Morgunblaðið - 05.01.1966, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 05.01.1966, Blaðsíða 4
4 MORGU NBLADID Miðvikudagur G. janúar 1966 Atvinna óskast Bifreiðastjóri óskar eftir atvinnu sem fyrst. Vanur leiguakstri. Uppl. í síma 22597 e. kl. 18.00. Unglingspiltur óskast á sveitaheimili norð- ur í landi. Upplýsingar í síma 36137. Gítarkennsla Get bætt við nemendum. Ásta Sveinsdóttir Sími 15306. Keflavík Stúlka vön skrifstofustörf- um óskar eftir atvinnu nú þegar. Hringið í síma 1928 á milli 4 og 6 í dag. Mötuneyti Vön matreiðslukona óskar eftir að taka að sér mötu- neyti á komandi vertíð. — Uppl. í síma 19026 daglega og næstu daga. Barnlaus ekkja óskar eftir ráðskonustöðu. Gott húsnæði áskilið. Tilb. sendist Mbl. fyrir 10. þ. m., merkt: „Faxaflói — 8162“. Notaður miðstöðvarketill 2%—3 ferm. óskast keypt- ur. Uppl. í síma 16370 milli kl. 8—12 og 13—18 á daginn. Volkswagen, árgerð 1963 til sölu, vel útlítandi og í góðu standi. Uppl. í síma 34178. Smíða skápa í svefnherbergi. Allar við- artegundir. — Sími 41587. Eins til tveggja herb. íbúð óskast, má vera aðgangur að eldhúsi. Uppl. í síma 31045. Húsainnréttingar Smíðum eldhús og svefn- herbergisinnréttingar. — Sími 32252. Húsasmíðameistari getur bætt við sig verk- efnum. Tilboð leggist inn á afgreiðslu blaðsins fyrir 10. þ. m., merkt: „Verk — 8157“. Kennaraskólanemi vill taka að sér að lesa íslenzku og reikning með nemendum á unglingastig- inu. Uppl. Öldugötu 57, 4. hæð eftir kl. 8. Keflavík — Njarðvík 3ja herb. íbúð óskast til leigu. Uppl. í síma 51970. ATHUGIÐ að borjð saman við útbreiðslu er langtum ódýrara að auglýsa • Morgunbtaðmu en öðium biöðum. IJr íslendingasögunum HALLFREÐUR VANDRÆÐASKÁLD „Þá var Hallfreðr nær fertugum manni, er hann ætlaði til íslands at sækja fé sitt. Hallfreðr, sonr hans, var þá með honum. Þeir höfðu útivist harða. Hallfreðr jós at sinum hlut ok var þá sjúkr mjök. Ok einn dag, er hann gékk frá austri, settist hann niðr á ásinn, ok í því laust áfall hann niðr í skipit ok ásinn ofan á hann þá mælti Þorvaldr: „Er þér bróðir, erfitt við orðit?“ Þá kvað Hallfreðr vísu. Þeir þóttust sjá sótt á honum ok leiddu hann aftr eftir skipinu ok bjuggu um hann ok spurðu hversu honum ok segði hugr um sik. Hann kvað vísu. . . . Þá sá þeir konu ganga eftir skipinu. Hon var mikil ok í brynju. Hon gekk á bylgjum sem á landi. Hallfreðr leit til ok sá, at þar var fylgikona hans.“ — (Hallfreðar saga). Nýlega voru gefin saman i hjónaband í Fríkirkjunni í Hafn- arfirði af séra Kristni Stefáns- syni ungfrú Ingunn Elísabet Victorsdóttir, Vífilsgötu og Sig- urður Ólafsson húsasmiður Sel- vogsgötu 18, Hafnarfirði. Ljós- myndastofa Hafnarfjarðar, Strandgötu 35C). Á gamlársdag opinberuðu trú- lofun sína ungfrú Kristín Briem, stud. jur., Sigtúni 39 og Sigur- jón H. Ólafsson, stud. odont, Stóragerði 23. Á gamlárskvöld opinberuðu trúlofun sína ungfrú Halldís Gunnarsdóttir, húsmæðrakenn- ari, Varmalandi, Borgarfirði og Sigvaldi Arason, Sæunnargötu 4, Borgarnesi. Á gamlárskvöld opinberuðu trúlöfun sína ungfrú Anna M. Pétursdóttir, Sólheimum, Sel tjarnarnesi og Eiríkur Haralds- son, fré Gröf, Breiðuvíkurhreppi, Snæfellsnesi. Nýlega voru gefin saman í hjónaband í Hafnarfjarðakirkju af séra Garðari Þorsteinssyni, ungfrú Jónína M. Ólafsdóttir og Sigvaldi Ragnarsson, rafvéla- virki. Heimili þeirra er að Álfa- skeið 36, Hafnarfirði. (Ljós myndastofa Hafnarfjarðar Strandgötu 35). GAMALT og gott Guðmundur Dúllari mun ekki hafa fengist mikið við visnagerð, en eitt sinn, er hann var gest- komandi á Reykjum í Lundar- reykjardal, mælti hann fram þessa vísu við Ingunni húsfreyju: Sjöunda júní sagt er mér, að sé ég fæddur, nokkuð miklum gáfum gæddur, en gat ei orðið vel upp fræddur. Verið því ávalt vakandi og biðj- andi, til þess að þér megnið »0 um- j flýja allt þetta, sem fram mun koma ' (Lúk. 21, 36). í dag er miðvikudagur 5. janúar og er það 5. dagur ársins 1965. Eftir lifa 360 dagar. / Árdegisháflæði kl. 3.47. Síðdegisháflæði kl. 16:07. Upplýsingar um tæknaþjon- ostu í borginni gefnar í sím- svara Læknafélags Reykjavíkur, Símin er 18888. Slysavarðstolac $ Heilsuvrrnd- arstöðinni. — Opin allan soltr- hringinn — sími 2-12-30. Helgidagsvörður. Nýársdagur. Lyfjabúðin Iðunn. Næturvörð- ur vikuna 1/1—8/1 Reykjavíkur- apótek. Næturvörður vikuna 24. des. til 31. des. er í Vesturbæjar- apóteki. Næturlæknir í Keflavík 30/12— 31/12 Arnbjörn Ólafsson sími 1840, 1/1—2/1 Guðjón Klemens- son sími 1567. 