Morgunblaðið - 05.01.1966, Side 14
14
MORGU NBLAÐIÐ
Miðvikudagur 6. janúar 1964
Útgefandi:
Framkvæmdastjóri:
Ritstjórar:
Ritstjórnarfulltrúi:
Auglýsingar:
Ritstjórn:
Auglýsingar og afgreiðsla:
Áskriftargjald kr. 95.00
í lausasölu kr.
Hf. Árvakur, Reykjavík.
Sigfús Jónsson.
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Þorbjörn Guðmundsson.
Árni Garðar Kristinsson.
Aðalstræti 6.
Aðalstræti 6. Sími 22480.
á mánuði innanlands.
5.00 eintakið.
I LEIT AÐ LÍFS-
HAMINGJU
¥ ávarpi Bjarna Benedikts-
■*- sonar, forsætisráðherra, til
þjóðárinnar á gamlárskvöld,
vék hann m.a. að þeim rödd-
um, sem upp hafa komið
um svokallaða „lífsþæginda-
græðgi“ þjóðarinnar. Um
þetta sagði forsætisráðherra:
„Frá fornu fari hafa fáir
getið sér meiri virðingu en
þeir, sem afneitað hafa heims-
ins gæðum, lífsþægindum, ef
menn vilja taka svo til orða.
En þeir, sem eru af þessum
heimi og í honum lifa, verða
að viðurkenna þá staðreynd,
að þeir eru sárafáir, sem
svona líta á. Hvort sem sið-
bótarmönnum þykir ljúft eða
leitt, eru aukin lífsþægindi,
bætt lífskjör, á meðal þess,
sem fjöldanum þykir eftir-
sóknarverðast. Allra sízt ætt-
um við, sem í okkar þjóðfé-
lagi, þar sem stétta- og auð-
legðarmunur er þó minni en
annars staðar, höfum notið
þeirrar gæfu, ekki einungis
að hafa ætíð nóg að bíta og
brenna, heldur og fengið að
læra utanlands og innan það,
sem okkur lysti, að hneyksl-
ast á „lífsþægindagræðgi“
•annarra, á meðan mikill f jöldi
landa okkar verður að vinna
myrkranna á milli til þess að
hafa í sig og á, og nýtur naum
ast nema á stórhátíðum svo
sjálfsagðra lífsþæginda, sem
að fá að vera með fjölskyldu
sinni, konu og börnum“.
Og síðar sagði Bjarni Bene-
diktsson:
„Bætt lífskjör, lífsþægindin
ein, tryggja engum manni
lífshamingju, en það er há-
mark hræsninnar, þegar heir,
sem sjálfir slá ekki hendi á
móti þægindum lífsins láta
eins og aðrir væru betur
-komnir án þeirra. Spurningin
er ekki um það, hvort „lífs-
þægindi“ séu málefni, sem
ber að sinna, heldur hvernig
þau verði tryggð sem allra
flestum“.
Undir þessi orð forsætisráð-
herra munu vafalaust flestir
landsmenn taka. Þótt íslend-
ingar hafi sem aðrar þjóðir,
lagt mikið kapp á að bæta
lífskjör sín á undanförnum
árum og búa betur að sér og
sínum en áður var hægt,
mega menn ekki ætla, að það
sé vottur þess, að þjóðin sæk-
fst nú eftir þægindunum ein-
um. Hin stórbættu lífskjör
hafa einungis orðið að veru-
leika vegna mikillar vinnu
þjóðarinnar, og óhætt er að
fullyrða, að hér vinna menn
úr öllum stéttum almennt
jafn mikið og líklega tölu-
vert meira, heldur en hjá ná-
grannaþjóðum okkar.
Hætt er líka við, að það
verði svo að vera, ef lítil þjóð
vill halda til jafns við aðrar
og stærri, sem betri aðstöðu
hafa, í bættum lífskjörum á
komandi árum. En sízt skyldu
menn fordæma þá viðleitni
annarra að búa vel í haginn
fyrir fjölskyldur sínar. Það
er hin eðlilega ósk hvers
manns, og á ekkert skylt við
„lífsþægindagræðgi“ eða úr-
kynjun.
