Morgunblaðið - 19.02.1966, Page 16

Morgunblaðið - 19.02.1966, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ Laugardagur 19. febrúar 19 Theódór Siemsen kaup- maður — Minningarorð 1 dag er til hinztu hvíldar hor- ] inn Theódór Siemsen kaup- maður. Hverfur þar sjónum gamalgróinn og góðkunnur Reyk ‘ víkingur. — Hann átti til reyk- vískra ætta að telja: Móðir hans var Þórunn ctóttir Árna land- fógeta Thorsteinsson, sonar Bjarna stiptamtmanns að Stapa, sem títt var nefndur ,,blindi amt- maðurinn“. En Árni landfógeti var svo sem kunnugt er einn meðal þeirra, sem lagði gjörva hönd á að hiaða grunnsteinana að höfuðborg okkar, ýta úr vör hugmyndum um skólahald og sjúkrahús og prýða borgina trjá- lundum og fögrum blómum. Soffía kona Árna var hinsvegar komin af þeim reykvískum, sem áttu þátt í að færa verzlun höfuð- staðarins í tízkulegra form í ís- lenzkum höndum. En fleiri rætur standa að hverjum stofni. Faðir Theódórs, Franz Eduart Siemsen, sýslu- maður í Gullbringu- og Kjósar- sýslu, var að vísu að öðrum þætti úr Reykjavík, þar eð móðir hans, Sigríður dóttir Þorsteins pólitís Bjarnasonar, var barnfæddur Reykvíkingur, en hins vegar var faðir hans, Eduvard Siemsen, kaupmaður og konsúll, Slésvík- ingur eða Holtseti, kominn af kaupmönnum og kapteinum, sem hingað leituðu og tóku sér ból- festu á síðustu öld. Theódór Siemsen fæddist í Hafnarfirði 7. dag nóvembermán- eðar árið 1890, f jórða bam sýslu- mannshjónanna Þórunnar og Franz Siemsen. Sex ára fluttist hann með for- eldrum sínum til Reykjavíkur laust fyrir aldamót. Hann ólst upp og lifði sína bernskudaga í hjarta Reykjavíkur, því að fyrst grunduðu foreldrar hans sitt heimili við Vesturgötu og síðar var flutt í Melsteðshús í Mið- bænum og að lokum í Þingholt- in, að Ingólfsstræti 5, þar sem foreldrar hans bjuggu lengst af og nú stendur stórhýsi Haraldar Árnasonar. Afi minn, Franz, embættislaus og auralítill kominn til Reykja- vikur, setti synina tvo snemma til vinnu. Theódór varð sendili í Duus-búð. Sú búð H.P. Ðuus stóð þá, þar sem nú er Geysis- verzlun. En deildirnar hjá Duus voru svo sem kunnugt er fleiri og ein meðal annarra í Bryggju- húsinu, þar sem heildverzlun „Nathan & Olsen" er nú tU húsa. Theódór Siemsen forframaðist fljótt hjá Duus, varð skjótlega afgreiðslumaður og stóð „fyrir innan disk“, en það átti hann eftir að gera í hálfa öld. — Duus- verzlun hafði góðan varning á boðstólnum og fékk Theódór þar sína fyrstu vöruþekkingu. — Samtimis sótti hann kvöldnám- skeið í Verzlunarskólanum og lærði þar smálegt í bókhaldi og fleiru. — í tómstudum iðkaði hann útiveru, var einn af svo- nefndum skátahreyfingarinnar hér á landi og kappsamur áhuga- xnaður í knattspymufélaginu „Fram“, þegar það tók til starfa. Theódór vann á fjórða ár hjá Duus-verzlun, en þá vidi hann fara í framhaldsnám, því að varzlun var þá með svipuðum hætti og iðnnám nú, hver full- gildur verzlunarþjónn skyldi hafa lokið fjögurra ára verzlun- arnámi. Árni bróðir hans hafði áður haldið til Þýzkalands og marga ættingja átti Theódór þar í landi, svo að þangað stefndi hugur eðlilega til framhaldsnáms. Varð og úr, að hann fór til Slés- vikur. En áður en varði skall heimssstyrjöldin fyrri á, og hús- bóndi hans var.kvaddur til her- skyldu, og var honum þá falin stjórn verzlunra hans. Því starfi gegndi hann i ein tvö ár, en þá flutti hann til Lúbeck, gömlu Hansa-borgarinnar, sem bróðir hans bjó i. Gerðist Theódór þar sölumaður og víðsreisti um Þýzka- land og Norðurlönd flest. Ásamt atvinnu sinni gegndi Theódór á ófriðarárunum fynri og þegn- j skaparvinnu hjá Rauða krossi Þýzkalands. Var það