Morgunblaðið - 05.01.1966, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 05.01.1966, Qupperneq 3
Ifiðvikudagur 6. janúar 1966 MORCUNBLAÐIÐ 3 I eöaís, eldur og hraun Veitingastaðurinn Ice- land Food Centre hefir nú starfað í London frá því nokkrum dögum fyrir jól og starfsemin gengið allvel. Eins og fram hefir komið í viðtali við forstjórann er frágangur allur hinn snotr- asti á veitingastaðnum og útlit hans rómáð fyrir smekkvísi. Myndirnar sem hér birtast gefa lítillega til kynna hvern- ig staðurinn lítur út, en þó skortir mjög á að ekki skuli sjást litirnir, sem í höfuð- dráttum eru þrír, hvítt, rautt og svart. hiljur eru úr mjög ljósum harðviði, básar og börð úr ljósum og svörtum harðviði en áklæði rautt. Loft rimlar eru hvítir og svartir en loftið að baki rautt og um gjörð um grill hamraður kop- ar. Gólfteppi eru rauð en Ijós- ker hvít og þannig úr garði gerð að ljós fellur ekki beint út úr þeim heldur með endur kasti og því verður birta mild ari. Fallegum myndum hefur verið komið fyrir á tveim) stöðum í salnum. Eru þær báð ar frá Surtsey, ljósmyndir teknar af hraungosi á nætur þeli í eðlilegum litum, sem aðallega eru rautt og svart. Myndirnar eru gagnsæjar (diapositívar) og eru staðsett ar í ljóskössum, þannig að ijós fellur út gegnum þær. Myndir þessar tók Hjálmar R. Bárðarson skipaskoðunarstj. Nú um jólahátíðirnar var gluggi stofnunarinnar fagur- lega skreyttur með jóla- skrauti og setti það jólasvip á veitingastaðinn. Allt útlit Iceland Food Centre hefur Jón Haraldsson arkitekt annast. Myndir þær, sem hér fylgja sýna veitingastaðinn hið innra, önnur séð inn eftir hon um en hin út. í>á sýnir þriðja myndin staðinn séð utan frá með jólaskrauti í glugga. f GÆR var vaxandi austanátt hér á landi. Enn var frost nyrðra, en sunnanlands og stig kl. 14 og komin rigning. vestan var hiti þrjú til sex Að öllum líkindum verður þíðviðri næstu daga um allt land. Veðurútlit í dag: SV-land, SV-mið, Faxaflóa- mið og Breiðafjarðarmið: All- hvass SA og skúrir. Faxaflói, Breiðafj. og Vestf.: SA-stinningskaldi og smáskúr- ir. Vestfjarðamið: A-rok, snjó- koma eða slydda og síðar rign ing. N-land, NA-land, Austfirð- ir, N-mið og NA-mið: A- eða SA-hvassviðri og rigning, en síðan lygnir og léttir til. SA-land, Austfjarðamið, SA mið og Austurdjúp: SA-hvass- viðri eða stormur. Þokuloft og rigning. Veðurhorfur á fimmtudag: Suðaupstlæg átt og þíðviðri um allt land. Dálítil rigning sunnan til, en bjartviðri fyrir norðan. > STAKSTFIMAR Öhappaferill Framsóknar Á liðnu ári gekk stjórnmála- þróunin mjög í óhag Framsóknar flokknum. Flokkurinn gerði ítrekaðar tilraunir tii þess að notfæra sér þrjú stdr vandamál, sem upp komu á liðnu sumri og hausti, til árása á ríkisstjórnina, en öll þessi mál snerust í hendi Framsóknarforingjanna og hittu þá sjálfa að lokum. Tilraunir þeirra til þess að spilla fyrir kjarasamniingunum í sumar mis- tókust með öllu. Ofsafenginn áróð ur þeirra í síldveiðideilunni, sem upp kom á miðju sumri, ofbauð mönnum svo, að líklega hefur hann fremur stuðlað að skjótum samningum, og tilraunir þeirra í haust til þess að magna upp óánægju meðal bænda vegna ákvörðunar búvöruverðs fundu engan hljómgrunn mcðal bænda stéttarinnar í landiniu, sem Fram sóknarmenn hafa þó jafnan tal- ið sitt sterkasta vígi. Þótt ekki hefði verið nema vegna þessa óhappaferils hefði árið 1965 orð- ið slæmt ár fyrir Framsóknar- flokkinn. Máttvana flokkur En liðið ár sýndi einnig glögg- lega að iangvarandi stjórnar- andstaða hefur dregið mjög máttinn úr þessum stjórnmála- flokki, sem að mati erlendra manna hagar sér eins og flokkur, sem telur sig rétt borinn til þess að stjóma. Og raunar er ekki að undra, að langvarandi stjórn arandstaða sé farin að segja til sín innan Framsóknarflokksins og gagnvart foringjum hans, sem hafa átt því að venjast að sitja við stjórnarvölinn, meira og minna óslitið í þrjá áratugi. Greinilegt var á siftosta ári, að mjög var farið að draga af Fram sóknarfiokkn.um í stjórnarand- stöðunni, og almennt eru menn sammála um, að vesaldómur hans í stjómarandstöðunni sé orðinn slíkur, að erfitt verði fyrir hann að komast miklu nteðar. Deilurnai blossa upp Allt hefur þetta haft þau áhrif, að miklar deiiur hafa blossað upp innan Framsóknar- flokksins síðustu mánuði. I október urðu átök innan ungliða- samtaka Framsóknarmanna, sem tóku á sig afkáralegar myndir og lauk með því, að flokksformað- urinn kvað upp hinn stóra dóm í þeim ágreiningsmálum, sem þar var um að ræða. Þessi átök, sem raunar eru .aðeins afleiðing meiri og iangvarandi deilna inn- an samtaka untgra Framsóknar- manna hafa lamað þau að miklu leyti. í desember urðu svo geysi- harðar deilur innan þingflokks Framsóknarflokksins um afstöð- una til alúmínmálsins, og þar barði Eysteinn Jónsson í gegn hina afturhaldssömu afstöðu flokksins til þess máls, þrátt fyr- ir eindregna andstöðu nokkurra þingmanna, sem síðan hafa ekki látið til sín heyra. Allt þetta sýnir, að liðið ár hefur verið Fmmsókmarflokknum slæmt ár, og þær deilur, sem urðu í flokkn um síðari hluta ársins og urðu meira og minna opinberar, eru aðeins upphafið að miklu víð- tækari átökum, sem þar munu verða á næstu mánuðum og árum a.m.k. meðan Eysteinn Jónsson situr þar enn við völd.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.