3/1 Jón K. Jó- hannsson sími 1800, 4/1 Kjartan Ólafsson sími 1700, 5/1 Arnbjörn Ólafsson sími 1840. Næturlæknir í Hafnarfirði að- faranótt 6. janúar er Kristján Jóhannesson sími 50056. Kópavogsapótek er opið alla virka daga frá kl. 9:15—20. laug- ardaga frá kl. 9:15—16, helgidaga frá kl. 13—16. Framvegis vcrVur tekið á mótl þeim, er gefa vilja bióð t Blóðbankann, sem hér segir: Mánudaga, þriðjudaga, fimmtudaga og föstudaga frá kl. 9—11 f.h. og 2—4 e.h. MIÐVIKUDAGA frA kl. 2—8 e.h. Laugardaga fra kl. 9—11 f-h. Sérstök athygll skal vakin á mið- vikudögum, vegna kvöldtímans. Holtsopótek, Garðsapótek, Soga veg 108, Laugarnesapótek og Apótek Keflavikur eru opin alla virka daga kl. 9. — 7., nema laugardaga frá kl. 9 — 4 og helgi daga frá kl. 1 — 4. Upplýsingaþjónusta AA samtak anna, Hverfisg. 116, sími 16373. Opin alla virka daga frá kl. 6-7 Orð lífsins svarar 1 sima 19000. RMR-5-1-20-VS-MT-I-A-HT. I.O.O.F. -9 = 147158)4 = I.O.O.F. 7 = 147158)4 = Á jóladag voru gefin saman í Dómkirkjunni af séra Jóni Auð- uns ungfrú Elín Ragnarsdóttir og Haukur Hallsson. Hólmgarði 19. (Studio Guðmundar Garða- stræti 8 sími 20900). Á jóladag voru gefin saman í Hábæjarkirkju af séra_ Sveini ögmundssyni ungfrú Ágústína Ólafsdóttir, Vatnskoti, Þykkva- bæ og Ágúst Karl Sigmundsson, Gnoðavog 40, Reykjavík. Heimili (Studio Guðmundar Garðastræti) >f Gengið >f Reykjavík 4. janúar 1966. 1 Sterlingspund .....120,58 120,68 1 Banaar doilar ...._... 42,95 43.0« 1 Kanadadollar = 39.92 40.03 10<' Danskar krónur 623,70 625,30 100 Norskar krónur 601,18 602,72 100 Sænskar krónur .... 830.40 832,55 100 Finnsk mörk =....= 1.335.20 1.338.72 100 Fr. frankar ... 876,18 878,42 100 Belg. frankar ......- 86.47 86,69 100 Svissn. franlcar 994.86 997,40 100 Gyllini..... 1.189,34 1.192,40 100 Tékkn. krónur _____ 596.40 598.00 100 V-þýzk mörk .... 1.073,20 1.075.96 100 Lirur ................ 6.88 6.90 100 Austurr. sch.... 166.46 166.88 Gegnum kýraugað Er það ekki furðulegt, hvað seint unglingum lærist að virða almenna mannasiði i kvikmyndahúsum? Segja má, að það sé útilokað að koma með börn sín á svo- kallaðar barnasýningar án þess að eiga það á hættu að heyrn þeirra spillist af orgi, sem enga hliðstæðu á sér, eða þá núna um áramótin af kín- verja og púðurkelingaspreng ingum. Á nýársdag brugðu sér tvenn hjón á bíó, myndin átti að vera bönnuð börnum, en þarna var mikill meiri hluti áhorfenda undir 12 ára, og lætin í þeim voru eins og hjá óargadýrum, og einhverjir ósvífnir prakkarar hentu kin- verjum í allar áttir, en af slíku athæfi í svona fjölmenni get- ur stafað mkiil hætta. Ekki varð séð að nokkrir eftirlitsmenn reyndu til að hafa upp á þessum pörupilt- um, og einhvernveginn finnst okkur, sem kvikmyndahús sækjum, að það sé skylda eigenda þessara húsa, að gera ráðstafanir til að útiloka þennan skepnuskap, og ef kvikmyndahúsin sjálf treysta sér ekki til að halda uppi reglu í kvikmyndahúsinu, að þau leiti þá til lögreglunnar um aðstoð. Hvernig væri að hætta sýn- ingu, og skýra frá því, að sýning hæfist ekki aftur fyrri en öll ólæti væru hætt? Eitthvað hlýtur að mega reyna. Skyldu foreldrar al- mennt vita hvernig sum börn láta á þessum sýningum? Máski væri bezt að snúa sér til unglinganna sjálfra og- segja: „Hættið þessum skríls- látum, krakkar mínir. Þau eru ykkur og heimilum ykkar til skammar!“ sá HÆSJ bezti Stúlka nokkur varaði unnusta sinn við að reykja og sagði að það stytti aldur manna. Unnusti hennar sagði þá: „Faðir þinn reykir þó, og er hann orðinn sjötugur." „Já“, svaraði stúlkan. „En ef hann hefði ekki reykt, þá væri hann kannske orðinn áttræður.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.