verkefni deildar þeirrar, er hann stýrði, að taka á móti sjúkralestum, sem heim fluttu særða hermenn af vígvöllum og koma þeim til síns heima eða á sjúkrahús. Þetta var erfitt og dapurlegt starf, sem ég held að hafi markað hans við- kvæmu skapgerð allvaranlega. Að stríðinu loknu tók hann sig upp og hélt heim til íslands árið 1919. Réðst hann þá í Liverpool- verzlun, sem Magnús Kjaran, mágur hans, átti þá að hluta. — Sagt hefur Theódór, að það hafi þá tekið sig tvö ár að jafna sig eftir stríðssultinn. En ekki vildi hann ílengjast á íslandi að svo komnu og fór aft- ur til Þýzkalands og að þessu sinni til Lúbeck. Og enn gekk hann til verzlunarstarfa. Árið 1929 festi hann ráð sitt og kvongaðist Weru konu sinni, dóttur Gustave Scheteligs verk- fræðings, sem skyldur var þeim hinum norsku Scheteligum, sem sumum íslendingum eru kunnir. Eignuðust þau hjón tvö böm, Gustav Magnús, stýrimann, og Hildu Lis, sem bæði eru gift og búsett hér í borg. Árið 1929 sigldi hann svo til ís lands ásamt konu sinni og þá alfarinn heim. Föður mínum hafði þá verið falin framkvæmda stjóm undirbúningsnefndar Ál- þingishátíðarinnar, og tók mágur hans Theódór við stjórn verzlun- ar hans. Veitti Theódór „Liver- pool“ forstöðu um 10 ára skeið, unz verzlunin var seld. Sjálfur stofnsetti hann svo eigin verzlun, er hann rak fram á síðastliðið haust. Theódór er að minnsta kosti eldri Reykvíkingum svo kunnur að óþarft er að lýsa honum með mörgum orðum. Hann var talinn fríður maður, lipurmenni var hann mikið, glað- lyndur og að eðlisfari óáreitinn. Hann kunni vel til sinna starfa og var sérlega vandaður og sam- vizkusamur maður. Hann varð aldrei auðugur á fjármuni, en sparsamur þó og nýtinn, og kunni þá list að skapa sér jafnan fallegt umhverfi, hvort heldur var heima fyrir eða á vinnustað, enda naut hann á báðum vettvöngum stuðn- ings sérlega vænnar og sam- hentrar eiginkonu. Víst var hann líka þess vegna öðrum fremur heimiliskær maður. Hann var kaupmaður af lífi og sál í beztá skilningi, því að hann hafði ánægju af að handleika og selja góðar og vandaðar vörur. Hans var ekki að standa í stórræðum, og verður trúlega ekki talinn til þeirra, sem setja svip á samtíð sína, en hann var engu að síður góður, reykvískur borgari, nýtur þegn lítils þjóðfélags, sem skip- aði svikalaust sinn sess og skilaði dagsverki drjúgu, þótt ekki verði skráðar langar sögur af. Okkur skyldfólki sínu var hann elskulegur og ljúfur frændi, og við eigum öll um hann aðeins kærar minningar. Því eru þær asmúðarkveðjur, er ég vil nú flytja Weru ekkju hans, börrnun og tengdabörnum fyrir hönd frændliðsins sagðar af einlægum hug. Theódór Siemsen biðjum við öll blessunar og geymum um hann minningar hlýjar. Birgir Kjaran. Kðpavogsbúar og nágrenni Við viljum vekja athygli yðar á eftírfarandi! Höfum ávallt mjög fjölbreytt úrval af málningu og allskonar málningarvörum. — Einnig mun yður veitt sérstök þjónusta af fagmönnum á noktun málningar og málmngarvörum og einnig munum við blanda Iitum fyrir yður eftir óskum. □----------------□ Eftirtaldar vörur höfum við einnig: Mosaik á veggi og gólf. — Einnig vegg og gólf- flísar í úrvali. Veggfóður allskonar í úrvali, Tré, gúmmí, gólf- dúka og hljóðeinangrunarlím. Allskonar vei-kfæri. — Allskonar heimilisvörur, svo sem gólfmottur og fl. Sérstaka áherzlu viljum við leggja á mjög fjöl- brcytt úrval af leikföngum fyrir börn og unglinga. Gjörið svo vel og reynið viðskiptin. Sendum heim. Verzlunin Litaval Álfhólsvegi 9, Kópavogi, við hliðina á Kópavogsapóteki — Sími 41585. Geymið auglýsinguna. Einar Axeisson kaup- maður — Minning F. 14/2 1922. — D. 