Morgunblaðið - 05.01.1966, Page 27
Miðvikuðagur 9. Januar 1966
MORGUNBLAÐID
27
Tveir verktakar leggfa
hitaveitu I Smá-
■búðahverfi
TVEIR aðilar hafa tekið að
sér hitaveitulögn í Smáíbúðar-
hverfi og hefur Innkaupastofn-
unin samið við þá. Verk h.f.,
sem bauð lægst í verkið, óskaði
eftir að losna við hluta af því,
og tók næsti aðili Ok h.f. að sér
Bústaðahverfið.
Verk h.f. tekur að sér lagn-
ingu hitaveitu í Smáíbúðarhverf
ið milli Réttarholtsvegar, Grens-
ásvegar, Sogavegs og að hita-
Sementsverk-
smiðjan
Akranesi, 4. janúar.
SEMENTSVERKSMIÐJAN skeyt
ir ekki um óveðrið. Þar hefur
verið unnið með fullum afköst-
um um jólin og nýjárið og milli
hátíða. Einhver hefði svar-
ið fyrir það á dögum innréttinga
Skúla fógeta, að anno Domini
1965 starfaði sementsverksmiðja
á Akranesi, sem hefði stærstu
vertíð á landinu, en aðalsements-
salan, þ. e. vertíðin, stendur frá
því snemma vorsins fram á
harðahaust. — Oddur.
— Hlakka til
Framhald af bls. 32.
Leikritið hefði ekki hlotið
nafn ennþá, persónur ekiki
fengið nafn, og erfitt væri að
staðsetja leikinn í tíma. Hann
tilheyrði svipuðutm tíma og
Prjónastofan Sólin og gæiti
gerzt á sl. 20 árum.
Heigl setur upp nýja leikritið
Þá hafði Mbl. tal af Sveini
Einarssyni, leiklhússtjóra Leik
félagsins, sem sagði að ætlun-
in væri að hefja ætfingar á
nýja leikritirau eftir Laxness
seinni hlu'ta janúar og hlökk-
uðu menn til að vinna þetita
verk í leiklhúsinu. Helgi Skúla
son mundi setja það á svið,
en hann -gæti ekki enn sagt
ihverjir færu með aðalhlut-
venkin, sem ekki eru mörg.
•— Við höfum fylgzt svolítið
með tilurð þessa leikrits,
sagði Sveinn. Okkur hefur
lengi langað til að sýna leik-
rit eftir Halldór Laxness. Við
leituðum hófanna um að fá að
sýna Prjónastofuna Sólin fyr-
ir nokkru og það stóð lengi til
að við færðum hana upp. En
af ýmsum orsökum var ekki
hægt að koma því við. Síðan
varð að samkomulagi að við
tækjum þetta nýja leikrit.
Baldvin leikstjóri
Prjónastofunnar
Mbl. hringdi einnig til Guð-
laugs Rósinkranz, Þjóðleik-
hússstjóra, sem sagði að lengi
hefði staðið til að sýna Prjóna
stofuna Sólin og nýlega væri
búið að ganga frá samning-
um um það. Mundu æfingar
hefjast um miðjan mánuð. Nú
væru þrjú leikrit í æfingu í
Þj óðleikhúsinu, Gullna hliðið
og tveir einþáttungar fyrir
litla sviðið. Það eru Hrólfur
eftir Sigurð Pétursson, sýslu-
mann, elzta íslenzka leikritið,
sett á svið 1796, og Á rúmsjó
eftir pólskan nútímahöfund.
Þegar þær sýningar væru
hafnar mundu teknar upp æf-
ingar á Prjónastofunni Sólin.
Leikstjóri verður Baldvin
Halldórsson, en Þjóðleikhúss-
stjóri sagðist ekki enn geta
nefn nöfn leikara. Persónur
eru kunnar, því leikritið hefur
■komið út. Aðalhlutverkin eru
Ibsen Ljósdal, eigandi Prjóna-
stofunnar, Sólborg prjóna-
kona og Þrídís.
veitustokknum á hæðinni, og
fyrir kr. 8 millj. 970 þús. Er
verkið þegar hafið og gengur
vel.
Ok h.f. tekur að sér svæðið
frá hitaveitustokknum að Bú-
staðahverfi fyrir kr. 3 millj. 450
þús. Og mun hefja framkvæmd-
ir mjög fljótlega.
Veður ú Hveru-
völluni í des. ‘65
SVO sem kunnugt er hefur Veð-
urstofan fólk við veðurathuganir
á Hveravöllum í vetur, og er það
mikilvægur li'ður í könnun á
veðurfari hálendisins.
Meðalhitinn í desember reynd-
ist -—8.3° C, úrkoma í mánuðin-
um mældist 14 mm og bjart sól-
skin var í 6 klukkustundir og
12 mínútur. Lægstur lofthiti í
mannhæð mældist á 2. dag jóla,
—22.0°, en hæstur hiti 4.7° þ.
