Morgunblaðið - 23.01.1966, Blaðsíða 10
MORGUNBLAÐIÐ
Sunrmdagur 23. j'anúar 1966
Hún fer sínnr
eigin götur
Julie Christie. Hún er engum öðrum lík.
ÞÆR eru ófáar ungu stúlk-
urnar, sem leitað hafa árang-
urslaust á vit kvikmyndaver-
anna í von um frægð og
frama. Þær hafa bundið allar
sínar vonir við kvikmynda-
tökuvélarnar og eytt sínuim
fjármunum til þess að nálg-
ast þær. En í lífi þeirra verð-
ur kvikmyndaiðnaðurinn
aldrei annað en bölvaldur.
Talið er, að aðeins ein stúlka
af hverjum fimmtíu þúsund-
um, sem koma til Hollywood
og annarra kvikmyndaborga
nái einhverjum árangri og oft
er það einungis því að þakka
að þær hafa „sambönd“ —
því að eitt mikilvægasta at-
riðið í slíkri framaleit er
„samibönd, sambönd og aftur
sambönd."
En þegar á hólminn er kom
Julie og Schlesinger.
ið, duga ekki samböndin ein
— eftir það skiptir öllu máli,
hvort viðkomandi er gædd
þeim hæfileikum sem þarf til
þess að ná upp á hæstu tind-
ana í stjörnuiheiminum.
Stúlkan sem sagt verður frá
hér er ein af þeim sem þegar
hafa náð þangað, þótt hún sé
aðeins 24 ára að aldri og hafi
ekki átt ýkja góðum ,sam-
böndum“ að fagna. Hún getur
miklu fremur þakkað árang-
ur sinn þeim „samböndum"
sem öllum öðrum eru nauð-
synlegri — samböndum sínum
við „rnóður náttúru", ef svo
mætti segja. Ekki svo að
skilja að hún sé svo miklu
fallegri en margar aðrar
stúlkur, en þegar hún gengur
um göturnar geislandi af lífs-
gleði, sveiflar til handtösk-
unni sinni, Ijóst hárið henn-
ar þyrlast fyrir vindinum og
sólin glamipar í hraustlegu
hörundinu er því líkast sem
hún sé gædd frumstæðum lífs
krafti, sem svo nátengdur er
náttúruöflunum. Það getur
vart hjá því farið að slík
stúlka dragi að sér athygli
vegfarenda — og þeir vikja
úr vegi fyrir henni. Það er
eins og ósýnilegir straumar
beri hana uppi líkt og svif-
flugu.
Þessi unga stúlka heitir
Julie Ohristie og er í dag álit
in ein af beztu leikkonum í
heimi. Þegar kvikmyndagagn
rýnendur í New York komu
saman í haust til að velja
beztu leikkonu ársins hlaut
hún einróma kosningu fyrir
leik í myndinni „Darling“,
Hinn frægi brezki kvikmynda
leikari, Dirk Bogarde, sem
lék þar á móti henni hefur
sagt að hún hefði meiri hæfi
leika til að bera en allar þær
leikkonur, sem hann hefði
leikið með í þeim 45 kvik-
myndum er hann hefði leikið
í. Og Ingrid Bregman sagði
um Julie Christie eftir að
hún sá hana að hún hefði
sterkastan persónuleika allra
ungra kvikmyndaleikkvenna
er nú væru starfandi. Hún
vakti fyrst athygli sem kvik-
myndalleikkona er hún lék
smáhlutverk í „Billy Liar“,
síðan kom „Darling" og nú
hin umtalaða kvikmynd eftir
sögu Boris Pasternaks „Dr.
Shivago“, þar sem hún leikur
Löru, hina ástríðufullu ást-
mey Dr. Shivago.
Andlit Julie Ohristie er
ekkert sérstaklega fallegt en
það er ómótstæðilega lifandi.
Ýmist er það ljómandi af
gleði, hörkulegt, glaðlegt,
sársaukafullt, viðutan og jafn-
vel aðlaðandi ljótt. Sjál-f seg-
ir hún: — Ég held ekki, að
Dan og Julie, „sérstakt sam-
band.“
karlmenn sjái í mér neinn
lostafullan kynþokka — held
ur miklu fremur einhvers
konar yfirbragð kæruleysis
og hömluleysis. Karlmenn
vilja vera ábyrgðarlausir og
það vil ég líka.
Sú hugmynd — eða andi,
sem borið hefur þessa stúlku
af alfaraleið er hreint ekki
nýr af nálinni — en jafngóð-
ur fyrir því. Sérstaklega þeg-
ar um er að ræða velvaxna
og hæfileikamikla leikkonu.
