Morgunblaðið - 05.01.1966, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 05.01.1966, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 6. ianúar 1966 Nýbýlastofnanir hafa fyllilega bætt upp það sem fallið hefur úr byggð r Morgunblaðið hefir átt tal við Pálma Einarsson landnámsstjóra og spurzt fyrir um byggingu ný- ■býla. Hann sagði að á s.l. ári hefðu 42 nýbýli verið stofnuð og skiptast þau í eftirtalda flokka: | HSTýbýlí fyrir búrekstur 12, end- t urbyggðar eyðijarðir 6, iðnaðar- I býli 6 og garðyrkjubýli 4. Þá hefir verið stofnað til félags- rekstrar á 14 jörðum, þar sem | ungar fjölskyldur hafa gengið inn í rekstur með foreldrum eða venzlamönnum eftir föstu formi Átjdn tonnn bíll rennur út of vegi á grundvelli félagsrekstrarsamn inga. Þá hefir verið veitt fjár- hagsaðstoð til ibúðarhúsabygg- inga á 119 jörðum á s.l. ári. Landnámsstjóri sagði enn- fremur: — Ég tel að nýbýlastofnanir og félagsrekstraruppbygging hafi á síðastliðnu ári fyllilega bætt upp það sem fallið hefir úr byggð af jörðum. Það sem af er vetri er lítið um að ræða sölur á jörðum og sama og ekk- ert hefir verið leitað til Land- náms ríkisins um fyrirgreiðslu í þeim efnum, sem þó er alltítt. Hins vegar munu nú fram komn ar fleiri umsóknir um nýbýli og félagsrekstrarform en var á sama tíma í fyrra. •v » IJM klukkan hálfsex í gær kvöldi slitnaði átján tonna gáiga bíll aftan úr bíl, sem hann var lestur í, á Suðurlandsvegi á móts við Nýbýlaveg. Rann hann út af veginum og ofan í skurð. Maður, sem sat í bílnum, gat stokkið út úr honum áður, Og varð ekkert slys af óhappi þessu. Bíllinn mun eitthvað skemmdur, en ekki var vitað í gærkvöldi, hve mikið. Frú Eloise Stover Iútin FRÉTTIR bárust um það í byrjun ársins, að frú Eloise Stover, eiginkona Raymond Stovers, fyrrum forstöðumanns Upplýsingaþjónustu Bandaríkj- anna hér á landi, hafði andazt í Washington D.C., s.l. sunnu- dag. Frú Stover hafði átt við margra mánaða vanheilsu að stríða og verið rúmföst í sjúkra- húsi um nokkurra vikna skeið, þegar hún lézt. Þegar Stoverhjónin fluttnst af landi brott í árslok 1964, sett- ust þau að í Arlington í Virg- iniu, einni af útborgum Wash- ington, því að við komuna vest- ur um haf var Raymond Stov- er gerður yfirmaður Evrópu- deildar útvarpsstöðvarinnar Vo- ice of America. Þau hjón voru búsett hér á landi um meira en fimm ára bil, og eignuðust fjölda vina á því tímabili. Frú Stover starf- aði með ýmsum kvennasamtök- um og kynntist við það fjölda fólks, sem starfaði að svipuðum áhugamálum. Munu hinir mörgu vinir hennar trega and- lát hennar, en einkum mun þeir minnast glaðlyndis hennar og gamansemi. Þótt hún gengi ekki heil til skógar síðustu tvö árin, sem hún bjó hér á landi, lét hún veikindi sín aldrei hafa á- hrif á viðmót sitt í garð þeirra, sem hún umgekkst. Þar ríkti allt af bjartsýni og lífsánægja. Frú Stover og manni hennar varð tveggja sona auðið. Er annar, Robert, liðsforingi í flug- her Bandaríkjanna en hinn, Mike, er við háskólanám í Tex- as, en í því fylki átti hún fjölda ættingja. SUm kl. 13.40 í gær var slökkviliðinu tilkynnt, að kviknað væri í húsinu nr. 4 við Spítalastíg. Þetta er gamalt timburhús, og býr enginn í því lengur. Eldurinn var slökktur, og er ekki talið, að um teljandi tjón hafi verið að ræða. Eldsupptök voru ókunn í gær. (Ljósm. Mbl. Sv. Þ.). grein í Evrópu og Austurlönd- um. Hún var mjög tíðkuð hjá Japönum og Kínverjum, og í Evrópu meðal Grikkja og Róm- verja. Nú standa Frakkar fremst í þessari list. Sumir íslendingar hafa vafalaust séð hina frábæru látbragðsþætti Jean-Louis Barr- aults í kvikmyndinni „Parísar- börn“ og allir þekkja Charlie Chaplin, sem oft hefur heillað með látbragðsleik. Frægasti lát- bragðsleikarinn í dag er vafa- laust Marcel Marceau, sem hef- ur hrifið áhorfendur með list sinni um víða veröld, í Suður- Ameríku, New York, Ástralíu, London o.s.frv. Og kemur nú til Reykjavíkur í fyrsta skipti í vor. Áður fyrr hafði Marceau jafn- an