15. Meðalvindhraði í 10 mínútur
komst hæst í 52 hnúta, en það
samsvarar 10 vindstigum.
Til samanburðar má geta þess,
að í Reykjavík hældist méðalhiti
desember —1.3°, en á Akureyri
—4.9°. Úrkoma í Reykjavik var
41 mm, en á Akureyri 33 mm.
Sólskin mældist í Reykjavík
1414 klukkustund.
Yfirleitt má segja, að desem-
ber hafi verið mjög kaldur og
úrkomulítill um allt land. Hefur
ekki mælzt jafnkaldur desem-
bermánuður á Akureyri frá 1917,
en þá var meðalhitinn þar —5.4°.
(Frá Veðurstofunni).
— Friðarsókn
Framh. af bls. 1
ársóskir Johnsons, forseta,
um, að unnt yrði að binda
enda á styrjöldina í Víetnam.
Þeirra á meðal Páll páfi VI.,
Harold Wilson, forsætisráð-
herra Breta, Eisako Sato, for-
sætisráðherra Japana, og Al-
eksius patríarki, yfirmaður
grísk-kaþólsku kirkjunnar
rússnesku.
Páll páfi sendi þannig á gaml-
árskvöld sérstakan boðskap til
stjórna Sovétríkjanna og Kína,
og skoraði á ráðamenn að beita
sér fyrir friði, en Aleksius patrí-
arki skoraði á ríkisstjórnir þær,
sem hlut eiga að bardögum, að
hætta þeim tafarlaust. Ekki var
skýrt frá boðskap páfa í Sovét-
ríkjunum ,aðeins boðskap patri-
arksins, en hann notaði jafn-
framt tækifærið til að lýsa því
yfir, að Bandaríkin væru að fót-
umtroða réttlætið, og gera árásir
á óviðkomandi, óháð ríki (N-
Víetnam).
Wilson styður Johnson
Harold Wilson, forsætisráð-
herra, boðaði í gær Vladillen Vas
ev, sendifulltrúa Sovétríkjanna í
London, á sinn fund. Afhenti
hann fulltrúanum sérstaka orð-
sendingu til Aleksei Kosygin,
forsætisráðherra. Segir Wilson
þar að Bretar styðji í einu og
öllu friðarsókn Johnsons, og
skorar á Kosygin að íhuga mögu-
leika á að boða til nýrrar Genfar-
ráðstefnu til að reyna að finna
lausn á Víetnam-vandamálinu.
En Sovétríkin og Bretland skip-
uðu forsæti ráðstefnunnar í Genf
þegar Indókína var skipt árið
1954. Þeir Wilson og Kosygin
hittast til viðræðna í Moskvu
21.—24. febrúar, og er þá talið
víst að Víetnam-málið verði rætt.
Hinsvegar bíður brezka stjórnin
enn eftir svari Sovétstjórnarinn-
ar við áskorun, sem send var til
Moskvu fyrir fjórum vikum um
að Sovétstjórnin beiti sér fyrir
Tokio, 29. des. — Hubert Humphrey, varaforseti Bandarík janna, heimsótti Japan um ára-
mótin, og ræddi þar m.a. við Eisako Sato forsætisráðherra Japan. Ræddu þeir m.a. ástandið
í SA-Asíu. Frá Japan hélt Humphrey til Filippseyja. — AP.
Allmiklar skemmdir
af eldi í Neskaupstað
Neskaupstað 3. jan.
1 DAG um kl. 17.15 var
slökkviliðið hér kallað út. Hafði
kviknað í húsinu nr. 36 við Nes-
götu. Er slökkviliðið kom á vett-
vang reyndist vera talsverður
eldur í öðrum helmkigi húss-
ins, en hann tókst að slökkva í á
skömmum tíma. í þessum hluta
hússins bjó Karl Svendsen með
konu sinni og urðu þarna mikl-
ar skemmdir á eldhúsi og svefn-
því að fá stjórn Norður-Víetnam
til að setjast að samningaborði
og ræða ástandið í Suðaustur-
Asíu.
Lítið hefur heyrzt frá Norður-
Víetnam oj Kína um að engar
loftárásir hafa verið gerð-
ar á Norður-Víetnam frá því fyr-
ir jól. Þó sagði dagblaðið Nhan
Dan í Hanoi í gær að friðarbar-
átta Johnsons sé byggð á falsi og
svikum. I hvert skipti sem Banda
ríkin ræði friðsamlegar viðræður,
auki þau herr.aðaraðgerðir í Víet
nam. Þá benti blaðið á þau um-
mæli Ho Chi Minhs, forseta, að
ekki verði sezt að samningum við
Bandaríkjamenn fyrr en þeir hafi
flutt allt herlið sitt á brott frá
Víetnam. Sagði blaðið að strax
og Bandaríkin hafi hætt árásum,
kvatt her sinn heim og leyft íbú-
um í Víetnam að ráða eigin mál-
um til lykta í samráði við samn-
ingana í Genf 1954, muni friður
komast á í landinu.
herbergi og einnig hafði eldur-
inn lætt sig í stofugólf áður en
tókst að slökkva.