10/2 1966. KVEÐJA FRÁ SYSTKINUM Lag: Ó, þá náð að eiga Jesú. Hjartkær bróðir, horfinn ertu, hugljúf vakir minning þín. Lítum við um liðna daga, 1 jós í hverju spori skín. Allt, frá fyrstu æsku dögum er við mömmu og pabba hjá, undum saman, ástúð vafin, unaðsríkt var lífið þá. Tímar liðu. Leiðir skildu, lífið færði bros og tár. En þin tryggð og ástúð sanna, ætíð söm var daga og ár. Gæði þín í gleði og þrautum, góðum bróður lýsa bezt. Þess skal minnst, hvað þú varst okkur, þegar reyndi á drengskap mest. Hér er margt að muna og þakka, minnast börnin okkar nú. Einnig þess, hve allt hið bezta, ávallt, frændi veittir þú. Öll við færum innilega, ástarþökk, sem fegurst skín. Býr hjá okkur, bróðir kæri, björt og elskuð minning þín. Aðalfundur kvenna- deildar Slysavarnafél. AÐALFUNDUR' kvennadeildar Siysavamafélagsins í Reyhjavík var haldinn mámudaginn 7. febr- úar 1966. Stjórnin var öll endurkosin. Hana skipa: Formaður: Gróa Fétursdóttir. Gjaldkeri: Hlíf Helgadóttix. Ritari: Eygló Gísladóttir. Meðstjórnendur: Ingibjörg Pét- ursdóttir, Guðrún Magnúsdóttir, Guðrún Ólafsdóttir, Steinunn Guðmundsdóttir, Sigríður Ein- arsdóttir og Þórhildur Ólafsdótt- ir. Emdurskoðendur: Elín Guðna- dóttir og Óla-fía Áradóttir. Tillag deildarinar á þessu ári til S.V.F.Í. eru kr. 536.912.52, sem er % hlutar af ágóða deild- arinnar. Sarmþykkt var á fumdinum að gefa kr. 30.000.00 til Björgunar- sveitar Ingólfs til kaupa á sjú’kra börum í sjúkrabifreið er S.V.F.Í. og S.V.D. Ingólfis í Reykjavdk hafa fest kaup á. Kvennadeild S.V.F.Í. í Reykja vík, vill við þetta tækifæri þakka hjartanlega öllum þeim, er veitt hafa deildinni stuðning á liðnu ári. Á aðalfundi deildarinnar mætti forseti S.V.F.Í., Gunnar Friðriksson og ræddi um nýaf- staðna umferðarráðstefnu er haldin var í Reykjavík 22. og 23. janúar sl. Urðu allmiklar um- ræður um slysavarnir í umferð og starf félagsins í þeiim málum, og var í lok fundarins samþylkkt eftirfarandi tillaga: Aðalfundur kvennadeildar S.V.F.Í. í Reykjavík lýsir stuðn- ingi sínum við þá stefnu stjómar S.V.F.Í. að gerast ekki aðili á þessu stigi málsins, að þeirn sam tökum, er Tryggingarfélögin hafa beitt sér fyrir að stofnuð yrðu. Fundurinn fagnar af heilum hug þeim áhuga, sem fram hefur komið um auknar slysavarnir I umferðarmálum og fagnar þeim aðilum er ganga vilja til sam- starfs við S.V.F.Í. í þessu mikla baráttumáli félagsins um ára raðir. Fundurinn telur eðlilegast, að mál þetta verði tekið fyrir á 13. landsiþingi S.V.F.Í. á vori kom- anda, og þá tekin endanleg af- staða til þess. Nýlega banst kvennadeildinni í Reykjavik kr. 10.000.00 að gjöf frá Georg Jónassyni, ættuð- um frá Isafirði. Gjöfin er til minningar um foreldra hans Hildi Sigurðardóttur og Jónas Sigurðsson og þrjá bræður hans er dóu ungir. Fyrir þessa góðu gjöf, þakkar deildin innilega. 537.4 tonna nfli c Hornnfirði Hornafirði, 17. ’ febrúar. FIMM bátar stunda nú línu- veiðar frá Hornafirði. í janúar- mánuði voru aðeins farnar 37 sjóferðir og var heildaraflinn 247.4 tonn. Fyrrihluta febrúar hafa bát- arnir farið 35 sjóferðir og er afli þeirra á þeim tíma 289.9 tonn. Alls hafa bátarnir farið frá áramótum í 72 sjóferðir og aflað 537.4 tonn. Aflahæsti báturinn er Hvann- ey með 135.1 tonn í 16 sjóferð- um, Gissur hvíti með 122.5 tonn í 17 sjóferðum og Sigurfari með 111 ° ♦nnn í 16 sjóferðum. 3-4 herbergja íbúð með eða án húsgagna óskast í 1 ár fyrir erlendan sérfræðing frá júní — júlí 1966 til hausts 1967. Tilboð merkt: „Sérfræðingur óskast send til af- greiðslu Morgunblaðsins fyrir 20. janúar n.k.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.