Morgunblaðið - 23.01.1966, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 23.01.1966, Blaðsíða 15
Simnuðagur 23. janúar 1966 MORGU NBLAÐIÐ 15 j stuttu máli Farís, 20. jánúar — NTB — Franskur dómari gaf út til- skipun um, að innanríkisráð- herra Marokkó, Mohammed Oufkir, skuli handtekinn, hvar sem til 'hans næst. Nær handtökutilskipanin einnig til yfirmanns öryggislögreglu Marokkó, Mohammed Dlimi. Tilskipanin gildir í öllum þeim löndum, sem samið hafa við frönsku stjórnina um af- hendingu glæpamanna. Mönnunum tveimur er gef- ið að sök að hafa rænt mar- okkanska andspyrnuforingj- anum Mehdi Ben Barka, sem hvarf í París 29. október í fyrra. Bæði Oufkir og Dlimi voru í París um þær mundir, er mannránið átti sér stað, og er talið víst, að þeir hafi að því staðið. Tokyo, 20. janúar — NTB — Er loftferðasamningur sá, sem Japan og Sovétríkin hafa gert með sér, gengur í gildi, mun flugtíminn frá Ev- rópu til Tokyo verða um tólf stundum styttri, en verið hef ur. Jafnframt mun verð á far- miðum á þessari leið lækka allverulega, eða um 10.000 ísl. kr. 7 dra fangelsi fyrir morð Sovézkur herréttur hefur dæmt Gennadi Veronin í 7 ára fangelsi fyrir morðið á konu sinni, skautadrottningunni heimsfrægu Ingu Veronin. Gennadi Veronin, sem áður var kunnur spretthlaupari á skautum, er liðsforingi í Rauða hernum en einnig starfandi sem þjálfari fyrir landsliðskepp endur. — Leikdómur Framhald af bls. 21 systranna (sem eiga aðeins að sjást í öðrum þætti) standa svo þétt hlið við hlið, að áhorfandinn fær á tilfinninguna að herbergi þeirra séu klefar af allra minnstu gerð. Enn bagalegri verður þó út- koman í þriðja þætti, sem á að gerast úti á veröndinni, því hróp og bægslagangur þeirra Adelu og Martirio eiga ekki að heyrast inn í herbergi hinna systranna, en það ofbýður satt að segja trú- girni áhorfenda eins og leikmynd inni er fyrir komið. Mér er ljóst að ilit er við þessu að gera á svið inu í Iðnó, og vissulega er hér um minniháttar agnúa að ræða, en þeir trufla samt heildaráhrif- in jDar sem þeir rjúfa „blekking- una“. Þessi vandkvæði hafa eennilega ráðið því, að stofan var dekkri en ráð er fyrir gert, sem átti prýðilega við þriðja þátt. En í fyrri þáttunum á hvíti liturinn að vera allsráðandi, bæði til að undirstrika sumarhitann og eyði- leik lífsins í hinni „kölkuðu gröf“. Þýðing Einars Braga Sigurðs- sonar er á mergjuðu og mynd- ríku máli, sem virtist vera leik- endum munntamt, en mér fannst hún stundum nokkuð „vönduð" í þeim skilningi að hann leggur griðkonunum, einkum þó Ponsiu, á tungu klassískt mál sem kemur illa heim við þjóðfélagsstöðu þeirra. Að vísu talar alþýðufólk Suðurlanda einatt ákaflega mynd ríkt mál, enda kemur það greini- lega fram hjá Lorca en það er tæplega eins bóklegt og tungu- takið sem þýðandinn hefur valið. Sigurður A. Magnússon. SCANIA-VABIS 6-cyI. 25S h.p. DIN L76S io_l2 tonn LS76S 14—15 tonn LB76S 11—12 tonn LBS76S 15 tonn LT76S 15 tonn Jjj JEX —jg ao|HHBocr 6-cyI. 195 h.p. DIN ■ íBh i0 L76 LS7« LB76 LBS76 DL76 10 12 tomn 14—15 tonn ' 11—12 tonn 15 tonn 10 tonn I rnfl & M fn^—1 -o 1 >oo“ cr rV^ocr 6-cyI. 145 h.p. DIN ■Shl rtl§! L56 LS56 LG6 8 tonn H tonn io tonn A.T.H. Allar gerðir af SCANIA- j ^VABIS vörubifreiðum W|mu0- er hæS* að fá 2,35 m 4-cyl. 130 h.p. DIN L3SS 6—7 tonn g|Í|y VÖIíUBIFREIÐASTJÓRAR kynnið yður SCANIA-VABIS gffPPBP bifreiðir. — Hafið samband við okkur, við veitum yður allar upplýsingar um SCANIA-VABIS bifreiðir. 4-cyt. 102. h.p. DIN L33 6—7 tonn SCANIA sparar allt nema aflið. ÍSARIM HF. Klapparstíg 27, Reykjavík — Sími 20720. CUDO NY 00 BETRIÞJOIUUSTA 1. Lægri verð vegna gagngerrar endur- skipulagningar. 2. Áreiðanlegur afgreiðslutími. 3. Vér erum ætíð reiðubúnir til að veita allar upplýsingar. CUDO-gler Skúlagötu 26 — Símar: 12056, 20456.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.