ÁRANGURSLAUS-
AR FRIÐAR-
UMLEITANIR
A ð undanförnu hefur Banda-
** ríkjastjórn haft uppi víð-
tækar tilraunir til þess að
koma á friði í Víetnam. Ýms-
ir sendimenn Bandaríkja-
stjórnar, þar á meðal Hump-
hrey varaforseti, hafa verið á
ferðalögum víða um heim og
rætt við ráðamenn í mörgum
löndum um leiðir til þess að
stöðva styrjöldina í Víetnam.
Hingað til hefur þessi friðar-
viðleitni engan árangur bor-
ið, eingöngu vegna þess, að
kommúnistastjórnin í Hanoi
hefur hafnað öllum tillögum
um, að teknar verði upp samn
ingaviðræður um Víetnam-
málið.
Ekki verður Bandaríkja-
stjórn sökuð um, að hún vilji
halda styrjöldinni í Víetnam
áfram, heldur er alveg ljóst,
að allar friðarumleitanir hafa
strandað á kommúnistum í
Asíu.
Styrjöldin í Víetnam hefur
magnazt mjög undanfarna
mánuði, og er nú talið, að a.
m.k. 15 herfylki frá Norður-
Víetnam séu til staðar í Suð-
ur-Víetnam. Frekari vitna
þarf ekki við um þátttöku
Norður-Víetnam í þessari
styrjöld, og er alveg ljóst
hvers eðlis hún er, þótt Norð-
ur-Víetnam hafi ekki lýst op-
inberlega yfir styrjöld á hend
ur Suður-Víetnam.
Þótt friðarumleitanir hafi
hingað til strandað á komm-
únistum í Asíu, gera menn
sér þó nokkrar vonir um, að
að takast megi að koma á
samningaviðræðum milli
hinna stríðandi aðila, ekki sízt
þar sem vitað er, að Sovétrík-
in vilja gjarna stöðva þessa
styrjöld, og er ekki ólíklegt,
að þau hafi einmitt sterkasta
aðstöðu til þess nú að koma á
samningaumleitunum. Væri
það vissulega vel farið, ef
Bandaríkjamenn og Sovét-
menn, sem allt frá stríðslok-
um hafa átt í hörðum átökum
um víða veröld, taki nú hönd-
Silfurjoðíð-reykmyndunartækjum varpað í skýjið. Efst t.v.: tækjunum varpað; e.t.h.: 9 mínút-1
um síðar; n.t.v.: 19 mínútum síðar; n.t.h.: 38 mínútum siðar. 25 reykmyndunartækjum, af
þeirri gerð, sem sést í miðju, var varpað.
Verður unnt að
breyta veðrinu?
FYRIR eigi lömgu stjórnaði
kona að nafni Joanne S. Simp-
son sókn sex flugvéla gegn
bólisturslkýi, sem myndazt
ihaifði yfir Karibdska hafinu
við Ameríku. Þetta var þó
ekki skemimtiflug, því að Jo-
anne Siimpson er þekktur
veðurfræðingur vestan hafs,
og tilgangurinn með þessari
,sókn“ gegn skýinu var að
sprengja það, svo að það
stækkaði og yrði langliífara.
Með þessu var líka verið að
safna gögnum um hegðun
sikýja við ýmis skilyrði.
PróÆessor Simpson er meðal
margra bandarískra vísinda-
manna, sem starfa ötulilega að
athugun á því, hverniig mönn-
um verði unnt að hafa nokk-
ur áhrif á veðurfarið. Eru það
veðunsfofa Bandaríkjanna og
bandaríski flotinn, sem hafa
veg og vanda af þessum
merku athugunum.
Bólsturský sjá jörðinni fyrir
megninu af því regmi, sem til
jarðar fellur, og vatnsbirgð-
um þeim, sem jarðargróða eru
nauðsynlegar, en einkum á
þetta þó við um hitabeltið. En
þau eru einnig driiffjöður stór
viðra og hvirfilvinda.