— Verkfallsleiðt.
Framhald af bls. 1
framlengdur, þar til skömmu
fyrir hádegi í dag, að staðar-
tíma. Rúmum stundarfjórðungi
áður en fresturinn rann út,
efndi Quill til fundar með frétta
mönnum, og sagði, að hann
myndi hvorki fara að tilskipan
réttarins né áfrýja úrskurði
hans. Myndi hann því glaður
setjast í fangelsi. þar til verk-
fallið yrði leyst á viðunandi
hátt.
Flutningaverkamenn hafa
gert kröfur til 32 stunda vinnu-
viku, sem skiptist á 4 daga. og
30% launahækkunar.
Fyrirtæki það, sem rekur
strætisvagna og neðanjarðar-
brautir New York borgar, og
er í opinberri eigu, hefur verið
rekið með tapi að undanförnu,
og er talið, að við lok yfirstand-
andi fjárhagsárs, 30. júní nk.,
muni skuldir þess nema um 43
milljónum dala (um 1900 millj.
ísl. króna). Talsmenn þess telja
kröfu flutningaverkamanna
ekki eiga við nein rök að styðj-
ast, og algerlega fjarstæðu-
kennda.
Verkfallið, sem staðið hefur
frá því á nýársdag, hefur vald-
ið gífurlegum vandræðum í New
York.
1 hinum enda hússins bjuggu
hjón með 4 börn en íbúð þeirra
tókst að verja, nema hvað nokkr
ar skemmdir urðu af reyk. Hús
þetta er járnvarið timburhús og
skall hurð nærri hælum að stór-
bruni yrði.
Álitið er að kviknað hafi út
frá olíukynditæki. Engin slys
urðu á mönnum.
Veður var kyrrt og bjart
Mikill elgur ó
götum í gær
MIKIÐ slagveður var í Reykja-
vík í gær, rok og rigning. Víða
urðu vatnsflóð vegna asahlák-
unnar og rigningarinnar; t. d. var
Grensásvegur eins og straum-
vatn tilsýndar milli Miklubraut-
ar og Suðurlandsvegar. Vinnu-
flokkar borgarinnar voru víðs
vegar á ferð til þess að halda
niðurföllum opnum.
Khöfn, 4. janúar. — NTB
LEITIN að litlu stúlkunni,
Tinu, sem rænt var í Khöfn
á dögunum, hefur engan ár-
angur borið. Forstjóri einn,
Willy Holm, hefur heitið
100.000 d. kr. (rúmar 600.000
kr. ísl.) þeim sem barninu
rændu, ef því verði skilað.
Hefur lögreglan í Khöfn lofað
gjafmildi mannsins, en telur
hann geta skapað slæmt for-
dæmi.
Fjórir fulltrúar
Fjórir sérstakir sendifulltrúar
Bandaríkjastjórnar hafa farið
víða um lönd undanfarna daga
og kynnt þjóðhöfðingjum friðar-
baráttu Johnsons. Hubert Hump-
hrey, varaforseti, heimsótti Jap-
an, Filipseyjar, Formósu og Suð-
ur-Kóreu, og sagði fréttamönn-
um við heimkomuna til Washing-
ton í gær að sér hefði allsstaðar
verið vel tekið. Afhenti hann
stjórnum þessara fjögurra landa
skýrslu Bandaríkjastjórnar um
ástand og horfur í Víetnam. —
Averell Harriman hefur ferðast
um Evrópu og Asiu, og ræddi síð-
ast við þá Ayub Khan, forseta
Pakistans, og Shastri, forsætis-
ráðherra Indlands, og Nasser,
Egyptalandsforseta. G. Mennen
Williams, aðstoðarutanríkisráð-
herra, hefur heimsótt ýmis lönd
í Afríku, og Arthur Goldberg,
aðalfulltrúi Bandaríkjanna hjá
Sameinuðu þjóðunum, hefur ferð
azt um Vestur-Evrópu. Heim-
sótti hann m.a. Pál páfa VI., sem
bað hann fyrir orðsendingu til
Johnsons forseta.
Eiginmaður minn
GÍSLI SIGURÐSSON
bifreiðastjóri,
Sigtúni Skagafirði,
lézt 2. janúar s.l. — F. h. aðstandenda.
Helga Magnúsdóttir.
Móðir okkar, fósturmóðir, tengdamóðir og amma
JÓNÍNA JÓNSDÓTTIR
Þórsgötu 21 A,
frá Krossi á Berufjarðarströnd,
lézt í Borgarspítalanum 31. des. Minningarathöfn fer
fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 6. janúar kl.
3 e.h.
Sigríður Helgadóttir, Heimir Gíslason,
Aðalheiður Helgadóttir, Hilmar Ólafsson,
Kristján Bergsson, Albert Stefánsson.