
Framtíðin er stims staðar
veruleiki í nútíðinni
Við höfum nú brugðið upp
nokkrum dæmum um stöðu ís-
lenzku konunnar í fortíð og nú-
tíð og reynt að gefa til kynna,
hverju við getum búizt við um
stöðu hennar og hlutverk í fram-
tíðinni. Um stöðu konunnar í for-
tíð og nútíð og um stöðugleika
mannfélagsþróunarinnar hvorki
er né getur verið ágreiningur.
Þar er við augljósar staðreyndir
að styðjast.
En e.t.v. finnst einhverjum
sumt af því, sem sagt hefur verið
um framtíðina, vera í vafasam-
ara iagi.
Og vissulega ber að játa, að
allt, sem um framtíðina er og
verður sagt, hlýtur jafnan að
Vera vafasamara en það, sem
sagt er um nútíð og fortíð.
Hitt er þó staðreynd, að megn-
íð af þvi, sem sagt hefur verið
um framtíðina. er raunveruleiki
að vissu marki einhvers staðar í
heiminum í dag.
I Bandaríkjunum datt t. d.
engum í hug að þvo þvott á þeim
heimilum, sem ég kynntist þau
fjögur ár, er 'ég dvaldist þar í
landi. Hver einasta tuska var
send í hin stóru og fullkomnu
þvottahús, sem létu þessa þjón-
ustu í té á svo hagstæðu verði,
að það hefði þótt fáránlegt að
ætla konunni að fara að þvo
þvott þótt í heimilisþvottavél
væri. — Þetta er staðreynd um
þau heimili, sem ég kynnist þar,
þótt rétt sé að taka fram, að
kjör húsmæðra séu enn æði mis-
jöfn í Bandaríkjunum að þessu
og ýmsu öðru leyti.
T Bretlandi, Bandaríkjunum og
víðar, verður það æ sjaldgæfara,
að fólk stundi fatasaum á heim-
ilunum. Fataframleiðslan er svo
háþróuð og skipulögð, og sam-
keppnin svo heilbrigð, að efnið
í flíkina í lausu máli kostar
næstum eins mikið og flíkin full-
saumuð. Og hver. skyldi sauma
á heimilunum við slíkar aðstæð-
ur nema þá sér til ánægju vegna
sköpunargleðinnar?
1 Rússlandi eru þegar yfir helm
ingur lækna konur. og þar í
landi er þátttaka konunnar á
vinnuaflsmarkaðinum stórum
meiri en hér. Samhliða þeirri
þróun hefur farið sú þróun, að
uppeldisstofnanir og skólar hafa
æ meira annazt umsýslan með
börnum og unglingum og séð fyr-
ir þörfum þeirra og skipulagn-
ingu tíma þeirra á daginn, en
foreldrarnir á kvöldin og í frí-
tíma.
Og í Bandaríkjunum hafa þeg-
ar verið gerðar árangursríkar
tilraunir með fjöldaframleiðslu á
tilbúnum réttum og þartilgerðum
ofnum til að annast lokastig elda-
mennskunnar á 2 mínútum eða
svo.
Það. sem sagt hefur verið um
þessi mál í framtíðinni, er því
*kki einvörðungu byggt á ímynd-
unaraflinu, heldur líka á vitneskj
unni um hina mannfélagslegu
þróunarhneigð og á ákveðnum
etaðreyndum um nútímann hér-
lendis og erlendis.
Niðurlag
Að síðustu vildi ég lýsa þeirri
persónulegu skoðun minni, að
nútím’inn bæði þurfi og muni
gera sér það ljóst, að konan er
að rétta úr sér í þjóðfélaginu og
mannfélagsþróunin er henni hlið-
holl, af því að hún hefur meiri
gái'ur, meiri hæfileika og með
hækkuðum meðalaldri meiri tima
«n með þarf til þess að gegna
einvörðungu heimilisrekstrinum.