Bólsturskýi er markað sevi-
skeið eins og manninum. Fæð
ing, líf og dauði getur staðið
aðeins tíu mínútur, þegar um
Mtið Ský er að ræða, eða það
getur orðið allt að klukku-
stundar gamalt, þegar uim
stóra skúraflóka er að ræða.
Bóilisturský, sem myndas't yfir
sjó í hitabeltinu, getur í þurru
lofti náð um 8000 metra hæð,
en þar uppi er oft fyrir þurrt
Xoftlag ,er hindrar frekari
vöxt þess.
Það, sem prófessor Simpson
og aðstoðarmenn hennar
gerðu, var að auka vaxtar-
mátt síkýja, svo að þau
„sprungu" gegnuim þurra loft-
lagið og náði talsvert hærri
al'dri en venjulega. Þetta var
gert með því að varpa 25 silif-
ur joðíð-reykmyndunartæfcj -
um úr flugvél í skýið. Raki
skýsins dróst að silifurjoðíð-
ögnunum og fraus á þeim. Um
leið og þessi raki fraus og
varð að ís, losnaði hiti í hon-
um úr læðingi, eins og gert
hafði verið ráð fyrir.
um saman um að leysa hörm-
ungar þessarar styrjaldar í
suðaustur Asíu.
FAGNAÐAREFNI
t gær hófust í Sovétríkjun-
um viðræður milli Ayub
Khan, forseta Pakistan, og
Shastri, forsætisráðherra Ind-
lands, um Kasmírdeiluna.
Þessir tveir Asíuleiðtogar eru
komnir til Sovétríkjanna í
boði Kosygins forsætisráð-
herra, til þess að ræða þessa
deilu.
Ástæða er til að fagna við-
leitni Sovétstjórnarinnar til
þess að koma á samningum
um Kasmírmálið, sem verið
hefur deiluefni Indlands og
Pakistans á annan áratug.
Sérstök ástæða er til þess að
fagna þessari viðleitni Sovét-
ríkjanna vegna þess, að þau
hafa allt fram á síðustu ár
Bftir fáainar mínúitur haifði
hitinn í skýinu hœikkað um
eifct stig á Celsíus, sem var að
vísu ekiki mikil breyting en
nægði þó til þess að skýið
sprengdi af sér venjuleg tak-
mörk sán. Það tvöfaldaði hæð
sína — teygðist upp í 14.000
mesitra hæð — breiddi auik þess
úr sér, svo að rúmtak þess
ferfaidaðist. Skýið, sem verð-
ur fyrir slíkri meðferð getur
jafnvel einnig „lifað“ tvö-
falt lengur en önnur ský á
sömu Slóðuim, sem silfur joðíði
hefir verið sáldrað á.
Eftir
Robert Stevens
Flugvélar búnar' alls konar
mælitælkjuim fljúga inn í ský-
in fyrir og eftir „meðferð“ til
að fylgjast með breytingium
á þeim. Á fjögurra daga tíma-
bil'i fylgdiust starfsmenn Simp
sons prófeseors með ellefu
skýjum, og var silfurjoðíði
sáldrað yifir sex þeirra. Fjögur
af þeim skýjium „sprungu"
végna þessa, en hin tvö, sem
Simpson sagði, að sáldrað
hefði verið yfir með ófullnægj
andi hætti áttu sér aðeins
„venjulega ævi“, og skýin
fimm, sem ekki var sáldrað
yfir, sprungu ekki, og „dóu
eðlilegum dauða“ slí'kra skýja.
Vísindamenn á sviði veður-
fræðinnar eru ekki lengur
Framh. á bls. 20
verið það afl í heiminum, sem
egnt hefur til ófriðar og hald-
ið uppi stöðugri árásarstefnu
gagnvart frjálsum þjóðum
heims.
Þau hafa nú tekið sér fyrir
hendur að reyna að koma á
samningum í viðkvæmri
deilu, og er það væntanlega
fyrsta skrefið í þá átt, að stór-
veldin, Bandaríkin og Sovét-
ríkin beiti sameiginlegu afli
til friðar í heiminum í fram-
tíðinni.