með sér hóp leikara sér til aðstoðar, en nú er hann einn á sviðinu og bregður þar upp frá- sögnum af atburðum, án þess að nota nokkurt orð og er' í líki persóna sinna, klæddur sínu gamalkunna gerfi hvítum fötum og röndóttum bol og með hvita grímu fyrir andlitinu. Er með ólík indum hvernig honum tekst að koma því sem hann hefur fram að færa til áhorfenda með þess- um hætti og hrífa þá. í síðasta hefti af Birtingi skrif ar Thor Vilhjálmsson grein, er hann nefnir Ofurlítið um Marcel Marceau og mimuleik. Grengur iyrir bíl FIMMTÁN ára drengur varð fyrir bíl á mótum Háaleitisbraut- ar og Miklubrautar kl. rúml. lí í gær. Hann skarst á enni og var fluttur í Slysavarðstofuna. Reyk leggur um blokk Marcel Marcean i hinu gamla kunna gerfi sínu. ið í París, þar sem Marceau sit- ur venjulega á vissum tíma og skýrt honum frá málavöxtum. Eftir góðar undirtektir hefði hann skrifað listamanninum í haust og fengið jákvætt svar. Og nú hefði verið gengið frá samn- ingum. Látbragðsleikur er Islending- um lítt kunnur, en er forn list- Sr. Sigurbjörn Á. Gíslason varð níræður á nýársdag eins og flestum mun kunnugt. Séra Sigurbjörn er enn þjónandi prest- ur á Elliheimilinu Grund. Myn din hér að ofan er tekin á nýársdag í kapellu Elliheimil isins. Sr. Sigurbjörn er í predik- unarstól. — Ljósm. Árni LárusSon). vegna elds ■ kjallara RÉTT fyrir kl. 21 á mánudags- kvöld var slökkviliðið kvatt að húsinu Ljósheimum 16—18, sem er stór, átta hæða íbúðabygging. Ilúsið er í smíöum, en nokkrar fjölskyldur hafa þegar flutt í það. Eldur hafði komið upp í einangrunarefni, sem lá í hrúgu á kjallaragólfi, og er talið senni- legt, að börn hafi kveikt í því. Mikil reykjarsvæla myndaðist við eldinn, og lagði hana upp um loftræstigöng, sem ekki hefur verið gengið frá. Fylltust sumar íbúðirnar á néðstu hæð af reyk, og einnig komst reykur ofar um húsið með einangrun, allt upp á þriðju hæð sums staðar. Eldur komst hvergi upp úr kjallaran- um. Mikil hræðsla greip ýmsa íbúa hússins, enda fylltust nokkrar íbúðir alveg af reykjarbrælu. Konur fóru með börn sín út á svalir, sem eru enn handriða- lausar, en ekkert óhapp kom fyrir. Slökkviliðsmenn voru fljótir að slökkva í, en voru þarna að störfum um eina klukkustund, og voru síðan tveir brunaverðir skildir eftir. Litlar skemmdir urðu beint af völdum eldsins, en allmiklar af reyk og nokkrar af vatni. Kogstæður vöru skiptujöfnuður í növsmber Vöruskiptajöfnuðurinn í nóv- embermánuði s.l. varð hagstæð- ur um 2.4 milljónir króna. Út voru fluttar vörur fyrir 518.7 milljónir, en inn fyrir 516.3 millj ónir króna. 1 nóvembermánuði 1964 var vöruskiptajöfnuðurinn hagstæð- ur um 117.5 milljónir króna. Þá voru fluttar út vörur fyrir 508.9 milljónir, en inn fyrir 391.4 milljónir. Á tímabilinu janúar-nóvem- ber 1965 varð vöruskiptajöfnuð- urinn óhagstæður um 445.4 millj ónir króna. Þá voru fluttar út vörur fyrir 4.723.5 milljónir króna, en inn fyrir 5.168.9 millj- ónir króna, þar af skip og flug- vélar fyrir 468 milljónir. ' Á sama tímabili 1964 varð vöruskiptajöfnuðurinn óhagstæð ur um 467.1 milljón. Þá voru fluttar út vörur fyrir 4.294.7 milljónir króna, en inn fyrir 4.761.7 milljónir, þar af skip fyrir 580.8 milljónir króna. Látbragðsleikar- inn mikli, Marceau sýnir í Þjóðlcikhúsinu í vor LÁTBRAGÐSLEIKARINN mikli Marcel Marceau, kemur til Reykjavíkur í júní næstkomandi og mun hafa sýniingu á sviði Þjóðleikhússins. Hefur leikhúsið nýlega samið við hann um kom- uira hingað, að því er Guðlaugur Rósinkranz tjáði Mbl. Marceau verður á Norðurlöndum í vor og fer síðan til London, en þar sýn- ir hann nær árlega í margar vik ur eða mánuði fyrir fullu húsi. Frá London kemur hann til ís- lands. Með honum eru þrír að- stoðarmenn. Þjóðleikhússtjbri kvaðst í mörg ár vera búinn að reyna að fá listamanninn gegnum opinbera aðila, en hefði svo hitt danskan vin hans, sem búsettur er í París. Sá hefði hringt í kaffihús-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.