Það er andi frelsis — hún hef
ur losað sig undan höftum
þeim sem áhyggjur, reglur,
heilabrot og siðmenning eru
venjulegu fólki, hún er ðháð
öðrum og jafnvel óháð sjálfri
sér — og hún veitir sjálfri
sér frelsi til þess að vera hin
ástúðlega, granna og óvenju-
lega stúlka sem Julie Ohristie
virðist vera.
Omar Sharif, sem leikur tit-
ilhlutverkið í „Dr. Zivago“
kallar hana persónugerfing
nýrrar kynslóðar, sem kærir
sig kollóttan um nútíma sið-
venjur. „Hún er duttlungafull
gædd miklu líkamlegu að-
dráttarafli, afar lyktnæm og
næm fyrir öllu sem tengt er
mannlegu tilfinningalífi.
Flestir vinir Julie Christie
í London eru ungir listamenn
og teiknarar, fremur fátækir
og fylgjast ekki með tízku-
breytingum. Hún telst hvorki
í hópi „moddaranna“ — „The
Mods“ svonefndu né „rokkar-
anna“ — „The Rockers" held
ur hefur forystu fyrir hreyf-
ingu sem kalla mætti „The
Mockers“ — (mæ-tti e.t.v.
þýða „háðfuglarnir"). Engu
að síður er hún haldin sama
uppreisnarandanum og aðrir
ungir Englendingar sem hafa
hafið verkamannastéttina til
vegs og virðingar, lítillækkað
yfirstéttirnar, sveipað æsku-
fólk einskonar helgiljóma, —
það æskufólk, sem fordæmir
leiðindi og lágkúruskap og
kærir sig kollóttan um hina
glötuðu paradís heimsveldis-
ins. Brezka fánann sem stóð í
forstofunni í íbúð hennar í
London hefur hún ákveðið að
nota sem gluggatjöld fyrir
gestaherbergið sitt.
Julie Christie hefur ekki
alltaf verið svo vel sett að
hún hefði gestaherbergi — og
sú var tíðin að hún hafði ekki
einu sinni svefnherbergi, held
ur þvældist um London með
vindsæng á herðunum og bjó
um sig á kvöldin þar sem vin-
ir hennar léðu henni gólf-
pláss. Nú deilir hún íbúð í
West Kensington með tveim
vinum sínum, listamönnum,
ketti sem kallaður er „Hvutti“
átta tístandi spörfuglum og
tveimur pálmatrjám. Annar
vinanna er lagleg dökkhærð
stúlka, Nicky Croke, sem vinn
ur í auglýsingadeild útgáfu-
fyrirtækis. Hinn er Don Bess-
Leikstjórinn og aðalleikkon-
urnar í Dr. Zhivogo, Gerald-
ine Chaplin, David Lean og
Julie.
ant, 24 ára litógraf, sem nú
kennir við listaháskóla. Þau
kynntust, er hann vann fyrir
sér með póstburði og færði
henni bréf dag einn og hafa
um hríð búið saman í því,
sem Julie kallar „sérstakt
samband“. Hún er þeirrar
skoðunar að til þess að vera
í hjónabandi þurfi sérstaka
hæfileika,’ alveg eins og til
þess að semja tónlis-t eða
skrifa skáldsögu og segir:
i.Ég er sannfærð um að ég er
ekki gæd-d þeim hæfileikum."
Julie biður engrar afsökun-
ar á frjálsræði sínu. Hún er
eins og spörfuglarnir, flökt-
andi í lífsgleði sinni. Don seg
ir að varla sé hægt að ná af
henni óhreyfðri mynd vegna
þess að munnur hennar og
hendur eru á stöðugri hreyf-
ingu. Ýmist er hún að toga
í sítt hárið á sér, eða fitla við
hina og þessa hluti í íbúðinni,
þar sem steinprentmyndir
Bessants hanga á veggjunum,
örsmá blá lyfjaglös og gaml-
ar klukkur standa á hillum og
borðum. í svefniherberginu
eru hinsvegar brún og rauð
blómamynstur á öllum veggj-
um, og gluggatjöldum, og
smelltar smámyndir af fjöl-
skyldum þeirra Julie og Don
hanga á veggjunum hjá stóru
himinsænginni.
Julie er stundum ákaflega
heimakær. Þá hreiðrar hún
um sig í góðum stól og talar
og talar, stóreygð og nagandi
á sér neglurnar. En þegar hún
talar í síma stikar hún fram
og aftur eins og ljón í búri og
þyrlar hárinu í allar áttir.
Framhald á bls. 13.
Fjögur andlit Julie. Hörkulegt, geislandi, kátt, viðutan.