Framleiðnitæknin lætur heimilis-
reksturinn heldur ekki afskipta-
lausan í framtíðinni Þar af leið-
meiri svip á þjóðlífið og sækja
æ meira fram til æ mikilvægari
starfa, mikilvægari hlutverka og
verða æ áhrifaríkari um rekstur
ríkisins og þjóðfélagsþróunina
sjálfa.
En það merkilega við þessa
þróun konunnar til meira frelsis,
athafna, raunverulegs jafnréttist
og meira fullnægjandi athafna og
hlutverks er einmitt það, að
þessi þróun er ekki einvörðungu
hagstæð konunni heldur er hún
líka hagstæð manninum.
Þetta stafar af því, að konan
hefur hæfileika til þess að kalla
fram það bezta í karlmanninum.
Hún gerir það í barninu í upp-
eldinu, manninum á hjúskapar-
heimilinu, og hún getur líka gert
það á hinu breiða sviði mann-
félagssamskiptanna.
Það ríki, þar sem konan tekur
virkari þátt í stjórn en nú er og
t. d. helmingur þingmanna, bæj-
arfulltrúa, ráðherra og ýmissa
embættismanna eru k o n u r ,
mundi vafalítið verða betra ríki
að búa og starfa í bæði fyrir
karl og, konu, en það ríki þar
sem maðurinn einn stjórnar.
Og sá skóli, sem konan stjórnar
og rekur að mestu leyti, mundi
vafalítið verða betri, meiri og
hagnýtari skóli, en tregðuskólinn
okkar í dag.
hlutgengari en nú er í æðri sem
lægri framleiðslu- og stjórnar-
störfum og sérfræðiþjónustu,
verður vafalítið í senn betra, rík-
ara og hamingjusamara þjóðfé-
lag, en það þjóðfélag, sem hag-
nýtir ekki gáfur, hæfileika og
tíma konunnar að verðleikum.
Nútíminn þarf því, að mínum
dómi, að þora að hugsa þá hugs-
un, einmitt nú á 50 ára afmælis-
ári kosningaréttar íslenzkra
kvenna, og viljá það ástand, að
innan ríkisins verði engin staða,
sem kona geti ekki skipað með
eins miklum sóma og maður, ef
hugur hennar stendur til þess.
Við verðum í dag að þora að
hugsa þá hugsun, að eðlilegt
væri, ef svo vildi verkast, að
kona skipaði stöðu forseta Is-
lands ekki síður en að meyþjóð-
höfðingjar hafa verið, eru og
verða í sumum konungsríkjun-
um; að kona skipi stöðu forsætis-
ráðherra ,stöðu forseta hæstarétt-
ar, stöðu sendiherra og hverja
aðra trúnaðar- óg valdastöðu á
vegum ríkisins. Ef við þorum í
lag að hugsa slíka hugsun og
vilja slíkt ástand, þá mun fram-
tíðin leiða það í ljós, að einmitt
þetta getur gerzt.
En hinu megum við heldur
aldrei gleyma, að hamingjusöm
hjartans lyst velur sér hlutskipti
húsmóðurinnar á hjúskaparheim-
ilinu og finnur sinn mest full-
nægjandi myndugleika í að
gegna þeirri göfugu stöðu af
þarf þaS hamingjusama va’l henn
ar ekki að útiloka hana frá mik-
ilvægri þátttöku á vinnuafís-
markaðinum á vissu siceiSi æv-
innar.
LANCOM.E
Ef yður langar til að gleðja konu með góðri
gjöf á jólunum, lítið þá á Lancome-vör-
urnar hjá okkur.
Ath.: Pökkum gjöfunum inn í jóla-
pappír, ef þess er óskað.
Verzlun skólans er opin alla virka daga.
Tízkuskóli AIMDREIJ
Skólavörðustíg, II. hæð.
Skyrta úr 100% cotton
Eykur vellíðan yðar
• Hlý i kulda
• Svöl i hita
• Gulnar ekki 7 I
Snertingin við hörundið þægileg
M þess fer straujuð skyrta betur ;
og er því hæfari, sem sparískyrta.